Morgunblaðið - 26.11.1935, Síða 5
T>riðjudaginn 26. nóv. 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
*9|)lttlltllllllllllllllllllIIIllllIIIIItlllIIIIIIIII1111111111111111111111111111111111111111IIlllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIlllllllllllllllllllllllIIIII
Úr daglega lífinu:
Samtal við sfra
Árna Sigurðsson,
fríkirkjuprest.
Síra Árni Sigurðsson.
— Hvað ei- kirkjan og hvað er
;guð, frá sjónarmiði ungu prest-
anna? spyrjum vjer síra Árna
'Sigurðsson.
„Je'g get aðeins svarað fyrir
mig. Hvað guð er í trú kristinna
manna, tékur fyrsta grein trúar-
játningarinnar skýrt fram, og
hana kunna víst allir. Jeg get
■ekki 'lýWt guðshugmynd minni
öðruvísi eða betur en þar er gert
i fáum orðum. Að öðru leyti lýs-
um vjer prestar á hverjum sunnu-
degi guðshugmynd vorri í kirkj-
unum. Þeir, se‘m vilja vita nánar
iim guð frá sjónarmiði kristinn-
-ar kenningar, eru hjartanlega vel-
komnir í kirkju á hverjum sunnu-
degi.
— Hváð er kirkja? Hún er fyrst
■og fremst samfjelag þeirra, sem
trúa á guð fyrir orð Krists. Hin
sanna kirkja er samfjelag trvi-
aðra. Sem ytri stofnun telur kirkj-
an: innan sinna vje'bánda alla, sem
skírðir eru að kristnum sið. En
'kirkjan er í eðli sínu víðfaðma
eins og elska guðs. Hún býður til
-sín öllum, eins og Kristur gerði.
Bænin hefir verið hjálp
mín á úrslitastundum.
— Trúið þjer á mátt bænar-
ánnar ?
— Þessi spurning lætur mjer
• dálítið einkennilega í - eyrum.
'Fyrst og fremst vegna þess, að
■ef jeg hefði ekki reynt mátt bæn-
.arinnar sjálfur, væri jeg ekki
neitt. Bænin hefir verið hjálp
mín á úrslitastundum ævinnar
•og meginstyrkur í öllum örðug-
leikum starfs míns. Og* jeg hefi
sjeð mátt bænarinnar í lífi
fjölda annara manna. Það, sem
jeg hefi bæði reynt og sjeð, et
mjer ekki aðeins trú, heldur vissa.
Æskan. og trúmálin.
— Hver er afstaða æskunnar í
landinu til kirkjunnar?
— Allir, sem þekkja sögu
kristinnar kirkju, vita, að æskan
hefir löngum látið hinum eldri
það eftir, að vinna að andlegum
•málum. Heiinar hugur og hjarta
-snýr einkum að þessari veröld,
fegurð liennar og fjölbreytni. Á-
hugi liennar beinist að hinu ytra
lífi fram eftir aldri. Jafnvel trú-
arliæfileiki hennar beinist fyrst
framan af að því, að trúa og
vona á betra og bjartara líf á
þessari jörð, en nú er.
Hlýtur kristin kirkja að eiga
fulla samleið með æskunni í því
efni, því að eitt af hlutverkum
kristinnar kirkju hlýtur að vera
það, að skapajbörnum guðs mann
sæmilegt líf á jörðinni. — Æsk-
unni hjer á landi er stundum bor-
ið það á brýn, að hún sj eandstæð
kristinni kirkju. En jeg veit, að
svo er ekki alment. Hinsvegar
er vir vissum áttum reynt að gera
æskuna fráhve’rfa kirkjunni, eða
telja henni trú um, að hún sje
það og hljóti að vera það. En
þessi viðleitni bel* engan varan-
legan ávöxt. Þegar aldur og lífs-
reynsla vex, verður þrá manns-
andans eftir guði og ódauðlegu
lífi að fá fullnægju. Og þá sjer
æskan og skilur, að enginn er
slíkur leiðtogi sem Kristur. Hann
fullnægir hinni eilífu þrá. Og
æskan fylkir sjer smátt og smátt
undir merki hans.
