Morgunblaðið - 06.08.1939, Page 11

Morgunblaðið - 06.08.1939, Page 11
Sunnudagur 6. ágúst 1939. MORGUNtíLAÐIÐ 11 A slóðum Páls postula FRAMH. AF BLS. 9. • er formið alveg hreint, og það er ákaflega fíngert. Maturinn er bæði mikill og góður. Kl. 7—9 er morgunmatur, þá kl. 12 lunch, sem er með mörgum rjettum og óskaplegur. Þá er kl. 4—4Va eftirmiðdags- kaffi eða te, og loks kl. 8 mið- degismatur, dinner, margrjettað ur og ágætur. Það er meira átið!' Kl. 91/2 er bíó á þilfarinu. Meðan á Bíóinu stóð, fórum við milli Elbu og lands. Borgir sáust, þ. e. a. s. ljósin í þeim á bæði borð. Við fórum í háttinn strax að því loknu. Föstudíigur 16. júní. Stromboli í augsýn! Ágætt veður og fremur svalt. Sólskinslítið. Við og við sést örla á einhverju landi eða eyjum á bakborða. Við venjumst egypska lífinu um borð. Annars gerist ekkert. Um klukkan 9i/2, þegar bíó átti að fara að byrja, var sagt að nú værum við komin að Stromboli, eldfjallinu fræga, sem rís hjer úr sæ, nokkru norðan við Sikiley. Því miður er aldimt orðið. Allir flykkjast út að borð stpkknum. Tveir rauðir, lýsandi deplar sjást, og miklu neðar sjást vitar. Þeir sýna hæð fjallsins. En hvað þessir rauðu dílar eru, veit jeg ekki. Hjelt helst að hjer væru rauðir vitar til þess að impónera ferðamennina. Þó er ■eins og reykur sje upp af efra ijósinu. Jeg spyr hvað þetta sje. Það er eldur! Fjallið er sígjós- andi. Og nú komum við nær. Þá leynir það sjer ekki, að hjer er gos. Við og við gjósa glóandi strókar upp, hrynja niður aftur.. Nú má aðeins greina línur fjalls ins. Gosið kemur ekki upp úr toppnum sjálfum, heldur virðist ^ígnum halla mót norðri. Og við rætur þessa meinvættis sjást nú ljósin loga rólega í frið- sömum bæ! Að nokkur skuli þora að búa þama, því að undir- lendi virðist hverfandi lítið. Ásmundur fer að hátta. Jeg þráast dálítið við, því að Messína sundið er fram undan. En jeg gefst bráðlega upp. Við eigúm •ekki að koma að því fyr en kl. um hálf 2 og jeg er syfjaður. — Það er óheppilegt, að við förum fram hjá öllum merkisstöðum á leiðinni að næturlagi., Elbu, Stromboli og Messínasundi. Svo sjest hvergi land fyr en í Alex- andríu. 1 kvöld eru fjórar vikur síðan við fórum frá Reykjavík. Hví- líkur tími, og enn erum við ekki líkt því komnir alla leið. Laugardagur 17. júní. Þegar jeg lít yfir þennan ís- lenska þjóðhátíðardag, held jeg helst, að hann hafi verið alveg viðhafnarlaus. Við Ásmundur hjeldum hann ekki á neinn hátt heilagan, og því var ekki von, að Arabar, Egyptar og annar slíkur lýður gerði það. Líklega hafa þeir ekki einu sinni vitað, að 17. júní er þjóðhátíðardagur okkar og afmæíisdagur Jóns Sig- urðssonar. Það verður að fyrir- gefa þeim, vegna þess hve fá- fróðir og lítið menntaðir þeir eru. Hjer eru nú, t. d. hjón frá Am- eríku, sem ekki vissu annað en að Eskimóar byggju á Islandi. Mjer skilst, að þá væri hreint og beint móðgandi að þekkja Jón Sigurðsson, því að ef hann hefði verið