Morgunblaðið - 12.06.1940, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. júní 1940,
%
Herstjórnartilkynning
.!. Þjóðverja
l»ýska herstjórnin tilkynnir:
inni miklu orufetu í Norð-
ur-Frakklandi heldur á-
fram og á hægri fylkingararm-
inum er andstæðingunum veitt
eftirför, þar sem þeir eri; á und-
anhaldi.
Milli Reims og Argonne eru
háðir harðir bardagar, en Þjóð-
verjar vinna þó mikið á. Víða
hafa fjölmennar hersveitir ver-
ið umkringdar og eru að því
komnar að verða gersigraðar,
og fer mótstaða þeirra stöðugt
minkandi vegna hins blóðuga
manntjóns, er þær hafa beðið.
Höfnin í Le Havre hefir orðið
fyrir sprengjuárásum þýskra
flugvjela, og voru nokkur skip
löskuð allmjög. Einum tundur-
spilli var sökt, en annar ‘skemd-t
ist mjög af sprengju og eins 10
þús. smálesta flutningaskip.
Þýskar flugvjelar hafa einn.
ig varpað sprengjum á herbúðir,
hersveitir á göngu, stórskotaliðs
stöðvar og aðrar herstöðvar og
eyðilagt nokkrar brýr yfir
Marne og neðri hluta Oisefljóts
og gert þar með Frökkum erf-
iðara um undanhald.
' Flugvjelar andstæðinganna
iiiafa enn varpað sprengjum yfir
borgir í Norður- og Vestur-
Þýskalandi, án þess að vinna
Verulegt tjón.
' Andstæðingarnir mistu í gær
29 flugvjelar, og voru 19 skotn-*
ar niður í loftorustum, 6 með
loftvarnabyssum, en hinar eyði-
lagðar á jörðu. Auk þess hafa
V'erið skotnir niður fyrir þeim
3 festarloftbelgir. 8 þýskra
flugvjela er saknað.
Hraðskreiðir þýskri herbátar,
sem rekið hafa hemað við aust-
urströnd Englands, lentu í bar-
daga við breska tundurspilla-
deild, og komust þeir allir und-
an.
Tilkynt er, að Bandamenn
hafi dagana frá 5.—10. júní
mist 437 flugvjelar og einn fest-
arloftbelg. Hafa 249 þessara
flugvjela verið skotnar niður í
loftorustum, 81 með loftvarna-
byssum, en hinar verið eyðilagð-
ar á jörðu.
Fiskur seldur
í isfiutningaskip
Togarar og ísflutningaskip
hafa í maimánuði keypt
alls 2,801 smál. af fiski, fjrrir
550,000 kr.
Er þetta 1,028 smál. minna en
í apríl, en að verðmæti til hafa
þessi kaup minkað um 136 þús.
kr. frá því sem var í apríl-
mánuði. Frá því á áramótum
hafa ísfiskflutningaskip og tog-
arar keypt bátafisk fyrir alls
3,857 þús. kr. Er það miklu
meira en nokkru sinni fyrr,
énda nemur það magn, sem bát-
árnir hafa selt þannig síðan á
áramótum, alls 21,444 smál.
(Ægir.)
Stunarsundæfmgar K. R. verða
í Sundlaugunum á miðvikudögum
■kl. 9 e. h.
Rey k javíkurbörn
í sveit
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
En hvernig er ^jaögulegt, að afla
þessa fjárs? Leitað hefir verið til
rrkis og hæjar, og þessir aðilar
báðir hafa lofað stuðningi. En
framkvæmdastjórn hugsar sjer að
afla fjárs með þessum hætti; 1)
skemtunum, 2) merkjasölu, 3)
happdrætti og 4) Jónsmessuhátíð
hjer í Reykjavíli, sem helguð yrði
þessu málefni. Auk þess verði leit-
að til einstaklinga og fyrirtækja
í bænum.
