Morgunblaðið - 11.08.1936, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Þriðjudaginn 11. ágúst 1936.
Fjölmennasla
útískemtun
sumarsins.
5 þúsund manns
á skemtistað
Sjálfstæðismanna.
1000 manns
hjá sósíalistum
í Rauðhólum.
T T tiskemtun SjálfstæS
^ isf jelaganna síðastL
sunnudag varS f jölsótt-
ari en nokkrum hafði
getað dottið í hug, jafn-
vel |>ótt reynslan hafi
verið búin að sýna að
f jöldinn vil! hvergi held-
ur vera.
Þúsundum saman
streymdi fólkið inn að
Eiði við Gufunes. Um
miðjan dagin mátti svo
heita að á veginum rnilli
Reykjavíkur og Gufu-
ness væri ein óslitin híla-
keðia. auk bess. sem 10
vjelbátar gengu látlaust
á milli með fólk.
En þrát fyrir þenna mikla far
kost á sjó og landi varð margt
fólk að bíða lengi áður en það
komst að.
VeðurblíSan.
Ekki er gott að segja með
neinni vissu hve margir hafi
komið að Eiði á sunnudaginn,
en ekki mun of hátt reiknað
að þar hafi verið 5000 manns.
Veður var óviðjafnanlega
gott. Strax um morguninn, er
menn komu á fætur, var him-
inn alheiður, svo hvergi sást
skýhnoðri á lofti. Blæjalogn
var, svo ekki bærðist hár á
höfði.
Sjálf skemtunin átti ekki að
hefjast fyr en kl. 2 e. h.
En með fyrstu bátunum, sem
fóru frá Steinbryggjunni kl. 10
f. h. fór fjöldi manns. Um há-
degið var f jaran umhverfis Eið-
ið orðin hvít af baðandi fólki,
ungu og gömlu. Hundruðum
saman fór fólk í sjóinn og
langt fram á kvöld var krökt
af sundfólki, alt í kringum
skemtistaðinn.
Um alt túnið og graslendið
láu menn í hópum og nutu sól-
arinnar og góðveðursins.
Skemtunin sett.
Klukkan 2 e. h. kom Lúðra-
sveit Reykjavíkur og ljek
nokkur lög á hæðinni fyrir of-
an bæjarstæðið á Eiði. Safn-
aðist fólk þar saman og í brekk
unni við ræðupallinn, því nú
áttu ræðuhöldin að hefjast.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Skips með 18 manna áhöfn
saknað úr síldveiðaflotanum.
Línuveiðarinn Orninn
frá Hafnarfirði.
Ekkert til hans spurst
síðan á sunnudag.
Óveður skall á Norðanlands
á laugardaginn.
,
OTTAST er um afdrif línuveiðarans „Örninn“ frá
Hafnarfirði, en hann var eitt þeirra skipa, sem
lenti í aftaka norðvestan illviðri fyrir Norðurlandi á laug-
ardag og aðfaranótt sunnudags. — 18 manna skipshöfn
var á Erninum.
Ekkert hefir til skipsins spurst síðan á sunnudags-
morgun kl. 10. En þá sigldi línuveiðarinn „Jarlinn“ fram-
hjá Erninum við Mánareyjar. Örninn var þá á leið vestur
með landinu og virtist alt vera í lagi hjá honum, nema að
hann var búinn að missa annan nótabátinn-
Örninn hafði verið að síldVeiðum við Langanes ásapit mörgnm
öðrum skipum og aflað þar mjög vcl. Skipverjar á „Jarlinum“ segja
þá að „Öminn‘‘ hafi ekki haft mikla síld á þilfari. Hefir hann því
sennilega verið búinn að moka mikhi af síld út til að ljetta skipið.
í gærmorgun þegar öll skip, sem úti höfðu verið í óveðrinu, voru
bomin til hafnar nema Orninn, fóru menn að óttast afdrif hans og
var þegar hafin leit að honnm og lýst eftir honum í útvarpinu. Yarð-
sbipið Ægir, sem var á Húsavík í gærmorgun, fór þegar að leita, svo
og mörg síldveiðiskip.
