Morgunblaðið - 30.01.1943, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 30. janúar 1043
Rússar taka Kropotkin
•>*x«x^WK^:-w«:^yr>>^*k»WN8
Hevnaðarfyrlr-
ætlan banda-
manna í Tunls
Áttundi herinn
tijá Zuara
Iherstjórnartilkynningu Breta,
sem gefin var út í Kairo
'i gærmorgun, var skýrt svo frá,
að áttundi herinn ætti í bardög-
um við baksveitir Rommels hjá
smáhafnarborgin ni Zuara, sem
er um 100 km. fyrir vestan Tri-
poli.
£ Sagt er, að slæmt veður hamli
hernaðaraðgerðum og hafi breski
flugherinn aðallega haft sig í
frammi með loftárásum á Suður-
ttalíu.
Litlir landbar-
dagar I Tunis
Litlar fregnir bárust í gær af
landbardögum í Tunis, og
virðist ekki hafa orðið neinar
breytingar á hemaðaraðstöðunni
undanfama daga.
Mikil loftárás var gerð á Sfax
og segja stríðsfrjettaritarar, að
það sje harðasta loftárásin, sem
gerð hafi verið á einn stað í
allri Nonjur-Afríku herferðinni.
Komið liefir til bardaga í
Ousselita-dalnum, þar sem Þjóð-
verjar halda enn nokkmm stöðv-
um- Er fjallaskarð eitt á valdi
Í>jóðverja, en skarðið er undir
stöðugri stórskotahríð frá banda
mönnum.
Samefginleo yfirljsing
Rooseyelts og Vargas
Washington í gærkv.
SEINT i kvöld var gefin út
sameiginleg yfirlýsing
Roosevelts forseta og Vargas
forseta Brasilíu, en þeir for-
forsetarnir ræddust við, er
Roosevelt var á leið vestur um
haf.
I yfiriýsingunni segir, að það
sje takmark þjóða þeirra að gera
Atlantshafið örugt fyrir allar
þjóðir. Forsetamir vom sammála
um, að ekki mætti til þess koma
framar, að Vestur-Afríka fjelli
í hendur manna, sem hygðust að
einangra Vesturálfu, eða hygðu
á innrás í Ameríku þaðan.
Vargas forseti ræddi um kaf-
bátahættuna í Carribean-hafi og
á Suður-Atlantshafi og sagði, að
verið væri að gera auknar ráð-
stafanir til að sigrast á þeirri
hættu.
Roosevelt skýrði Vargas frá
því, að mjög þýðingarmikill ár-
angur hefði náðst á Casablanca-
fundinum og hefði verið ákveð-
iA, að er friður kæmist á, yrði
að búa svo um hnútana, að mönd
ulveldin gætu ekki ráðist á menn
inguna í framtíðinni. — Reuter.
90,000 fallnir af liði
Þjóðverja á Voronesh
vígstöðvunum
Ivondon í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
RÚSSNESKA HERSTJÓRNIN birti aukatil-
kynningu í kvöld til að segja frá nýjum stór-
sigrum, sem Rússar hafa unnið bæði á Vor-
onesh-vígstöðvunum og í Kákasus. í Kákasus hafa Rússar
náð á sitt vald borginni Kropotkin, sem er bin mikilvæg-
asta borg frá hemaðarlegu sjónarmiði.
Á Voronesh-vígstöðvunum segjast Rússar hafa sótt fram 40
—50 km á 75 km breiðu svæði síðustu þrjá daga. Þeir hafa
gereytt 7 þýskum herfylkjum og tekið 12 þúsund fanga. — Er
fangatalan þá komin upp í rúmlega 90 þúsund á Voronesh-víg-
stöðvunum síðan Rússar hófu þar sókn á dögunum. Herfang tóku
Rússar mikið í sókn sinni. Þar á meðal er talið: 107 skriðdrekar,
340 fallbyssur, 42 jámbrautir, þúsundir riffla og fjölda vöru-
bíla. Ennfremur 46 birgðaskemmur.
