Morgunblaðið - 16.07.1939, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Síldaraflinn
en helmingi
en í fyrra
Ágæt veiði i gær
og útlii gott
SlLDARYERKSMIÐJUR ríkisins á Siglufirði,
Raufarhöfn, Húsavík og Sólbakka hofðu í
gær alls fengið "121.752 mál, én 48.804 mál á
sama tíma í fyrra. ,
Síldin skiftist þannig á verksmiðjnr ríkisins; Siglufjörður 94870
mál, Húsavík 4927, Raufarhöfn 20563, Sólbakki 1302 mál.
Hjalteyrarverksmiðjan hafði í gær fengið alls um 47 þús. mál, en
21 þús. mál á sama tíma í fyrra, og verksmiðjan á 'Djúpavík um 20
þús. mál, en 6% þús. á sama tíma í fyrra.
Aðrar smærri verksmiðjur, á Siglufirði, Norðfirði og Seyðisfirði,
munu einnig hafa fengið meiri síld en í fyrra. Heildaraflinn mun
vera yfir helmingi meiri en í fyrra á sama tíma.
Sunnudagur 16. júlí 1939,
m—.....~"T
Árni J. Árnason
bankaritari
druknar í Hvítá
í Borgarfirði
að hörmulega slys vildi til s.l.
fimtudagskvöld, að Árni J.
Árnason bankaritari í Útvegsbank-
anum druknaði í árkvísl við bakka
Hvítár í Borgarfirði. Árni var í
sumarleyfisferðalagi ásamt kónu
sinni er slysið vildi til og horfði
konan á er maður hennar hvarf í
ána.
Árni Árnason og kona hans,
Guðríður Tómasdóttir, voru að
koma tvö ein á hestum úr Surts-
helli el- sl^sið vildi til.
Þau höfðu gist aðfaranótt fimtu-
dags að Hraunsási í Borgarfirði. Á
fimtudagsmorgun fengu hjónin
hesta þar og hjeldu upp að Surts-
helíi.
Klukkan 3—4 um daginn hitti
Andrjes Ejgólfsson bóndi að Síðu-
múla þau hjónin við. Surtshelli og
voru þau á ásamt tveim öðrum
að koma í hellirinn.
Er þau höfðu skoðað Surtshelli
munu þau Árni og Guðríður hafa
skilið við samferðafólk sitt, sem
fór niður að Kalmanstungu, yfir
Geitá að Húsafelli, en sjálf hafa
þau ætlað niður Hvítársíðu að
Hraunsási aftur.
Þau hjónin hafa sjálfsagt ætl-
að yfir Hvítá á brú rjett hjá
Barnafossi, en vilst af alfaraleið
og lent niður með Hvítárbökkum
nálægt Fljótstungu. Munu þau
hafa ætlað suður ýfir Hvítá á
brúiini, sem er rjett hjá Gunn-
laugsliöfða, sem er gegnt Hrauns-
ási, Hjá Gunnlaugshöfða er ár-
kvísl, sem rennur undan hrauninu
út í Hvítá. Hvítá sjálf rennur
þarna í þrengslum og er mjög
straumhörð, einnig er flugstraum-
ur í Gunnlaugshöfðakvísi.
Árni, sem var með tvo hesta,
hefir svo ætlað yfir kvíslina þar
sém hún rehnur iít í'Hvítá, eh þar
er svo djúpt, að hestarnir fóru á
sund og fjell Árni af balti og
hvarf í straumiun, en hestarnir
syntu yfir ána lieim að Hrauns-
ási.
Guðríður var á árbakkanum á
meðan þetta skeði og gat vitan-
lega engri hjálp viðkomið.
Er óskiljanlegt að Árni skuli
hafa reynt að fara þarna yfir
kvíslina, því hægt er að komast á
þurru framhjá henni með því að
fara 50—100 metrum ofar.
Heimilisfólkið á Hraunsási sá er
slysið vildi til og brá fljótt við
og sótti Guðríði konu Árna.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Argentínu skák-
mennirnir fara á
morgun
Fulltrúar íslendinga á alþjóða-
skákþingið í Buenos Aires
leggja, af stað á morgun.
Fulltrúarnir eru þessir, og tefla
í þessari röð:
Á 1. borði: Baldur Möller, nú-
verandi Islandsmeistari; á 2. borði:
Ásmundur Ásgeirsson, fyrv. ís-
landsmeistari ■ á J3. borði: Jón
Guðmundsson, fyrv. íslandsmeist-
ari; á 4. borði: Einar Þorvalds-
son, fyrv. Islandsmeistari, og til
vara Guðmundur Arnlaugsson
skákmeistari.
