Morgunblaðið - 18.01.1944, Blaðsíða 1
RIJSSAR SEGJA RIBBENTROP A FRIÐAR-
FUMIIUM MEÐ* HÁTTSETTUIVi BRETUMÍ
Fregn í blaðinu Pravda
vekur óhemju athygli
Kveldúlfur gefur
150 þús. kr. til dval-
arheimilis sjómanna.
Kl. 11 f. h. í gær voru formaður, gjaldkeri og ritari fjársöfm-
unarnefndar dvalarheimilis aldraðra sjómanna kvaddir til við-
tals hjá útgerðarfjelaginu Kveldúlfur h.f. Voru þar fyrir þeir
Thorsbræður: Richard, Haukur og Kjartan.
Eftir að hafa ávarpað viðstadda, afhenti Richard Thors fyrir
*
hönd eigenda Kveldúlfs, formanni nefndarinnar, Sigurjóni A.
Ólafssyni sparisjóðsbók með 150 þúsund króna innstæðu,;ásamt
eftirfnrandi brjefi, er lýsir best tildrögum og tilhögn gjafa'r-
innar:
Nýr innrésarforingi
,,I nokkuð á 4. áratug höfum
vjer átt óslitið, náið samstarf
við- íslenska sjómenn.
Eftir þessa löngu viðkynn-
ingu berum vjer mikla virð-
ingu fyrir þessari tápmiklu
stjett og hlýjan hug til hennar,
enda stöndum vjer í margvís-
legri þakkarskuld við sjómenn.
Sem lítinn vott þessa þakk-
lætis . höfum vjer ákveðið að
senda Byggingarsjóði dvalar-
heimilis sjómanna — kr. 150,-
000 —, að gjöf, en byggingu
dvalarheimilisins teljum vjer
hið mesta hagsmunamál sjó-
rpanna.
Engar kvaðir fylgja fram-
lagi þessu, aðrar en þær, að
vjer óskum eftir, að 13 her-
bergjum í væntanlegri bygg-
Framh. á 2. síðu.
Þjóðverjar
faka lögreglu-
stjórn í Höfn
Stokkhólmi í gærkveldi.
Þjóðverjar .hafa tekið alla
löggæslu í Kaupmannahöfn
í sínar hendur og að sögn
einnig látið handtaka alt lög T j - , ...
, =*.„ , , S London í gærkveldi.
reglulið borgarmnar, en það
mnn í <)i>111l)oi’1 ej>‘í> heiir verið til-
er um 5000 manns. Alitið er, - *
x , ,. • __, „„„„„ Ucco kvnnt. ao Omar Bradiey, hers
að þetta sje gert vegna þess, •’
að spellvirki færist stöðugt höiðingi, hati verið skipaður
í vöxt í borginni, og Þjóð- hess að hafa a hendi yfir-
verjar kenni lítilli árvekni stjórn alls þess herliðs Banda-
lögreglunnar um að svo sje. ríkjamanna, sem tekur þátt í
Reuter. I Framh. á 2. siðu
Bretar mótmæla
opinberlega
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RÚSSNESKA BLAÐIÐ PRAVDA, aðalmálgagn komm-
únistaflokksins rússneska, flutti í dag á áberandi stað
fregn frá Cairo þess efnis, að tveir háttsettir stjórnmála-
menn breskir væru sem stæði á fundum með von Ribben-
trop, utanríkismálaráðherra Þjóðverja, og væru að semja
um frið milli Bretlands og Þýskalands. —- Bretar hafa
opinberlega mótmælt þessari fregrf sem tilhæfulausri, en
hún hefir vakið óhemju athygli.
Hörð gagnsókn Þjóðver jn við Umnii
Ný sókn Rússa við
Novgorod
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Þjóðverjar hafa nú með
gagnsókn sinni við Umait og
V'Hinitsa, stöðvað sókn Vat-
utins til vesturs á þeim slóð-
uni, og' máske sjálfir unnið
eitthvert landsvæði aftur. Iler
stjónartilkynning Rússa í
kyíild greinir frá ógurlegum
orustum á þessum slóðum.
Rússar hafa hafið nýja sókn
njlt norðui' við Novgorod, og-
ennfremur hefir jieiin orðið
nbkluið Vigengt í Póllandi.
