Morgunblaðið - 29.06.1940, Blaðsíða 3
Laugardagur 29. júní 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
I skolhríðardrununi frá morgni til kvöld§
IHH
Frá dvöl Guðmundar Hlíðdals f
Guðbrandsdal í Noregstyrjöldinni
Danmörk — Þjóðverjar vissu
ekki um svo nálæga Paradís
GUBMUNDUR HLlÐDAL póst- og símamála-
stjóri er kominn til bæjarins. Hann var, sem
kunnugt er, í Noregi þegar Þjóðverjar gerðu
innrás í landið og Noregsstyrjöldin hófst. Var hann þang-
að kominn til þess m. a. að sitja fund símamanna í Osló,
en var kominn þangað nokkru áður en fundurinn skyldi
hefjast.
Fór hann frá Osló upp í Guðbrandsdal og ætlaði að
dvelja nokkra daga í gistihúsi að Golá. Hann kom þangað
daginn áður en alt fór í uppnám í landinu.
Er tíðindamaður Morgunblaðsins hitti Hliðdal að máli í gær
á heimili hans og spurði hann frjetta af ferðum hans, sagði hann
meðal annars:
Eitt af því sem jeg lærði meðan jeg var í Guðbrandsdal, var
það, að það er ekki svipað því eins lífshættulegt fyrir utanhers-
fó.lk að vera nálægt vígstöðvum, eins og menn kunna að álita
að óreyndu.
— Hve lengi voruð þjer í
Guðbrandsdal?
— Jeg var þar fram í maí.
Þetta voru sögulegir dagar,
sem jeg vissulega vildi ekki lifa
upp að nýju. Gistihúsið sem jeg
bjó í var strax tekið fyrir her-
mannaspítala. En vegna þess að,
jeg var útlendingur fékk jeg að
vera þar kyrr. — Golá er vesG
anvert við Guðbrandsdal, en að-
alvegurinn og járnbrautin eru í
austanverðum dalnum, og þar
fór aðalviðureignin fram. Þetta
varð til þess að við sluppum til-
tölulega vel við vopnaviðskiftin.
— Hvernig var hernaðarað-
staðan í dalnum þegar þjer fór-
uð þaðan?
— Þá var víglínan komin
lengra norður eftir. Jeg fór það-i
an til Osló. Að komast suður
eftir meðan barist var sunnar í
dalnum var ekki viðlit, og mjer
var almennt ráðið frá því að
hreyfa mig nokkuð, þegar jeg
lagði af stað. Skothríðin hafði
glumið í dalnum dag eftir dag
og flugvélarnar þotið þar fram
og aftur í stórum hópum. —
Skotdunurnar ætluðu alveg að
æra mann. En fyrstu dagana
áður en viðureignin barst norð-
ur eftir dalnum var það verst
að vita ekkert með vissu hvern-
ig ástandið var annars staðar í
landinu. Fyrir fólk sem átti nán-
ustu skyldmenni sín í öðrum
hjeruðum og landshlutum var
frjettaleysið alveg voðalegt.
Engin símasambönd og enginn
vissi neitt um neitt að kalla
nema það sem hann hafði fyrir
augum.
Fyrst í stað var það alment
álitið, að Bandamönnum myndi
takast að stöðva sjóflutninga
norður yfir Skagerak. Skipatjón
og manntjón Þjóðverja fyrstu
daga styrjaldarinnar var- talið
FRAMH. A FJÓKÐU SÍÐTJ.
Ársfundur
VerslunarrðOs
Islands
Arsfundur Verslunarráðs íslands
var haldinn í Kaupþingssaln-
um í gær. Var hann fjötmennur.
Formaður Verslunarráðsins, Hall
grímur Benediktsson stórkaupmað-
ur, setti fundinn og mintist lát-
inna fjelag'a og starfsmanna á
liðnu starfsári, en þeir voru 8 tals-
ins. Vottaði fundurinn þeim virð-
ingu með því að rísa úr sætum.
