Morgunblaðið - 07.09.1943, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.09.1943, Qupperneq 12
12 1 ;;; Hey fýkur ð Rangár- vatlasýslu GUÐMUNDUR ÁGÚSTS- SON, stöðvarstjóri í Shell, er nýkoininn úr för austur fyrir fjall. Skýrði hann !)laðinu frá því, að á miðvikudagskvöld og aðfaranótt fimtudags hefði gengið svo mikið rok af austri yfir Rangárvallasýslu, að hey hefðu fokið á flestum bæjum. Yeðurhæðin mun, a. m. k. sums staðar, hafa verið 30—11 vindstig. Á sumum bæjuni í Fljóts- hlíð munu hafa foltið upp'und- ir 300 hestar af heyi. Svo h\ast var á Gunnarshólma, að mikið fauk af grasþurri Ijá. Á Sámsstöðum eyðilagðist korn á alt að þriggja hektara spildu. __ ★ Guðmundur sagði líka frá því, að kálmaðkur væri mjög mikill þar eystra. Á Sámsstöð- um var sáð rófum í allstóra spildu, en ekki mun verða reynt að taka rófurnar upp, því að þær eru gereyðilagðar af maðki. Síðan hámarksverð var sett á rabarbara, er mörgum bænd- um eystra hætt að finnast borga sig að taka hann upp og borga flutningskostnað til Reykjavíkur, því að verðið er svo lágt, 60—65 aurar fyrir kílóið. KVIKNAR í ÚT FRÁ OFNI I GÆR, kl. um 3, var slökkvi liðið kvatt að húsinu nr. 1 við Spítalastíg. Að líkindum mun hafa kviknað í með þessum hætti: Lítið barn kömst inn í stofu, þar sem var rafmagns- ofn og kveikti á honum. En á ofninum lágu gluggatjöld, sem síðan mun hafa kviknað í. Húsið er úr steini, en inn- veggir eru úr pappalögðu timbri. Eldurinn náði til lofts og veggja, og urðu dálitlar skemdir á innanstokksmunum. Slökkviliðinu tókst fljótlega að slökkva eldinn. MONTGOMERY OG FANGAR Breski flotinn vann afrek við • Sikiley London í gærkveldi. Alexander flotamálaráð- herra Breta sagði í dag frá afrekum breska flotans í innrásinni á Sikiley, og kvað hann hafa verið minna gert úr þeim en vert væri. Sagði hann, að herskipin hefðu veitt landherjunum stórmikla aðstoð, haldið uppi skothríð á stöðvar óvin anna, fylgt flutningaskipum og margt fleira. Flotamálaráðherrann sagði ennfremur, - að her- skipin hefðu 50 sinnum skot ið á og eyðilagt mikilvægar stöðvar fyrir óvinunum. Hjer er Mongomery hershöfðingi að skoða nokkuð af ítölskum föngum, sem eru á leið í fangabúðir. Hinir fremstu eru sjóliðar. Walterskepnin: K.R. vonn Víking 3-0 ÞAÐ VARÐ K. R, sem gekk með sigur af hólmi í þessari fyrstu viðureign Walterskepninnar, og voru það rjettmæt úrslit. Liðið var æði mikið kröftugra og sjerstaklega þó fljótara en lið Víkings, sem var lint. Gangur leiksins var þessi: K. R.-ingar kjósa mark und- an vindi, hefja sókn. Vík- ingar svara í sömu mynt, og Ijeku ólíkt betur fyrst í stað en síðar í leiknum. Gengur á ýmsu, en lítið sjest af fögrum leik og lystilegum. Um miðjan hálfleikinn skora svo K. R.-ingar eftir snarpa sóknarlotu. Víking- ar herða sig nú gróflega, en framlínan er ákaflega slyppi feng, enda andstæðingarnir hraðari að knettinum. Höfðu Víkingar sókn að meiri það sem eftir var hálfleiks, en voru aldrei verulega hættu- legir. í síðari hálfleik byrjaði K. R. allmikla sókn gegn vindinum, og komst mark Víkings oft í hættu. Þegar um 20 mínútur voru af hálf leik, skoruðu K. R.