Morgunblaðið - 27.11.1935, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 27. nóv. 1935
MORGUNBLAÐIÐ
A»>
7
£
Fundur
í kvöld, í Kaupþingssalnum,
kl. 8*4.
Á dagskrá:
Ýms fjelagsmál.
Inntaka nýrra fjelaga.
Bkemtifundur og fleira.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Qagbok.,
Veðrið í gær. Lægðin sem var
við N-strönd íslands í gær, er nú
milli íslands og Noregs og veldur
NV-og N-átt um alt land, með alt
að 5 st. frosti. Vindur hefir víða
verið allhvass í dag og sumstaðar
hvass, eú er nú að verða hægari
vestanlands. Suðaustanlands er
veður þurt og bjart, en snjójel á
N- og V-landi. Suðvestur í hafi
er ný og kraftmikil lægð, sem virð-
ist nálgast landið með allmiklum
hraða. Má því búast við A- eða
SA-átt hjer á landi á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: Vax-
andi SA- eða A-átt með úrkomu,
þegar líður á daginn.
Músíkklúbburinn heldur 11.
hljómleika sína í kvöld að Hótel
ísland.. Þeir, sem hafa rauð kort,
panti borð fyrir hádegi. En eftir
þann tíma er fjelagsmönnum með
gul kort jafn heimill aðgangur.
Kongulóin hafði Cabarettsýn-
ingu í Oddfellow-húsinu s. 1.
sunnudag og þótti hún takast vel.
Einna me'st mun mönnum hafa
fundist til um litla liarmóniku-
anillinginn, og dans Helene Jóns-
son og' Egild Carlsen’s, sem var
ágætur. Auk þess komu þar fram
margir ágætir listamenn, ungir og
gamlir. Að lokum var tískusýning
frá tískuversluninni „Ninon“. Mun
þeirrar sýningar vera getið hjer
í blaðinu sjerstaklega síðar.
Germania. Sketatifund heldur
fjelagið Germania í Oddfellow-
húsinu annað kvöld, 28. þ. m. —
Þýski sendikennarinn Dr. Iwan
heldur fyrirlestur um Wagner og
Pjetur Jónsson óperusöngvari
syngur lög eftir tónskáldið. Síðan
verður stíginn dans fram eftir
nóttu.
Hjónaefni. Síðastliðinn laugar-
dag opinberuðu trúlofun sína,
Oddbjörg Eiríksdóttir, Barónsstíg
10 og Óskar Árnason, Bergstaða-
stræti 31.
Eimskip. Gullfoss er í Reykja-
vík. Goðafoss fer vestur og norð-
ur í kvöld, aukahafnir Önundar-
fjörður og Hesteyri. Brúarfoss fór
frá Kaupmannahöfn í gær áleiðis
til Leith. Dettifoss kom til Hull í
gærmorgun. Lagarfoss var á Hofs-
ós í gær. Selfoss er í Gautaborg.
Hvidbjörnen, danska varðskipið
fór í gærmorgun áleiðis til Kaup-
mannahafnar.
Varðbáturinn Vífill fór í eftir-
litsferð í fyrrakvöld.
ísfisksölur. Rán seldi 960 vættir
af ísfiski í Grimsby í fyrradag
fyrir 860 stpd. Tryggvi gamli
seldi 696 vættir fyrir 922 stpd. og
Gullfoss se'ldi í North Shields 464
vættir fyrir 375. stpd.
K. F. U. M. og K. Munið sam-
komuna í kvöld kl. 8Vs>. Stud.
theol. Gunnar Sigurjónsson talar.
Allir velkomnir.
50 ára verður á morgun, 28.
nóv. frú Þórunn Gunnarsdóttir,
Njálsgötu 43 A.
Bruninn í „Rúllu og hleragerð-
inni“. Við rannsókn málsins sann-
aðist að eldurinn stafaði frá raf-
magni.
Innbrot. í fyrrinótt var brot-
ist inn í mjólkurbúð Samsölunnar
á Týsgötu 8 og stolið þar um 40
krónum í skiftimynt. Lítur út fyrir
að þjófurinn hafi komist inn um
glugga á hliðarherbergi og að
gluggin hafi verið opinn, eða að
i. insta kosti ókræktur. Skúffurn-
ar sem peningarnir voru geymdir í
voru ólokaðar.