Fyrir tæpu ári síðan fól stjórn
Skáksambands íslands þeim Elís
Ó. Guðmundssyni og Baldri Möller
að sjá um allan undirbúning und-
ir væntanlega Argentínuför ís-
lenskra skákmanna í sumar. Hafa
þeir unnið mikið og óeigingjarht
starf að þessum málum og eiga
skilið þakkir allra skákunnenda
fyrir starf sitt.
Eins og fyr er sagt, verður lagt
af stað á morgun áleiðis til Ant-
werpen. Þangað eiga fulltrúarnir
að verða komnir í síðasta lagi 27.
þ. m. Þar fer fram heilsufræði-
legur undirbúningur undir förina..
,29. verður svo iagt af stað til
Buenos Aires og komið þangað 19.
ágúst. En þar fá ekákmenn 4 daga
til þess að hvíla sig eftir sjóvolkið.
23. ágúst hefst svo þihgið og
stendur til 19. sept. Þá verður enn
nokkurra daga hlje áður en lagt
verður af stað til Antwerpen aft-
ur og komið þangað um 20. októ-
ber í haust. Alls tekur ferðin því
rúmlega 3% mánuð.
SatrKiingar milli múrarameistara
og múrarasveina eru gengnir úr
gildi og engir samningar náðst.
Þess vegna er múrarasveinum
heimilt að ráða sig til mfírara-
vinnu hjá hverjum þeim, sem vill
ganga að lágmarkskröfum fjelags
þeirra.
Til Siglufjarðar kðmu í gser 28
skip, með um 10 þús. mál aíls.
Méstan afla höfðu: Dagný 1200
mál, Sigríður 900, Alden 700.
Hringur 550, Sleipnir 500, Yal-
björn 500.
Allar ríkisverksmiðjurnar á
Siglufirði bræða yfir helgina.
DJÚPAVÍK.
Þar lönduðu í gáer Hafsteinn
með 832 ffiál, Rán 1319, Surprise
1600, og á leiðinni voru Garðar
með unl 2200 ffiál, Kári 1600,
Tryggvi gamli 16—1700. Önmir
skip, sem afla handa verksm. á
Djúpavík, höfðu flest fengið góða
veiði síðdegis í gær og sum voru
í þann veginn að fylla sig.
Selfoss var í Djúpavík í gær og
lestaði þar 275 tonn af síldarhijöli
sem fer til Rotterdám.
Dimm þoka var á Húnaflóa síð-
degis í gær.
HJALTEYRI.
Þangað komu í gær Skallagrím-
ur og Gulltoppur, hvor með uro
2000, mál. Auk þess roargir línu-
veiðarar. V( ,
Á. leiðinni yoijq Arhibjörn hers-
ir, Gyllir, Snorri go.ði og Belgauro,
allir með fullfermi. .
ERLENDU SKIPIN.
Mikill fjöldi erlendra skipa er
sagður vera á Grímseyjarmiðum.
Hafa stærri Ieiðahgrarnir 4—8
samstæður nótabáta. Eru þeir vjel-
knúnir og skjótír í förum og ná
því torfum frá íslenskum veiði-
skipum og trufla mjög veiði
þeirra.
VIÐRÆÐUR BRETA OG
FRAKKA UM FLUGMÁL
Löndon í gær F.tJ.
ulltrúar frá Bretlandi komu
í dag til le Touquet í
■Frakklandi, en þar verður hald-
in ráðstefna breskra og franskra
flugmálasjerfræðinga, um loft-
varnir Breta og Frakka, og ým-
islegt, er þær varðar.
Yfirmaður bresku flugmála-
sjerfræðinganna er Mr. Balfour,
aðstoðarflugmálaráðherra Bret-
lands.
meira
meiri
John Fanger
stórkaupmaður
látinn
John Fenger stórkaupmaður og
kónsúll ándaðist á Landsspít-
alanum á föstudaginn var, eftir
upþskui’ð.
Fj-rir nokkrum vikum kendi
hanh lásleika. Harm fór svo fyrir
hokkrum dögum á Landsspítalann,
til rannsóknar. Sjúkdómur hans
reyndist vera í nýrunum. Yar
• gerður .á honum uppskurður á
föstudagsmorgun, en hjartað bil-
aði og hann andaðist síðdegis
þahn dag.
