Morgunblaðið - 16.03.1940, Qupperneq 8
Laugardagur 16. mars 1940..
*
ÓFRÍÐA STÍIIKAN 12
Fylgist
með frá byrjun
Eftir ANKEMARIE SELIKKO
Mjer fanst jeg vera svo lítil. Mjer
fanst jeg sitja augliti til auglits
við sjálf örlög mín. örlögin reyktu
sígarettu og voru langt upp yfir
alt hafin.
„Á jeg að segja þjer nokkuð,
hróið mitt — á liverju kvöldi læt
jeg hundruð manna, sem koma í
slæmu skapi í leikhúsið, hlæja og
jeg geri þá glaða. Þetta fólk hef-
ir keypt sjer aðgöngumiða, vegna
þess að það vill sjá Claudio Pauls
leika. Er fólkið fer úr leikhúsinu
finst því að lífið sje þrátt fyrir
alt gott og að gaman sje að vera
til. Jeg er vitanlega afar þakklát
ur guði fyrir að hann hefir gefið
mjer hæfileika til þess að skemta
þessu fólki og fyrir að jeg hefi
fengið vald yfir hugum þess, því
jeg veit að jeg hefi þetta vald.
En, hróið mitt, gagnyart þjer lang-
ar mig ekki til að nota þessa
hæfileika mína. Jeg vil ekki hafa
nein áhrif á líf þitt. Jeg skal
segja þjer eins og er. Jeg hefi svo
sára lítið vit á uppeldi ungra
stúlkna ....“
„En þjer, sem þekkið kvenfólk-
ið svo vel, herra Pauls, það segja
allir. Jeg vil verða falleg stúlka.
Þjer sögðuð heiina hjá Elsu
frænku að allar stúlkur gætu orð-
ið fallegar. Jeg vil ekki halda
áfram að vera ófríð“.
Jeg varð þur í hálsinum. Nú
var um að gera að fara ekki að
skæla; það vantaði nú bara, að
fara að shæla eins og skólastelpa;
hann myndi bara hlæja að mjer.
Eða kannske yrði hann geðvoridur
út af því, að jeg skuli hafa eyði-
lagt morguninn fyrir honum. En
jeg get ekki að þessu gert. Nú
sje jeg hann ekki*riema í þoku.
Tárin koma fram í augun á mjer.
Svona hertu þig nú upp — en
það var of seint. Tárin streymdu
miður eftir kinnunum á mjer. Jeg
leitaði í vösu'm mínum að vasa-
Mút og fann hann, snýtti mjer
hraustlega og þurkaði mjer um
augun, en það komu stöðugt ný
tár. Jeg skammaðist mín hræði-
lega.
Jeg leit yfir yfir til herra Pauls.
Hann horfði alls ekki á mig.
Hafði hann tekið eftir því að jeg
grjet? Hann horfði út um glugg-
ann og engin svipbrigði sáust á
andiiti hans. Hamingjunni sje iof,
að hann hefir ekki sjeð það, hugs-
að jeg með mjer.
„Fólk, sem ekki hefir hugmynd
um hvað það vill, er leiðinlegt“,
sagði hann eins og út í bláinn.
Hann sagði þetta svona eins og
við sjálfan sig og hjelt áfram að
horfa út um gluggann.
Svo kallaði hann á þjóninn:
„Einn mokkakaffi handa ung-
frúnni“. Yið mig sagði hann:
„Mokka hefir að vísu ekki róandi
áhrif á mann, en það gerir hugs-
anir manns skýrari. Kannske skil-
ur þú sjálfa þig betur á eftir..“
Það varð aftur þögn, óþægilega
Iðng þögn. Þjónninn kom með
mokkakaffið og jeg drakk úr boll-
anum. Kaffið var afar beiskt; síð-
ar sá jeg að hafði gleymt að láta
tvo sykurimola, sem fylgdu með,
út í kaffið.
Claudio leit á úi’ið sitt. „Jeg
verð að fara í leikúsið, við höfum
eytt tímanum í að slúðra. Þegar
jeg kyntist þjer var jeg undir á-
hrifum koníaks; jeg meinti ekkert
sjerstakt með því að tala við þig.