—- Fylgja trúleysisstefnnrnar í
landinu nokkuð sjerstökum póli-
tískum flokkum innan þjóðfje-
lagsins!
— Innan allra stjórnmálaflokka
eru bæði' trúaðir og vantrúaðir,
enda snýr kirkjan sjer jafnt til
allra, býður öllum leiðsögn sína,
og væntir samstarfs allra. Hins-
vegar er það alkunna, að opin-
berar árásir, se'm gerðar hafa ver-
ið og eru á kirkju, guðsþjónustu-
hald, prestastjett, á einstaka
presta persónplega, og á trúar-
brögðin yfirleitt, hafa einkum
komið frá nokkrum þeirra rit-
höfunda, sem kalla sig ,,róttæka“.
En jafn kunnugt er mjer hitt, að
fjöldi manna, sem telja sig rót-
tæka í stjómmálaskoðunum,
kunna þessum rithöfundum e'ngar
þakkir fyrir kirkju- og kristin-
dómsfjandskap þeirra, og fara
um hann hörðum orðum við tæki-
færi. Rithöfundar þe'ssir tala því
ekki í nafni neins þess stjórnmála-
flokks, sem tekið er mark á í
landsmálum.
Menn af öllum flokkum
sækja kirkju.
— Koma í kirkju menn af öll-
um flokkum, einnig líommúnistar ?
— Já, eftir því seta jeg best
veit, koma allra flokka menn í
kirkju. Og mjer er ánægja að
taka það fram, að kirkjulegur
áhugi manna í mínum söfnuði,
fer ekki eftir neinum flokkamörk-
um.
— Skyldi unga fólkið, sem
darrsar á Hótel Borg á kvöldin,
sæltja kirkjurnar mikið?
— Jeg þekki að vísu ekki neitt
sjerstakle'ga þennan hluta unga
Þar eð verkfallið er búið,
er nú tebið á móti pðntunum á hús-
gögnum, til afgreiðslu eftir nýár.
Arni §kúlason,
Mjóstræti 6. — Sími 3588.
fólksins. En sennilegt þykir mjer,
að það sæki ekki kirkjur fyr en
það fer að fá leiða á Hótel Borg*
og öðrum þess háttar stöðum.
Kirkjugöngur og setur á gilda-
skálum samrýmast illa.
Ungu mönnunum finst presta
stjettin vera vanmetin — og
vilja ekki vera prestær.
— Hvers vegna vilja svo fáir
ungir menn verða prestar?
— Jeg skil það ekki vel, svo
veglegt sem prestsstarfið er,
margbreytilegt og þroskandi, og
auðugt af tækifærum til að ve*rða
öðrum að gagni. Sennilega finst
ungu mönnunum svo illa biiið að
þessari starfsmannastjett þjóðfje-
lagsins, og hún í alla staði van-
metin. Annars treysti jeg mjer
eklti að svara þessari spurningu
frekar að svo komnu,
— Mundu trúvakningastefnur
meðal stúdenta og mentamanna
geta breytt þessu?
— Já, mjög líklega, ef dæma
mætti eftir áhrifum Oxford-
hreyfingarinnar á Englandi og
Norðurlöndum.
Of fáir prestar í Reykja-
vík.
— Hvernig er að veT’a prestur
hjer í Reykjavík?
— Það hefir marga ágæta
kosti. En starfið er löngu orðið
ofurefli þeirra þriggja manna, sem
ætlað er að vinna það. Hjer þarf
nýja hreyfingu, fleiri kirkjur og
presta,- meira leikmannastarf.
— Hvernig eT* samvinnan við
hina prestana í bænum?
— Hún er ágæt, enda er ekki
unt að hugsa sjer betri samverke-
menn.
Svipleg slys.
— Hvað er örðugast í prests-
starfinu hjer?
— Það eru slysin sviplegu og
hörmulegu, sem pre'stunum er
ætlað að tilkynna, og önnur sorg-
arreynsla mannanna, sem prestum
er ætlað að hafa afskifti af.
— Hvaða prestsverk er v5ur
hugþekkast að inna af hendi?
Líklega giftingar?
— Öll prestsverk eru hugþekk,
en þó einkum skírn, ungbarna og
gifting hamingjusamra brvið-
hjóna. En hvergi hefi jeg átt
varanlegri ánægjustundir, en í
undirbúningstímum með ferm-
ingarbörnum mínum.