í gærkvöldi voru leitarskipin ekki komin til hafnar og ekkert hafði
frjest af „Erninum", en menn gera sjer vonir nm að aðeins sje um
vjelarbilun að ræða, að að minsta kosti hafi mennirnir komist í nóta-
bátinn, sem eftir var, ef skipið hefir sokkið.
Á súhnudagsmorguninii, þegar „Jarlinn“ sá til „Arnarins“, var
veðrinu farið að slota töluvert.
Líhuveiðarinn „Hringur" kom með bræðslusíld til Dagverðareyrar
í gærmorgxm. „Hringur“ var að veiðum við Langanes á sömu slóðum
og „Örniim“ á laugardaginn. „Hringur“ lenti í versta veðrinu og var
hætt kominn. Fekk hann á sig stórsjó útaf Rakkanesi austan við Sljettu
og lagðist á hliðina.
Sighvatur Bjarnason, skipstjóri á „Hring“, hefir skýrt svo frá í
viðtali við frjettaritara Morgunhlaðsins:
Frásögn skipstjórans á Hring.
— Á föstudagskvöld kl. um 11
vorum við, „Örninn“ og fleiri skip
staddir út af Svínalækjartanga á
Langanesi. Um kvöldið þegar við
sigldum upp undir til þess að leita
skjóls af landi undir nóttina sá-
um við „Örninn“ fá mjög stórt
kast og kölluðu sliipverjar með
eimpípunni á önnur skip sjer til
aðstpðar. Kom línuveiðarinn „Ald-
en“ að og hjálpaði þeim til að ná
kastinu.
Klukkan 4 á laugardagsmorgun
lögðum við út aftur og sáum við
að „Örninn“ var talsvert hlaðinn af
kastinu frá kvöldinu áður. Um sex
leytið um morguninn sáum við til-
sýndar að þeir á „Erninum:“ voru
í bátunum og fengu þá að öllum
líkindum stórt kast. En við sigldum
burt og veittum „Erninum" ekki
frekari athygli.
Þremur klukkustundum síðar
skall á svartaþoka og heldum við
áfram í þokunni í klukkustund. Þá
sáum við stóra síldartorfu. Köst-
uðum við fyrir torfuna og kom
svo mikil síld í nótina að við nrð-
um að fá línuveiðarann „Rifsnes"
okkur til aðstoðar. En þrátt fyrir
það náðum yið ekki nema 150 mál-
um, þá sprakk nótin.
Veður fór nú að versna og ákvað
jeg að leggja af stað heimleiðis til
Siglufjarðar um hádegisbilið. Vor-
um við þá staddir ca. 5 mílur norð-
austur og Ponti. Sigldum við síð-
an 14 mílur í norðvestur. Var veðr-
ið þá orðið svo slæmt að skipið lág
undir áföllum.
Sigldum við þá uþp undir Rakka
nes til þess að leita hafnar í Við-
arsvík í Þistilfirði.
Út af nesoddanum fengum við á
okkur stórsjó, sem setti skipið á.
hliðinæ og tók út aAa síld, sem var
á þilfari, en það yar ekki nema
150 mál.
Eftir 20 xnínútur tókst okkur að
rjetta skipið og biðum við síðan
þar til veðrinu slotaði á sunnu-
dagsmorgun.
Síra Friðrik HaUgrímsson kom
ieim úr sumarferðalagi með Gull-
fossi frá útlöndum á laugardaginn
var. Var hann og frú hans í Dan-
mörku um mánaðartíma.
AtvinnumálaráOherra
skipar kommúnista
rannsóknardómara.
flrás rikisstjðrnarinnar
á Vestmannaeyjar.
i
fyrra sumar hóf Alþýðublaðið svæsin rógskrif um
Yestmannaeyjakaupstað og taldi átvinnumála-
ráðherrann, Haraldur Guðmundsson, „sjer skylt“ að verða
við kröfum blaðsins og skipa rannsókn á bæjarfjelagið.
J,ón Guðmundsson endurskoðandi, bróðir ráðherrans,
fór til Eyja og framkvæmdi rannsóknina. Skýrsla Jóns
Guðmundssonar staðfesti ekki neitt af þeim sökum, sem
blaðið feitletraði þegar rannsóknin var hafin.
