Morgunblaðið - 16.03.1940, Page 3
Laugardagur 16. mars 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
iiiiiiiiiiiiiiiiimHiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiut
3 fi
(Hersklp og Isarj
I tll farartálma I
| ___________________ |
j Frá ferð til |
Norðurlanda I
Átta daöa að briotastSex Oelöfl taka
_ ” r . þátt I handknatt-
gegn um ísmn við
Danmörku
IIIIIIMKIIIMIIIimil
immtiiiiiiiimmiii
Gunnar Einarsson prentsmiðju
stjóri er nýkominn heim úr
ferðalagi um Norðurlönd. Átti
blaðið tal við hann í gær og spurðí
hann umi ýmislegt viðvíltjandi sjó-
ferðinni og hag manna og horfum
á Norðurlöndum.
Skipið sem hann fór með hjeð-
an var tekið inn til Kirkwall. Það
var miðja vega milli Pæreyja og
íslands, er breskt herskip koin í
veg fyrir það að nóttu til og voru
gefin merki þaðan um að farþega-
skipið skyldi hætta að nota loft-
skeytatæki sín og breyta um
stefnu í ákveðna átt.
Er birti af degi var bátur send-
ur frá herskipinu um borð í skip-
ið, og skyldu bátverjar athuga
farm skipsins og hvaða farþegar
væru þar. Báturinn fór síðan aft-
ur að herskipinu og sótti þangað
fleiri menn og voru sjóliðarnir þá
orðnir 12 í farþegasldpinu, er
farnar höfðu verið tvær ferðir.
Er hjer var komið sögu ljet
skipstjóri af skipstjórn 'og sigldu
sjóliðarnir bresku skipinu til Kirk-
wall.
Flugvjelaárás
á kafbát.
Er komið var mjög nálægt Kirk
wall sáu farþegar, að flugvjelar
drifu skvndilega að þeim slóðum,
þar sem skipið fór. Taldist far
þegunum, að þær hefðu alls ver-
ið um 30. Skutu þær úr hríðskota- j
byssum og vörpuðu djúpsprengj-
um. Kom það brátt í ljós, að flug-
vjelarnar voru að gera árás á kaf-
bát einn eða fleiri, en skipi hafði
verið sökt þá fyrir skammri stund
rjett utan við höfnina í Kirkwall. |
Ekki vissu farþegarnir hvernig
þteirri viðureign lauk. ,
f Kirkwall lá skipið um kyrt í
tvo daga, og var allur póstur tek-
■inn úr því og fluttur í land til
skoðunar.
Skipið átti að koma við í Fær-
eyjum í utleið, en varð nú að fara
þangað er það losnaði rir Kirk-
wall. Pjekk skipstjóri nú aftur
umráð yfir skipinu og vottorð um,
að hann mætti fara frjáls ferða
sinna.
ísalög við Noreg.
Er til Noregsstranda kom voru
margir firðir þar lagðir og skip
föst í ísnum. Svo mjög höfðu kola-
^lutningar tafist þá um skeið til
Bergen t. d., vegna þess hve mörg
kolaskip voru föst í ís, að skamta
þurfti kolin mjög og draga úr
eyðslu manna. Voru eftirlitsmenu
Játnir ganga þar milli íbúðarhús-
anna til þess að sjá um, að hvergi
væri kveikt upp til að ylja upp
íbúðir, fyr en um hádegi í fyrsta
lagi, og ekki væru hituð nema fá
eða eitt herbergi í íbiið hverri.
í Noregi varð hann minna var
við ófriðarótta og varíiðarráðstaf-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Skipstjórinn á Gull-
fossi segir frá
SÍÐASTA FERÐ GULLFOSS til Kaupmanna-
hafnar verður þeim löngum í minni, sem með
v ru, því að skipið var 8 sólarhringa að brjót-
ast gegn um ísinn í sundunum hjá Danmörku.
Gullfoss fór hjeðan 6. febrúar, en kom til Hafnar 26. febr.; var
þannig alls 20 daga á leiðinni. Skipstjóri var þessa ferð yfirstýri-
maður Bjarni Jónsson. Tíðindamaður frá Morgunblaðinu hitti Bjarna
að máli í gær og bað hann segja lesendum blaðsins eitthvað frá þessu
æfintýrlega ferðalagi.
