Morgunblaðið - 18.06.1941, Side 3
Miðvikudagur 18. júní 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sveinn
fyrsti
Björnsson kjörinn
f ® f
ríkisstjóri Islands
Virðuleg og
hádðleg at-
böf n á Alþingi
ÞAÐ var mjög virðulegur og hátíðlegur svipur
yfir Alþingi, er fundur hófst í sameinuðu þingi
kl. ll/2 í gær.
Dagskrá fundarins var í tveim liðum, þannig: 1. Kosn-
ing ríkisstjóra íslands. 2. Ríkisstjórinn vinnur eið eða
drengskaparheit að stjórnarskránni og flytur ávarp.
Margt gesta var viðstatt og méðal þeirra: Mr. Howard Smith
sendiherra Breta, Sheppard ræðismaður, Mr. Harris verslunarfulltrúi.
Williams vararæðismaður, Khuniholm aðalræðismaður Bendaríkjanna
og frii, Bsmark sendiherra Norðmanna og frú, Bay aðalræðismaður,
Fontenay sendiherra Dana, Voillerv ræðismaður Frakka, Arent
CJaessen aðalræðismaður og fulltrúi ræðismanna. Ennfremur ríkis
stjúrafrú Björnsson, biskup. landsins, dómarar Hæstarjettar, skrif-
stofustjórar stjórnarráðsins, borgarstjórinn í Reykjavík, forseti bæj-
arstjórnar Reykjavíkur, lögreglustjóri.
Er þingmenn höfðu telíið sjer
sæti hófst fundurinn í Sameinuðu
AJþingi.
Forseti sameinaðs þings, Har-
aldur G-uðmundsson setti fundinn.
Hann skýrði frá því, að samkvaunr
dagskránni færi nú fram kosn-
ing ríkisstjóra, Og gilti kosning'
hans til eins árs, frá 17. jíiiií 1941
tiJ jafnlengdar 1942.
’ Bað forseti þvínæst þingskrif-
ara að útbýta lrjörseðlum meðal
þingmanna. Er forseti hafði talið;
atkvæðin lýsti hann úrslitunum,
en þau voru:
Sveinn Björnsson sendiherra
hlaut 37 atkv.
Jónas Jönsson frá Hriflu hlaut
eitt atkv. 6 seðlar voru auðir, eu
5 þingmenn voru fjarstaddir.
Þessu næst mælti forseti:
Nú mun forsætisráðherra ganga
á fund hins nýkjörna ríkisstjóra
og kyeðja hann til að taka við em-
bætti sínu. Vil jeg biðja liv. þing-
menn að bíða í.sætum sínum komu
þeirra.
Forsætisráðherra Hermann Jón-
asson gekk nú af fundi, en kom
brátt inn aftur, og var þá hinn
nýkjörni ríkisstjóri í fylgd með
honum. Allur þingheimur reis úr
sætum. Ríkisstjóri tók sæti við
grænt borð, gegnt forsetastól.
Forseti mælti: Herra Sveinu
Björnsson. Þjer hafið verið kos-
inn ríkisstjóri IsJands á 'fundi Al-
þingis' í dag til jafnleilgdar næsta
árs og ber yður nii. að undirrita eið
eða drengskaparheit um að halda
stjóríiarskrá ríkisins.
Kom nú skrifstofustjóri Al])ing-
is, Jón Sigurðsson og lagði skjöl
á borðið fvrir framan ríkisstjóra,
sem undirskrifaði svohJjóðandi
drengskaparheit — en þingmenn
stóðu á meðan:
Jeg undirritaður, sem l<osinn
er ríkisstjóri íslands, heiti því,
að viðlögðum drengskap mínum
og mannorði, að lialda stjórn-
arskrá ríkisins.
Gjört í tveim samhljóða ein-
t.ökum.
Revkjavík. 17. júní 1941
Sveinn Björnsson.
Forseti mælti uú: Hinn 'kjörni
rílcisstjóri hefir nú undirritað*
drengskaparheit um að halda,
stjórnarskrá ríkisins. Hæstvirtur
forsætisráðherra tekur nú til máls.
Forsætisráðherra, Hermann Jón-
asson mælti:
Samkvæmt ályktun Alþingis 10.
apríl 1940 um æðsta vald í mál-
efnum ríkisins var ráðuneyti ís-
Jands falin meðferð þess Aralds,
sem konungi er fengið í stjórn-
arskránni.
Með álvktun um sama efni frá
17. maí 1941 og lögum frá 16.
FRAMH. Á SJÖTTU SlÐU
Þýskum kstbát
sfikt fyrlr Vsst-
fjðrðum
ýskum kafbát var senni-
lega sökt fyrir Vestfjörð-
um s.l. föstudag.
