Morgunblaðið - 03.03.1936, Blaðsíða 5
Þriðjudaginn 3. mars. 1936.
ggfcfrr.... ■>t)«laMBlMBPD»■* ■ '■» i'.M* i» mu
MORGUNBLAÐIÐ
- ww-mwtwwa.wwnM
Opið brjef iil Alþingis
.k
Frá Guðmundi Þórðarsyni, Gerðum.
l?egar Alþingi hafði le'yft drag-
aiótaveiðar hjer í allri landhelgi,
uð. Áður var það svo, að gamal-
menni og börn gátu unnið fyrir
og þar með eyðilagt Garðsjóinn til rsjer með afla, sem altaf fekst hjer
veiða á opnum bátum, fórum við töluverður, og oft mikill, alveg
að ná okkur í vjelbáta til að geta
sótt á djúpmiðin. Við höfðum nú
að nafninu til eignast 10 vje'lbáta
12—36 smálesta að stærð. Jeg
he'fi þess vegna, nú í nokkur ár,
sótt um styrk til Alþingis til að
koma hjer upp bryggju, svo við
gæturn lent vjelbátum okkar hjer,
en því er stöðugt neitað. Við
verðum því að le*nda með allan
aflann í Sandgerði, og flytja hann
svo hingað á bílum til verkunar,
og svo aftur hjeðan til Keflavík-
ur og stundum alla leið til Reykja
víkur. Þessi bílaflutningur kost-
aði okkur síðastliðið ár full 25
þús. krðnur. Enn fremur fara
fleiri þúsund í viðhald á vegin-
um árlega, og þar sem þessi notk-
un á veginum fer fram frá ára-
mótum til maíloka, er viðbúið að
vegurinn verði ófær þá og þegar.
ÍÚtgerðin yrði þá að hætta, þar
sem ekki eru hús til í Sandgerði
fyrir afla af bátum okkar. Tjón
af því myndi vel’ða mjög mikið.
Þar sem nú að bryggja hjer þarf
ekki að kosta nema 27 þús. krón-
ur, skil jeg ekki þá hagfræði ykk-
ar, að láta okkur verja meira en
yerði hennar árlega í bílanotkun,
seta að mestu leyti er útlendur
gjaldeyrir, í stað þess að styrkja
■okkur til að koma hjer upp
bryggju, sem myndi endast um
aldur og æfi. Til bryggjunnar
þyrfti sement fyrir um 5—6 þús.
kr., en hitt væri vinna, sem nú er
mikil þörf fyrir. Sje slík liagfræði
viðhöfð á mörgum sviðum, er ekki
að furða þótt tómahljóð verði í
kkúffunni. Það verður máske ekki
hægt að veita Kiljan áfram 5 þús.
kr. til svívirðingar þjóðinni utan
lands og innan.
DRAGNÓTIN.
Þegar Alþingi árið 1932 leyfði
dragnótaveiðar í allri landhelgi,
gerði það alla opna báta hjer arð
og veTðlausa, því síðan er ekki
hægt að fiska hjer í soðið allan
þann tíma, sem dragnótin er not-
gátu
EISS
KaupiQ gleraugu
hjá oss. Stórt og fjölbreytt úrval
Ökeypis athugun á sjónstyrkleika
augnanna.
. A. Thiele
Austurstræti 20.
upp við landsteina. Þannig
fjölskyldur með ótrúle'ga erfiðar
ástæður bjargað sjer. Nú hefir
þetta breyst þannig hjer, að árið
1931 var fátækraframfærið hjer
innan hrepps aðeins kr. 1885,00,
en nú, 1935 er það orðið full 11
jús. kr. Þess ev því nú skamt að
bíða, að ríkissjóður verði að fæða
g klæða hreppsbúa að öllu leyti.
Jeg hefi marg sagt Alþingi
með erindum og blaðagreinum, að
enginn fiskur gengur eða tollir á
svæði, sem dragnót er notuð á,
vegna þess að nótin gruggar upp
sjóinn, svo að fiskurinn flýr
gruggið. Nú hefi jeg líka sönnun
aess, að síldiii gengur ekki í grugg
ugan sjó. Það brást aldrei að
síldin gengi alla leið inn á Kefla-
vík, á sumrin og haustin, til árs-
ins 1931, og var það oft mikil
tekjugrein fyrir þá, sem stunduðu
já veiði. En síðan 1931, eða síðan
farið var að veiða með dragnót,
hefir engin síld komið þangað.
Nii síðastliðið haust biðu síldar-
torfurnar hjer vestan við Garð-
skaga alt haustið, en fengu altaf
gruggið á mðti sjer, og komu því
aldrdi inn á hinar vanalegu stöðv-
ar. Þar sem engin dragnót var not-
uð eins og t- d. í Herdísarvík,
gekk síldin alveg upp í land-
steina. Svo hefði hún og gert í
Keflavík í haust, ef hún hefði
getað. Dragnótin hefir því skaðað
plássin hjer um tugi og jafnvel
hundruð þúsunda.
Ykkur Apstfjarðaþingmönnum
vil jeg segja það, að meðan þið
látið hræra í f jörðunum með drag-
nót, þurfið þið ekki að vonast
eftir síld inn á firðina. Þið ætt-
uð því í tíma að útvega sjómönn
um ykkar síld annars staðar frá
til be'itu, ef þeir eiga að geta
haldið áfram að afla, sem auðvit
að verður ekki lengi, þar sem alt
ungviði fiskanna er drepið eða
flæmt frá landinu með dragnót-
inni.
Allir vita að ekki þarf mikið af
smokk til að reka síldina af mið-
unum.
Mjer er sagt að Árni Friðriks-
son hafi veTið að prófa síldarnót
við Norðurland í sumar. Jeg veit
ekki hversu mikil brögð hafa ver-
ið að þessu, en hafi honum tekist
að hræra upp óhreinindi úr botn-
inum, er ástæðan fengin fyrir því,
að síldin hvarf svo Skyndilega
þar. Jeg fullyrði að ekki hafi
nema einn af hverjum 10 bátum,
sem stundað hafa dragnótaveið-
ir, þjenað, hinir 9 tapað mismun-
andi miklu. Þetta væri nú skjal
lega sannað, ef Fiskifjdagið hefði
gert, skyldu sína, með að safna og
birta skýrslur um veiðar þessar.
Hjer í hreppi voru gerðir út tveir
vjelbátar fyrsta sumarið, sem
dragnótaveiði var leyfð. Þeir töp-
uðu livor um sig um kr. 5000,00 á
vciðum þessum. Hagfræði ykkar,
meirihluta Alþingis, er þannig á
þessu máli, að allar fasteignir
hjer eru verðlausar, og fólkinu
gert ómögulegt að bjarga sjer. Til
dæmis var fasteign hjeT, sem
hvíldi á um kr. 20 þús., seld hjer
í sumar fyrir kr. 2600,00. Svo
mun fljótlega fara um fleiri.
ÞYSKALAND
&
Fyrir að skjótast snöggvast í land-
helgi með botnvörpu, eða að leið-
beina til þess, hafa menn nú ver-
ið nefndir landráðamenn, en á
sama tíma leyfið þið botnvörpu-
veiðar í allri landhelgi. Hvaða
nafn eigið þið skilið, blessaðir.
BEINATOLLURINN.
Þá voruð þið ekki lítið hugul-
samir við okkur, þegar þið skelt-
uð kr. 30,00 toll á hvert tonn okk-
ar af hertum fiskbeinum. Með því
tókst ykkur að arðræna okkur
Garðbúa um kr. 10000,00 árið sem
leið. Allur munur var, að tilgang-
urinn var góður, að gera þetta til
verndunar útlendum beinakvörn-
um. Ef satt er að Fiskimjöl sjái
sjer ekki fært að greiða meira en
0,25 aura til 0,30 fyrir körfu af
beinum, ætla þeir að fá tonnið
þurt fyrir kr. 40,00 til 50,00, og
þar sem nú nýlega að markaðs-
verð á beinamjöli í Noregi var
kr. 170.00 fyrir tonn, ætla þeir að
hafa góða atvinnu við að mala.
Þeir hljóta að vera ykkur þakk-
látir fyrir að lijálpa sjer um þessa
atvinnu. Ykkur veitir ekki af, því
ekki eru svo margir sem þakka
ykkur. Við höfum flutt bein okk-
ar hingað frá Sandgerði til þurk-
unar. Það kostar um kr. 24100 að
flytja efnið í þurt tonn. Við þurk-
unina var töluverð atvinna fyrir
gamalmenni og börn. Nú hafið þið
sjeð fyrir þessu með tollinum, því
flestir eru hættir að hirða hrygg-
ina. Þeir eru 14 hluti beinanna,
og ef Fiskimjöl er búið að fá svo
sterk sambönd me'ð aðstoð ykkar,
að við eigum aðeins að fá kr.
40,00 til kr. 50,00 fyrir þurt tonn-
ið, dettur engum í hug að hirða
beinin. Þið þurfið þá ekki að vera
í vandræðum með þann gjaldeyr-
ir, sem þau veittu. Hagfræðin
er á fle'stum sviðum sú sama.
TEKJUSTOFNARNIR.
í nýjustu blöðum sje jeg að enn
eruð þið að hugsa til okkar. Þið
ætlið nú að bæta fyrir allar ykk-
ir fyrri misgerðir með því, að
leyfa okkur að taka háan skatt
af fasteignum okkar, til þess að
standast hörmungamar og full-
nægja þörfunum. Víst er það, að
þið vitið, að við höfum duglegt
yfirvald úr ykkar hóp. En hrædd-
ur er je'g um að honum gangi illa
að innheimta skattana af fasteign-
unum, þar sem þær sumar hverjar
eru veðsettar fyrir um 10 sinnum
hærri upphæð, en þær seljast fyr-
ir, samanber salan í sumar. Nei,
hagfræðin ykkar er sú sama eún.
Jeg vona nú samt að ykkur fari
þetta stöðugt fram. Jeg ætla ekki
að liafa þetta meira nú. Jeg mun
fylgjast með framförum ykkar, og
ef vel tekst, máske se*nda ykkur
línu seinna.
Kveð ykkur svo með vinsemd og
mikilli virðingu.
Gerðum, 24. febrúar 1936.
Guðm. Þórðarson.
SPANN
Ott>
DÖMU HERRA BARNA
S K O R
*
9
*
3
*
«
Morgunblaðið með morgunkaffinu
Það tilkynnist að móðir og tengdamóðir okkar,
Margrjet Jónsdóttir,
andaðist að heimili sínu, Bakkastíg 5, 29. febr..
Pálína Vernharðsdóttir, Jóhann G. Guðmundsson.
hefst með
Jarðarför móður og tengdamóður okkar,
frú Ingunnar Loftsdóttur,
fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 4. mars, og
húskveðju á heimili okkar, Laugaveg 20 A, kl. 1 síðd.
Fyrir hönd okkar og annara aðstandenda.
Martha og Ingvar Sigurðsson.
Jarðarför mannsins míns,
Jóns Jóhannssonar, verkstjóra,
fer fram, fimtudaginn 5. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili hans,
Laugaveg 69, kl. 1 e. h.
Guðbjörg Jóhannsdóttir.
Jarðarför
Páls Þorkelssonar, gullsmiðs,
fer fram miðvikudaginn 4. þ. m., frá Elliheimilinu „Grund“, kl. 3 e. m.
F. h. vandamanna.
Vigfús Guðbrandsson.
Öllum sem heiðruðu minningu,
Jóns Þorvaldssonar, pro-konsúls,
við andlát og jarðarför hans, færi jeg hjer með innilegustu þakkir
fyrir hönd vandamanna.
Axel Böðvarsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
litlu dóttur okkar,
Margrjetar Auðar.
Sigríður og Torfi Bjarnason.
Innilegt þakklæti til allra sem á einn eða annan hátt sýndu okfc-
ur samúð við fráfall og jarðarför sonar okkar og bróður,
Torfa Grímssonar, Freyjugötu 44.
Dýrleif Jónsdóttir, Grímur Kristinn Ámason,
Leifur Grímsson og Kölbeinn Grímsson.
Hjartans þakkir til allra, sem hafa auðsýnt okkur hluttekningu
við fráfall og jarðarför konunnar minnar,
Önnu Pjetursdóttur.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ásmundur Gíslason.