Morgunblaðið - 02.07.1936, Side 5

Morgunblaðið - 02.07.1936, Side 5
'Fimtudaginn 2. júlí 1936. MORGUNBLAÐIÐ "pins og getið hefir verið hjer í blað inu, voru til meðferðar á síð- •asta landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins reglur um skipulag hans í fram- tíðinni. Hafði þingflokkurinn haft málið til meðferðar á síðastl. vetri, og hafði nefnd, er þá starfaði í því, skilað frumvarpi um þetta efni í hendur miðstjórnar. I þefesu máli hafði Gísli Sveins- son alþm. framsögu á landsfund- inum, og flutti hann það erindi sitt á fyrsta fundardegi (17. júní) hjer í Reykjavík, en að öðru leyti igekk fundurinn Prá málinu á Þingvöllum. Um skipulag flokka alment fór framsögumaður m. a. þessum orð- um: * 1 öllum „lýðfrjálsum löndum“, sem svo eru kölluð — og ísland 'kvað teljast til þeirra —. eru flokkarnir (þ. e. stjórnmálaflokk- ar) höfuðuppistaðan í hinum margbrotna þjóðmálavef. Svo er það orðið, þótt ekki þyrfti svo að vera ófrávíkjanlega. En úr því svo er, og meðan svo er, er flokks- starfsemin að sjálfsögðu hin þýð- ingarmesta, því að þar eru ráðin og undirbúin, og stundum nærri því framkvæmd, hin ábyrgðar- mestu málefni þjóðfjelagsins. Formið „frjáls þjóð“, „lýð- “frjálst land“, krefst þess, að 'fólkið, lýðurinn sje ,,up])- lýstur“, kunni skil á svo sem öll- uim opinberum efnum, er til þjóð- mála teljast, og má segja, að gerð sje nokkur tilraun til þess að láta •svp verða með þeirri uppfræðslu, sem öllttm þjóðfjelagsborgurum er 'í tje látin á vissum aldri. Og þó leikur eigi adlítill v:afi á því, í hugum ýmsra, hvort eigi er hjer að nokkru tekið með annari hendi, 'það sem veitt er með hinni, óbein- 'línis, — því að það, sem almenn- UM SKIPULAG SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS. ingur síðar les um stjórnmál (sem ’ hjer skifta máli), er, vitanlega öll- um, á víxl litað eftír flokkum, og stundum brjálað og umhverft, en það er ekki einungis, að alþýðu sje ætlað að trúa öllu slíku, helst blint, lieldur er raunin sú oft, að því er trúað, og það starblint. Þarf eigi að styðja það með dæm- um, sem daglega er að gerast fyr- ir sjónum allra þeirra, er nokkuð fylgjast með þeim hlutum. Lýðræði ber með sjer flokksræði í einhverri mynd, misjafnlega á- berandi, og þá er eitt aðalatriðið y að ganga svo vel frá þeim hnút- um, að öllu sje óhætt, að vit sje í því ráðlagi, en ekki óvit. Og að öll ráð verði sem best ráð- in, og þó sem mest að vilja al- mennings í landinu. Fólkið kýs sjer fulltrúa til þess að fara með málin á vissum vett- vöngum, en á þó ekki þar með að vera „sett út úr spilinu“, heldur á það að vera kvatt til þátttöku í undirbúningi, og að nokkru í af- gerð ýmsra mála, við og við og á- valt eftir þörfum. Það er ekkert „lýðfrelsi“ að mega t. d. aðeins kjósa mann eða menn á þing, þótt það sje hinn mikilsverðasti rjett- ur, ef fólkið þess á milli er kúgað eða vilji þess að vettugi virtur, jafnvel þar, sem enginn mauður rekur til. En vandratað getur ver- ið meðalhófið, því að fólkið á held- Aðalfundoc Læknafjelags Islands hefst föstudaginn 3. júlí n. k. kl- 4 síðd. í Rannsókna- ,stofu Háskólans. DAGSKRÁ: Föstudag 3. júlí, kl. 4: 1. Stjórnin gerir grein fyrir störfum s.l. árs. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar. 3. Kosin stjórn og endurskoðendur. 4. Árstillag ákveðið- 5. Siglingasjóður Læknafjel. Islands. 6. Önnur fjelagsmál. Kl. 6: Dr. med. Skúli V. Guðjónsson, yfirlæknir, fyrir- lestur: Nýjustu vitamínrannsóknir. KI. 9: Próf. dr. med. C- Sonne, yfirlæknir, fyrirlestur: Sjálfvalið efni. Laugardag 4. júlí, kl. 3 s.d.: 1. Próf. dr. med. C. Sonne, yfirlæknir, fyrirlestur: Sjálfvalið efni. 2- Yfirlæknir M. J. Magnús, fyrirlestur: Holds- veikin. 3. Dr. med. Skúli V. Guðjónsson, yfirlæknir, fyr- irlestúr: Iðjusjúkdómar. 'Sunnudag 5. júlí: Samsæti að Hótel Borg kl. 8 síðd. ur ekki ætíð tilkall til þess að grípa fram í fyrir þeim, sem það liefir falið umboð sitt til þess að fara með ákveðin mál fyrir þess hönd. — Að því að koma þessu öllu fyrir, miðar flokksskipulagið. Þetta flokksskipulag er nokkuð mismunandi hjá stjórnmálaflokk- unum, sumstaðar lausara, annars- staðar fastara, og svo er einnig nú komið hjer á landi. Ekki mun hjer vera neinn stjórnmálaflokkur, sem beinlínis neitar lýðræðinu með öllu, og höfuðflokkarnir þykjast allir hylla það. í raun rjettri mun skipulagið einbeittast hjá Alþýðu- flokknum (sósíalistum), enda stappar nærri, að þar ríki alþjóð- leg harðstjórn. Næstur kemur hjer Framsóknarflokkurinn, og hafa „handjárnin“ þar verið misjafn- lega rómuð. Lausust hefir fram að þessu verið uppbygging Sjálfstæðisflokksins, enda erfiðast við að fást, þar sem hann hefir ekki viljað vera einnar „stjettar“, heldur allra stjetta flokkur, með hagsmuni alþjóðar fyrir augum, í hvaða stöðu eða við hvaða at- vinnugrein sem mennirnir eru. * T.ilgangur skipulagsnef ndar, þingflokksins lalls og miðstjórnar, var. sá, að komið yrði á þessi mál nokkurri festu, er til frambúðar gæti orðið, svo að bæði kjósend- ur flokksins — Sjálfstæðismenn í landinu — og þeir, sem með full- trúaumboð þeirra fara, mættu sæmilega við una. Að þessu hníga reglur þær um skipulag Sjálfstæð- isflokksins, sem landsfundurinn afgreiddi á þriðja degi, og voru þær mjög í samræmi við frum- varp það, sem fram var lagt. Þessar samþyktu skipulagsregl- ur verða nú gefnar rit að tilhlutun miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og sendar öllum þeim, sem hlut geta átt að máli, en verða í heild sinni eigi birtar á annan hátt, með því að þær varða, eins og gefur að skilja, Sjálfstæðisflokkinn einan. Nokkur höfuðatriði eru þó þess eðlis, að rjett þykir iað gera þau heyrinkunn. * Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins er framkvæmdarstjórn lians og ræður mestu um daglegar afgreiðsl ur og fyrirfallandi mál. En yfir- stjórn flokksins er þó svonefnt Flokksráð, sem hvert hjerað lands- ins á fulltrúa í, og er samkomum þess hagað eftir ákveðnum reglum. Og í þriðja lagi eru Landsfundir flokksins einn ráðaJaðili um mik- ilvæg