I
' Alþýðublaðið mintist ekki
framar á málið eftir að Jón
Guðmundsson kom úr rann-
sóknarförinni.
Samfylkingin í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, Jón Rafnsson, ísleifur
Högnason og Haraldur Bjarnason
kommúnistar og „fulltrúi jafnað-
armanna“, Páll Þorbjarnarson, voru
samt ekki af haki dottnir.
Nú var endurskoðendum bæj-
arreikninganna beitt til að finna
höggstað á gjaldkeranum, Guö-
laugi Gíslasyni.
í nóvemher s.l. haust sendn
kömmúnistar endurskoðendur til
gjaldkera, töldu sjóðinn og gerðu
upp sjóðbókina. Gáfu þeir gjald-
keranum síðan vottorð um það, að
þeir hefðu ekkert fundið athuga-
vert.
1 xxxars s.l, sendu kommúnistar
ogJPáll Þorbjamarson til stjóm-
arráðsins kænx á gjaldkerann,
bæjarstjórann og meiri hluta bæj-
arstjómar.
Kæran var send þeim kærðn til
umsagnar og hafa þeir í svari sínu
sýnt fram á það að kæruatriðin
eru tilhæfulaus og pólitísk árás
samfylkingarinnar á bæjarstjórnar-
meirihlutann. Oll gögn um þetfa
hafa verið lögð fram fyrir at-
vinnumálaráðherra.
Til þess að vera vissir nm að
ráðherrann sendi hentugan mann
til rannsókn arinnar skrifaði einn
kærenda, kommúnistinn ísleifur
Högnason, Haraldi Guðmhndssyni
eftirfarandi knnningjahrjef.
Kaupfjel. Verkam.
Po. Box. 96.
Vestmaxmaeyjum ísland.
Reykjavík, 17/4 1936.
Með sjkirskotun til viðtals okkar
í dag sexxdi jeg þjer hjer með sem
fylgiskjöl með kærunni á bæjax-
stjórnarmeirihlutaim í Vestmanna-
eyjum nokkuð af brjefaskriftum
gjaldkerans og endurskoðenda.
Þungamiðjan í kæruskjali okkar
er dregin saman í niðurlagi henn-
ar í einum 6 punktum og þykir
mjer óþarft að telja það upp hjer.
Mjer hefir dottið í hug að hent-
ugt væri að Ingólfur Jónsson, sem
hefir sagt mjer að hann ætti erindi
tál Vestmannaeyjá í eftirlitsferð til
lyfsalans þar, rannsajkaði um leið
gildi kæruatriða okkar í nafni
stjórnarinnar.
Með vinsemd og virðingu.
ísleifur Högnason.
Hr. atvinnumálaráðherra
Haraldur Guðmnndsson,
Reykjavík.
Brjef þetta slæddist með skjölum
málsins, hinum opinberu, sem send
voru úr Stjórnarráðinu *til' Vest-
mannaeyjia. ' ...
Brjefið þarfnast engrg skýringa.
Isleifur vill tryggja sjer árangur-
inn af kærunni fýrirfram og biður
um yfirlýstan kommúnista tií að
framkvæma „rannsókniha".
Haraldur Guðmundsson hefir
fúslega orðið við tilmælum kunn-
ingja síns og dúsbróður, kommún-
istans í Vestmannaeyjum, og hefir
nú skipað Ingólf Jónsson kommún-
ista til ,að rannsaka kæruatriðin
sem kommúnistarnir í bæjarstjórn
bera fram.
Með þessu stofnar þessi ráðherra
til þess vitandi vits að rannsóknin
verði hlutdræg og kommúúistum í
vil og hleypur þannig erindi
kommúnista.
Það er ljóst af því hvernig at-
vinnumálaráðherrann, Haraldur
Guðmundsson, fer í ölln eftir fyrir-
lagi kommúnista í Eyjum í þessu
máli, að blekkingar þeirra og Páls
npphótarþingmanns ern framdar í
skjóli og með fnllu samþykki þessa
ráðherra og að ráðherrann rær að
því með þeim að kommúnistasam-
fylkingin nái yfirráðnm yfir bæj-
armálum Vestmannaeyja til að
leggja atvinnulífið þar í rústir.
Jóhann Þ. Jósefsson.