Morgunblaðið - 29.09.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1936, Blaðsíða 2
2 MURGUJN BLAÐití Þriðjudagur 29. sept. 1936. Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Ritstjórar: J6n Kjartansson og Valtýr Stefánsson — ábyrgtSarmaöur. Ritstjórn og afgreitSsla: Austurstrseti 8. •—Sími 1600. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstof a: Austurstræti 17. — Slmi 3700. Heimasímar: J6n Kjartansson, nr. 3742 Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. E. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánubi. í lausasölu: 15 aura eintakiö. 25 aura metS Lesb6k. Lækkun frankans, Lækkun frankans er vafa- láust stórfeldasti viðburðurinn • •• #. •• ■* ■;,/>■■ sem orðið hefir á fjármálasvið- inu síðustu fimm árin, eða síð- an Englendingar lækkuðu ster- lingspundið. Það var í septembermánuði 1931 að Englendingar lækkuðu sterlingspundið. Sá atburður hafði afleiðingar um víða ver- öld. Menn stóðu sem þrumu lostnir, Engum hafði komið til hugar að sterlingspundið mundi raskast úr skorðum. Á það hafði verið litið sem þann klett, sem óhaggaður mundi standa í öllu hafróti fjármál- anna. Ekki éf hjer unt að rekja allar þær afléiðingar, sem þessi .viðburður hafði á ráá viðskift- anna í heiminum, enda eru um þær deildar skoðanir. Neville Chamberlain jjje.lt því fram, að fyrir England, 'mundi sterlings- fallið hafa bætandi áhrif. Hef- ir síðan verið'bent á af horfftm og fylgismönnum hans á ýmis- legt þessum spádómi til gildis, meðal annars rýmkun atvinn- unnar. í kjölfar Engl^ndinga sigldi síðan fjöldi þjóða, meðal ann- ars Danmörk og ísland. Síðan sterlingspundið fjell hefir sú spurning stöðugt verið uppi. í fjármálaheiminum: hvað gerir frankinn og hvað gerir markið ? Leon Blum hefir nú svarað þessari spurningu hvað frank- ann snertir, og háværir spá- dómar eru um það, ag^markið hljóti að fara sömú leið. Blum hefir nú leikið þánfi leik, sem Poincaré Ijek áður. Reynsl^n verðúr áð skera úr um það, hvort honpni hepnast þetta eins vel og fyrirreJinara hans. Leon Blum telur þessum ráð- stöfunum beint gegn atvinnu- leysinu og fasismanum. >y í T.úijq í*. /v . .i. Alþýðublaðið skýrír frá þess- ari fregn á laugardag og sfegir: „Stjórn Leons Blum hefir stigið fyrsta stóra sporið til þess að koma Frakklandi út úr krepp- unni“. Hvaða afleiðingar, sem þessi stórfeldi fjármáiaviðburður kann að hafa, þá er eitt vist að áhrifa hans mun gæta víða um lönd. STJORNARLIÐIÐ ER A FLÓTTA TIL MADRID. Eftir 70 daga vörn kom hjálpin til Alcazar. Barist í návígi ágötum Toledo. Úrslitaorusturnar um " 'Tssmz •sraam; 'raisr ir ■ ■ zmaBEXSF'r Madrid eru að hefjast. >— - .. ■ "■ A. síðustu stimdu — áður en hersveitir upp- reisn.a.rmanna rjeðust inn í Toledo á sunnudagskvöldið reyndu stjórnar- liðar enn að ná lífi þeirra, sem varist hafa í Al- cazarvíginu í 70 daga af frábærri hreysti, með því að sprengja vígið í loft upp í annað sinn. Eftir sprenginguna gerðu þeir áhlaup á vígið en voru hraktir til baka. Þegar hersveitir uppreisnarmannanna voru korrpiar inn í Toledo, um kvöldið, þustu samherjar þeirra úr Alcazar- víginu út á götur borgarinnar, og tóku að berjast í návígi, viS þá hermenn stjórnarinnar, er ennþá voru eftir í borg- mni. Víða höfðu stjórnarliðar komið sjer fyrir uppi á húsþökum og í gluggum, og skutu þaðan á uppreisnarmannaherinn. Stjórnarherinn hörfar nú í áttina til Madrid. Spánska stjórnin hefir. skorað á alla and-fascista að verja Madrid. „Hjer verður háð úrslitabaráttan um frelsi Spánar“, segir í ávarpinu. „Vjer verðum að gera Madrid að óvinn- anlegri borg“. I tilkynningu, sem