-ingar annað mark sitt eftir tví- tekna og næsta grínfulla aukaspyrnu við vítateig, þar sem dómarinn raðaði leik- mönnum eins og peðum á skákborði. Við þetta mót- læti færðist þó lítt móður í Víkingana, virtust þeir frem ur sem dolfallnir yfir öðr- um eins ósköpum, og leikur þeirra í molum lengi vel. Þar kom þó að þeir sóttu í sig veðrið, gerðu upphlaup, skutu sæmilega til marks, en alt var varið. Settu svo K. R.-ingar þriðja mark sitt úr horni fyrir leikslok. Vík- ingar fóru hörmulega með hornspyrnur sínar í leik þessum, nema eina. Voru þær spyrnur eigi hættuleg- ar. Þannig gekk nú þessi leik ur til. Af sigurvegurunum skaraði enginn fram úr öðr- um, allir gerðu það sem þeir gátu; gott efni í útherja eiga K. R.-ingar á vinstra kanti. Óli B. var mættur og bræð- ur hans tveir. Börðust þeir vasklega og drengilega. Jón var þar sem mest á reið og Birgir ljet ekki sitt eftir liggja. Þórður Pjetursson vann mikið, snerpa og á- gengni einkendi alt liðið, en samleikurinn var ekki eftir því. Auk þess hafði K. R. þarna á vellinum kór einn fjölmennan, en ekki að sama skapi hljóðfagran, og eggjaði hann menn mjög til dáða. Víkingar hafa undanfarin ár lagt mikla stund á að leika ljetta og fíngerða knattspyrnu og komist oft langt í þeirri fallegu iðn, en þessu voru þeir sviftir í þess um leik, höfði ekki þann hraða, sem þeir hafa oft haft áður, og auk þess voru spyrnur þeirra einkenni- lega hikandi og árangurslitl- ar oft og tíðum. Það var eins og liðið fyndi ekki sjálft sig í leiknum, enda kanske að nokkru leyti von eftir langt hlje á kappleikj- um. Þá hefði niðurröðun liðsins að mjög skaðlausu mátt vera önnur. Brandur á ekki að vera í sókn; hann er þrátt fyrir alla sína tækni heldur lítið liðgengur þar, enda er hans gætt óþyrmi- lega. Þeir Haukur og Ingi Pálsson báru uppi sóknina, en það er ekki nóg að hafa góða innherja. Helgi á hægri kanti er gott efni, gerði margt rjett laglega, en úr þessu varð ekki heilsteypt lið, sjerstak- lega ekki þar sem framverð irnir, Einar og Gunnlaugur, voru alls ekki vel upplagð- ir. Vörnin var upp og ofan, heldur lítið örugg, sjerstak- lega hægri bakvörður. Guð- mundur stóð sig vel, og eins Hörður, þótt hann sje að mínum dómi sóknarleik- maður en ekki varnar, og þar að auki alls ekki nægi-' lega þjálfaður í vörninni enn. — Berndsen stóð á forn um slóðum og bjargaði mörgu. J. Bn. Fjársöfnun til minnismerkis Jóns Arasonar 15. ÁGÚST síðastliðinn sat biskup fund að Hólum í Hjalbadal með norðlensk- um kennimönnum og leik- mönnum. Var þar rætt um fjársöfnun til minnismerk- is um Jón Arason biskup. Vonast er til, að hægt verði að reisa minnismerk- ið á Hólum 7. nóv. 1950, en þá eru 400 ár liðin frá dauða Jóns biskups. Kristján Karlsson skóla- stjóri á Hólum veitir gjöf- um viðtöku. Afgtreiðslia Morgunblaðsins tekur einn ig á móti gjöfum til minn- ismerkisins. Bíl ekið út af við Laugarvatn 1 FYRRADAG valt stór farþegabifreið iit af veginum rjett hjá Laugarvatni. Nokkr- ir farþeganna, sem í bifreið- inni