Morgunblaðið - 16.02.1937, Side 1

Morgunblaðið - 16.02.1937, Side 1
LÍFTRYGGINGARFJELAGIÐ 99 DANMARK Stofnað 1861 Eitt elsta og ábyggilegasta líftryggingarfjelag á NorOuriðndum. Eignir ytir 76 miljónir kröna. Fjárhæð samanlagðra trygginga yfir 300 miljónir króna. Öllum tryggingum fylgir það ákvæði, án sjerstaks endurgjalds, að iðgjalds- greiðsla fellur niður að einhverju eða öllu leyti, ef hinn trygði missir heilsuna eða verður óvinnufær. En tryggingin heldur áfram í fullu gildi. í höfuðatriðum skiftist líftrygging í tvo flokka og hvor flokkur hefir sína kosti. Annar fIokkurinn er æfitrygging. Sú trygging er ódýr. Tryggingarfjárhæðin greiðist eftir andlát, hvenær sem það ber að. Menn geta valið um hversu mörg ár þeir greiða iðgjaldið. „Danmark" niælir með því yfirleitt, að menn greiði iðgjald aðeins til 60 eða 65 ára aldurs, því að reynslan hefir sýnt, að eftir þann aldur gengur mörgum erfiðlega að inna af hendi iðgjaldagreiðsluna. Munið þess vegna þegar þjer tryggið yður, að athuga hversu lengi þjer greiðið iðgjald. Hinn flokkurinn er trygging með útborgun ef hinn trygði nær ákveðn- um aldri, til dæmis 60 eða 65 ára. Falli hinn trygði frá fyrir þann aldur, greiðist öll fjárhæðin eftir lát hans. Á þann hátt tryggja menn ekki að eins afkomu fjöl- skyldu sininar, heldur mynda þeir sjer á þennan hátt líka varasjóð er gerir þeim fært að lifa áhyggjulausu lífi síðustu ár æf- innar, þegar starfskraftarnir oft eru þrotn- ir. FLESTIR lifa í þeirri von, að alt muni ganga vel, sem þeir taka sjer fyrir hendur og ekkert óvænt komi fyrir. En hið eina sem, víst er í þessari tilveru, er að seint eða snemma verða óvænt um- skifti. Vonin og traustið er gott, en það er ekki einhlítt. Gerið ráð fyrir því óvænta og tryggið yður og f jölskyldu yðar fyrir afleiðingum þess. Líftryggingin er auð- veldasta, öruggasta og almennasta að- ferðin til að tryggja fjárhagslega af- komu sína og sinna gegn afleiðingum hins óvænta. Munið það, að trygging er því ódýrari sem, menn eru yngri, er þeir kaupa hana, Munið það einnig, að sá fjársjóður, sem myndast við líftryggingu, er ekki háð- ur yðar daglega starfsrekstri, sem að meira eða minna leyti getur tekið stöð- ugum breytingum. Hugleiðið þetta að síðustu: Af þúsund byggingum brennur ein. Af eitt þúsund mönnum deyja þúsund. Hin- ar þúsund byggingar eru allar vátrygð- ar. En af hverjum þúsund mönnum á ís- landi eru NÍU HUNDRUÐ EKKI LÍF- FRYGÐIR. Ekkert fjelag sem starfar hjer á landi hefir lægri iðgjaldataxta en „Danmark". Tryggingar er nema 10 þús.kr. eða minna teknar án læknisskoðunar, nema sjer- staklega standi á. Menn reyn'a oftast að klifa þrítugan hamarinn til þess að veita bömum sínum mentun og búa þau á þann hátt undir líf- ið. Til þess að koma þessu í framkvæmd er fátt auðveldara en barnatrygg- i n g . Með slíkri tryggingu má safna f jár- hæð á mörgum árum er greiðist út þegar börnin þurfa þess oft helst með, en það er þegar þau þurfa að lúka hinum síðustu og erfiðustu árum mentunar sinnar, þegar þau eru 20 til 25 ára gömul. Ef svo atvik- ast að faðirinn deyr áður en barnið hefir náð fullorðinsaldri, fellur iðgjaldagreiðsl- an niður en tryggingin er í fullu giidi og verður greidd á hinum ákveðna tíma. Ef börnin eru trygð meðan þau eru ung, þá er iðgjaldið lægst. Menn gera og börnum sínum mikinn greiða að kaupa þeim æfitryggingu með- an þau eru ung, því þá greiða þau lágt ið- gjald þegar þau sjálf verða fær um að halca tryggingunni við. AÐALVMBOÐ: Þórður Sveinsson & Co.H F REYKJAVIK Símnefni: KAKALI Talsími 3701 (2 iinur) Du^Ieglc umboðsmenn teknir «nn alf land, þar seis» fjelagið hefir enga umboðsmenn fyrlr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.