Morgunblaðið - 12.12.1943, Page 16

Morgunblaðið - 12.12.1943, Page 16
16 7 ©0 Wowmtbla MM Á flugvelli við Lae Miklar og harðar orustur urðu um þorpið Lae á Nýju Guineu, þar sem .lapanar höfðu flugvöll og' aðrar bækistöðv ar. I loftárásum bandamanna á fiugvöllinn eyðilögðust margar flugvjelar Japana þarna, og sýnir myndin flökin af sumum þeirra. Þrjár merkar leik- sýningar í vændum Fisl aflinrt Yersiunarjöfn- uðurðnn hag- sfælur í nóv. Verslunarjöfnuðurinn í nóv ernber var hagstæður um 1.823 miljón króna. Verðmætri innfluttrarvöru nam 19.689 miljónum króna. Yerðmæti útfluttrar vöru nam 21.521 miljónum króna, Á sama fíma í fvri-a nam verðmæti innfluttrar vöru 21.457 miljón króna, en út- fluttrarvöru 12.464 miljónum króna. Á tímabilinu frá janúar til nóvemberloka þessa árs nem- ttr verðmæti innflutrarvöru 226.322 miljóimm króna og útflutningur 213.583 miljón- nm króna, og er verslunar- • jöfnuðurinn því óhagstæður um 12.7 miljónum króna. Á sama tíma í fyrra var verðmæti innfluttrarvöru 212.511 miljónum króna, en útflutningur 194.951 miljón- ttra króna og var þá óhagstæð- Ui' um 18.55 miljón króna. áffi að knýja skaffana áfram í gær Sjálfstæðismenn neiluðu Skattafrumvörp „vinstri“ flokkanna voru á dagskrá efri deildar í gær — eignaaukaskatt urinn til 3. umr. og tekju- og eignarskatturifin til 1. umr. Átti að knýja bæði málin fram, En það þurfti afbrigði frá þing- sköpum til þess að málin yrðu tekin fyrir. Sjálfstæðismenn sýnjuðu um afbrigði og komu því þessi mál ekki til umræðu i gær. Bjarni Benediktsson gerði grein fyrir þessari synjun Sjálf stæðismanna í sambandi við fyrsta dagskrármálið (eigna- aukaskattinn). Hann sagði, að eðlilegast væri að þetta mál yrði afgreitt í sambandi við önnur skattamál þingsins, og því astæðulaust að knýja það til Nd. nú þegar. Varðandi hitt skattafrv. (tekju- og eignaskattinn, sem kom frá Nd.) óskaði fjármála- ráðherra þess, að málið yrði ekki tekið til 1. umræðu á þess Um fundi. Nd. hefði gert marg- ar og mjög róttækar breyting- ar á frumvarpinu. Ráðherrann kvaðst vilja kynna sjer hvaða áhrif þessar breytingar hefðu á skat-talögin, áður en málið yrði rætt í Ed. Forseti ljet deildina skera úr iHn það, hvort málið skyldi tek ið fyrir. Bjarni Ben. kvað Sjálf stæðismenn vilja verða við ósk um ráðherra og myndu þeir því synja um afbrigði, sem þeir svo gerðu. Komu því skattafrumvörp vinstri flokkanna ekki til um- ræðu í Ed. í gær. Blaðið hefir haft tal af for- manni Leikfjelags Reykjavík- ur, Val Gíslasyni, og sagði hann frá leikritum þeim, sem fje- lagið ráðgerir að sýna í vetur. Er þar fyrst að telja hið stór- merka, nýja leikrit Davíðs Stefánssonar, „Vopn Guðanna“, sem verður jólaleikrit fjelags- ins að þessu sinni. Unnið er af miklu kappi að undirbúningi þessa mikla leik- rits, og munu alls leika í því um 40 manns, en alls verða fimm mismunandi leiksvið. — Verður alt gert sem unt er, til þess að sýningar leikrits þessa verði sem best úr garði