voru, skrámuðust lítils- háttar eða mörðust, en alvar- leg meiðsli urðu engin. I bifreiðinni var starfsfólk úr Isafolda rprentsmiðju, og var það á heimleið úr skemti- ferð, þegar þetta vildi til: Þriðjudagur 7. sept. 1943. Fyrstu umferð Reykjavíkur- mótsins í golfi lokið. Fyrstu umferð í Reykja- víkurmóti í golfi lauk í gærkveldi. Úrslit urðu þessi: Meistaraflokkur: Helgi Eiríksson vann Þor vald Ásgeirsson. Jakob Hafstein vann Hallgrím Fr. Hjallgrímsson, Jóhannes Helgason vann Magnús Andrjesson. Gísli Ólafsson vann Frið- þjóf- Johnson. , , F yrstif lokkur: Daníel Fjeldsted vann Frímann Ólafsson. ólafur Gíslason viann Halldór Magnússon. Magnús Kjaran vann Árna Egilsson. 1 Sfgurður GuðmundBson Bárð Guðmundsson. KVENNAKEPNI. Ólafía Sigurbjörnsdóttir vann undirbúningskepni um „Meistarabikar kvenna“. —• Keppendur voru níu og varð röðin þessi: 1. Ólafía Sigurbjörnsdóttir. 2. Herdís Guðmundsd. 3. Þór- unn Ásgeirsd. 4. Anna Krist- jánsd. 5. Unnur Magnúsd. 6. Ragnh. Guðmundsd. 7. Jó- hanna P.jetursd. 8. Ágústa Johnson. 9. Ragnh. ^Jonsdóttir. Handhafi bikarsins ei’ Ragnheiður Guðmundsdóttir. Rússor taka Konotop, Kramatorsk og Slaviansk RÚSSAR tilkyntu í kvöld töku bæjarins Konotop á járn- brautinni frá Kursk til Iviev, og hefir verið barist lengi um borg þessa. Einnig tilkyntu Rússar töku bæjarins Makev- ka, sem er í Donetzbygðum, ekki allfjarri Stalino, og bæ.j- anna Kramatorsk og Slavi- ansk norðar. Þjóðverjar hafa ekki viður- kent fall þessara bæja, en segja, að hersveitir sínar eigi í hinum ógurlegustu varnar- bardögum hvarvetna á víg- stöðvunum, og takist að hrinda mörgum áhlaupum og' vinna Rússum mikið tjón. I Donetzbygðum seg.jast Rússar hafa sótt fram um 15— 20 km. í dag, og tekið allmörg þorp, en norðar kveðast ])eir hafa tekið járnbrautarstöðina Kramatorskaya og' borgina Slaviansk, en um þessar borg- ir báðar var mikið barist í vetur. Fyrir sunnan Briansk segj- ast Rússar hafa sótt fram um 15—20 km. og tekið nokkur þorp. Fyrir vestan og suðvest- an Karkov voru harðir bar- dagar háðir, og segjast Rúss- ar hafa bætt aðstöðu sína á þessum slóðum. Á Smolensk-svæðinu segjast Þjóðverjar liafa hrundið Rúss- um aftur á bak með gagnárás- um, enda segjast Rússar að- eins hafa bætt þar aðstöðu sína lítið eitt. Þ.jóðverjar skýra frá því, að öflugt skipalið Rússa hafi gert tilraun til þess að setja lið á land að baki þýsku víg- línunni við Finnlandsflóa, en segja að tilraun þessi hafi far- ið út um þúfur, og Rússar beð- ið nokkurt tjón. — Reuter. Yfirlýsing frá Fr. de Fontenay sendiherra VEGNA þess, að Danmörk hefir sem stendur enga löglega Stjórn, tel jeg mjer ekki fært að fara eftir neinum fyrirskip- unum frá Kaupmannahöfn eins og er. Meðan það ástand varir, held jeg áfram líkt og kolleg- ar mínir í mikilvægustu em- bættunum og í samráði við þá, að gegna starfi mínu á sama hátt og til þessa, á grund velli þeirrar löglegu tilskipun- ar, sem jeg fjekk forðum frá hans hátign konunginum. Reykjavík, 3. sept. 1943. Fr. de Fontenay (sign.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.