uppreisn- armenn gáfu út í gegn um útvarpið í Sevilla í gærkvöldi síðla, sögðu þeir: „Toledo er unnin. — Nú sækjum vjer til Madrid. Frelsisstund Spánar nálg- ast“. Þá sögðu þeir einnig, að ræð- ismenn Þjóðverja og ítala í Se- villa hefðu vottað þeim saih- fögnuð sinn, yfir hinni drengi- legu vörn Alcazarvígisins. Ekki er vitað með vissu enn hve. margir eru enn á lífi af þeim, sem vörðust í víginu, eða hve margir hafa farist í spreng ingunum í gær og á dögunum. Samkv. einkask. og FÚ). Leon Blum, forsætisráðh. Frakka. Svíar í stað Dana. Bolivía, Svíþjóð og Nýja Sjá- land hafa hlotið kosningu í ráð Þjóðabandalagsins, í stað þeirra ríkja, er fara frá. Sví- þjóð hefir verið kjörin í stað Danmerkur. (FÚ). Skráning atvinnulausra ung- linga heldur áfram í dag og á morgun. - Grimmur - bardagi um Bilbao. Á norðurvígstöðvunum er nú barist um Bilbao. Hafa uppreisnarmenn hafið ákafa loftárás á borgina og eyði- lagt 150 hús. ,,Politiken“ skýrir frá því að stjórnarherinn hafi látið skjóta níutíu gisl og hafi í hótunum að skjóta alla gisl- na, sem þeir enn hafa í haldi ef loftárásinni verði haldið áfram (símar frjettar. vor). Hrunið frá gullinu heldur áfram. Hollendingar hafa lækkað gyllinigengið. Italska líran hætt komin. FRÁ FRJETTARITARA MORGUNBLAÐSINS. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. PJÓÐVERJAR álíta að með gengisskerð- ingu frankans sje verið að keppa að pólitísku markmiði og benda á í því sambandi að það sjeu aðeins lýðræðislönd, sem lækkað hafa gengi gjaldeyris síns. Öpinberlega hefir verið tilkynt í Berlín, að gengi marksins verði ekki felt. Italir eru aftur á móti á báðum áttum. ítaiska líran er hætt komin og Mussolini er nú að ráðgast um það við sjerfræð- inga, hvort ekki muni rjett að líran verði látin elta frank- ann. Kauphöllum í Ítalíu hefir verið lokað í þrjá daga. Þau lýðræöislönd, sem fetað hafa í fótspor Frakka og felt gengi gjaldeyris síns, eru Sviss- lendingar og Hollendingar. Meyer, forseti svissneska sambandslýðveldisins, hefir til- kynt, að sambandsstjórnin hafi ákveðið að lækka gengi sviss- neska frankans, til samræmis við þann franska. Sagði hann að Sviss hefði ekki þurft að grípa til þessarar ráðstöfunar af fjárhagslegri nauðsyn, þar sem svissneskur gjaldmiðill stæði á mjög traustum grunni, en þetta hefði reynst nauðsyn- legt af viðskiftalegum ástæðum til þess að missa ekki af við- skiftunum við Frakkland, sgm hingað til hefði verið aðalkaup- andinn að svissneskum fram- leiðsluvörum (segir FÚ-fregn). Dr. Colijn, forsætisráðherra Hollands sagði í dag, að Hol- land neyddist til þess að hverfa frá gullinnlausn, vegna gengis- lækkunar í Frakklaruli pg Sviss En Hollandsstjóm myndi taka upp þá aðferð, að hafa fast eftirlit með gengi gyliinisms, og stofna í þeim tilgangi gengisjöfn- unarsjóð, á svipaðan hátt og stjórn Bretlands hefir gert, og muni sá sjóður verða tekinn í notkun á miðvikudaginn. Hollenska þingið heldur aukafund í dag. 1700 kg. af gulli voru flutt út frá Hollandi á laugardaginn. 10 miljarö Iranka unarsjóður. Kommúnistar styðja gengislækkunina. FRÁ FRJETTARITARA VORUM KBH. I GÆR. Stuðningsflokkar frönsku alþýðufylk ingarst j órnarinnar hafa ákveðið að falla frá kosningaloforðum sínum og styðja frum- varp Leon Blum um gengisskerðingu frank- !ans. Komm.únistaforinginn Thor- ez hefir lýst yfir því, fyrir hönd síns flokks, að hann sje nú eiginlega enn sem fyr andvígur gengislækkun, en að hann muni samt sem áður styðja stjórnina, til þess að alþýðufylkingin sundrist ekki. Er nú búist við að frumvarp- FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.