Morgunblaðið - 16.03.1940, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Norðmenn ekki með í
bandalagi Svía og Finna?
Laugardagur 16. mars 1940.
Flokkur þeirra
fær aftur að
starfa
Vinum Norðurlanda
heíir fækkað
— segir breskt blað
Reipdráttur stórveld-
anna um Noreg
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
MARGT virðist benda til þess, að Norðmenn
sjeu mjög á báðum áttum um, hvort þeir
eigi að taka þátt í fyrirhuguðu hernaðar-
bandaiagí Svía og Finna, sem rætt hefir verið um undan-
farna daga.
Halvdan Koht, utanríkismálaráðherra Noregs hefir
látið svo um mælt, að norska stjórnin hafi ekki lofað að
taka þátt í slíku bandalagi, heldur hafi hún aðeins lofað
að athuga möguleikana fyrir hernaðarbandalagi Norður-
landanna.
ÁN NOREGS.
Málgagn norsku ríkisstjórnarinnar, „Arbeiderbladet" í Oslo
ræðir þessi mál mikið í dag. Kemst blaðið að þeirri niðurstöðu,
að slíkt hernaðarbandalag muni frekar veita öryggi heldur en
áhættu.
Hinsvegar bendir blaðið á það, að fjöldi Norðmanna sje
þeirrar skoðunar, að Svíar og Finnar geti gert með sjer hernaðar-
bandalag án þess að Noregur sje með í því.
HLUTLEYSI
Reipdráttur fari nú fram milli
stórveldanna um Noreg og þar
sem búast megi við að Finnland
og Svíþjóð komist undir þýsk
áhrif sje hæpið fyrir Noreg að
gerast aðili að þessu bandalagi.
Stefna Nóregs, segir blaðið,
verður að vera í framtíðinni eins
og hingað'til, hlutleysisstefna.
DANMÖRK
Það er nú fullvíst orðið, að
Danmörk tekur ekki þátt í við-
ræðufundunum um norrænt
varnarbandalag, enda er hern-
aðarlegri aðstöðu Danmerkur
þannig varið, gagnvart Þýska-
landi, að hún geti ekki gerst að-
ili að slíku bandalagi.
Sænsku blöðin líta svo á, að
ósk Finna um norrænt hernaðar-
bandalag sýni vilja Finna til að
halda samvinnu og vináttu við
hin Norðurlöndin áfram.
ERFIÐ AÐSTAÐA
Blöðin segja ennfremur, að,
vilji ríkisstjórna Norðurlanda til
að ræða möguleika á slíku1
bandalagi sýni ljósast hve af-,
staða Norðurlándanna sje orðin'
erfið, eftir sameiginlegan sigur
Rússa og Þjóðverja við Moskva-
friðinn og hlutfallslega jafnmik-
ill ósigur Vesturveldanna.
Þeir, sem hlyntir eru hernað-
arbandalagi Norðurlanda halda
því fram, að sameiginlegar her-
varnir Norðurlanda sje einasta
ráð þeirra til að halda frelsi sínu J
og sjálfstæði, að öðrum kosti!
verði Norðurlönd eyðilögð í smá j
áföngum.
Finska þingið
samþykkir
friðarskil-
málana
VINUM FÆKKAR
Enska blaðið Yorkshire Post,
sem ritar í dag um Norðurlanda
málin, segir að í dag byrji rúss-
neskir hermenn að taka sjer
nýja landamærastöðu í Finn-
landi. Með því hefjist nýr þáttur
í sögu Norðurlandanna.
Öryggi það, sem Norðurlöndin
hafa haft í einangruninni er nú
ekki lengur til, segir blaðið. —
Vinunum hefir fækkað. Það er
afar ósennilegt að Norðurlönd-
unum tákist nokkru: sinni að
losna undan áhrifum Rússa og
Þjóðverja.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
¥7* inska þingið samþykti í kvöld
*- friðarskilmála þá, sem undir-
ritaðir voru í Moskva milli F'inna
og Rússa, með 145 atkvæðum
gegn 3.
Umræður urðu allheitar í þing-
inu þegar þingmenn fengu að
heyra alla skilmálana, sem Finnar
gengu að.
Ryti forsætisráðherra talaði fyr
ir friðarskilmálunum og sagði, að
ekki hafi verið annars úrkosta en
ganga að þeim.
Hann svaraði því, hversvegna
ekki hefði verið þegin hjálp Vest
urveldanna með því að segja, að
hjálp þeirra hefði óhjákvæmilega
leitt til þess, að Finnar hefðu
dregist inn í heimsstyrjöldina og
vígstöðvarnar færst til Norður-
landa.
Ryti sagði ennfremur, að enn
væri ekki öll hætta liðin hjá og
enginn vissi, hvað morgundagur-
inn bæri í skauti sjer. En eins og
nú væri ástatt tryði hann því, að
friðurinn hefði verið það besta
fyrir Finna.