til í landi, sem er bygt af Eskimóum einum, þá hefði hann verið Eskimói. Og hvað segið þið um svoleiðis trakteringar? — En Arabarnir og Egyptamir eru það kurteisir, að þeir hafa enga hugmynd um að ísland yfirleitt er til, og þá er varla von að þeir viti um Jón Sigurðsson, eða það, að afmælisdagur hans, 17. júní, er þjóðhátíðardagur. Þetta verð- ur alt skiljanlegra, þegar farið er að hugsa um það. Það hvessir töluvert, þegar á daginn líður og um kvöldið er orðið svo hvasst, að taka verð- ur segldúksþakið. Bíóið er því undir beru lofti í kvöld, enda var myndin eftir því. Jeg er glað ur yfir því, að þessi norðaustan vindur kom ekki á okkur á Ful- ton, því að þá hefði ferðin um Miðjarðarhafið orðið erfið. Á slóðum Páls postula. Nú erum við á þeim slóðum, þar sem Páll postuli var að hrekj ast. Er um það meistaraleg frá- 1. Fulltrúaráð. 2. Landstjóri. 14. Kveikir. 17. Hjör. 19. Þingdeild. 21. Námsgi-ein. 22. Leit. 23 Sæki sjó. 25. Hana — 26. Bor. 27. Togaöi. 29. Hug-. rekki. 30. Straumhvörf. 32. Verða. 33. Nafn á hesti. 34. Hjari. 35. Hugur. 36. Eggver. 37. Fæða. 39. Símaskammstöfun 41. — ta. 43. Þynnka. 44. Mál. 45. Að- gæti. 47. Gróður. 49. Heimskingi. 51. Beyingarending. 52. Stari. 53. Leiði. 54. Anar. 56. Reiki. 57. Foi-si ‘ning. 59.0ddi 61. Sól. 62. Geng. 63.. Æði. 64. Glúrin 68. Þyngdareining. 70. Skammstöfun. 71. Festa. 75. Lægð. 77. Huggun. 79. Érjóta. 81. Sama og 19. 83. Lífsneisti. 84. Rölt. 85. Mannsnafn. 8$. Stafur. 87. Togaði. 89. Gróðurblettur. 91. Tón- skáld. 93. — Þór. 94. Fyrir blóm. 95. Draga saman. 97. yopn. 98. Ógróin jörð. 99. Umfram. 101. Viðkvæm. 102. Til skjóls. 104. Ættingi. 105. Þyngdar- eining. 106. Titill. 108. Tveir eins. 109. Skammstöfun. 110. Tröllkonuheiti. 112. Fóðra. 113. Gróður. 115. Ljúka, 117. Mannsnafn. 118. Fuglar. sögn í Postulasögunni 27. kap. Páll hafði skotið máli sínu til keisarans. Hann var rómverskur borgari og átti því fþennan rjett. Hann hefir vafalaust haft gildar ástæður til þess að láta ekki dæma málið í Jerúsalem. ★ áli var fyrst komið fyrir, á- samt. nokkrum föngum í skipi, sem sigldi til Litlu-Asíu- strandarinnar. Er enginn vafi á, að hersveitarforinginn, Júlíus, sem var sendur með föngunum, hefir litið alt öðruvísi á Pál en venjulegan fanga. Enda munu víst ílestir, sem með Páli voru, hafa komist að þeirri niðurstöðu, að hjer væri heldur óvanalegur maður á ferðinni. Þó hefir Páll sjálfsagt verið hlekkjaður við hermann, til öryggis. Ferðin gekk seint, en loksins var þó komið til suðausturhoms Litlu-Asíu. Skipið hjelt þá áfram norður eftir, og þar fór því Júl- íus af því, með fangana, og tók stórt skip frá Alexandríu, sem var á ferð til Rómaborgar, vafa- laust með komfarm. Það var því sama siglingaleiðin og sú, sem við erum nú á. En ferðin gekk seint vegna 9. Tónar. 10. Hryggir. 11. Forsetning. 12. Fallending. 13. Mótbárur. 15. Manns nafn. 16. Skagi. 18. Sjúkrahús. 20. Þjóð. 22. Rusl. 24. Fugl. 26. Iiæktað land. 28. Reyki. 