Hjúskapur. Síðastliðinn laugar-
dag voru gefin saman í hjónaband
af síra Árna Sigurðssyni, ungfrú
Ásta Oddleifsdóttir, Bárugötu 14
og Þorsteinn Loftsson, Hauksholti.
Dánarfregn. Nýlega ljest á Norð
firði Þórður Jónssonf útgerðarmað-
ur. Hann lætur eftir sig konu og
2 börn.
Vörugjald til Sauðárkrókshrepps.
Samþykt var við 3. umr. í Nd. í
gær, frv. þeirra síra Sigfúsar
og Jóns á Reynistað um vöru-
gjald til Sauðárkrókshrepps, og
er frv. því nú komið’ til efri deild-
ar. Feldar voru allar framkomnar
breytingartillögur, þess efnis að
gera gjald þetta að almennum
gjaldstofni fyrir bæjar- og sveita-
fjelög.
íslenskt atvinnulíf frá hagfræði-
legu sjónarmiði, heitir fyrirlestur
sem Fil. lic. Erik Lundberg frá
Stokkhólmi flytur í Kaupþings-
salnum í kvöld kl. 8%. Fyrir-
lesturinn er haldinn í Norræna-
fjelaginu. Konsúlum Norðurlanda
og Alþingismönnum er boðið. Að-
gangur er ókeypis fyrir fjelags-
menn og gesti þeirra. — Fyrirles-
arinn mun einnig ræða um mögu-
leika fyrir auknu viðskiftasam-
bandi milli íslands og hinna
Norðurlandanna. Erik Lundberg
er sænskur hagfræðingur,
Sem í nokkra mánuði hefir
dvalið hjer á íslandi, sem ráðu-
nautur skipulagsnefndar í atvinnu
málum. Hefir hann áður lagt sjer-
staka stund á „planökonomi". —
Hefir meðal annars stundað skipu-
lagningu Roosevelts og er nú
starfsmaður Ríkisbankans sænska.
VeTður erindi hans án efa fróðlegt
því hann hefir kynt sjer íslenskt
atvinnulíf mjög vel.
Dráttarvextir. Morgunblaðið hef
ir verið beðið að vekja athygji
gjaldenda bæjarins á auglýsingu
bæjargjaldkera í blaðinu í dag
um dráttarvexti af útsvörum.
Til Strandarkirkju. Frá A. J.
30 kr., ónefndri konu 2 kr., ó-
nefndri í Hafnarfirði 5 kr., H. 5
kr., Gle'ymnum 2 kr.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Frá ónefndri konu á Vatnsleysu-
strönd 10 kr.
Útvarpið:
Miðvikudaagur 27. nóvember.
10,00 Veðurfre'gnir.
12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir."
19,20 Þingfrjettir.
19,45 Frjettir.
20,15 Erindi: Framtíð lífsins og
dauðans (dr. He'lgi Pjeturss).
20,40 Hljómplötur: Endurtekin
lög.
21,05 Erindi: Nýjungar í náttúru-
fræði (Árni Friðriksson nátt-
úrufr.).
21,30 Hljómplötur; a) Kvintett í
Es-dúr, eftir Beethoven; b) Lög,
leikin á celló.
22,00 Hljómplötur: Lög, leikin á
celló.
Rakarafjelag Reykjavíkur.
(Allar rakarastofur bæjarins)
hafa komið sjer saman um að lækka verð á drengjaklipp-
ingum innan 14 ára aldurs, úr kr. 1.50, niður í 1.25, klipp-
ing með topp 1.00. Dömuklippingar: Drengjakollur úr
kr. 1.60 niður í 1.50.
Stjórnin.
•:-x-:-x-x-x-:-:~x-x~x-x-:-:-x-x-x-x-x-:-x-:~x-x~x-:-x-x-x-x^fr^<
Hubayaí
Þeir, sem hafa gerst áskrifendur að Rubayat,
eftir Omar Khayyám, þýðingu Magnúsár
Ásgeirssonar, eru beðnir að vitja bókarinr.ar
á skrifstofu ísafoldarprentsmiðju fyrir lok
þessa mánaðar. Eftir þann tíma fer bókin í
bókaverslanir, og gildir áskriftarverðið þá
ekki. ■ III
k-x-x—:—:~x—x-:-:~:~:-:—:~:-x~x~x—:—:~:~:~:-X“X~x~x-:-:~:~:—:—:~:—:-:-x->
Breska þingið
kom saman
í gær.