Jonn Féiiger var drengskapar-
maðúr mikill, enda vinsæll af öll-
úm, senr honum kyntust. Ilann var
ékkert fyrir það, að láta á sjer
bera vit ’ á við; ghkk allur upp í
starfinú í firmanu, sem hann var
meðeigandi í, Nathan & Olsen.
Hann var kvæntur Kristjönu,
dóttur Geirs Zoega kaupmanns,
hiuni ágætustu konu. Fer orð af
því, hve ástríkt og yndislegt þeirra
heimilislíf var. Þau hjón eignuð-
ust 6 börn, sem öll lifa, 3 stúlkur
og 3 drengir. Þrjú börnin dvelja
nú erlendis.
Morgunblaðið mun síðar minn-
ast John Fenger nánar.
Maður slasast
í Laxárvirkjuninni
Það slys vildi til í gærmorgun,
þar sem verið var að reisa
irafmagnsstauralínu Laxárvirkjun-
arinnar, að maður varð undir
staur og lærbrotnaði og meiddist
á höfði.
Maður þessi heitir Árni Árna-
son, Norðurgötu 6 á Akureyri.
Hann var fluttur á sjúkrahús á
Akureyri.
Tilkynt var í London í gær, að
hinar áformuðu reglubundnu póst-
flugferðir Breta yfir Atlantshaf
hyrji þ. 8. ágúst. (FÚ.).
Silungsveiðin
i Mývatni stór-
hrakar árlega
Rannsóknir dr. Finns
Guðmundssonar
Srr r , 3
ilungsveiðinni í Mývatní
hefir stórhrakað síðustu
árin, þrátt fyrir mikið klak á,
hverju ári. Á árunum 1920—
1925 var veiðin um 100 þús.
silungar á ári, en er nú aðeins
rúm 20 þúsund.
Þessi stórfelda rýrnun veið-
innar er að sjálfsögðu mjkið á-
hyggjuefni bænda í sveitinnij
því að silungsveiðin í Mývatni
hefir frá fyrstu tíð verið eifí
aðallífsbjörg sveitarinnar.
Bændur sneru sjer því til At-
vinnudeildar Háskólans og báðú
hana að rannsaka hver væri or-
sök þessarar stórfeldu rýimunar
veiðinnar.
Dr. Finnur Guðmundsson fiski
fræðingur fór nýlega norður til
Mývatns og dvaldi þar rúman
hálfan mánuð. Hann rannsak-
aði lífsskilyrðin í vatninu yfir-
leitt, botndýralífið og sviðin.
Auk þess mældi hann dýpi
vatnsins víða, hitann á yfirborði
og við botn og rannsakaði efna-
samsetningu á ýmsum stöðum.
Dr. Finnur er nú kominn
heim úr þessum leiðangri. Hann
mun nú sem fyrst vinna úr hin^
um ým,su gögnum, er hann hef-
ir meðferðis, til þess að fáist
heildaryfirlit um lífsskilyrðin i
vatninu. Mývatn hefir lítið ver-
ið rannsakað áður.
Árni Friðriksson mun síðar
fara norður til þess að rann-
saka sjálfan fiskistofninn.
Dr. Finnur sagði í viðtali við*
Morgunblaðið, að líklegustu or-i
sakirnar til rýrnunar veiðinnay
væri eitt af þrennu:
1) að lífsskilyrðin hefðu
breyst,
2) aið klakið, sem starfrækt
hefir verið í mörg ár, sje eitt-
hvað gallað,
3) ajð notuð sje einhver sú
veiðiaðferð, sem gengur of
nærri stofninum.
En dr. Finnur sagði ennfrem-
ur, að eftir því sem sjeð yrði
af rannsóknum þeim, er hann
gerði, virtust lífsskilyrðin í vatn-
inu eins góð og best verður á
kosið. Væri því ólíklegt, að þau
gætu valdið hnignun veiðinnar.
Sjálfur leit dr. Finnur svo á,
orsökin til hnignunar veiðinnar
væri sú, að gengið væri of nærri
stofninum, einkum með ádrætti
á haustin og vetruml, en hann
gengi mest út yfir hrygningar-
silunginn. Dæmi væri til þess.
að 1500 silungar hefðu fengist
í einum drætti, og þyrfti feikna
klak til að standast slík áhlaup
á stofninn.
En, sem sagt, segir dr. Finn-
ur að lokum, þetta verður nú
alt rannsakað og reynt að finna
hinar raunverulegu orsakir
hnignunarinnar.