Geta má þess, að í gær afhenti
fjelag eitt hjer í bænum., senr
ekki vildi láta nafns síns getið,
kr. 1000.00 — eitt þrisund krón-
ur — til ráðstöfunar í þessu
augnamiði.
Vonandi tekst að afla þess fjár-
magns, sem með þarf, til þess að
,koma börnunum í sveit í sumav.
Reykvíkingar hafa altaf hiaupið
undir bagga, er á hefir þurft að
halda og til þeirra verið leitað.
Svo mun enn reynast.
Morgunblaðið veitir móttöku
framlögum 1 þessu skyni og er
þess vænst, að bæjarbúar bregðist
nú skjótt og vel við.
Sveitaheimilin.
Skorað hefir verið á þau sveita-
heimili í nágrenni Reykjavíkur
(frá og með V.-Skaftafellssýslu
og að Vestfjörðum), sem hafa tök
á að veita börnum móttöku til
sumardvalar, gegn eða án með-
gjafar, að þau tilkynni það odd-
vitum, kennurum eða prestum.
Hafa þegar mörg heimili gefið
sig fram ; m. a. kom alveg nýlega
tilboð um töku 15 barna úr
Hvammshreppi í Mýrdal, ýmist
meðgjafarlaust eða gegn mjög
vægri meðgjöf. Er þessi hreppur
austur í Mýrdal hæstur enn sem
komið er.
Útsvörin á Húsavlk
Nýlega er Iokið niðurjöfnun
útsvara á Húsavík og var
alls jafnað niður kr. 48.038.00 á
348 gjaldendur.
Hæstu útsvörin bera: Kaupfje-
lag Þingeyinga 8600 kr.. Einar
Guðjohnsen kaupm. 4400, Þórður
Guðjohnsen sparisjóðsstjóri 1400,
Júlíus Havsteen, sýslumaður 1100,
Kristinn Jónsson kaupmaður 1050,
Þórhatlur Sigtryggsson kaupfje-
lagsstjóri 965, Árni Stefánsson
söðlásmiður, Bjarni Benedkisson
póstafgreiðslum. óg Kar] Kristj-
ánsson oddviti 700 hver, Björn Jó-
sefsson hjeraðslæknir 675, Sig-
tryggur Pjetursson bakari 620,
Lifrarbræðsla Helga Pje'turssonar
600, Jón Baldvinsson rafvirki 500,
Þór Pjetursson útgerðarm. 475,
Stefán Pjetursson útgerðarm. 430,
Sigurður Kristjánsson verslunarm.
355, Friðþjófur Pálsson stöðvar-
stjóri 340, Friðrik A. Friðriksson
sóknarprestur 325, Þórhallur
Karlsson iitgerðarm. 325, Sigurður
Jónsson vjelaeftirlitsm. 310 kr.
Háskólavígslan. Stúdentar þeir,
sem nú st'unda nám við Háskólann
og vilja vera viðstaddir vígsluna,
geri svo vel að vitja aðgöngumiða
í skrifstofu Háskólans í dag og á
morgun kl. 10—12.
Eggert syngur
á morgun
sonar söngvara, er jeg mætti
honum á Austurstræti síðdeg-
is í gær.
— Jeg ætla að syngja í
Gamla Bíó á fimtudag, og ef
mjer ekki „tekst upp“ nú, þá er
ekki hægt að syngja vel á ís-
landi, sagði Eggert, er jeg
ympraði á því, hvað olli hans
gleði í þeim drunga, sem nú
grúfir yfir öllu og öllum. En
skýring Eggerts á því, að nú
myndi hann syngja betur en
nokkru sinni áður var sú, að
aðstoðarmaður hans dr. von
Urbantschitsch væri svo dá-
samlegur í list sinni. Með hans
aðstoð væri ekki hægt annað
en syngja vel.
— Það er orðið langt síðan
þú hefir sungið hjer opinber-
lega?