mál, — og er Miðstjóniin kosin iaf honum og Flokksráði. Er og ákvarðað, hvenær Landsfund- ir komi saman o. s. frv. En úti í kjördæmum landsins stjórna Hjeraðsnefndir málefnum Sjálfstæðisflokksins, þeim, er sjer- mál geta talist hvers einsfcaks kjördæmis, en þær standa í beinu sambandi við Miðstjórn og eru um leið fulltrúanefndir fyrir kjósend- ur kjördæmisins, er mynda með sjer fjelög (Sjálfstæðisfjelög) fyr- ir hvern hrepp eða kjördeild, — en þau snúa sjer um öll flokksmál til hjeraðsnefndanna, eftir því, sem þörf krefur. Þessir aðiljar ráða og mestu um tilnefning þingmannsefnis fyrir flokkinn í kjördæmi hverju, með öðrum orð- um kjósendur sjálfir, sem um það geta einnig leitað atbeina Mið- stjórnar. Eru svo um alt þetta all-ná- kvæm ákvæði, að því er snertir tilhögun og framkvæmd. — Má telja alveg víst, að með Reglum þessum verði sköpuð ánægja með flokkssta.rfið innan Sjálfstæðis- flokksins, og að með þ'eim verði í framkvæmdinni flokksfylginu siglt í heila höfn, en aftur á móti komist hjá þeim blindskerjum. sem hinir stjórnmálaflokkar lands ins hafa nú að flestra skynbærra manna dómi laskað skip sín á. Sj álfstæðisflokksins bíður mikið þjóðþrifastarf í landinu og mun honum einnig vaxa ásmegin við hið nýja skipulag, sem' honum hefir nú verið fengið og líklegt er að muni farsællega reynast. hefir hlotið besfu meðmœlft SfjV l.i J iokt*n F I X sjálfvlrkf þvottaefnl |)vær taoið yöar nteöan bjer sofið oe hviiisu — MiLAFLUTttíNGSSKKaSTöFA Pjetur Magnússon Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Pímar 3602, 3202, 2002 Austurstræti 7. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—6. Sjómannasagan Mistur: FRAMH. AF FJÓRÐIJ SIÐU. fólkið, má geta þess, að fyrir það er stór sjerstakur borðsalur og eru þar skápar fyrir hvern til þess að geyma í föt sín og smádót. 'y'JELARNAR eru mjög merki- legar, sjerstaklega sú, sem mót- ar kexkökurnar og stimplar á þær tegundarnafn. Áður en hún tekur til starfa, er kökudeigið marghnoð- að í öðrum vjelum, og tekur hún við því í liæfilega þylrkum og breiðum lengjum, sker þar úr smá- kökur, tekur sjálf frá alt sem skerst úr, en skilar kökunum á sjerstakan bakka, sem síðan er lát- inn beint inn í bökunarofninn. Þessi bökunarofn er líka mesti galdragripur. Það er ekki kynt undir honum sjálfum. heldur í miðstöð í sjerstöku herbergi. Inn í bálhohð Hggja vatnspípur frá bökunarofninum, og það er hitinn frá þeim, sem hitar upp ofninn. Ekkert sót, engin óhreinindi eða dust geta komist þar að. | fdanlegar I fegrunar- I °9 snyrtivörur. i! í ■ | ReyHjavíkur | •I* TY _ _ s j | ! I | Hjukrunardcildin. ö »»»»««»»♦»««♦»»»»♦»»»p♦»»«# Á þessn stutta yfirliti ætti menn að geta sjeð, að hjer er um vax- andi framtíðarfyrirtæki að ræða, eitt af þeim, sem íslenskum iðnaði er sómi að. Ef þjer ferðist til Noregs, þá búíð á HOTEL ROSENKRANTZ, Tyske Bryggen, Bergen. Stórt og gott hótel með lágu verði á her- bergjum og máltíðum. Heitt og kalt vatn, bað og sími.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.