X
I
1
Nðin samvinna milli
de Gaulle og Giraud
Samial vill Glraud
hersliöfðin^ja
David Brown, einn at’ frjetta
riturum Reuters í Norður-
Afríku, hefir átt tal við Giraud
hershöfðingja.
Við berjumst með fullu sjálf-
stæði við hlið hinna sameinuðu
þjóða, sagði Giraud. Við berj-<
umst fyrir sömu málefnum og
hugsjónum. Sameiginlegur sig-
ur okkar mun færa Frakklandi
sömu landamæri og það hafði
1939 og nýlenduveldi þess. —
Við munum gera það, sem við
getum til að frelsa miljónir
franskra fanga, sem nú eru
innan gaddavírsgirðinga í
Þýskalandi og í Frakklandii.
Stjórn mín mun ekki á nokkurn
hátt reyna að koma upp pólit-
ískri stjóm í þeim löndum
Frakka. sem hingað til hafa
stjórnað sjer eftir bestu getu
og verið hafa frjáls.
Stjóm mín er aðeins eins^
konar bráðabirgðastjórn fyrir
sjálfstæði Frakklands, þar til
40 miljónir Frakka I Frakk-<
landi geta látið vilja sinn í ljós
frjálsir og óháðir.
Vitanlega munu allir svikar-i
ar, sem hjálpað hafa óvinun-;
um, verða leiddir fyrir dóm-<
stólana.
SAMA MARKMIÐ
OG DE GAULLE
De Gaulle hershöfðingi og
jeg höfum báðir sama mark-
mið, að sigra Þjóðverja.
Við munum hafa nána sam-
vinnu okkar á milli og fulltrúa-*
sambandi hefir nú verið komið
á milli okkar.
Samvinna okkar við Le Clerc
hershöfðingja og hina frönsku
Meharis (Úlfalda-hersveitir
Frakka í Afríku) eru táknrænt
merki um framtíðina.
Með þessari sókn sinni nálg-
ast Rússar stöðugt Kursk, en
það er eitt af höfuðvirkjum
Þjóðverja á þessum slóðum. —
Eiga þeir nú eftir aðeins um
100 km að þeirri borg og eru
nú þegar komnír á sömu slóðir,
sem þeir börðust á í fyrravetur
og vor, áður en Þjóðverjar hófu
sumarsókn sína,
ALPAHER ÍTAJLA
UMKRINGDUR
í tilkynningu rússnesku her-
st j órn artilkynningarinnar er
skýrt frá því, að á Vorónesh-
vígstöðvunum hafi Rússar um-<
kringt Alpahersveitir Itala. —
Ellefu þúsund ítalskir hermenn
voru teknir til fanga og þar á
meðal þrír hershöfðingjar og
allir herráðsforingjar þeirra. —
Horforingjamir eru nefndir
með nöfnum. Þeir heita, Umj
erti, Battisti og Pascalini
SÓKN FRÁ
ÞREMUR ÁTTUM
Rússar segjast hafa sótt
fram vestur frá Voronesh úr
þremur áttum — norðrt, austri
og suðri. Rússar hafa síðustu 2
dagana náð á sitt vald rúmlega
200 bygðum bólum og bæjum.
Hefir rússneska hemum enn-
fremur tekist að stöðva flótta
Þjóðverja til vesturs og innikróa
hersveitir þeirra.
Á þessum þremur dögum voru
14,000 þýskir hermenn teknir
höndum, en 12,000 fjellu.
Meðal bæja þeirra, sem Rúss-
ar hafa náð á sitt vald, er Kast-
ornaya. Er þýska heraum á
þessum slóðum mikil hætta bú-»
in á 160 km. svæði frá Voro-
nesh til Kursk. Hefir mótstöðu-
afl Þjóðverja verið alvarlega
veikt á þessum vígstöðvum.