— Já, um ár. Jeg hefi
ekki sungið hjer síðan jeg kom
úr síðustu utanför minni. Sú för
verður mjer ógleymanleg, ekki
síst förin um Pólland, þar sem
jeg fjekk hinar ágætustu við-
tökur. Þar gekk jeg undir nafn-
inu: Sonur höfuðborgarinnar á
Islandi.
— Hvert er ferðinni heitið
næst — til Ameríku?
>— I sumar mun jeg fara um
landið mitt og syngja þar. Hvað
ivo verður í haust, er ekki ráðið
ennþá — en hugsað hefi jeg til
Ameríku.
Á söngskrá Eggerts í Gamla
Bíó á morgun eru eingöngu lög
eftir íslenska höfunda. Nokkur
hafa aldrei verið sungin opin-
berlega áður.
Vafalaust munu Reykvíking-
ar fjölmenna í Gamla Bíó. Það
er altaf bjart yfir Eggert. Hann
er gleðinnar maður, en þeir eru
vissulega ekki of margir nú á
dögum. Og hann er ósvikinn
sonur Reykjavíkur.
ILAUKUR ó
Valdar íslenskar X
KARTÖFLUR $
í sekkjum ok lausri vipjt. 0
vísm
Laugavep: 1. 0
Útbú: Fjölnisveg 2. x
o<xxxx>oooo<xxxx>o<x:
FORÐUM í FLOSAPORTI.
Síðasta sýning.
Sextugur: Jón
Magnússon, skipstjúri
~I ón Magnússon skipstjóri er
” 60 ára í dag. Hann er
fæddur að Miðseli í Reykjavík
12. júní 1880, enda hefir hann
altaf verið kendur við fæðing-
arstað sinn Miðsel, eins og öll
systkini hans. Það þarf ekki að
kynna Jón fyrir miðaldra Reyk-
víkingum og þaðan af eldri,
hann var svo mikill á velli og
fríður sýnum á unga aldri, að
hann hlaut að vekja þá athygli
á sjer að hver og einn sem sá
hann, spurðist fyrir hver mað-
urinn væri.
Jón misti móður sína þegar bann
var á 10 ári; fluttist hann þá til Vig-
dísar systur sinnar og manns hennar,
Jóns Þórðarsonar skipstjóra, Vestur-
götu 35 hjer í bæ, og ólst hann upp
hjá þeim hjónum. Jón byrjaði sjó-
mensku á unga aldri og vakti strax svo
mikla eftirtekt á sjer fyrir dugnpð og
kjark, að hann var eftirsúttur sem há-
seti. Átján ára gamall varð Jón fyrst,
stýrimaður á skútu og var það fátítt í
þá daga að svo ungir menn væru tekn-
ir sem yfirmenn, þó að skipin væru
ekki stór, hann lauk prófi frá Stýri-
mannaskóJanum í Reykjavík 23 ára, jg
beið þá skip eftir honum tilbúið á höfn-
inni sem hann varð strax skipstjóri á
að loknu prófi. Var það kt. ,,Svanur“,
útgerðarmaður Jón Guðmundssou
Bakka á Seltjamamesi; var Jón skip-
stjóri á þessu skipi í 3 ár. Eftir það
var hann á mörgum kútteram skipstjóri
og sóttu menn eftir skiprúmi hjá hon-
um, svo að venjulega hafði hann val-
inn mann í hverju rúmi. Jón bjó hjá
Vigdísi systur sinni þar til hann mynd-
aði sjálfur heimili, þá 36 ára að aldri,
og má fullyrða, að hann hefir vel
launað uppeldi sitt, þar sem systir hans
misti mann sinn frá 5 börnum ungum,
sitt á hvora ári. Eftir að kútterarnir
hurfu var Jón á ýmsum skipum, ýmist
skipstjóri eða stýrimaður, þar til 1931,
að hann varð fyrir slysi því, sem hann
býður aldrei bætur að fullu. Var hann
full 3 ár óvinnufær. Má fullyrða, að
það hefði margur gefist upp við slíkt
áfall, en svo var pkki með Jón. Hann
byrjaði að vera vaktmaður í skipum,
eftir að hann komst á skrið, en átti
mjög erfitt með allar hreyfingar og
hætti því nokkru síðar. Rjeðist hami
þá í það, að setja upp seglaverkstæði
og hefir, starfrækt það nokkur ár. Það
verður enginn fyrir vonbrigðum, sem
vill fá vel litbúin segl og leitar til Jónsí
skipstjóra, því hann veit af reynsl-
unni hvað við á.
