Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 1
 31. árgangnr. 18. tbl. — Miðvikudagnr 26. janúar 1944 ----------------------------3--------- Isafoldarprentsmiðja h.f. BANDAMENN 30 KM. FRÁ RÓMABORG Ibúar Róma- borgar undir búa komu banda- manna London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. RÓMABORGARÚTVARP- JÐ skýrði frá því í dag, að um- ferðarbann hefði verið fyrir- skipað í Rómaborg frá klukkan v 5 að kvöldi til 6 að morgni. Á þessum tíma má enginn borg- gri án leyfis hernaðaryfirvalda láta sjá sig á götunum. Útvarp ið sagði, að þessar ráðstafanir hafi orðið að gera vegna spell- virkja, sem framin hafi verið í Rómaborg undanfarna daga, pg þó aðallega síðan banda- nienn settu lið á land fyrir sunnan Róm. Koma kandamanna undirbúin í Róm. i Fregnir frá Rómaborg herma að andfasistar í borginni hafi skipuíag't sjerstákt lögrcgluliðý sem á að halda uþpi röð og i«eglu þegar hersveitir banda- manria taka borgina. Þessi sami fjelagsskapúr hefir á ýms atn anhán hátt undirbúið komu bandamanna til borgarinnar. Yfirleitt hafa ítölsku borg- ararnir tekið hermönnum bandamanna opnum örmum og aðstoðað þá eftir föngum. Yfirráð bandamanna í lofti. Bandamenn hafa algjör yfir ráð í lofti yfir vígstöðvunum á Ítalíu. Þjóðverjar hafa reynt að gera árásir á stöðvar banda manna á ströndinni, þar sem þeir gengu á land, og gert til- raunir til aSb hindra lið- og birgðaflutninga til strandarinn ar. Bandamenn segja, að Þjóð- verjum hafi ekki hepnast að valda neinu alvarlegu tjóni í þessum árásum. Frásögn þýsks (frjettaritara. Þýskur stríðsfrjettaritari lýsti því í útvarpi frá Berlín í dag, hvernig bandamenn hafa algjör yfirráð í lofti. Hann sagði, að það væri ekki óal- geng sjón að sjá þýskar flug- vjelar, sem væru að gera árás- ir, eltar af sveitum Spitfire- flugvjela. Hann hafði það eftir þýskum flugmanni, að þýsku flugmenn irnir, sem berðust á ítölsku vígstöðvunum, yrðu að vera fjfldjarfir menn, að hann nú ekki talaði um hepnina. Roosevelt heiðrar Clark Clark hershöfðingi, sem stjórnar fimta hernum, hefir getið sjer mjög góðan orðstý fyrir hraustlega framgöngu og góða her- stjórn. Hjer er Roosevelt forseti að festa á hann orðu. Gerðist það á Sikiley, er forsetinn var þar á ferð nú fyrir áramótin. Enn versnar kagur jb/óðver/a við Leningrad RúSSAR SÆK.TA ENN FRAM á ollúm' vígstöjðvum á Laimgradsvœðinu og þrengir cnn meira að þýska • hernum, scm þar verst. Einkum verðuv Þjóðverjúm bagi að því hve Rússar ná miklum og mikilyægum samgönguleiðum á sitt vakl. Rjúfa Rússar hverja samgönguleiðina á fætiir annari fyrir Þ.jóðverjum. Er nú svo komið, að þýski herinn, sem berst fyrir suð- vestan Leningrad, hefir enga undanhaldsleið til suðurs, þar sem Rússar hafa náð á sitt vald járnbrautinni, sém liggur til Estlands og Lettlands. Barist í úthverfum Krasnogvardeisk. Rússar eru komnir að út- hverfum járnbrautarbæjarins Krasnogvardeisk. Eru þar harð ir bardagar. Bærinn er Þjóð- verjum sjerstaklega þýðingar- mikill sem samgönguæð og munu þeir ekki hörfa úr hon- um fyr en í fulla hnefa. Rúss- ar hafa víða brotið skörð í varnarbelti Þjóðverja umhverf is Krasnogvardeisk og telja frjettaritarar ekki nema tíma- spursmál, hvenapr þeir ná borg inni á sitt vald. Umræður í sænska þinginu um sam- band Þjóðverja og Svía I’RESKA útvarpið skýrði frá því í gærkveldi, samkv. fregnum frá Stokkhólmi að umræður hafi farið fram í sænslca þinginu um samband Svía og Þ.jóðverja og hafi einn þingmaður látið svo ummælt, að sænska stjómin ætti ekki að hafa stjórnmálasamband við þjóð. sem vildi ríkja með ofbeldi, frekju og hótunum. Gagnsókn Þjóðverja í Ukrainu. Eftir vikuhlje á bardögum á Ukrainuvígstöðvunum hafa Framh. á 2. síðu. Annar þingmaður l.jet svo ummaMl, að sænska stjóruin hagaði sjer ekki eins og hlut- lausri þjóð samidi gagnvart Hitlers-Þýskalandi. Fyrstu gagnáhlaup Þfóðverja að byrja London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. FRJETTARITARAR, sem eru með hersveitum banda- manna, sem _gengu á land fyrir sunnan Róm um helgina, segja, að bandamenn hafi náð á sitt vald bæ einum, sem er aðeins um 30 km frá Rómaborg. Ekki hefir þetta verið staðfest opinberlega ennþá. Sólmyrkvi í Chigago Chicago í gærkveldi. ÞÚSUNDIR manna fyltu göt ur og húsþök hjer í borginni í dag til að skoða algjöran sól- myrkva, sem hjer varð í morg- un. Sólmyrkvinn stóð yfir í 1 klukkustund og 10 mínútur, en almyrkvi var í nærri 3 mín- útur. Vísindamenn víða að voru komnir til þorgarinnar og sagði einn þeirra, Galle verkfræðing ur frá Mexico, að þeir hefðu sjeð forkunnarfagran hring. Allir vísindamenn voru sam- mála um, að sólmyrkvinn hafi verið alveg sjerstakur, óg vegna þess hve veður var heið skýrt og bjart, hafi þeim tek- ist að gera nákvæmar mæling- ar. — Reuter. Brelar veita 80 miljón sterlings- punda til UNRRA LONDON í gærkvöldi: All- miklar umræður urðu í neðri deild þingsins í dag, er fjár- málaráðherrann fór fram á 80 miljón sterlingspunda (rúm- lega 2000 milj. króna) fjár- veitingu til UNRRA (hjálpar og endurreisnar stofnunar hinna sameinuðu þjóða). Fjármálaráðherrann sagði, að nú þegar yrði að gera ráð- stafanir tii að UNRRA bæri til- ætlaðan árangur. Það væri ekki ennþá búið að ákveða hvernig samband UNRRA og hers bandamanna yrði í þeim löndum, sem frelsuð verða og þurfa hjálpar við. Þingmenn, sem til máls tóku bentu á, að ástandið í Evrópu væri nú miklu verra heldur en í lok síðustu styrjaldar. Það yrði að tryggja það, að Evrópu þjóðirnar sveltu ekki. Einn ræðumanna taldi sjálf- sagt, að hjálp yrði veitt til þeirra þjóða, sem nú eru ó- vinaþjóðir bandamanna, eins og til hinna, sem hernumdar eru. Hinsvegar er opinberlega tilkynt, að hersveitir banda manna hafi tekið hafnar- borgina Anzio, sem er 3—-4 km frá borginni Nettuna, þar sem bandamenn gengu á land. Bandamenn hafa nú á sínu valdi um 25 km strándlengju og hafa sótt alt að 20 km inn í landið. Seint í gærkvöldi bárust fregnir um, að þýskar her- sveitir hefðu nú loks gert gagnáhlaup á hersveitir bandamanna, sem á land gengu. Hafa Þjóðverjar ráð ist með allmiklu liði á her- sveitir Bandaríkjamanna, en bresku hersveitirnar hafa enn ekki mætt neinni- verulegri mótspyrnu. Sótt að Via Appia. Engar opinberar fregnir hafa borist til að staðfesta fregnir v stríðsfrjettaritara, að bandamenn hafi þegar náð á sitt vald Via Appia, sem er aðalvegurinn með- fram ströndinni til Róma- borgar, en þegar banda- menn hafa náð þeim vegi, fer að þrengjast fyrir þýsku hersveitunum, sem verja stöðvar Þjóðverja sunnar á Ítalíuskaganum. Farið að draga úr vörn Þjóðverja. Frjettariturum ber sam- an um, að allverulega sje farið að draga úr gagn- áhlaupum Þjóðverja á suð- urvígstöðvunum, hjá Garig- liano ánni. Eyriv nokkrum. dögúm gerðu þýsku her- sveitirnar hatröm gagn- áhlaup á þessum slóðum og neyddust amerískar her- sveitir til að hörfa aftur suð ur fyrir Rapido-ána. — Nú hafa Bandaríkjamenn aftur sent framvarðasveitir yfir ána og benda allar líkur til, að Þjóðverjar sjeu að hörfa frá þessum slóðum. Bretar sækja á við ströndina og Frakkar, sem eru í hálend- inu hafa sótt fram í dag. Áttundi herinn. Frá áttunda hemum á austurströndinni berast fregnir um að miklar sprengingar heyrist frá stöðvum Þjóðverja. Segja Framh. á 2. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.