29. Skip. 31. Flýta sjer 32. Man — 38. Hnöttur. 40. Þíða. 42. Vatnsfall. 45. Spök. 46. Tveir eins. 47. Frjettaritari. 48. Titill. 49. Eignast. 50. Deig. 52. Skáld. 55. Mynt. 57. Fugl. SS.Djásn. 59. Þrek. 60. Kend. 65. Ðrykk ur. 66. Mylsna. 67. Óánægja. 69. Stopp. 71. Galdrakerling. 72.Gubba. 73. Tónn. 74. Lúður. 76. Gróðurblettur. 77. Titill. 78. Fóstraði. 79. Upplirópun. 80. Manns nafn.82. Afturgöngur. 86. Moka. 88. Þrá. 89. Málmnr. 90. Óhæf. 91. Hylja. 92. Autt rúni. 93. Fóstra. 96. Vala. 97. Piltur. 100. Á litinn. 103. Lítill. 106. Fljótt. 107. Sár. 110. Skrækja. 111. Fljótfengið fje. þf. 113. Skammstöfun. 114. Tvíhljóði. 115. Söngvari. 116. Tveir eins. ■ %í: mótvinda, og loks komust þeir til Krít. Þumlunguðust þeir vestur með eynni, þar til þeir komu til staðar, sem heitir Góð- hafnir. Þar lágu þeir svo og komust hvergi. Og nú fór að líða að þeim tíma, er siglingar tók af, en skipstjórnarmenn voru ó- ánægðir með lægið og vildu kom- ast til annarar hafnar. Páll hafði orðið var við þetta og rjeði eindregið frá því að fara Þó að hann væri ekki sjómað- ur, þá hafði hann mikla lífs- reynslu í allskonar ferðalögum á sjó og landi. En þeir fóru ekki eftir ráðum hans. Og nú rann á hægur sunnanvindur, svo að alt virtist vera .í besta lagi. Var nú dregið upp akkeri, og undin upp segl. Hrakningar. Alt í einu skifti um veður. Skall á þá norðaustanvindur, sem kallaður er evrakvíló. Það er einmitt vindurinn, sem við erum nú í, nema vitanlega miklu hæg- ari um sumartímann. Og nú hefj ast hrakningarnir, sem er svo meistaralega lýst. Hjer fyrir suðvestan eru flóar með hroðalegum sandrifjum, sem voru einhver mesti skipa-kirkju- garður fornaldarinnar, líkt og Jótlandssíðan hefir verið og þangað virtist nú skipið stefna. Var nú alt gert, sem hægt var, til þess að draga úr ferð skips- ins, og þegar svo rokið hjelt á- fram, gáfust að lokum allir upp. Enginn neytti matar eða gat neina björg sjer veitt. Þá kemur Páll fram, minnir þá á, að hann hafi ráðið frá þess- ari ferð, en hvetur þá til þess, að gefast nú ekki upp. Engill guðs hafi staðið hjá sjer í nótt og sagt honum, að hann ætti að komast fyrir keisarann, og að enginn myndi farast. Svona hröktust þeir svo fyrir sjó og vindi í hálfan mánuð, og þá verða þeir varir við, að þeir eru að nálgast land. Gera þeir nú ýmsar ráðstafanir fyrir landtök una, og er það nú Páll, sem kem ur fram að nýju, fær þá til þess að matast og blæs nýjum þrótti í þá. Og nú erum við staddir hjer, einmitt á þessum sömu slóð- um. Hjer, úti á þessu dimma hafi, sem jeg sje freyða við borð stokkinn á Kawsar, var Páll að hrekjast fyrir 1900 árum. Ef til vill get jeg sjeð skipið frá Alex- andríu hrekjast fram hjá eins og einhverja daufa og óljósa mynd. Það er þarna úti í sortan- um. 176 menn hendast þar til og frá í bjargarlausu skipinu. Og einn þeirra er sá maður, sem mest stórvirki hefir unnið í ver- öldinni. Innan um