Jeg segi börnum að biblían
kenni ekki náttúrufræði.
— Talið þjer nokkurn tíma um
sköpunarsöguna við fermingar-
börnin?
— Auðvitað. Um leið og jeg
segi þeim að biblían sje ekki
uiðarskellir
eru plága í öllum byggingum. Látið því setja
D Ö F í hv.erjar dyr. - Hringið í síma 3232.
kenslubók í náttúrufræði, og
minnist á he'lstu tilgátur vísind-
anna um uppruna heimsins og líf-
tegundanna á jörðinni, legg jeg
áherslu á þann sannleika, sem
hin gamla sköpunarsaga flytur,
og eltki breytist, að alt á upp-
runa sinn í almættisorði skapar-
ans.
— Hvað mundi vera kristin-
dómi í landinu mest hjálp?
— Af mörgu, sem telja mætti,
vil jeg nefna eitt: Einlæga og
hugheila samvinnu milli kirkj-
unnar og kennarastjettarinnar.
— Hvað vilduð þjer láta ein-
kenna starf yðar og presta yfir-
leitt?
— Það sem Páll postuli segir:
Ekki svo sem vjer drotnum yf-
ir trú yðar, heldur erum vje*r
samverkamenn að gleði yðar“.
S. B.
Einn ;af morðingjum
rússnesku keisaraf jölskyldunn-
ar deyr voveiflega.
er lang f jölbrey 11-
asta og áreiðan-
legasta frjetta-
blaðið.
Nýir kaupendur fá blaðið
ókeypis til næstkomandi
mánaðamóta.
___________________________________________________________________Hringið í síma 1600
Hjólreiðamenn! kanpið nnjókeðjnr á relffhfól ykkar fi QBTÍSt KðUPGPdUri
veiðarfæraversluniniil (1EYSIR.
Um miðjan október var yfir-
maður tjekunnar (G. P. U.) í
Moskva að aka í opnum bíl
utan við borgina. Hann hjet
Vladimir Jakovlev og var einn
af mönnum þeim, sem myrtu
rússnesku keisarafjölskylduna.
Bíllinn ók með fullri ferð á
trje við veginn og kviknaði I
samstundis í honum. Jakovlev
hafði rotast við áreksturinn og
brann hann til ösku í bílnum.
Bílstjórinn slapp lítt meidd-
ur. Hann var tekinn fastur ^og
ákærður fyrir það, að hafa ■
ekið viljandi á trjeð.
Jakovlev var einn af þeim,
sem myrtu rússnesku keisara-
fjölskylduna.
2ja turna silturplett.
!Matskeiðar, 6 gerðir frá 1,85
Matgafflar 6 gerðir frá * 1,85
Desertslceiðar, 6 ge'rðir frá 1,75
Desertgafflar, 6 gerðir frá 1,50
Teskeiðar, 3 gerðir frá 0,50
Mathnífar, 3 gerðir frá 6,50
Sultuskeiðar, 5 teg. 1,75
| Áleggsgafflar, 6 gerðir frá 2,00'
Kökugafflar, 6 gerðir frá 2,00
Kökuspaðar, 4 gerðir frá 2,50
Ávaxtaskeiðar, 6 ge'vSir frá 4,50
| Sósuskeiðar, 4 gerðir frá 4,65 *
Rjómaskeiðar, 5 gerðir frá 2,65
Konfektskeiðar, 3 gerðir frá 3,00
I Tertuspaðar, 3 gerðir .frá 4,50
Súpuskeiðar, 4 gerðir frá 17,40
Fiskspaðar, 3 gerðir frá 12,00
Sardínugafflar, 3 gerðir frá 3,00
Ávaxtahnífar, 2 gerðir frá 3,50
Serviettuhringar, 2 gerðir frá 2,50
Vasar — Skálar — Kökndiskar.
Kertastjakar — Skrýn — Raf-
lampar — Kaffistell og fleira.
K. Einarsson
& Bjðrnsson.
HIHmiUHtmiHflWHWIMWMIMIMIHHI
••MifiiiiHMtiMitiitiiiimiMimitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimim