Morgunblaðið - 03.03.1936, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 3. mars. 1936.
Skemtifundur
Heimdallar.
Einn af þeim bestu,
sem haldinn
hefir verið.
T TETMDATiTjÍTR fjelag ungra
^ Sjálfstæðismanna helt fund í
Oddfellowhúsinu s. 1. sunnudags-
kröld. Á fundinum voru um 200
manns og þó urðu margir frá að
hverfa sökum rúmle'ysis.
Fundinn setti varaformaður fje-
lagsins, Jón Agnars. Síðan flutti
Gísli Sveinsson alþingism. snjalla
ræðu og lagði út af erindinu í
Havamálum: „Eldur er bestur með
ýtasonum og sólarsýn“. Þá tók til
máls Jón Pálmason, alþingism. frá
Akri, og helt kvatningaræðu til
æskunnar. Var máli hans vel tek-
ið.
Þeir Ámi Jónsson frá Múla og
óskar Nórðmann skemtu með
Gluntasöngvum, og síðar um nótt-
ina sungu þeir Árni Jónsson frá
Múla og Jakob Havste'en nokkur
Gluntalög.
Áheyrendur ljetu óspart hrifn-
ingu sína í ljósi. Ætlaði lófa-
klappinu aldrei að linna og urðu
söngvaramir að syngja mörg
aukalög.
Að lokum var dans stíginn langt
fram á nótt.
Var alment mál manna, er fund
þenna sóttu að þetta væri einn
besti skemtifundur, sem haldinn
hefir verið innan fjelagsins og
hafa þó margir ágætir skemti-
fundir verið haldnir á undanföm-
«m árum.
Mestu trjárekar
í manna minnum
á Tjörnesi.
HÚSAVÍK, MÁNUDAG.
EINKASKEYTI TIL
* MORGUNBLAÐSINS.
"O rjettir af Tjörnesi herma að
meiri trjáreki sje orðinn þar
£ vpíur en dæmi eru til í manna
minqum.
Á 'Sandhólum hefir rekið 8Ö til
100 trje. Á Máná hefir rekið hátt
upp í 200 trje, sum geysistór,
flest um 18—30 fet.
Á flestum bæjum á Tjöraesi hefir
verið einhver reki í vetur. Reka-
viðurinn er mjög líkur að stærð,
hvar sem hann rekur.
Egill.
EGGGRT CLAES8EK
feæstarjettarmálaflutningsmaðxir.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonarstræti 10.
ýlpngangur um austurdyr).
Orð úr viðskiftamáli
w ómissandi hverjum þeim,
er kunna viH íslenskt versl-
unarmál.
Nokkur eintök fást á af-
greislu Morgunblaðsins.
Árásir „Bjarma“.
í Morgnnblaðinu 28. febr. s. 1.,
birtist grein e'ftir síra Háldan
Helgason að Mosfelli, með fyrir-
sögninni: „Árásir „Bjarma“ á síra
Áma Sigurðsson, fríkirkjuprest“.
Tilefni greinarinnar e'r forystu-
grein sú, er birtist í 4. tbl. Bjarma
og nefndist „Spíritismi“. Tilgang-
urin.a með grein prestsins er sá,
að því er vjer best fáum sjeð að
sýna fram á, að Fríkirkjusöfnuð-
urinn sje1 talinn innan hinnar ís-
lensku kirkju, og að síra Á. S.
eins og aðrir prestar, hafi leyfi
til þess „að láta í ljósi skoðun sína
á því, hvað hefði orðið íslensku
kirkjunni til þrifa eða hnekkis“,
— án þess að þeir væru álitnir
hrifsa umhoð úr höndum annara.
Vjer viljum taka þetta fram:
Grein prestsins hrekur ekkert af
því, sem vjer sögðum og gengur
algerlega fram hjá kjarna málsins.
Vjer segjum hvergi í greininni,
að fríkirkjan sje ekki talin innan
hinnar íslensku kirkju. Þessi skoð-
un virðist hafa komist inn hjá
pre'stinum við það, aS vjer sögð- ’
um, að síra Á. S. hefði ekki leyfi
til þess að kaga orðum sinum eins
og hann gerði, meðan herra bisk-
upinn eða dómkirkjupresturinn,
sem er prófastur (og þar með
æðri e'n prestur), eða meiri hluti
presta hinnar íslensku kirkju,
hefðu ekki látið þessa skoðun í
Ijósi. Að vjer höguðum orðum
vorum þannig, stafar af því, að
vjer sjáum ekki betur en þótt
síra Á. S. sje innan hinnar íslensku
kirkju, þá sje hann þó glæsile'gur
minnihluti hennar. Hjer hefir þaS
vilt síra H. H., að vjer gerðum
greinarmun á Þjóðkirkju- og út-
an þjóðkirkju-prestum.
Hvað því viðvíkur, að síra Á.
S. sje frjálst að láta skoðun sína
í ljósi, viljum vjer benda á það, að
í grein vorri tökum vjer það
skýrt fram, að „í sjálfu sjet er
ekkert við því að segja, að síra
Á. S. taki ákveðna afstöðu til
spíritismans og láti þaS hreinlega
í ljósi, þegar honum finst þaS sjer
staklega viðeigandi“. En hitt sögð-
um vjer og höldum fast við það,
að hann sem þjónn kirkjunnar
he'fir ekkert leyfi til að gera það
eins og hann gerði. Spíritisminn,
að minsta kosti eins og hann er
hjer á lándi, er í andstöðu við
grundvallarkenningar kirkjunnar,
og þá hefir prestur, sem vill vera
sannur þjónn, ekki leyfi til þe'ss
að leiða viðurstygð eyðingarinnar
inn á helgan stað. Dýrkun síra H.
H. á kenningarfrelsi presta innan
kirkjunnar gagnvart valdi biskups
og synodus er hættuleg. í því
fyrirkomulagi liggur hin mikla
hætta afskræmds fagnaðarerindis
og agaleýsis, sem hlýtur að leiða
til eyðileggingar hinnar sýnilegu
kirkju, þótt aldrei verði sigmst á
hinni sönnu.
Að lokum. Hjer er ekki um per-
sónulega árás á síra Á. S. að ræða
frá vorri hálfu, heldur um mál-
efnið. Að síra Á. S. varð fyrir
„árásinni“ stafar af því, <að hann
einn, þeirra pre'sta, sem vjer eig-
um kost á að hlusta á, gaf tilefni
til þess með því að leiða stefnuna
í stólinn. Það þýðir ekki að setja
prest í stöðu ranglega ofsótts
manns fyrir það, að því er kröft-
ugle'ga mótmælt, þegar hann legg-
ur sjer við hjarta stefnur, and-
stæðar kenningunni um hjálpræði
Guðs fyrir fórn Jesú Krists.
Ritstj. Bjarma.
Sigrar ítala.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
hafi byrjað 27. febrúar, og
sóttu ítalir að Abyssiníumönn-
um bæði að norðan og sunnan.
Orusta þessi stóð dögum , sam-
an og var hin skæðasta, og lauk
henni í gærdag með algerum
sigri ítala. Ras Kassa og Ras
Seyoum reyndu báðir að brjót-
ast í gegnum herfylkingar I-
tala og komast að baki þeim,
en mættu ósigrandi mótstöðu.
Sigurinn var svo alger, að heil-
ar herfylkingar Abysiníumanna
lögðu niður vopn sín, og er það
í fyrsta sinn síðan ófriðurinn
hófst, að slíkt hefir borið við.
ÞaS er af sú tíðin þegar
aðeins var farið í kaupstað-
inn einu sinni til tvisvar á ári.
Nú er þessu öðruvísi farið.
Fjölbreyttari atvinna við
sjávarsíðuna. Meiri peningar
í umferð.
í dag færum við yður dag-
legar nauðsynjar heim á eld-
húsborðið.
Þó verslunarhættir sjeu nú
með öðrum. hætti, þykir altaf
búmannslegra að taka heldur
meira en til dagsins, þó ýms-
ir verði að haga innkaupum
sínum eftir því sem ástæður
leyfa.
Flestir hafa meiri peninga-
ráð í byxjun mánaðarins en
endranær, og er þá góður
vani að kippa heldur ríflega
til sín af matartægi, því eins
og gefur að skilja verður
það altaf heldur að setja í
fyrirrúmi.
Já, nú tekur kaupstaðar-
ferðin ekki marga daga, við
færum yður þetta heim, svo
að segja samstundis.
CUÍÍRllStdi,
Höfnml
flestallar algengar
Bókf ærslubækur
svo sem:
íöfuðbækur, Kladda, Dag-
bækur o. fl.
Ennfremur allskonar
ritfönff.
Bókavers lun
Þór. R Þoiiák«sonar
Bankastræti 11. Sími 3359
Þýskakensla.
Brjefaskriftir og þýðingar á þýsku
Bruno Kress, Dr. des.
Austurstræti 14.
Frá 12—1 og 7—8 í síma 3227.
Eftirköst japonsku
uppreisnarinnar.
Foringi uppreisnar-
manna fremur
sjálfsmorð.
KAUPMANNAHÖFN í GÆE.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Opinberlega hefir það
verið tilkynt í Tokio, að
foringi uppreisnar-
manna Nonaka, hafi
framið sjálfsmorð.
Aðrir liðsforingjar úr hern-
um, sem þátt tóku í uppreisn-
inni hafa 'verið settir í varðhald
Óbreyttir liðsmenn í liði upp-
reisnarmanna sitja í varðhaldi
á setuliðsstoðvum sínum. Páll.
Stríðsundirbúningur
Breta.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
jafnframt endurvígbún-
aðinum farnir að gera
ýmsar varúðarráðstaf-
anir til þess að skjóta
fyrir það loku að hægt
verði að svelta þá með
því að loka höfnum
þeirra (Blockade).
Er búist við að stjórnin muni
leggja á það mikið kapp, að
landbúnaðarframleiðslan verði
aukin. Ennfremur er búist við
að bygð verði stór frystihús í öllum þýðingarmestu innflutn ingshafnar borgunum. — Þar verður safnað birgðum af mat- vælum.
Ódýrar vðr Matskeiðar frá ur. 0,20.
Matgaflar frá 0,20.
Teskeiðar frá 0,10.
Vatnsglös frá 0,30.
Vínglös frá 0,60.
Deserdiskar frá 0,35.
Asjettnr, gler, frá 0,25.
Bamakönnur frá o Ol p
Sjálfblekungasett á 1,50
Litunarkassar, barna 0,35.
Höfuðkambar, fílabem 1,25.
Höfuðkambar, svartir 0,35.
Hárgreiður frá 0,50.
Handsápur frá 0,40,
K. Finarsson
& B|$rnsson.
Bankastræti 11.
Hjeðinn og S. I. F.
FRAMHALD AF ÞRIÐJU SÍÐU.
skýrt fram, að hún telji sig
ekki bundna við neinar frekari
sölur S. f. F. á þessum farmi.
Neyddist því S. 1. F. til að
síma öllum umboðsmönnum
sínum um að stöðva allar frek-
ari sölur í bili.-
Hjer hefir í afar fáum drátt-
um verið rakin sagan af fram-
komu Fiskimálanefndar gegxt
Sölusambandinu, þeirri stofnun,
sem íslenskir fiskframleiðendur
hafa sjálfir stofnað og eiga
sjálfir.
Saga þessi er ótrúleg, én samt
er hún sonn. Fiskiínálanefnd
hefir verið ætlað það hlutverk
að styðja nýjar markaðstílraun-
ir. Hún hefir miljpn króna til
umráða í þessu skyni. Það er
lagaleg skylda hennar að
greiða fyrir nýjum verkunarað-
ferðum og sölu á fiski.
Yfirgangur og afskifti eins
manns veldur því, að þessi
stofnun, bregst að öllu skyld-
um sínum og eyðiléggur þær
tilraunir, sem hæfasta stofnun
landsins í þessum málum vildi
gera.
Menn vita, að ástæðan til
þessa ofbeldis Hjeðins olíusala
er engin önnur en sú, að hon-
um var ljóst að Fiskimálanefnd
hafði fyrirgert öllum tilveru-
rjetti sínum. Þess vegna sölsar
hann undir sig árangur af ötarfl
annara manna, og bætir því svo
ofan á alt áð níða þésðá menn
í skrifum sínum og bera þá.
röngum sökum.
Fiskmarkaðurinn í Banda-
ríkjunum er vafalaust merk-
asta nýjungin í fisksölumál-
unum nú sem stendur. For-
maður þeirrar stofnunar sem
þjóðin hefir falið, að beitast
fyrir slíkum nýjungum, hef-
ir gerst mesti óþurftarmað-
ur málsins, spilt því af
fremsta megni, og ekki hik-
að við að tefla því í hættu.
Jón Gíslason verkfr. fór utaa
með Lyra síðast til að sjá uni við-
gerð botnvörpungsins „Andri“,
sem strandaði við England nýlega.
Sveinbjörn Egilsson ritstjóri
hefir mianna mest barist fyrir því
að sjómenn kynn sjer sín verk þe'g
ar um borð er komið. Hefir hann
ritað margt um það, og auk þess
liefir hann kent mörguni monnum
ýmislegt, sein lýtur að vinnu sjó-
manna: um borð við segla og
reiðagerð. He'fir áður verið sagt
frá því í Morgunblaðinu. Nú hef-
ir Reiða og seglameistarafjelag
íslands lieiðnað Sveinbjörn fyrir
þetta starf hans á aðalfundi sín-
um, sem haldinn var 22. febmar,
ineð því að gena hann að heiðurs-
fjelaga sínum.
Samvinnubyggingafjelagið „Síminn“.
Aðalfundar
--
f jelagsins verður haldinn annað kvöld (miðvikud.) 4. þ. m.,
kl. 21 á lesstofu F. f. S. í Landssímahúsinu við Thorvald-
sensstræti. — Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
STJÓRNIN.