Jeg þakka afma-lisbarninu fyrir góða
viðkynningu um þrjátíu ára skeið, og
óska því langra lífdaga.
SkútuJcarl.
KOLASALAM Kf
Símar 4514 og 1845.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
K. I. B. S. - kvartettinn
i Gamla Bíú f Kvöld
THyrra sunnudag hjelt K.I.B.S.
kvartettinn sína fyrstu
söngskemtun í Gamla Bíó, fyrir
næstum fullu húsi áheyrenda.
Var honum fagnað afbrigða-
vel, svo þeir fjelagar urðu að
endurtaka flest lögin og syngja
aukalög, enda fór saman fjöl-i
breytt og skemtileg söngskrá,
smekklegur söngur og ágætur
undirleikur. Allur var söngurinn
borinn uppi af æskuþrótti og
fjöri.
Marga mun fýsa að hlusta á
þenna nýja kvartett, sem nú
kemur fram öðru sinni í
Gamla Bíó í kvöld. G.
Guðmundur Jónseon
timtugur
FRAMH. AF. FIMTU SÍÐU.
fiskinn hvert sem er og svo vel
útbúin, að hægt sje að notfæra
sjer allan aflann. En skipin
verða að vera sæmilega ódýr í
rekstri.
Sem næst sjónum.
— Hvað ætlið þjer að taka
fyrir þegar togaraskipstjórninni
sleppir?
— Jeg vona, að jeg geti dund
að góða stund á sjónum enn.
Menn eru að kenna í brjósti um
okkur togarakarlana fyrir það
hve miklar og strangar stöður
við höfum. Það er vitaskuld
rjett, að þegar vel veiðist, þá
stöndum við nokkuð lengi í einu
í brúnni, þetta 30 klukkustundir
án þess að hvílast, nema meðan
við gleypum í okkur matinn, og
jafnvel hátt í tvo sólarhringa
í einu, án þess að sofna.
Þetta er kannske ekki nema
vitleysa að geta ekki trúað öðr-
um fyrir skipinu. Manni finst
maður altaf þurfa að hafa auga
með einhverju annaðhvort á
dekkinu, ellegar kringum skip-
ið.
En þegar jeg fer að lýjast,
vildi jeg helst eiga heima á ein-
hverri eyju. Það er þó altaf næst
sjónum. Jeg er að hugsa um
Þerney. Jeg er að rækta hana.
Þar ætla jeg að hafa geldneytí
á hagagöngu. Þar er ofurlítið
æðarvarp. En það gengur úr
sjer fyrir varginum. Varla
nokkur kolla sem kemur upp
fleiri en tveimur ungum. Mað-
ur kemur varla þangað svo mað-
ur sjái ekki lappirnar á ein-
hverjum unganum standa út úr
kjaftvikunum á svartbaknum.
Þegar jeg verð gamall, finst
mjer jeg helst geta unað við að
horfa á aðra vinna að sveita-
vinnu. Á sjó verð jeg að vera
þátttakandi sjálfur, sagði Guð-
mundur.
Og síðan óskaði jeg honum
til hamingju með afmælið, því
ferðabíllinn beið eftir honum
sem átti að flytja sjógarpinn
upp í sveitasæluna á afmælis-
daginn. V. St.
FORÐUM í FLOSAPORTI.
Síðasta sýning.