Maður nokkur, sem var á
sjó, varð var við kafbátinn
og stuttu síðar komu Bretar
og gerðu árás á, hann.
Fólk á ströndinni sá merki
þess, að kafbátnum var sökt.
Af hernaðarlegum ástæðum
er ekki hægt að skýra frá,
hvar kafbátnum var sökt eða
hvernig.
Ríkisstjórinn undirritar drengskaparheitið.
Fot.: Loftur.
Ríkisstjórinn ávarpar þingheim.
Fot.: Loftur.
Forsætisráðherra, Hermann Jónas-
son tilkynnir á Alþingi, að ríkis-
stjóranum sje afhent meðferð
æðsta valds ríkisins. Fot.: Loftur.
Forseti Sameinaðs Alþingis, Har-
aldur Guðmundsson, tilkynnir
Sveini Björnssyni, að hann hafi
verið kjörinn ríkisstjóri.
Fot.: Loftur.
DÝRTÍÐAR-
FRUMVARPIÐ.
ýrtíðarfriiriivarpið var rætt
alla fyrri nótt í efri deild,
eða til kl. 5 í gærmorgun, með um
lrlukkutímá furidarhJje og Voru
umræðurnar aJl-harðar með köfl-
um. En niðurstaðari várð sú, að
alJar breytingartiJlögur voru feld-
ar og frumvarpið samþvkt óbreytt
ög afgreitt sem lög frá Alþingi.
Þln)jili>
Ríkisstjóri
slitur
Alþingi
Klukkan 5 síðd. í gær hófst
fundur í Sameinuðu Al-
þingi og fóru þá fram þinglausnir.
Er forseti Sþ., Haraldur Guð-
muridsson hafði sett fundinn. lrom
ríkisstjóri, Svéinn "Björnsson inn
í þingsalinn; þingmenn risu úr
sætum. Ríkisstjóri tólr sjer sæti á
vinstri hönd við forseta við hlið
fjelagsmálaráðherra.
Gaf .nvi forseti yfirlit um úrslit
þingmála.
Þingið stóð frá 15. febr. til 17.
júní, alls 123 daga, og er það
lengsta þing, sem háð hefir verið.
Alls voru haldnir 194 þing-
fundir, 82 í Nd„ 83 i Ed. og 29
í Sþ.
Lögð voru fyrir þingið 39
stjórnarfrumvörp og 137 þing-
mannafrumvörp. Þar af afgreidd
•sem lög :33 stjórnarfrumvörp og
55 þingmann afrumvörp. Alls 88
lög.
Feld vonv 2 þirigmannafrv., 4
afgreidd með rölcstnddri dagskrá.
Ekki útrædd: 6 stjórnarfrumvörp
og 37 þingmaimafrumvörp.
Fram voru bornar 34 þings-
ályktunartillögur. Af þeinv af-
greiddar: 11 ályktanir : Alþingis,
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Hátlðahöld
Iþróttamanna
I gær
¥ þróttamen og konur söfnuð-
ust saman á íþróttavellin-
um og gengu þaðan undír.fje-
lagsfánum og íslenskum fán-
um að Alþingishúsinu, þar sem
þeir hyltu hinn nýkjörna ríkis-
stjóra.
Þaðan hjelt ,skrúðgang;an og
mannfjöldinn með Lúðrasveit
Reykavíkur í broddi fylkingar
suður á íþróttavöll, Staðnæmst
var við leiði Jóns Sigurðss*nar.
Lagðir voru tveir blómsveigar á
leiði Jóns Sigurðssonar, annar
frá Alþingi og hinn frá í. S. í.
Einnig va,r lagður blómvöndur
á leiðið frá Sveini Bjönrssyni
ríkisstjóra.
Ríkisstjóri flutti ávarp til
mannfjöldans og er það birt á
öðrum stað hjer í blaðinu.
Skrúðgangan hjelt síðan suð-
ur á íþróttavöll, þar sem Ben. G.
Waage setti íþróttamótið með
ræðu og sjera Sigurbjörn Einars-
son flutti minni Jóns Sigurðsson-
ar forseta og að þyí loknu hófst
íþróttakepnin.
100 m. hlaup vann Bvandur
Brynjólfsson (Vík.) á 11,5 sek.
Annar varð Jóhann Bernhard
(KR) á 11,6 og þriðji Baldur
Möller (Á) á 12 sek.
Kringlukast vann Gunnar
Huseby (KR), kastaði 42,58 m.
Annar varð Jens Magnússon
(Á), 37,69 m. og þriðji Ólaíur
Guðmundsson (ÍR) 36,44 m.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.