Þvínæst ávarpaði formaður fund
ifm og er aðalefni þeirrar ræðu
getið á öðrum stað í blaðinu.
Hófust nú fundarstörf. Fundar-
stjóri var kjörinn Magnús Kjaran
stórkaupmaður og ritari dr. Odd-
ur Guðjónsson skrifstofustjóri.
Þá var gengið ti] dagskrár,
Fyrsta málið var skýrsla stjórn-
arinnar og gaf liana dr. Oddur
Guðjónsson. Var og útbýtt á fund-
inum prentaðri skýrslu. Reikning-
ar V. í. voru og lagðir fram og
fSamþyktir. Þátttakendum hafði
1‘jölgað á árinu. Þeir eru nú 286
talsins, þar af 13 fjelog.
Þá gaf Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjóri fróðlega skýrsln um
JVerslunarskóla íslands. Þakkaði
fundurinn honum ágæta stjórn á
.skólanum.
Þrír menn áttu að ganga úr
stjórn, þeii^ Björn Ólafsson, Ric-
þard Thors og Sigurbjörn Þorkels-
pon. Voru þeir allir endurkosnir.
Varamaður í stjórn var kosinn
Ragnar Blöndal og endurskoðend-
ur þeir Pjetur Þ. J. Gunnarsson
Nog Jón Heigason; til vara Ólafur
II. Ólafsson.
Guðmundur Hlíðdal.
Þrír menn
drukna
í Ólafsfirði
Amiðvikudag um kl. 14 voru
7 menn á árabát rjett vest-
an við Ólafsfjarðarkauptún. Gengu
brotsjóar upp sandinn við fjarð-
arbotninn. í ólaginu reið brotsjór
yfir bátinn og skolaði öllum mönn-
unum nema einum útbyrðis.
Fólk, sem þar var nærstatt, kom
strax á vettvang. Tókst að bjarga
manninum í bátnum og þrem öðr-
um, er syndir voru, en þrír drukn
uðu. Hurfu þeir í brimgarðinn og
mun mikill straumur strax hafa
borið þá úr stað.
Þeir, sem druknuðu, voru: Númi
Ingimarsson, 27 ára að aldri, læt-
ur hann eftir sig konu og tvö
þörn; Guðmundur Jóhannsson, 20
ára, einhleypur, og Bjöm Þór Sig-
urbjörnss’on, 19 ára. Var hann fyr-
irvinna móður sinn’ar. Þessir merin
voru allir til heimilis í Ólafsfjarð-
ai’kauptúni.
Lík Núma og Björns Þórs hafa
fupdist, en ekki Guðmundar/(FÓ.)
Slys
á Hjalteyri
¥~*að slys vildi til á fimtudag við
síldarverksmiðjuna á Hjalt-
eyri, að Stefán Pjetur Jakobsson,
60 ára að aldri, fjell niður af
yerkpalli og kom á vinstri hlið
niður á steinsteypt þak. Var hann
fluttur á sjúkrahás á Akureyri.
Samkvæmt læknisumsögn meiddist
liann mikið. Er hann brotinn á
vinstri handlegg og vinstri lær-
legg, svo og mjaðmargrindin. FÚ.
Hlutverk nútíma-
kirkjunnar
Frá Synodus 1940
FUNDAHÖLD SYNODUS hjeldu- áfram í Há-
skólabyggingunni í gær. Komu fundarmenn
saman kl. 9 f. h. í kapellu Háskólans til stuttr-
ar guðræknisstundar. Prófessor Magnús Jónsson stjórnaði
morgunbænum.
Að því lokmrvar gengið til'dagskrár og tekið til umræðu aðal-
dagskrárefni Synodusar: „Hlutverk kirkjunnar“. Síra B.jarni Jónsson
vígslubiskup hafði framsögu í máJinu.
K. A. - K. R.
jafntefli 3:3
Síðasti leikur Akureyringa fór
fram í gær og keptu þeir við
K. R. Jafntefli varð, 3 mörk gegn
3. Eftir fyrri hálfleik stóðu leikar
þannig, að K. A. hafði gert 2 mörk
en K. R. eitt.