SÖKNIN
í KÁKASUS
Taka borgarinnar Kropotkin
er hin mikilvægasta fyrir
Rússa. Þeir tilkyntu ennfremur
tóku borgarinnar Novo Oskol,
sem er aðeins um 80 km frá
hinu þýðingarmikla varnar-
virkí Þjóðverja í Byelgorod.
Rússar nálgast stqðugt olíu-
lindaborgina Maikop.
T
!
*
4
I
«
I
X
i
4
i
T
±
Svörtu örvarnar á kortinu sýna fyrirætlanir bandamamla 1 £
Tunis. Ætlunin ér að komast til strándar skamt fýrir norðan X
Gabes og koma þannig í veg fyrir, að hersveitir Rommels, sem ý
flýja frá Tripoli geti náð höndum saman við lið ítala og Þjóðverja 4*
.. *>
í norður-Tunis. Orvarnar i norðurhluta landsíns gefa til kynna ý
hvemig búist er við að hersveitir Andersons hins breska og her- \
syeitiir Ameríkumauna sæki fram til Bizerta og Tunis. .1 X
Breski flotinn fær
nýa tundurskeyta
fiugvjel
Breski flotinn hefir fengið
nýja tegund tundurskeyta-
flugvjelar, í stað hinnar gömlu
og úreltu ,,sverðfisk“-tegundar.
Þessi nýja tegund er talin
hafa reynst afar vel. I loftstríði
ýfir sjó hafa tundurskeytaflug
vjelar reynst betur, en sprengju
flugvjelar, að steypiflugvjelum
undanskildum. —Reuter
Óvíst hvort Hítler
heidur ræðu
Seint í gærkvöldi hafðí ekk-'
ert verið um það birt í
Þýskalandi, hvort Hitler myndi
flytja ræðu í dag á 10 ára af-
mæli valdatöku sinnar.
Hinsvegar hefir verið tilkyntj
að Josef Göbbels muni lesa upp j
ávarp til þýsku þjóðarinnar frá
Hitler. Les Göbbels þetta ávarp
upp kl. 2 í dag.
Göring mun einnig flytja
ræðu. Hefst ræða hans klukkan
11, eftir þýskum tíma, eða kl.
9 árd. eftir ísl. tímá.
Ræðum þessum verður ÚU
varpað.
Það verður ekkí mikið um há
tíðahöld í tilefni af deginum.
Fólki hefir verið bannað að
draga fána að hún að þessu
sinni.
Harðir bardagar
á landamærum
Burma
Chungking í gærkvöldí
Stórorustur geisa nú millí
Kínverja og Japaná á
Iandamærum Kína og Burma.
eftir því sagt er í herstjórhar-
tilkynningu Kínverja í kvöld.
1 tilkynnirigunni er sagt frá
því, að Japanar í Takeng, sem
er í suðvesturhluta Yunnan-
fylkis, hafi reynt að komast yf-
ir fljótið Nanlei aðfaranótt 25.
janúar. Er Kínverjar komust
að þessu, hrundu þeir áhlaupum
Japana.
Japanar fengu þá rnikinn
liðsauka tiil Tamong Lung og
hófu nýja sókn um hádegi þann
26. Harðir bardagar standa enn
yfir á kínversku landamærun-
um, nálægt Mong Pan.
—Reuter.
Þýsku birfSðasfeipl
sökl
Breskar tundurskeytaflug-
vjelar hafa sökt stóm
þýsku birgðaskipi undari
ströndum Noregs. —Reuter
Hitler skipar í em-
bætti Heydrichs
Þýska frjettastofan skýrði
frá því í kvöld, að Hitler
hefði skipað dr. Erast Kalten-
brunner sveitarforingja S. S.-
liðsins og hershöfðingja örygg-
islögreglunnar (Gestapo) í
stað Heydrichs, sem myrtur var
í Tjekkóslóvakíu í fyrra.
Reuter.
Þýskur hershöíð-
ingl fellur
Það hefir verið opinberlega
tilkynt í Berlín, að Karl
Eibelt hershöfðingi, yfirforingi
vjelaherfylkis á Don-vígstöðvun-
um, hafi fallið. — Reuter.