Morgunblaðið - 22.02.1936, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 22.02.1936, Qupperneq 5
Laugardaginn 22. febr. 1936. MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ segir Madame TABOUIS? Frjettaritarinn, sem Ijóstar upp leynddrmálum stórveldanna. RÚ TABOUIS er nafn, sem hefir verið á allra vörum i sambandi við heimsmálin und- ■ anfarna mánuði. Verulega athygli vakti ma- dame Tabouis á sjer er hún Ijóstaði upp friðartillögum Laval og Hoare og aftur nýver- ið þegar hún lagði fram ráða- brugg og leynilegar fyrirætl- anir um endurvígbúnað Rínar- hjeraðanna. 1 London, París og Berlin er spurt: „Hvað segir madame Tabouis?“ Madame Tabouis starfar við aðalmálgagn vinstri borgara- flokksins í París, ,,L’Oeuvre“. Hún er einlægur stuðningsmað- ur Þjóðabandalagsins. — Þess vegna er svo grunt á því góða milli Lavals og hennar. Mme Tabouis hefir haft sjer- staka aðstöðu til að kynnast heimsmálunum. Hún aldist upp á heimili frænda síns, hins fræga sendiherra Frakka Madrid og Berlín, Jules Com- bon, sem nú er nýlátinn. Vensla fólk hennar og vinir eru í valda miklum stöðum og með þessari sjerstöðu sinni hefir henni tek- ist að kynnast mörgu, sem öðr- um er ókleift. Sænskur blaðamaður hefir átt samtal við hana um starfs- hætti hennar og þar segir hún að fyrsta skilyrðið sje að vera vel inn í málunum, því næst að hafa ,,sambönd“, hitta menn og hlusta á samræður þeirra...... Annað veifið er hún í miðdeg- isverði hjá sendiherra erlends stórveldis, eða í heimsókn hjá hertogafrú de X. — En jeg svík aldrei það traust sem mjer er sýnt, segir hún alvarlega. Jeg var kærð fyrir njósnir, þegar jeg sagði frá friðartilboði Lavals og Ho- are, en jeg fer ekki dulbúin út að næturlagi til að brjótast inn hjá erlendum sendiherrum. Jeg vinn mjer mikið ljettara. Frú Tabouis segir frá því, að tvö kvöld í röð hafi hún setið við hlið tveggja sendiherra frá sitt hvoru stórveldinu. Með því að spyrja sakleysislegra spurn- inga, að því er virtist, komst hún að því, að samningar Frakka náðu að 36. breiddar- gráðu, og það var alt sem hún þurfti að vita. Seinna um kvöld- ið hitti hún franskan ráðherra, ■sem auðsjáanlega vissi um gang málsins. Hjá honum fekk hún að vita, ,,að Mussolini yrði á- Lyggilega ánægður“. Næsta dag ritaði frú Tabouis .„Það á að skifta Abyssiníu“. Á hverju kvöldi hringir hún "til vina sinna í London og Ber- lín, og þeir vita venjulega sínu viti. Hvað segir Wilhelmstrasse um þetta og Foreign Office um hitt? Og hvað gerir Frakkland jþá. Síðan leggur hún 2 og 2 saman og leggur dæmið fyrir Madame Tabouis. lesendurna. Það er allur gald- urinn . Vjefrjettin í Delfi kunni ráð við svo mörgu, vegna þess, að merkustu menn heimsins trúðu henni fyrir vandræðum sínum. Madame Tabouis starfar eins og vjefrjettin í Delfi. Hún fer til merkustu manna heimsins og hlustar á þá tala um vandamál sín. Eftir á er vandinn minni að segja fyrir um það, sem koma skal, ef skynsemin er notuð á rjettan hátt. — Óvinir Madame Tabouis leggja ekki mikinn trúnað á það, sem hún segir. Þeir halda því fram, að hún sje gerð út til þess að tortryggja Þjóð- verja og spilla fyrir vináttu þeirra og Englendinga. Seinustu skrif hennar um að heimsstyrj- öld brjótist út 1937 benda m. a. til að þessar ágiskanir sjeu rjettar. En hvað sem liggur á bak við skrif Mme Tabouis, þá fylgist heimurinn vel með því, sem hún skrifar, því oftast hef- ir hún reynst sannspá. Systrafjelagið „Al(a“ átti 10 ára afmæli s. 1. mánudag 17. febr.). Hjelt það afmæli sitt liátíðlegt þennan dag í Aðven- kirkjunni, að viðstöddu ?'jölmenni. Þessi fjelagsskapur var stofn- aður eingöngu með líknarstarfsemi fyrir augum, og eftir skýrslum að dæma, sem fram komu á afmæl- isliátíð fjelagsins, er það eigi lítið starf, sem eftir það liggur