Lið K. R. var einkennilega sam-
sett og mesta furðu vakti, að
Björgvin Schram var í marki. Er'
honum flest betur farið en að
standa í markinu. En hann mun
hafa verið íneiddur og átt um
tvent að velja, að leika ekki með
eða standa í markinu. Má búasx
við að leikurinn hefði endað öðru-
vísi, ef Schram hefði verið á sín-
um stað.
Það töldu flestir víst, að fleira
hefði verið áhorfenda ef það hefði
verið á almanna vitorði að Schram
átti að leika í marki.
Akureyringar ljeku allvel á
köflum, en úrhellis rigningu gerði
er leikur var nýbyrjaður. Yarð
völlurinn hrátt illa blautur, og
leikmenn ho'ldvotir. Það er því
ekki rjett að ásaka neinn þó að
leikurinn hafi ekki verið upp á
hið besta.
Reyln'ísbir knattspy r n umenp
þakka Akureyringum fyrir kom-
una, en þeir hefðu kosið að veður
Iiefði verið betra ,því þá hefði
verið meiri ánægja af leikjunum
og fleiri áhorfendur á þeim.
Finsk-rússnesku
▼iðskiftasamningarnir
Viðskifta- og greiðslusamningur
hefir verið undirritaður milli
Finna og Rússa. Samningurinn
gengur í gildi 1. júlí.
Paasikivi skrifaði undir fyrir
hönd Finna.
VígSlubiskup hóf ræðu sína með
því að hlutverk kirkjunnar væri
hið sánla og áðúr.
„Alt vald er tnjer gefið af himni
og jörð, voru orð Jesú“, mælti
vígslubiskup. „Jesú sKristur á
rjett til vor allra“. Hann vildi
þó éngan taka með valdi, því að
„vjer erum ekki vjelar, vjer er-
mn menn .Eignarrjettinn á hann.
Eignarrjettinum vill hann ná með
kærleika. Orð Jesú hljóma •. Jeg
á tilkall til þeirra allra. Farið því
og gjörið þá að lærisveinum".
Leiðin til þessa er hoðun orðs-
ins. Þannig höfðu fyrstu lærisvein-
arnir boðskap að flytja. Hver ein-
stakur þeirra var boðberi, lrallari.
Gríska orðið „martvr“ fól líka í
sjer, að hann var vottur, sem va’’
reiðubúinn að fórna lífi sínu fyrir
vitnisbnrðinn. Hvað vitnnðu þeir:?
Upprisinn frelsara. Þegar læri-
sveinarnir kölluðu sjer einú í
postulaliópinn, þá var það köll-
unarskilyrðið, að hafa. verið vott-
,ur að upprisu Krists.
En þeir gengu ekki út og töl-
uðu um Guð, þeir fluttu ekki
fyrirlestur um eilífðarmáh Þeic
höfðu skilaboð frá Guði, sem sjálf-
Ur hafði opinberað sig í synhmm
Jesúm Kristi.
Prjedikun þeirra var því vitnis-
burður um Krist.
Sá vitnisburður væri í Nýjá-
Testamentinu. Nýja-Testamentið
væri ein samfeld trúarjátning. ;
Orðið um Krist skapaði söfnuð.
„Þeir trúðu, þess vegna töinðu
þeir“.
Þannig var kirkjan þá ecclesia.
Ecclesía er orð notað um þá, sem
kallaðir eru fram fyrir fjöldann.
Þeir hafa tekið á móti orði frá
Guði og flytja öðrum.
Það sje hlutverk kirkjunnar,
eins og standi í II. Kor. 4.—5.:
„Ekki oss sjálfa prjedikum vjer,
heldur Krist Jesúm sem drottinn.
En sjálfa oss sem þjóna yðar
vegna Jesú“.
Vígslubiskup hjelt síðan áfram :
„Þetta. er mein heimsins, að
menn hafa prjedikað ágæti manns-
FRABQL Á SJÖTTÖ SÍDU,