Morgunblaðið - 02.07.1936, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.07.1936, Blaðsíða 7
Fimtudaginn 2. júlí 1936. MCtGUíí BLAÐlÐ • -V fj Kynntng Svla FEAMH. AF ÞEIÐJU S£DU. skörunga“, sagði Nordal. (Fögn uður). Tunberg hefir verið rektor háskólans í Stokkholmi í 9 ár, en hefir samhliða því samið mörg og merk vísindarit. Prófessor Tunberg rakti sögu hinnar norrænu samhygðar frá því um Kristsfæðingu og fram á miðja þrettándu öld. Þessu tímabili skifti hann í fjögur smærri tímabil, frá Kristsfæðingu til 400 e. Kr., frá 400—800, víkingaöldina og „hina norrænu endurvakningu“ fram á miðja þrettándu öld. Hánn lýsti því hvernig sam- hygðin hefði farið vaxandi jafnt og þjett þar til á Víkingaöld- inni. Á þessu tímabili hefðu rík- in þrjú verið að mótast, Svíþjóð, Noregur og Danmörk — og síð- ast Island. Þjóðir þessar hafi átt sam- éiginlega tungu, trú og kyn- stofninn hafi verið hinn sami. Samhygðin kom m. a. fram í Iþví, sagði prófsesorinn og brosti, að bætur fyrir norrænan mann <voru 9 merkur silfurs, en ekki nema 4 mérkur fyrir annara þjóða menn. (Þetta var þó að- eins innskot!). Fortíðinni lauk þannig að •oH skilyrði voru fyrir hendi til þess að skapa samheldni milli Norðurlandaþjóðanna. En á næstu öldum fóru löndin þrjú að huga meir að sínum eigin málefnum, hver fyrir sig. Deilur risu milli þeirra, er þjóð- armeðvit^nd þeirra varð ríkari En í byrjun þrettándu aldar vaknaði hugsjónin um sam- heldni þjóðanna að nýju með Birgi jarl í Svíþjóð“. Var gerður góður rómur að ræðu 'Tunbergs. Hafði fyrirlesturinn staðið í þrjá stundarf jórðunga. í gærkvöldi flutti próf. Hjalmar Lindroth erindi í útvarpið, sem hann kallaði: Þegar íslenskan var talin móðir norðurlandamálanna. Deginum luk með kynningar- kvöldi í Oddfellowhúsinu. Voru þar 200 manns, Svíar og gestir úr sænsk-ísl. fjelaginu Sví- þjóð. Ásgeir Ásgeirsson bauð gesti velkomna, Veislan stóð til kl. 2. Var mikið fjör, dansað og sungið — og leikið! Meðan á borðhaldi stóð var komið upp leiksviði á annari hæð, las Aug. Faick leik hússtjóri upp úr verkum Strind- bergs. Nýr leiknemi kom fram á svið- ið — sá tignasti sem Aug. Falck hefir fengið til kenslu í 35 ára leikstjómarstarfi: prófessor Tuln- berg. „Hjer er fjör, óvenjulegt fjör“ var það síðasta, sem Mbl. frjetti áður en það fór í pressuna. Nýr lax, (lækkað verð). Ný Nautalifur og ágætur Eabarbari. Milnersbúð. Laugavep: 48. Sími 1505. og IsMinga. „Stockholms Studest- sángerförbund“ er snildar-kór. Hinn sænski stúdentakór vakti geysimikla hrifningu meðal áheyr- enda í Gamla Bíó í fyrrakvöld. Aður en þessir fyrstu tónleikar kórsins hófust, söng „Karlakór Eeykjavíkur“ „Du gamla, du fria“, en Svíarnir svöruðu með „Ó, guð, vors lands“. „Stockholms Studentsángar- förbund“ er snildar-kór og Einar Ralf er snildar-söngstjóri. Radd- efni kórsins er eins og best getur verið, og „Diciplin“ í svo góðu lagi, að líkast er því að söngstjór- inn leiki á orgel og ,,registreri“ frá hinum veikasta „aeolinu“-blæ til þrumandi básúnuhljóms. Þessi kór staðfestir glæsilega það orð, sem löngum hefir farið af tafburða karlakórssöng