Fregnritarar segja, að bar-
dagar s.jeu harðastir' norður
af Uman, þar sem Þjóðverjar
tefla fram öflugu skriðdreka
liði. Rússar segjast yfirleitt
hafa hrundið flestum áhlaup-
um Þjóðverja þarna, en grimd
in í áhlaupum þeiri’a sje stöð-
ugt hin sania, og ekkert lát
á orustum.
Norður undir Leningrnd
hafa Rússar sótt fram nokkra
kílómetra til vesturs, bæði fyr
ir sunnan og norðan hina forn
Framh. á 2. siðu.
á Kiagenfur!
London í gærkveldi.
Flugvirki frá hækistöðvum
á Ítalíu gerðu í dag árás á
borgina Klagenfurt, í Austur-
ríki, eigi allf.jarri landamærum
I
•lugoslaviu. Eru framleiddir
.varahlútir í orustuflugvjelar
í horg þessari.
Þjóðverjar seg.ja að skemdir
hafi orðið miklar og' maiui-
tjón einnig talsvert. Atján
flugvjelar kveðast þeir hafa
skotið niður. — Aðrar Amer-
skar ftugv.jelar rjeðust á ýmsa
staði á Norður-ttalíu og í
Jugoslavíu. — Beuter.
Rafstöð eyðilögð
London í gærkveldi.
AMERÍSKAR sprengjuflug-
vjelar, sem bækistöð hafa í
Kína, hafa eyðilagt rafstöð
éina í Franska Indókína og
sökkt Japönsku kolaskipi við
strendur Suður-Kína. Einnig
eyðilögðu þær vita nokkurn.
Lýðveldismálió
á Varðarfundi
í kvöld
•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
LANDSMALAFJELAGIÐ
„Vörður heldur fund í Lista-
mannaskálanum 1 kvöld kl.
8%. Rætt verður um lýðveld-
ismálið og stjórnarskrána. *
Frummælendur verða al-
þingismennirnir Gísli Sveins-
son, Bjarni Benediktsson og
Ólafur Thors. Síðan verða
frjálsar umræður.
Ekki er vafi á því, að Sjélf-
stæðismenn munu fjölmenna á
þenna fund, þar sem rætt verð
ur um það málið, sem nú er
efst í huga hvers einasta ís-
lendings. Aríðandi er, að al-
menningur fylgist vel með
þessu máli og kynni sjer það
til hlýtar, því að það er þjóðin
sjálf, sem á að segja síðasta
orðið. — Á Varðarfundinum í
kvöld verður m. a. rætt um
fyrirkomulag forsetakjörsins,
hvort hann á að vera þjóð-
kjörinn eða kosinn af Alþingi
Harold King, frjettaritari
vor í Moskva, segir um þetta
á þessa leið: „Sagan um
leynifundinn milli von Ribb
entrop og breskra embættis
manna hefir valdið mikilli
undrun meðal allra fulltrúa
vesturveldanna í Moskva,
og hefir öllum fundist hún
ótrúíeg. Rússneskir blaða-
lesendur vita ekki hvaðan
á sig stendur veðrið, og ýms
ir breskir blaðamenn hafa
verið hringdir upp af rúss-
neskum kunningjum sínum
í dag, og spurðir hvað þessi
fregn þýddi eiginlega. Yfir-
leitt virðast jafnvel stjórn-
málamenn ekki hafa neina
skýringu að gefa á því, hvers
vegna fregn þessi var birt
yfirleitt.
Hvers vegna var
fregnin birt?
Mikið er hjer um heila-
brot um það, hvers vegna
þessi Cairofregn hafi verið
birt, þar sem sýnt virðist
vera, að hún gæti aðeins
haft ill áhrif. Allir Bretar
hjer eru á einu máli um það,
að sagan sje slúður.
Það er varla talað um
annað í dag meðal Breta og
Bandaríkjamanna og ann-
ara vestrænna manna í
Moskva, og er bent á það,
að þegar slíkir orðrómar
eru breyddir út á stríðstím-
um, sje það venjulega gert
af þeim, sem hafi áhuga á
að vekja ósamlyndi meðal
hinna sameinuðu þjóða. •—■
Blaðamenn, sem þekkja til
í Cairo, vita, að þar er góð-
ur jarðvegur fyrir slúður-
sögur, og margir af blaða-
mönnum, sem þar hafa ver-
Framh. á 2. síðu.