Morgunblaðið - 12.06.1940, Side 3
Miðvikudagur 12. júní 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
Verum nú samtaka Reykvíkingar!
Um 600 börn þurfa að
komast í sveit í sumar
Þingvallafðr
nngra Sjállstæð-
ismanna um
næstu helgi
Heimdallur, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna, efnir
til Þingvallaferðar um næstu
helgi sem mjög hefir verið
vandað til og búast má við að
verði f jölmenn.
Lagt verður af stað hjeðan úr
bænum klukkan 3 á laugardag
og dvalið á Þingvöllum til
sunnudagskvölds. Gistingu geta
menn fengið í Valhöll á meðan
húsrúm leyfir og auk þess fást
tjaldstæði og er leiga eftir þau
ein króna.
Farið verður í Steindórsbíl-
um og hefir fjelagið komist að
góðum kjörum við Steindór Ein-
arsson um flutning þátttak-
enda í skemtiferðinni.
Á laugardaginn verður dag-
skrá hagað þannig, að klukk-
an 6 flytur formaður Sjálfstæð-
isflokksins, ólafur Thors, at-
vinnumálaráðherra minni Is^
lands að Lögbergi.
Um kvöldið verður svo kynn-
ingarkvöld í Valhöll. Þar
flytja ræður Jóhann Hafstein,
form. Heimdallar, Gunnar
Thoroddsen, lögfræðingur, Sig-
urður Bjarnason, stud. jur. frá
Vigur.
Auk þess skemtir Lárus Ing-
ólfsson leikari og dans verður
stiginn.
Á sunnudag verður dag-
skránni þannig hagað, að kl. 2
verða Þingvellir skoðaðir undir
ðsögn Benedikts Sveinssonar
bókavarðar, en að öðru leyti
geta menn skemt sjer eftir föng-
um. Bátar verða til taks á vatn-
inu. Fyrir þá sem gista í Val-
höll, verður sameiginlegt borð-
hald kl. 7,30 á laugardagskvöld
og kl. 12 á hádegi á sunnudag.
Heimdellingar eru sjerstak-
lega kvattir til að fjölmenna í
skemtiferðinni og gera hana
sem glæsilegasta, en öllum
Sjálfstæðismönnum er heimil
þátttaka.
Hægt er að tryggja sjer gisU
ingu og farseðla fram og aftur
með því að tilkynna þátttöku á
afgreiðslu Morgunblaðsins á
morgun og föstudag kl. 5—8 e.
h. Þar verða og allar upplýsing-
ar um ferðalagið gefnar.
Til þess þarf 70-90
þúsund krónur
ÞAÐ hefir verið óskað eftir dvalarstað í sveit í
sumar fyrir 891 barn í Reykjavík, á aldrinum
4—13 ára. Til þess að þetta megi takast, þarf
70—90 þús. krónur, en það fjármagn næst því aðeins, að
allur almenningur í bænum komi til hjálpar.
Þetta var aðalefnið í frásögn framkvæmdastjórnar Rauða Kross
Islands og Barnaverndarráðs, er hún veitti blaðamönnum viðtal í gær.
Framkvæmdastjórn þessi er skipuð þrem mönnum, þeim Þorsteini
Scheving Thorsteinsson lyfsala (formaður), Sigurði Thorlaeins skóla-
stjóra og Arrigrími Kristjánssyni skólastjóra.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
skopleikinn „Stundum og stund-
um ekki“ kl. 8M>- í kvöld. Sala
aðgöngumiða hefst kl. 1 í dag.
Bn það eru 9 fjelög í bænum,
sem hafa forgönguna í því að
koma börnum til sumardvalár í
sveit. Þessi fjelög eru: Barna-
verndarráð, Rauði Kross íslands,
Húsmæðrafjelag Reykjavíkur,
S j ál fstæð iskvennaf j elagið Hvöt,
Kvenfjelagið Keðjan, Mæðrastyrks
nefndin, Verkakvennafjel. Fram-
sókn, Vorboðinn og Stjettarfjelag
barnakennara.
Fulltrúar frá öllum þessum fje-
liigum starfa í nefnd, er vinnur
kappsamlega að undirbúningi
þessa máls, en framkvæmdastjórn
skipa hinir þrír menn, er áður
voru nefndir.
Aðdragandinn.