—- Af ferð okkar til Porsgrund
í Noregi er ekkert sjerstakt a.ð
segja, segir Bjarni. Þær hindránir
og tafir, sem við urðum fyrir á
leiðinni þangað, voru allar eðli-
legar, á þessum tímum.
En ferðin frá Porsgrund til
Hafnar tók okkur 8 sólarhringa,
en venjulega tekur sú ferð um
sólarhring. Það var ísinn í Katte-
gat og sundunum, sem tafði okk-
ur.
Við urðum fyrst varir við ís
langt úti í Skagerak. Pyrst ís-
hröngl, en þjettist brátt. Þó voru
alllengi vakir á stöku stað, sem
við þræddum.
ísbrjótur kemur.
Þegar komið var móts við Var-
berg í Svíþjóð var ísinn orðinn
svo þjettur, að ekki var viðlit að
komast lengra hjálparlaust. í sam-
fylgd með okkur voru 4 kolaskip,
alls 5-skip samflota.
Kom nú ísbrjóturinn „Bryder-
en“ okkur til hjálpar. Hann ruddi
brautina fyrir skipin gegn um ís-
inn.
Alt situr fast.
Þegar við höfðum verið sólar-
hring í fylgd með „Bryderen“
hvesti skyndilega af suðvestri.
Keyrði þá allan ísinn upp að
Svíþjóðarströnd og stóð þar alt
fast. Skipin ráku með ísnum og
var ekki viðlit að komast áfram.
Þenna tíma var ekki svefnsamt
um borð í Gullfossi. fsinn skrúf-
aðist upp með skipinu, svo að
brakaði og brast í öllu, með feikna
hávaða og gauragangi.
Þarna voru nú skipin gersam-
lega ósjálfbjarga í ísniiin og ekki
að vita hvað við tæki.
Þrír ísbrjótar.
Voru nú kallaðir tveir ísbrjót-
ar í viðbót, til hjálpar, því að
mikil hætta var á, að skipin rækju
upp. Komu nú ísbrjótarnir „Stóri-
Björn“ og „ísbjörn“. Voru þá ís-
brjótarnir 3 með þessum 5 skip-
um.
En það tók ísbrjótana heilan
sólarhring, að koma þessum 5
skipun?i 4 mílur út frá strönd-
inni, á venjulega siglingaleið.
Varð að taka eitt og eitt skip
! í einu. ísbrjótarnir brutu ísinn
i og oft urðu þeir að taka skipin í
eftirdrag.
| Þegar loks var búið að koma
j skipunum á venjulega siglinga-
! leið, fóru tveir ísbrjótanna burtu,
j en „Bryderen" var áfram í fylgd
| með þessum 5 skipum. „Stóri-
i Björn“ var kallaður til Frederiks-
i havn, til þess að brjóta ísinn þar.
j Skipstjórinn á „Stóra-Birni“
‘ bauðst til að taka með farþega,.
| sem vildu og fóru 4 farþegar með
|;honum til Prederikshavn, tveir
í sem ætluðu til Álaborgar og tveir,
sem ætluðu til Hafnár. Þeir ætl-
uðu með þessu að flýta ferðinni.
en þannig fór, að þeir komust
ekki til Hafnar fvr en 5 dögum
eftir Gullfoss, því að sundin vorn
| lokuð og flugferðir hindraðar,
| vegna. snjóa og veðra. Sex far-
þeganna fóru í land í Noregi. en
i alls voru 32 farþegar með Gull
í fossi.
Bjarni Jónsson.
Gullfoss kemst
fram úr.
Það var föstudagskvöldið 23.
febrúar, sem ísbrjótarnir tveir
yfirgáfu Gullfoss og hin fjögur
kolaskip, sem voru samflota með
honum.
Næsta dag, laugardag, hvesti af
norðri. Þá greiddist ísinn ofurlít
ið og rak innar í sundin. Gat þá
Gullfoss komist án hjálpar alla
leið inn undir Kullen. Kolaskip-
„Gullfoss“
i isnum
Myndir, sem skipverjar á
Gullfossi tóku á leiðinni, og
sem gefa góða hugirynd um
ísinn. — Á neðstu myndinni
sjást fjórir skipverjar, sem
hafa brugðið sjer út á ísinn
í „göngutúr“. Skipið sjest í
baksýn.