Svía. Það er ekki æfinlega að karlakór- ar, jafnvel þó góðir þyki, flytji verðmæta list, en hjer svífur and- inn yfir vötnunum, því að þrótt- mikill listamaður, með fullkomna stjórnariatækni, stýrir fylking á- gætra söngmanna, sem kunna ,og geta hlýtt hverri bendingu, hverju augnaráði hins markvísa og djarfa söngstjóra. Kórinn flutti oss sænsk karla- kórlög, eldri og nýrri. Sum tvoru gamlir, góðir kunningjar, sem gaman var að heyra aftur. Hin lögin vöktu þó engu síður hrifn- ing áheyrenda, og má sjerstak- lega nefna „Pá fjállet i sol“ eftir Peterson-Berger, ,,Sorgbudet“ eftir Pergament, „Under Lövet“ eftir Schönning og hina fögru „Vöggu- vísu“ eftir stjórnandlann, Einar Ralf. Fram úr röð bassanna steig Sig- urd Björling og söng einsöng með mikilli barytónrödd. Það var ekki laust við að röddin yrði helst til fyrirferðarmikil í „Vaggvisa" Rolfs, en í „Sten Sture“ var hjer sannur hetjusöngvari á ferðinni og mikill fyrir sjer. „Sænsk vika“ stendur nú yfir þessa dagana í Reykjavík og sænsk flögg blakta víðsvegar við hún. Við fögnum lnnum sænsku gest- um. Við fögnum hinum glæsilegu fulltrúum mestu söngþjóðar Norð- urlanda, Svía. P. f. Dagbók. Hafnarf|ðrðnr Qll skipin fara á veiðar Togararnir Maí og Júpíter fóru á ísfiskveiðar í gær. Togarinn Sviði fór á síldveiðar í fyrrakvöld, og hefir skipshöfnin leigt hann til veiðanna. Togarinn Andri fer í Slipp í dag og síðan á ísfiskveiðar. Eru þá öll Hatfnarfjarðarskipin farin á veiðar. Enskur togari kom í gær til þess að skila af sjer fiskiskipstjóra, Jóni Árnasyni frá Heimaskaga. I.O.O.F. 5 = U8728V2 = Veðrið (miðvikud. kl. 17): Vind- ur er víðast hægur hjer á landi og vindstaða breytileg. Norðanlands er bjartviðri en annars þykt loft og sumstaðar lítilsháttar rigning eða súld. Hiti er frá 9—16 st. Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg- viðri. TJrkomulaust. Lágafellskirkja. Messað á Lága- felli n.k. sunnudag, 5. júlí kl. 1. Sænski stúdentakórinn söng í annað sinn í Gamla Bíó í gær- kvöldi við mjög góða aðsóka og ágætar viðtökur. Næstu tónleik- ar kórsins verða annað kvöld í Gamla Bíó. Verkfall rafvirkja heldur áfram og var engin lausn fengin í gær- kvöldi. Byggingar í bænum stöðv- ast nú smám saman, því að eng- ar raflagnir fást lagðar í hús. Er það því mjög bagalegt, ef ekki fæst skjót lausn á þessa deilu. 3ja mánaða fangelsi fyrir skít- kast. Dómur er fallinn í skítkast- málinu í Hafnarfirði. En því máli var þannig háttað að menn túku að kasta skít í bæjarfógetann á með- an hann var að bjóða upp kýr á uppboði fyrir ógoldnu verðjöfn- unargja.ldi. Tveir menn, sem tóku þátt í skítkastinu, voru dæmdir í þriggja mánaða fangelsi, við venju- legt fangaviðurværi, óskilörðsbund- ið. Mennirnir, sem dæmdir voru, heita Otto Björnsson og Sigurður Einarsson. Wigmore bjargað. Enska togar anum Wigmore, sem strandaði á Skallarifi við Skaga á surinudag inn var, hefir verið bjargað af skerinu. Tókst varðskipinu „Ægir“ að draga skipið út á flóðinu í fyrrakvöld. Togararnir. Sviði kom í gær vegna- lítilsháttar bilunar og .fór samdægurs aftur á veiðar. Belgaum kom af veiðum