Þegar ljóst var, að vorskólarnir
g'átu ekki starfað í bænum, vegna
komu bresku hermannanna, fór
skólanefnd að ræða nauðsyn þess,
að koma sem flestum börnum í
sveit í sumar. Var kennurum, þá
falið að rannsaka, hverjum í sínu
umdæmi: 1) hve mörgum börn-
um væri þegar komið til dvalar í
sveit, 2) hve mörg börn ættu vís-
an dvalarstað, 3) hve margir
þyrftu aðstoðar við, að koma börn-
um í sveit og þá hvort þeir gætu
greitt meðgjöf eða þyrftu fjár-
hagsléga aðstoð.
Þessi rannsókn fór fram í þrem
skólahverfum bæjarins, Austur-
bæjar-, Miðbæjar- og Skildinga-
nes-skólahverfum.
Þörfin.
Þessi rannsókn leiddi í ljós, að
í bænum eru nú 891 barn á aldr-
inum 4—13 ára, sem óskað er eftir
aðstoðar við, að koma til sumar-
dvalar í sveit. Af þeim eru 59G
börn, sem foreldrar telja sig ekki
geta kostað til slíkrar dvalar, en
,295, sem boðist er til að greiða
mi,eð.
Rannsókn kennaranna leiddi
ennfremur í Ijós, að foreldrar og
aðstandendur hafa sjálfir komið
fjölda barna til dvalar í sveit, eða
eiga vísan dvalarstað þar fyrir
börnin. í skólahverfi Austurbæj-
arskólans er tala þessa barnahóps
um 1000, og ef svipað er í hinum
skólahverfunum, eru þessi börn á
þriðja þúsundið.
Nokkuð af því fólki, sem telur
sig hafa vísan dvalarstað fyrir
börnin í sveit, hefir ekki ráð á að
kosta ferðirnar og verður þá þar
að koma til hjálpar.
Fjárhagshliðin.
En til þess að unt verði, að
ltoma þeim nál. 600 börnum til
sumardvalar í sveit, sem svo er
ástatt um, að foreldrar eða að-
standendur hafa ekki fjárhags-
lega getu til að greiða með börn-
unum, þarf mikið fje. Fram-
kvæmdastjórnin telur, að til þess
þurfi 70—90 þús. kr. ■ er þá mið-
að við tveggja mánaða dvalar-
tíma í sveit og reiknað með kr.
2.00 til kr. 2.50 meðgjöf með barni
á dag.
FRAMH. Á SJÖTTU Sfi)U.
Nú er það leyni-
vopn Banda-
manna 1
Samkvæmt fregn frá Now York
er gert ráð fyrir að einn
þátturinn í hjálp Bandaríkjanna
til Bandamanna, semi Roosevelt
hjet þeim í ræðu sinni í fyrradag,
vérði, að látin verði af hendi við
þá miðunartæki í sprengjuflug-
vjelar, sem annars hefir yerið eitt
af leynitækjum ameríska hersins.
Með þessu tæki er næstum örugt
að hægt sje að hæfa tiltölulega
lítinn hlut úr 3 þús. metra hæð.
Tækið er þannig, að þótt það
falli í hendur óvinanna, þá tekur
það þá marga mánuði að fram-
leiða hina einstöku hluta þess. En
einnig er í sambandi við það
sprengja, sem gerir mögulegt að
gjöreyðilegga það ef illa fer.
Haííe Seíassíe
Ingimundur
Guðmundsson
glliuukóngur
I annað sinn
OA Íslandsglíman var háð í
Iðnó í gærkvöldi. Kepp-
endur voru 12 og urðu úrsht þau,
að Ingimundur Guðmundsson fekk
10 vinninga og vann því glímu-
belti í. S. f. í annað sinn í röð og
hlaut sæmdarheitið Glímukóngur
fslands.
Annar varð Sigurður Brynjólfs-
son (Á.) og hlaut hann 8 vinninga.
Þriðji varð Kjartan B. Guðjóns-
son (Á.) með 7 vinninga. Þá urðu
næstir með 6 vinninga Geirfinnur
Þorláksson (U. M. F. M.) og Skúli
Þorleifsson (Á.). Þá hlaut Guð-
mpndur Hjálmarssori (Á.) 5 vinn-
inga. 4 vinninga hlutu Andrje3
Björnsson (K. V.), Jón Ó. Guð-
laugsson (U. M. F. S.) og Sig-
urður Giiðjónsson (K. V.). Krist-
mundur Sigurðsson (Á.) hlaut 1
vinning og Þorkell Þorkelssou
!(Á.) engan vinning.