á þess- um 10 starfsárum þess. Fjelagið hefir gefið til bágstaddra í pen- ingum um 13.500 krónur og’ í vör- um um 12.300 krónur, eða sam- tals um 25.800 krónur, aðallega fyrir jóliu ár livert. Síðastliðið ár gaf það til bágstaddra samtals 3500 krónur. Tekna liefir fjelagið aflað sjer á þann hátt, ,að systurnar koma saman livern sunnudag til- að end- urnýja garnlan fatnað og sauma nýjan, prjóna, spinna o. s. frv. Síðan er efnt til basara á haustin til að selja þessa vinnu systranna, og eru þessir basarar Systraf je'lags ins Alfa að g'óðu kunnir lijer í bænum. Ennfremur hefir fjelagið notið trausts margra hjálpfúsra bæjarbúa, sem styrkt hafa það með gjöfum sínum. Eflaust eru margir. sem minn ast þessa fjelags með þakklæti og hlýjum hug, og árna því alls góðs í tilefni af afmæli þess. Viðstaddur. H e s (amannafjelagið Fáknr heldur fund á Hótel Heklu, mánudaginn 24. þ. m., kl. 8'/2 e. h. í góðu standi til sölu. Upplýsingar í síma 2903 og 2333. 20 appelsinnr á 1 krónu. divc rn o o Morgunblaðið með morgunkaffinu í 1 Sjötíu og níu ára unglin Robert Baden Powell. í dag á eitt af mikilmennum heimsins afmæli. Uppháfsmaður skátafjelagsskap- arins, R. B. Powell lávarður fædd- ist. á Englandi á þessum degi fyr- jr 79 árum síðan. Stárfskraftar hans eru að mestu óskertir enn, þrátt fyrir háan aldur. Hann er alheimsforingi skáta, og hefir í vetúr verið á ferðalagi um Afríku í þágu fjelagsskaparins. Allir skátar elska hann og virða. Honum, sem skóp skáta- kerfið, eiga. þeir að þakka marg- ar bestu stundirnar í lífi sínu. Lærdóm og visku hafa þeir nnmið í f jelfl.gsskap hans. Rúmar tvær miljónir skáta- drengja eru nú í he'iminum. Þessi mikli drengjaskari, í öllum álfum, mun í dag minnast hins ágæta leiðtoga síns. J. O. J. Útfarirnar í Heykjavík. Líkeyðing í stað brenslu á báli! Jeg las með ánægju grein frá Bálfarafjelaginu um mikilsverðar framfarir í því að eyða líkum látinna manna. — Nú er ekki leng ur að ræða um neitt bál nje1 bruna — ekkert sem vekur upp í mönn- um hrylling og hræðslu og minn- ingu um hinn „eilífa eld“. Nix eru líkin látin gufa upp í hreinu tæru lofti, sem hitað er með rafmagni. Þa,rna ætti lausnin að vera kom- in á þessu viðkvæma máli. í sam- ræmi við þetta ætti ofannefnt fje- lag nú að snúa sjer frá allri „bál- fara“-rómantík, skifta um nafn og boita sjer fyrir því að útvega ; þessi nýju raftæki eða eyðingar- áhöld, sem rjett væri að kalla þau. Til þess að ná sem vissustum árangri af starfsemi sinni, má fjelagið ekki á neinn hátt ein- angra sig. Það verður umfram alt að varast að haga sjer eins og það væri sjerstakur trusiðaflokk- ur, sem gengnr í berhögg við al- menna siði. Verkefni þess verður frenmr að vera það, að endurbæta útfararsiðina alment, og koma svo að ineð lagni og smám saman, lík- eyðingu í stað greftrunar. Það .sem nú þarf að gera, er að athuga hvaða þárfir eTu mest áð- kallandi. — Þrent í einu. Nú er fenginn nýr grat’reit- ur fyrir þá, sem krefja neðanjarð- arvist fýrir leifar sínar. En það vantar þrent enn þá og það er útfarakapella, líkgeymsla og lík- eyðingarstöð — Þetta þarí þarf að sameina í einni bvggingu, sem ætti að standa við grafreit- inn sunnan í Öskjuhlíð. Það hefir margoft verið bent á að koma þarf betri skipun á útfar- arsiðina; og að frumkvæðið verð- ur að gerast af opinberri hálfp, ;þiú að syrgjandi venslafólk hinna látnu er algerlega óhæft t.il að hafa forgöngu í slíkum endurbót- um. Það er algerlega ofurselt þeÍTO siS að hafa alt. sem umsvifamest og dýrast. Engar líkfylgdir á strætunum. í erlendum borgum þykir það óhæfa að láta lík standa uppi 1 íbúðum. Þau eru strax á næsta degi flutt í opinbera líkgeymsln. Hið sama verður að komast á hjer, FRAMHALD Á SJÖTTU 8ÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.