þá, sem æðr- ast, situr hann þögull og óskelfd ur. Hann hefir fengið boðskap um það, að guð hafi gefið hon- um alla, sem á skipinu eru. — Hann er fagnandi. Hvað er haf og stormur á móts við þær dá- semdir, lífsins, sem fyrir augum hans eru? Sunnudagur, 18. júní. Þetta á að vera síðasti dagur okkar hjer um borð í Kawsar, þ. e. a. s. síðasti heili dagurinn, því að á morgun um kl. 4 eig- um við að koma til Alexandríu. Hjer á nú, um hádegisbilið, Grikklandsoddi og Krít, að vera einhverstaðar skamt norður und an. En ekkert sjest. Það er kom- inn vestan vindur, sem er algeng astur hjer um þessar slóðir, sami vestan vindurinn, sem tafði skip ið, sem Páll var á. Sólin skín og það hlýnar. Annars hefir altaf verið þægileg svalt og er það enn. Við erum ekki famir að reyna mikið af hitanum enn. En okkur er spáð því í Egyptalandi. I Cairo hvað vera afskaplega heitt. Og Alexandríu. Það kem- ur seinna. Enn er ekki nema rétt notalega hlýtt. Mánudagur, 19. júní. Löng er sú leið til Palestínu. Þann 19. maí var haldið af stað, og nú er 19. júní. Og enn er ekki öll leiðin búin. Nú er miklu heitara í dag. Golan dregur dám af eyðimörkum Líbíu og Egypta lands. Hún er að mestu á eftir, svo að á skipinu er logn og hita- molla mikil. Hvað er það móti því, sem síðar verður? Hjer var í gærkveldi bíó á þil- farinu eins og vant er. En mjer fanst alt undarlegra en áður, vegna þess að nú er Afríka að nálgast. Það er eitthvað í senn, spennandi og óhugnanlegt við það að koma í svona algerlega nýtt umhverfi. Það er svo ótrúlegt, svo fjarstætt. Að sitja hjer og horfa á talfilmu, eins og maður væri heima í Reykjavík, en líta svo upp og sjá, að hjer er hvorki Gamla nje Nýja Bíó, heldur þil- far á skipi, með sólsegli yfir og Aröbum og Egyptum í allskonar búningum í kring, og Egypta- land á 'morgun. Jeg sofnaði bæði seint og óró- lega. Og nú kemur einn, dökkur á brún á brá og með fez á höfði, hringjandi í hádegisverðinn. Miðdegisverði er lokið — Afríka og Alexandría blasa við snjóhvít sandströnd með pálm- um. Hjer hætti jeg nú. Sænskur flugmaður varð fyrir sjaldgæfu atviki í sumar. Er hann var kominn upp í loft í flugvjel sinni rjeðist máfahópur að honum og svo ágengir voru ímáf- arnir að flugmaðurinn neyddist til að stökkva út úr flugvjelinni í fallhlíf. ★ Atlantshafsflugmaðurinn Dougl- as Corrigan kvæntist nýlega kenslu, konu. Hann vann sjer frægð með því að fljúga í „misgripum" yfir Atlantshafshaf á gamalli og úr sjer genginni flugvjel. í Ameríku er nú spurt: Er giftingin ný „mis- grip“ ? ★ — Jeg .vil mæla með þessu efni, frú. Það er það nýasta sem við höfum flutt inn. — Haldið þjer ekki að það upp- litist? — Upplitist, nei, frú, það hefir legið þrjá mánuði í sýningarglugg- anum án þess að nokkur breyting vrði á því. Krossgáta Morgunblaðsins 65 Lárjett. Lóðrjett. 2. Tveir eins. .3. Þjark. 4. Hreyfinj 5. Bit 6. Skammstöfun. 8. Skræku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.