Fjárlögin afgreidd
til 3. umræðu
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
leikmótinu
I andsmót í handknattleik, hið
*-* fyrsta, sem haldið er hjer á
landi, hefst í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar 30. þ. m. Sjö fjelög
taka þátt í irótinu. Keppa sex
sveitir í I. fl., fjórar í II. fl. og
þrjár kvensveitir.
Prestur til að tilkvnna þátt-
töku var útrunninn í gær. í I. fl.
keppa Pram, Haukar, Hf., íþrótta
fjelag Háskólans, í. R., Valur og
Víkingur. í II. fl. Pram, í. R.,
Valur og Víkingur. Kvenflokknr
frá Ármanni, Haukum og í. R.
Dregið hefir verið um, í hvaða
röð fjelögin keppa í fyrstu uni-
ferð og verður röðin þes:.i:
I. fl.: Valur—Haukar, Víking-
ur, f. R„ Háskólinn—Fram.
II. fl.: Pram-—Víkingui og Val-
ur—í. R. Kvenfl. Haukar—í. R.
Mikill áliugi er innan íjelag-
anna fyrir mótinu.
Atkvæðagreiðsla við aðra um-
ræðu fjárlaganna fór fram
í gær.
Voru allar breytingar fjárveit-
inganefndar — 66 talsins — sam-
þyktar, að einni undanskilinni,
sem var feld. Það var tillaga um
það, að ríkisskattanefndarmenn
skyldu hafa 10 kr. fyrir hvern
fundardag. Heildarúpphæðin (14
þús.) til ríkisskattanefndar var
hinsvegar látin standa. Önnur til-
laga nefndarinnar, um lækkun á
framlagi til loðdýraræktar um 5
þús. kr„ var tekin aftur til 3. um-
ræðu.
Aðeins tvær breytingartillögur
lágu fyrir frá þingmönnum, og
var önnur samþykt, en hin feld.
Samþykt var tillaga frá Sig.
Hlíðar o. fl„ um 5000 kr. í sam-
skotasjóð v.b. Kristjáns. En feld
tillaga frá Páli Zoph. og Ingvari
Pálmasyni, um að brúafjeð skyldi
hækkað úr 30 þús. í 120 þús., með
þeirri athugasemd, að 90 þús.
skyldu fara til brúar á Jökulsá á
Pjöllum hjá Lambhöfða.
Thíile-mótíð
í dag
Thule-skíðamótið hefst í dag
klukkan 3 við Skíðaskál-
ann í Hveradölum með 18 km.
kappgöngu.
Kept er um Thule-bikarinn,
sem ,,Skíðaborg“ frá Siglufirði
hefir unnið þrisvar og Skíðafje-
lag Siglufjarðar einu sinni. —
Vinni ,,Skíðaborg“ gönguna
hefir hún unnið bikarinn til
fullrar eignar.
Skíðafjelagið, sem stendur
fyrir mótinu sjer um að bílferðir
verði austur frá Austurvelli kl.
10 og kl. 1 e. h.
önnur fjelög efna einnig til
hópferða á skíðamótið. Göngu-
kepninni verður lýst í útvarpinu.
Á morgun heldur mótið áfram
og verður þá kept í svigi og
stökkum.
Svigkepnin fer fram klukkan
IOI/2 f- h. og kl. 11/2, en stökkin
hefjast klukkan 4.
Búast má við fjölda áhorf-
enda, einkum á morgun. Er þess
vænst að fólk kaupi merki móts-
ins, sem er aðgöngumiði að mót-
inu.
Finsku hermennirnir
dauðuppgefnir
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
T3 euterfrjettastofan skýrir frá
því, að finsku hersveitimar,
sem nú hörfa frá stöðvum sínum
undan rússneska hernum, sjeu
dauðuppgefnar.
Margir hermannanna hafa ekki
þrótt til þess að ganga þá 10 km.
á dag, sem ætlast er til að þeir
fari. Eru þetta afleiðingar svefn-
leysis og mikillar áreynslu und-
anfarnar vikur.