í gærmorgun með um 2000 körfur og fór aftur á veiðar. Otur fór á ísfisksveiðar gær. Kennaxaprófi við Háskólann íslenskum fræðum lauk nýlega Jóhann Sveinsson frá Flögu, með 1. einkunn, 94 stigum. Sjúklingar á L.augarnesspítala hafa beðið blaðið að fær,a þeim Kjartani Bjarnasyni, lögreglu- þjóni, og Jóni ísleifssyni kærar þakkir fyrir komuna á spítalann í fyrradag. Kjartan skemti sjúkl. með söng og Jón ljek undir á hljóðfæri. Rúml. 60 þús. laxaseiði hafa verið klakin út í klakhúsi fiski- ræktarfjelagsins „Rangá“ í vetur, eftir því, sem formaður fjelagsins, Björgvin Vigfússon skýrir frá. Seiðin verða látin í Eystri-Rangá, Ytri-Rangá, Hróarslæk og Stokka- læk. (F.Ú.). Happdrætti hjúkrunarkvenna. Frestað verður að draga til 15. september næstkomandi. Frú Theodóræ Sveinsdóttir, mat- reiðslukona, á sextugsafmæli í dag. Frú Theodóra starfrækir nú gistihúsið í Reykholti. Hinir mörgu vinir hennar munu senda henni hlýjar óskir á þessum inerk- isdegi hennar. Veitingaskálinn við Gullfoss hefir nú verið stækkaður og um- bættur og tekur nú um 100 manns í sæti. — Hjónin Sveinlaug Hall- dórsdóttir og Sigurðúr Kristjáns son úr Hafnarfirði annast veit ingar. Hafa þau haft veitingar við Gullfoss síðastliðin 3 sumr ur. (F.Ú.). Fagranes fer hjeðan til Akra ness kl. 4 í dag. E.s. Lyra ’fer í kvöld kl. 6 til Bergen. Hvað verðiíf ' um ítölsku ú1 Í|Ji Í*M SJ A London, 1. júlí. FÚ. T T ö L S K U blaðamennirnir, sem reknir voru út af fundi Þjóðabandalagsins í gærkvöldi, sátu í varðhaldi í nótt sem leið. Þeim hefir nú verið bannaður aðgangur að blaðamannasal Þjóðabandalagsins, og skrifari Þjóðabandalagsins hefir svift þá * heimild til allrar frjetta- starfsemi í sambandi við fundi stof nunarinnar. Þá hefir blaðamannafjelagið „Foreign Press Association“ haldið fund, og vítt harðlega framkomu blaðamannanna, og sent Abyssiníukeisára afsökún- arbeiðni í nafni stjettarinnar, en uni leið tekið fram, að ít- Ölsku blaðamennírhir hafi ekki verið hieðlimir fjelagsins. Athæfi ítölsku blaðámann- anna sætir hörðum dómum tacwjsfe •r ------ iVBálabfttódraaa .*rg .8 1 bvarvetna um Evrópií,. nema á Ítalíu. ‘jtloti jÍTÖmnjBCf., Frönsk blöð í garð blaðamannanna'jMOg Mai!, dame Tabouis hik'ar ekki yið að segja, að þeir hafj konawi.’ftam: eins og þeirogeyðu, ,að bpði itn ölsku stjórnarinnar. Enda hefir þeim í dag .bQPkfedsamhygðífr- skeyti f rá ú,tþ^ið$l«jnálaráð- herra ítala, eg ítöNk bíöð ségja, að ekki hafLwÍð^Yfpj^ð þeiu gætu þolað þegjandi þá óvirð- ingu, sem ítalíu var sýn,d, .tneð því að leyfa keisaranumiaðitaka til máls. m<>jibi't > . Það er á valdi syi^sbéáfkU.! stjórnarinnar, að Yiáa blaða- mönnunum úr landi) .eða. dsema þá í tveggja ára ~-r> ‘eða> lengri — fangelsisvist, Búiat.er við að þeim verði vísað 'úrs jandiniiri Barnaverndarráðið. Út er komin skýrsl^ þess og nær yfir tímabilið 1. júlí 1932 til 31. desember 1935. Er hún gefin út samkvæmt fyrir- mælum, í 21. grein harnaverndar- laganna. Mun það vera í fyrsta skifti sem stnt( ýfirlit yfir sögu harnaheimilá á fslandi birtist í einn lagi. Og það er aðalerindi skýrslunnar: Að fræða lesendnr