gerð- ar, t. d. hefir fjelagið hætt leik- sýningum í desember, nema á sunnudögum, til þess að æfing- ar geti verið á hverju kvöldi. Æft er einnig alla eftirmið- daga. Leikstjóri er Lárus Páls- son. Næsta leikrit verður Poul Lange og Thora Paarsberg, eitt merkilegasta og kunnasta leik- rit Björnstjerne Björnson. Frú Gerd Grieg annast leikstjórn- ina og leikur einnig annað að- alhlutverkið. Sýningar munu að öllu forfallalausu hefjast fyrri hluta febrúarmánaðar. Þar næst er ráðgert að sýna hið mikla listaverk Ibsens, Pjetur Gaut. Um sýningar þess eru Leikfjelagið og Tónljstar- fjelagið í samvinnu, en frú Gerd annast leikstjórnina einnig þar. Hefir hún unnið að undirbún- ingi þessara tveggja leiksýn- inga frá því í sumar, fyrst er- lendis og nú um skeið hjer. Eru undirbúningsæfingar byrjaðar fyrir þó nokkru. Verður mjög vandað til þessara sýninga, en ráðgert er að sýningar hefjist í apríl. Formaður gat þess, . að lögð hefði verið fram áætlun um leik starfsemina á þessu leikári, strax í sumar, og þar á meðal um þessi þrjú leikrit. „En reynslan hefir kent okkur“, sagði hann, „að það er annað að gera áætlanir en að koma þeim í framkvæmd, og að nær altaf verður, ýmissa orsaka vegna, að gera breytingar. Sú hefir einn- ig rejmdin orðið, hvað þessi leikrit snertir, þau verða sýnd í alt annari röð en upphaflega var ákveðið. Af þessum ástæð- um hefir stjórn Leikfjelagsins ekki talið rjett að gefa blöðun- um upplýsingar, fyr en örugt mátti telja, að hægt væri að standa við það. sem sagt var“. Hernaðarbandalags minsl London í gærkveldi. I dag eru liðin tvö ár síðan Þjóðverjar, Japanar og ítalir gerðu með sjer hernaðarbanda- lag, og var þess minnst í Þýska landi, Japan og Norður-Ítalíu, af mönnum Mussolinis. Ribben- trop hjelt ræðu í Berlín, og sagði að bandalagsþjóðirnar væru sameinaðar í þeirri á- kvörðun að vinna stríðið, og stæðu allsstaðar vel að vígi á vígstöðvunum. — Einnig fóru fram hátíðahöld í Tokio, og skifst var á skeytum. Reuter. Seðlaveltan í okt. var 2 miljénum minni en í sept. í SÍÐUSTU Hagtíðindum er sagt frá því að seðlar í umferð í októbermánuði hafi numið 133.040 milljónum króna, en í september nam seðlaveltan 135.255 miljónum króna. Seðlaveltan í október er því 2.215 milljónum minni enn í september. I síðustu Ilagtíðiudum er greint frá fiskaflanum í okt- óbermánuði síðastl. einnig er þar skýrsla um fiskiaflan á tímabilinu jan. til okt. 1943. og 1942. Fiskaflinn í október var .10.069 lestir, en fiskaflinn á tímabilinu jan til okt. þessa árs var samtals 360.635 lest- ir, en á sama tíma í fyrra var hann 327.077 lestir. Aflinn í október skiFtist í þessa flokka: ísaður fiskur í útflutningss. 