Attlee kjörinn fór-
maður verkamanna-
flokksins.
Breska þingið kom saman í
dag til þess að kjósa sjer for-
seta. Endurkosningu hlaut Cap-
tain Fitzroy. Þingið verður ekki
formlega opnað fyr en næst-
komandi þriðjudag.
Verkamannaflokkurinn á
þingi kom saman til þess að
kjósa sjer formann, og hlaut
Attlee kosningu, en frjálslyndi
flokkurinn kaus sjer sem for-
mann á þingi Sir Archibald
Sinclair.
Þing Norður-írlands var sett
í Belfast í dag (FÚ-)-
Jólavarningurl
kemur nú með hverri
skipsferð,
Nú þegar fáanlegt:
Hnetur,
Konfekt-rúsínur,
Döðlur í pökkum,
Fíkjur,
Rúsínur í pk.
Sýróp,
Skrautsykur,
Púðusykur.
[Köflur og leggingar
Skattstiglmi, eins og rauöliöar vilja hafa liann.
Hjer fer á eftir skattstígi sá, sem rauðliðar komu sjer saman um í gær. — Til samanburðar er tekinn gamli
settur var með lögum frá 9. jan. 1935.
skattstiginn, sem
Af 1000 til 2000 kr. greiðist 10 kr. af 1000 kr. og
— 2000 — 3000 — — 30 — — 2000 — —
— 3000 — 4000 — — 80 3000 — —
— 4000 — 5000 — — 155 4000 — —
— 5000 — £000 — — 255 — _ 5000 — —
— 6000 — 7000 — — 405 6000 — -—
— 7000 — 8000 — — 605 — _ 7000 — —
— 8000 — 9000 — — 905 8000 — —
— 9000 — 10000 — — 1215 — — 9000 — —
— 10000 — 11000 — — 1530 — — 10000 — —
— 11000 — 12000 — — 1850 11000 — —
— 12000 — 13000 — — 2180 12000 — —
— 13000 — 14000 — — 2520 13000 — —
— 14000 — 15000 — — 2870 r— — 1400,0 — —
— 15000 — 16000 — — 3230 — — 15000 — —
— 16000 — 18000 — — 3600 — — 16000 — —
_ 18000 — 20000 — •— 4360 — — 18000 — —
_ 20000 — 22000 — —, 5140 — — 20000 — —
— 22000 — 24000 — •— ■ 5940 — — 22000 -— —
— 24000 — 26000 — — 6760 24000 — —
— 26000 — 28000 — — 7600 — _ 26000 — —
—x 28000 og þar yfir 8460 _ _ 28000 — —
2% af afg. áður
5%
7,5%
10%
15%
20%
30%
31%
31,5%
32%
33%
34%
35%
36%
37%
38%
39%
40%
41% ‘
42%
43%
44%
10 kr. af 1000 kr.
30------ 2000 —
70 — — 3000 —
140-------- 4000 —
230--------- 5000 —
340------- 6000 —
460--------- 7000 —
590------- 8000 —
730--------- 9000 —
880-------10000 —
1040--------11000 —
1210------12000 —
1390--------13000 —
1580--------14000 —
1780--------15000 —
og 2 % af afgangi
— 4% — —
_ 7 % _ —
— 9% — —
— 11% — —
— 12% — —
— 13% — —
— 14% — —
— 15% — —
— 16% — —
— 17% — —
— 18% — —
_ 19% _ _
— 20% — —
— 21% — —
— — Samkv. eldri skattstiganum greiddist af 28000
— -----33000 kr. 5270 af 28000 kr. og 33% af af-
— — gangi. Af 38000—44000 kr. greiddust 8670 kr.
— — af 38000 kr. og 37 % af afgangi. Af 50000 og
_ _ þar yfir greiddust 13200 kr. af 50000 og 40 %
— — af afgangi.
nýkomnar.
. * : ■’ '*V tiv*.
SkermabúQin,
Laugaveg 15.
Ný lifur og'jijörtu.
Nýreyktpiaiigikjöt.
Hafnarstræti 18. Sími 1575.
Saltkjöt
í heilum og hálfum og kvarttunli-
um og lausri vigt, frá bestu sauð-
fjárplássum landsins, Rjúpur
hangikjöt og margt fleira.
Jóhannes Jóhannsson,
Grundarstíg 2. Sími 4131.