Einn keppandi, Sligurður Hall-
björnsson (Á.) gekk úr leik vegna
smámeiðsla.
Fegurðarglímuskjöld í. S. í.
hlaut Kjartan B. Guðjónsson og
titilinn Glímusnillingur íslands.
Fór glíman vel fram og drengi-
lega og var frásögn af henni út-
varpað jafnóðum..
Forseti f. S. í. afhenti verð-
launin.
Á eftir glímunni var öllum
íglímuköppunum, ásamt aðstoðar-
mönnum við hana, haldið samsæti
,af f. S. í. og Glímufjel. Ármann.
Voru þar margar ræður haldn-
ar og stóð samsætið fram yfir
miðnætti með hinum besfa fagnaði.
fslenskir sjómenn
á 714 skipum
aprílmánuði voru alls við
’ veiðar eða flutninga: 35
togarar með 510 menn, 17
íínuveiðarar, með 279 menn,
268 vjelb. yfir 12 lestir, með
2618 menn, 113 bátar undir
12 lestir, með 710 menn, 265
trillur, með 1115 menn og 16
róðrabátar, með 27 menn. —
AIls eru þetta 714 skip og
bátar, með 5259 menn.
(Ægir).
Ford-fiugvjelar
í stðrum stíl
Haila Selassie, fyrv. Abessiníu-
keisari, er kominn til Lond-
on. —
Fær hann jafnharðan öll mikil-
væg tíðindi, sem gerast, varðandi
þátttöku ítala í stríðinu.
T7, dsel Ford (sonur Henry
Fords) sagði í gær, að
sjerfræðinganefnd, sem skoðað
hefði Curtiss 1940 flugvjel-
arnar, hefði komist að þeirri
niðurstöðu að hægt væri a?
framleiða þær í stórum stíl.
Edsel Ford, sem er forstjóri
Ford-verksmiðjanna, sagði a§
alt væri undir það búið, að
verksmiðjur sínar byrjuðp
framleiðsluna, strax og ríkis-
stjórnin gerði samning við þær.
Eins og kunnugt er, hafði
Henry Ford lýst yfir því, að
verksmiðjur sínar gætu fram--
leitt þúsund flugvjelar á dag.
Edsel Ford hækkaði þessa
tölu í gær upp í 5 þús. á dag,
sem hægt væri að framleiða,
,,ef mikið lægi við“.
AMERÍSKI HERINN
SKILAR AFTUR.
öldungadeild Bandaríkja-
þings samþykti í gær með 67 at-
kvæðum gegn 18 að heimila
herstjóminni að skila aftur
rifflum og fallbyssum til verk-
smiðjanna, sem framleiddu
þessi vopn, gegn því, að verk-
smiðjurnar framleiddu ný vopn
af sömu gerð fyrir ameríska
herinn.
Sendimenn Bandamanna í
Bandaríkjunum ræddu í gær
við W. Knudsen, formann
„General Motoús“ iverksmiðj-
anna og Henry Ford, um fram-
leiðslu á skriðdrekum fyrir
Bandamenn.
Tundtirspíílar frá
Ameríku
rá New York bafa fregnir um
■*" að Bandamenn sjeu að at-
huga moguleikana á því að kaupa
þar tundurspilla, séto smíðaðir
hafa verið fyrir ameríska flotann.
Bretar og Frakkar hafa mist
um 30 tundurspilla frá því að
stríðið hófst, þar af Bretar 22.
Hjáíp Roosevefts
Roosevelt hefir farið þess á
leit við þjóðþingið í
Bandaríkjunum að það veiti 50
miljón krónur til Rauðakrossins
til hjálpar flóttamönnum í
Evrópu.
Hagur danskra
ríkisstofnana
Clyrir danska þjóðþingið var í
■*- gær lögð þingsályktunartil-
laga, sem heimilar að hækka far-
gjöld og farmgjöld með dönsku
ríkisjárnbrautunum um 25%.
Þannig verður hægt að auka tekj-
urríkisjárnbrautanna um 32 mUj.
króna.
Einnig er gert ráð fyrir að
póst- og símagjöld verði hækkuð
allverulega.
Samþykt hefir verið að gera
uýjan ísbrjót, sem hægt verði að
nota á Stróa-Belti í miklum ísa-
árum. Búist er við að ísbrjótur-
inu kosti 4—5 milj. króna.