Þegar þú komst inn í vínstofuna í
gær dat mjer í hug að gaman
væri að rabba við þig“. Og svo
bætti hann við alt í einu:
„Ungar stúlkur, sem eru ófríð-
ar, verða fyrir alla muni að gera
einhverjar ráðstafanir til þess að
þær verði laglegri. Þær verða að
útvega sjer vasapeninga og eyða
hverjum eyri, sem þær eignast, í
hárgreiðslu, handsnyrtingu og feg-
urðarmeðul yfirleitt. Konur, sem
eru ófríðar, verða að fara til bestu
hárgreiðslusjerfræðinga sem til
eru. — Það er engin skömm
að því, að selja peysur og sokka í
búð. Jafnvel þótt faðir manns hafi
verið ríkur fyrir stríð .... Það er
vitanlega líka hægt að fara á
vérslunarskóla og reyna að fá at-
vinnu á skrifstofu á eftir. Byrj-
endum á skrifstofum éru varla
greidd meiri laun en afgreiðslu-
stúlkum í búð“.
Jeg hlustaði á með athygli. Það
voru forlögin sem töluðu til mín.
„Ef ung stúlka kæmi til mín og
bæði mig að útvega sjer afgreiðslu
stúlkustöðu, þar sem hún fengi
fimtíu eða hundrað krónur í kaup
til að byrja með, myndi jeg leggja
mig í lima til að hjálpa henni.
En — þessi unga stúlka yrði sjálf
að taka ákvörðun um þetta. Mað-
ur verður að vita hvað maður
vill“.
Þögn.
„Þýðingarmesta skref sem mað-
ur tekur í lífinu er þegar maður
setur sig upp á móti vilja for-
eldra sinna í fyrsta skifti. Þá á-
kvörðun verður maður að taka
sjálfur. Það getur ekki gengið að
afsaka sig með því, að
CÍaudio frændi hafi ráðlagt
þetta eða hitt. Claudio frændi hef-
ir eltki sagt eitt einasta orð. Skil-
ur þú það. Þjónn má jeg borga“.
Claudio fleygði nokkrum krón-
um á borðið. Gamli þjónninn
hjálpaði honum í frakkann, og
það var auðsjeð að hann bar virð-
ingu fyrir manninum.
„Hvernig líður heima, Júlíus?“
spurði Claudio. „Látið mig vita
ef dótturdóttur yðar langar að
fara í leikhúsið. Hún getur altaf
fengið miða hjá mjer“.
Síðan fór hann með mjer út á
gangstjettina og rjetti mjer hend-
ina.
„Á morgun ætla jeg ekki að
tala við þig. Þxi verður að hafa
góðan tíma til að hugsa þig um,
svo að þú komist að skynsamlegri
niðurstöðu. Kannske attu leið hjer
fram hjá daginn þar á eftir ....“
Jeg hneygði mig næstum fyrir
honum.
„Þúsund þakkir, herra Pauls“.
Ilann lyfti hendinni kæruleysis-
lega upp að hattbarðinu, brosti,
og gekk burtu.
V.
„.... og- þrjátíu eru átta krón-
ur. Tvær við eru tíu“.
„.. .. og sex aurar eru fimtíu
og fimtíu eru tuttugu og sex. Og
fjórir við eru þrjátíu“.
Jeg sat á bak við stóran pen
ingakassa í vefnaðarvörubúð.
Sokkar, nærföt og peysur. Þetta
var afar dýr verslun í Karntner-
T~> laðamaðnrinn John Gunther,
höfundur „Inside Europa“
©g „Inside Asia“, hefir birt lista
um verð ýmsra nýtísku hergagna.
Nítísku hermannariffill kostar
um 120 krónur, vjelbyssa 2800 kr.,
37 m.m. fallbyssa 4200 krónur og
Itver byssukúla í hana 65 krónur,
75 m.m. fallbyssa kostar 35.000
krónur og nýtísku skriðdreki 350
þús. krónur, sem ekki er stór
upphæð miðað við sprengjuflug-
vjel, sem kostar 450.000 krónur.
Verð á herskipum er geysi hátt.
Venjulegur bryndreki kostar 45
miljónir, flugvjelamóðurskip 65
miljónir og orustuskip alt að 140
miljón krónur.
★
T7I yrir skömmu urðu fjölda
margar giftar konur í Skien
í Noregi fyrir pví að einhver mað-
ur hringdi til þeirra og tilkynti
að maðurinn þeirra væri staddur
á þessum eða hínum staðnum með
ungri stúlku. Upphringingarnar
|komu altaf á kvöldin þegar eigin-
maðurinn var ekki heima og venju
lega sagði röddin í símanum:
„Maðurinn yðar dregur yður á
tálar. Hann er nú staddur með
kvenmanni á .,.. veitingahúsi og
þjer ættuð að flýta yður að ná í
þann‘ ‘.
Einu sinni kom það fyrir að
sá er hringdi var óheppinn. Frúin,
sem hringt hafði verið til, sagði:
— Augnablik ,nú skal jeg lofa yð-
ur að tala við manninn minn.
Skien-búum er það hreinasta
ráðgáta hver! þetta géfur verið,
sem hefir gaman af að gera sjer
leik að þessu.
★
Tjl nsku konungshjónin fengu
nýlega á grammónfónplöt-
um alla þá hljómlist, sem fram
fór í Iívíta húsinu í Washingtoi*
kvöldið, sem þau sátu boð hjá
Roosevelt forseta.
Georg konungur hafði látið í
ljós ósk um að fá á grammófón-
plötum eitthvað af því, sem þarna
fór fram, en það var meðal annars
einsöngur Lawrence Tibbets, kór-
söngur, Kentucky Mountains Sing-
ers, og Marion Anderson söng ein-
söng.
Þessar plötur voru aðeins bún-
ar til í 4 eintökum. Bresku kon-
ungshjónin fengu eitt eintak,
Roosevelt forseti eitt, Cordell IIull,
utanríkismálaráðherra U. S. A.,
! eitt, og sendiherra Breta í Was-
hirigton, Sir Ronald Lindsay, eitt
eintak.
4r
Ameríkumenn eru nú farnir að
framleiða bíla með glerþaki. Gler-
þakið er úr gleri, sem ekki getur
brotnað. Búast má við að þessir
bílar verði vinsælir.
strasse. Viðskiftavinirnir voru all-
ir fínt fólk og afgreiðslustúlkurn-
ar valdar fegurðardísir. Jeg ein
var ófríð. Alt of ófríð til að mjer
færi vel grænn lastingssloppur.
„Takið bara eftir, frú, livað
þessi guli litur fer vel, frú. Á jeg
að máta peysuna? Þá getur frúin
betur sjeð hvernig hún fer“. Nei,
því miður var jeg alt of ófríð
fyrir þessa vinnu. Jeg var sett á
bak við stóran kassa, þar sem jeg
var falin að mestu fyrir viðskifta-
vinunum þar til þeir áttu að
borga.
Það var ógurlega mikið að gera
milli kluklcan 11 og 13.30, þá hefi
jeg engan tíma til að hugsa. Jeg
skynja ekki neitt nema tölur og
peninga. Þegar búið er að loka á
kvöldin er kassinn gerður upp og
þá eru bornar saman allar nótur
dagsins. Jeg styð á hnappa, og þá
koma út skúffur, skúffur fyrir
krónur og aura og seðla. Við telj-
um. Nótur, peningar, nótur, pen-
ingar. Ef það vantar í kassann
þá er það mín sök, jeg verð því
að gæta vel ^að því að gefa ekki
skakt til baka, því jeg verð sjálf
að bera hallann á kassanum, ef
einhver er, og það er dregið frá
mánaðarlaunum mínum. Jeg fæ 80
krónur í kaup á mánuði.
Milli klukkan 8 og 10 er þægi-
lega rólegt í versluninni; þá sit
jeg bak við kassann og horfi út
á götuna í gegnum stóru sýning-
argluggana. Á þessum tíma dags
er þessi mikla verslunargata svo
ólík sjálfri sjer. Fátæklegt fólk
er á ferli. Verkamenn, sem bisa
með stiga og stengur, afgreiðslu-
stúlkur, sem hlaupa yfir götuna
til að kaupa sjer sígarettur, sem
þær reykja í laumi. Húsmæður í
gömlum kápum með stórar toskur
á handleggnum og syfjulegir karl-
menn á leið til skrifstofunnar.
Þeir líta hvorki til hægri nje
vinstri. Þetta er alt almúgafólk.
Um 11 leytið koma fínu frúrnar
til að gera innkaup sín. Þær koma
með tíu tuttugu böggla í fanginu
og teyma á eftir sjer hunda í
rauðum böndum. Litlu hundarnir
vilja stansa við hvert götuhorn,
en fínu frúnum er ekkert um það
og þess vegna toga þær í böndin,
en hundarnir streytast á móti.
Það koma oft fyrir einkennileg
atvik hjá fínu frúnum og litlu
hundunum. Um þetta leyti byrjar
ösin í búðinni og þá er ekki leng-
ur tækifæri til að horfa út á
götuna.
Framh.
TIL LEIGU
3 stofur og eldhús með öllum
þægindum. Upplýsingar í síma
4990.
HREINGERNINGAR
Pantið í tíma. Guðni og Þrá-
inn. Sími 2131.
"fjelacjislíf
K. R.-ingar fara í skíða-
ferð á Hellisheiði
(Thulemótið) í dag kl.
9 f. h. og á morgun kl. 9 f. h.
Farseðlar fást í Versl. Haraldar
Árnasonar og á skrifstofu K.R.
ÍÞRÓTTAFJELAG RVÍKUR~
fer í skíðaferðir á Thulemótið í
dag kl. 1 og í kvöld kl. 8. — 1
fyrramálið verður farið kl.*8 og
9. Farið frá Vörubílastöðinni
Þróttur. Farseðlar seldir í Gler-
augnabúðinni Laugaveg 2.
ÁRMENNINGAR
efna til skíðaferðar að skála sín-
um í Jósefsdal í kvöld kl. 8. 1
fyrramák'ð k|. 9 verður farið
á Thulemótið í Hveradölum. —
Farið verður frá íþróttahús.inu.
Farmiðar seldir við bílana.
Iþróttafjelag kvenna
fer á Hellisheiði og í skála sinn
á morgun kl. 9 f. h. Fjelags-
konur, sem ætla að dvelja í skál-
anum um páskana, verða að
hafa tilkynt þátttöku fyrir næst-
komandi mánudagskvöld í
Hattabúðinni Hadda. Sími 4087.
BLÓM & KRANSAR
Hverfisgötu 37. Sími 5284.
Ilmandi birkigreinar. Daglega
mikið úrval af lifandi og tilbún-
um blómum. — Hortensíurnar
komnar. Bæjarins lægsta verð.
MIKIÐ ÚRVAL
af nýjum höttum í öllum litum.
Hattastofa Svönu & Lárettu
Hagan, Austurstr. 3. Sími 3890.
TIL SÖLU
góð, notuð gasvjel á Bergþóru-
götu 55. Sveinn Jónsson.
TIL SÖLU
tveir stoppaðir stólar, með tæki-
færisverði í Vörusölunni á Hverf
isgötu 32.
KAUPUM KANÍNUSKINN
hæsta verði. H.f. Magni, Þing—
holtsstræti 23. Sími 2088.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 28i
Sími 3594.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðmt
Guðmundsson, klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
keypt daglega. Við sækjum.
Hringið í síma 1616. Laugavegs
Apótek.
ÞORSKALÝSI
frá Laugavegs Apóteki kostar
aðeins kr. 1,35 heilflaskan. Við
sendum. Sími 1616.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
KOIA8A1AN 8.1
Ingóífihvoli, 2. hæð.
Símar 4514 og 1845.
SPARTA-DRENGJAFÖT
Laugavge 10 — við allra hæfi.
HARÐFISKSALAN^
Þvergötu, selur saltfisk nr. 1,
2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr..
kg. Sími 3448.