Eins og Danii
1864
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Dihlgaard, innanrík'smála-
ráðherra Danmerkur hef-
ir haldið ræðu og gert Finnlands
málin að umtalsefni.
Hann sagði að nú stæði líkt
á fyrir Finnum eins og Dönum
1864. Danir hefðu haft sig upp
úr niðurlægingunni og eins
mundi finsku þjóðinni takast
með samhug og þrautsegju að
vinna upp land sitt úr þeim hörm
ungum, sem það hefði lent í.
Dönum ber skylda til að
hjálpa Finnum, eins og þeim er
unt, sagði ráðherrann, í viðreisn-
arstarfi þeirra og danska þjóð-
in mun og með gleði rjetta Finn-
um hjálparhönd.
Verður Rúmenía næsti
áfangi Rússa?
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
C! rá Balkanlöndunum bera3t
* frjettir um aukna diplomat.
iska sókn stórveldanna og víða
er sú skoðun lát'n í Ijós að næstu
stórtíðindi í heimsmálum gerist
í suðaustur Evrópu.
Margir spyrja þeirrar spurn-
ingar hvort Balkanlöndin eigi
eftir að hljóta sömu örlög og
Finnland.
Orðrómur hefir gengið um, að
Rússar hugsuðu sjer til hreyf-
ins í Rúmeníu og sumar frjett-
ir herma, að Rússar hafi þegar
á prjónunum kröfur á hendur
Rúmenum.
Þessu er neitað í Rúmeníu, og
i London er litið svo á af Rúm-
enum, sem þar eru búsettir, að
varla komi til að nein hætta sje
á ferðum fyrir Rúmeníu.
Nokkrir af foringjum járnvarðaliðsins rúmenska, sem nú
fær aftur pólitísk rjettindi. Annar maður í fremstu röð frá vinstri
er fyrverandi foringi flokksins Corneliu Codreanu, sem skotinn
var til bana af leyniskyttum 30. nóv. 1938, þegar verið var að
i flytja hann og aðra fjelagsmenn hans milli fangelsa. Þrettán fylg-
1 ismenn hans voru skotnir með honum.
Carol konungur sættist
við JárnvarðaliDið
Áhrif Þjóðverj-a i Rúmeníu
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Carol konungur í Rúmeníu hefir tekið járnvarnarliðið
(rúmensku nasistana) í sátt og flokki þeirra,
hefir verið bannaður síðan Calienscu forsætisráðherra var
myrtur í september í haust, verður aftur leyft að starfa.
Fjölda margir af fjelögum járnvarðaliðsins, sem
setið hafa í fangabúðum, verða látnir lausir og ættingjar
morðingjans, sem drap Calienscu, og sem setið hafa í fang-
elsi, einnig látnir lausir.
Allir þeir járnvarðaliðsmenn, sem flúðu af landi
burt fá að koma heim aftur. Flestir þeirra hafa dvalið í
Þýskalandi og eru nú lagðir af stað heimleiðis.
Fór nefnd járnvarðaliðsmanna á fund forsætisráð-
herra Rúmeníu í dag og var þeim þá tilkynt þetta.
Einn af forystumönnum járnvarðaliðsmanna fær
ráðherraembætti í rúmensku stjórninni án stjórnardeildar.
Sættir þessar eru sagðar stafa frá þýskum áhrifum á
rúmensku stjórnina.
Sumar frjettir herma að Hitler hafi boðist til að á-
byrgjast landamæri Rúmeníu, en rúmenska stjórnin vildi
ekki ganga að því, en gekk hinsvegar inn á að leyfa járn-
varðaliðinu að starfa.
Erliðlcikar Finna
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
Fjalla-Eyvind aimað kvöld og
verður það síðasta sýning fyrir
páska.
Frá frjettaritara vorum.
Khófn í gær.
Brottflutningur fólks úr þeim
hjeruðum Finnlands, sem
Rússar fá, gengur vel, en mesta
vandamáiið er, hvað gera eigi
við alt það fólk, sem heimilis- j
laust verður. öll farartæki, sem
hægt er að fá, eru notuð við
fiutningana. Talið er að 450 þús-
und manns muni heldur kjósa
að yfirgefa heimili sín heldur en
að búa við stjórn Rússa.
Á snæviþöktum vegunum, er
liggja frá þeim hjeruðum, sem
nú verða rússnesk, eru endalaus-
ar raðir af fólki, sem flýr undan
rússneska valdinu. Mönnum hef-
ir verið í sjálfsvald sett, hvort
þeir vildu heldur vera kyrrir eða
snúa til Finnlands, en komið hef-
ir í ljós, að svo að segja enginn
viíl lúta Rússum, eða eiga af-
komu sína undir þeim.
Fólkið vill heldur yfirgefa
heimili sín, sem það hefir búið á
og verið alt sitt líf og þar sem
forfeður þess hafa átt heima
mann fram af manni.
Mesta vandamál firisku stjórn
FRAMH. Á SJÖTTU SIÐU.