2.160 lestir, a-fli fiskiskipa útfluttur af þeim 6.131, lestir, fiskur til fryst- ingar 1.029 lestir og fiskur í salt 749 lestir, eða samtalsi 10.069 lestii'. Jclasöfnun Hæðra- sfyrksnefndar hafin MÆÐRASTYRKSNEFNDIN mun eins og að undanförnu gangast fyrir söfnun fyrir þessi jól, til styrktar fátækum mæðr- um og börnum þeirra, og ein-. stæðingskonum. Skrifstofa nefndarinnar í Þingholtsstræti 18, verður opin daglega frá kl. 3—7 e. hád., fram að jólum, og verður tek- ið þar á móti gjöfum og um- sóknum um jólaglaðning. Nefnd in hefir ávalt kynni af stórum hóp kvenna, sem eru svo settar að þær þarfnast hjálpar til þess að geta gert sjer og sín- um einhvern dagamun um jól- in. — í fyrra fengu um 300 heimili jólagjafir úr söfnun Mæðrastyrksnefndarinnar fyrir jólin, en ávalt bætast nýir í þenna hóp og tekur nefndin fús lega við upplýsingum um ein- stæðingsmæður og gamlar kon ur, sem hafa erfiðar ástæður og þyrftu að fá jólaglaðning. Einstæðingsmæður og gamalt fólk og öryrkjar finna sárast til dýrtíðarinnar og ættu því þeir, sem nú njóta góðrar atvinnu og góðæris að minnast þeirra fyrir jólin. Mæðrastyrksnefndin tekur með þakklæti á móti hverskon- ar gjöfum, peningum, fatnaði, matvælum, leikföngum, góð- gæti, ,og koma nefndarkonur sjálfar gjöfunum til skila. — Sími mæðrastyrksnefndarinnar er 4349. Fljól ferð frá ffew York Kona Símonar Jóh. Ágústs- sonarð sem fór vestur um haf í flugvjel með son sinn sjúkann fyrir nokkru, til þess að leita honum lækninga, er nú komin heim aftur með drenginn. Hef- ir verið gerður á honum upp- skurður og er hann á batavegi. Þau mæðginin komu í herflug- vjel og voru alls 19 klukku- stundir á leiðinni hingað frá New York. Er það með fá- dæmum fl-jót ferð, því nokkuð þurftu þau mæðginin að fara með járnbraut, áður en þau stigu í flugvjelina. Japanar hörfa á Miðkína Herstjórnartilkynning Kín- verja í kvöld greinir frá því, að Kínverjar hafi nú hafið gagn sókn á hendur Japönum í Mið- kína, eftir að borgin Chang-te var af þeim tekin. Ennfremur segir tilkynningin, að Japanar hörfi nú undan fyrir norð- austan borgina, eftir skæða bar daga, þar sem báðir aðilar biðu mikið tjón. — Reuter. Sunnudagnr 12. des. 1943. Rottur drepnar iie$ eifurgasi NÝ AÐFERÐ hefir nú ver- ið reynd í herferöinni gegni rottunum og er gas notað til að drepa þær. Aðalsteinn Jóhannsson mein dýraeyðari, sem bærinn hefir nýlega ráðið í sína þjónustu hefir gefið blaðinu upþlýsing- ar að þessi nýja aðferð liafi verið reynd undanfarna daga vestur í öskuhaugunum, og reynst alveg prýðilega. Gasinu er pumpað í hólurnar og þegar búið er að dæla vissu magni inn í holurnar er lokað fyrir, en því næst er, lofti dælt inn, er rekur á eft- ir gasinu uns það er koniið á botn. Gasið er það bráð- drepandi, að eftir 1 til 2 mín- útur eru rotturnar, sem í liol- unum eru dauðar. Ekki er þó hægt, að lieita þessari aðferð í húsum, nema að þau yrðu algjörlega rvmd. Þá sagði Aðalsteinn, að eftir áramót myndi sókn gegrt rottum í húsum hafin á ný. Fagureyg stúlka Þessi stúllca er sögð hafa unnið verðlaun í samkeppni fyrir það hvað hún hefir falleg augu. Ekki verður vcl um það dæmt a£ myndinni, en hitt er víst að liún hefir ýmislegt annað fallegt íil að bera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.