um það, hvað gert hefir verið, og hvetja þá til að sinna barnavernd- armálum meir en áður. Er mikinn fróðleik í skýrsluna að, sækja um þáð hver þörf hefir yerið á barna- liælum og barnavernd hjer á landi. FarþegaT með Goðafossi frá Rvík í gær til Hull og Hamborgar-. Herr Ziegler og frú, Eiríkur Bene- dikz og frú, Sturla Friðriksson, kaupm, Sigþríiður Friðriksdóttir, frú SiguTlaug Einarsdóttir, Björg Axelsdóttir. Eimskip. Gullfoss er í Kaup- mánnahöfn, Goðafoss fór til Vest- hafa eignast mörg bÖfii óg mann- mannaeyja, Hull og Hamborgar í'að þau eins og best má verða. —■ gærkvöldi. Briiarfoss var á Hest- eyri í gær. Dettifoss fór frá Hull fyrradag áleiðis til Vestm.eyja Reykjavíkur. Lagarfoss er j tr«89' Gullbrúðkaup. ::» .1. II ’í 6: , ! í I Gullbrúðkaup öiga þau í dag, Jóhann Erlendssori söðlasmiður í Stykkisllólmi og frú Anna Sigurð- ardóttir. — Þau erú' Bééð? áf góð- um bændaættulii á Súæfellsnesi óg hafa dvalið baú'aTla' aáfií — ÞÚtf1 hjónin byrjnðn bÚHkap í D&l í Miklaholtshreþþi og héfir Jóhann oftast verið kendur við Ðal síðan, en nú hafia þaú, síðustu 30 árin átt beima í Stýkkishólmi. : Um þessi bjón má það segja. að þau hafi lifað lífi hinna kyrlátu í' landinu. Jóhann liéfiú stundað starf sitt af kostgæfni ‘b|f ýerið tal- inn meðal góðr'a börgaTa í sveit sinni, en Anna hefir gætt heimilis síns með þeirri álúð og' ástundun, sem góðri konu sæmir. — Þau í elli sinni njóta þau nú verð- skuldaðra ávaxta. — Nú safnast böm þeirra saman í Stykkishólmi og fteyKjaviKur. riaganoss er 1 ^ þesg að ra göinlú hjónnnum Kaupmannahofn. Selfoss er 1 Reykjavík. Hafþór, vjelbáturinn, sem strand <aði í Siglufirði, er frá Akranesi, en ekki Hafþór frá Reykjiavík. Til Strandarkirkju: frá ísfirð- mg 10 kr., ónefndum (gamalt á- heit) 5 kr., N. N. 10 kr., Kr. Jó- hannsd. 5 kr„ f. B. 2 kr. Til fötluðu konunnar, frá E. S. J. 5 kr„ N. N. 10 kr. Útvarpið: Fimtudagur 2. júlí. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur: Ljett lög. 19,45 Frjettir. 20.15 Upplestur (Jón Aorðfjörð, gamanleikari). 20.40 Einsöngur (frú Guðrún Á- gústsdóttir). 21,05 Lesin dagskrá næstu viku. isk svíta, eftir Ippolitow, o. fl. 21.15 Útvarpshljómsveitin: Kákas- 21.40 Hljómplötur: Danslög (til kl. 22,00). þennan merkisdag í lífi þeirra. svo hátíðlegan, sem föng standa til, en við vinir þéirra óskum þess, að þau megi lengi endast heil heilsu. Dóttir þessara hjóna er frú Þóra ekkja Ólafs StefánssonaT skosmíða meistara á ísafirði, en synir þeirra eru: Þórður, úrsmiður á ísafirði, Sigurður Marinó, sjómaður í Stykkishólmi, Þorleifur, skosmið- ut í Stykkishólmi, Oddgeií!, \ versl- unarmaður hjá Garðlifi Gíslasyni í Reykjavík, Torfi, verslm. hjá Þórði Pjeturssyni & Co, í Reykja- vík, og Erlendur, húsgagnasmiður í Reykjavík. O. C. Sundmeistaramótinu verður frestað til laugardags, og ,fer_ þá fram að Álafossi. Verður þá kept í þeim sundum, sem éftir e¥ú, 100 m. baksund barla, 4Ó0 m. "frjáls aðferð karla, 200 m. bringuSund kvenna, 200 m. bringusund k&rla, og 50 m. frjáls aðferð í kvenna- Isúndi. nÍHiK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.