Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 4
4 M 0 R G U N B L A Ð I Ð Miðvikudagur 26. janúar 1944 AF SJÓNARHOII SVEITAMANNS Aðdráttarafl Reykjavíkur. REYKJAVlK lieiii’ mikið, aðdráttarafl. Á hverju ári sog ar hún til sín fjölda manna Úr sveitum- og sjávarbyggðum landsins. M.örgum þykir þessi þróun allískyggileg. Fyrsti þingmaður Reykvíkinga, hr. Magnús Jónsson, sagði einu sinni í þingræðu, að Reykja- vík væri orðið nokkuð þungt höfuð á þjóðarlíkamanum, og allir vita hvernig sá er kom- inn, sem ckki getur haklið hiifði. Ef höfuðið getur ekki stjórnað limunum, dansa þeir ekki lengi. Ofvöxtur Reyk.ja- víkur á sjer ýmsar orsakir. A árunum fyrir stríðið flúði fólkið sveitirnar, enda þótt bændavinirnir í Frams. rjeðu þá lögum og Lofum í landinu. Þá kaus fólkið líka heldur ,.íhaldsbæinn“ Reykjávík, en sæluríki jafnaðafmanna. Þó straumurinn lægi þá yfirleitt, frá sveitum til sjávar, úr dreifbýlF í þjettbýli, fækkaði fólkinu frekar en fjölgaði í þeim bæjum og þorpum, þar sem flokkar h.inna vinnandi stjetta fóru með völdin, eins og til dæmis á Eskifirði, í líafnarfirði og víðar. Síðan stríðið hófst og eftir- spurnin eftir vinnuaflinu varð mikil alstaðar í landinu, bæði ti) sveita og við sjó^ hafa menn tekið Reykjavík fram yf.ir alla staði. Og nú er svo komið, að þar mun búa um einn þriðji hluti allra lands- manna. Pólitík og skynsemi. ER EÐLILEQT að hugs- andi mönnum hrjósi hugur við þessurn misvexti i þjóð- lífinu, ekki síst þegar þess er gætt, hvernig atvinnuhörfur höfuðstaðarbúa eru. Allir vita að hve miklu leyti atvinna þeirra nú byggist á „ástand- inu“ og hvað tekur svo við þegar því sleppir? Nýlega gerði einn blaðanmður Ai- þýðublaðsins þetta að umræðu efni í pistlum sínum og þykir óvænlega horfa. Segir hann að Rjeykjavík sje bersýnilega orð- in allt of stór, „og að hjer (í Rvík) hlýtur í framtíðinni að skapast neyðarástand, ef fólkið flytur ekki aftur burt úr borginni og leitar sjer lífs- bjargar annarstaðar. Iljer er ekki um neina pólitík að ræða heldur . hreint skynsemismál, (leturbreyting mín), sem allir hljóta að sjá við rólega at- hugun. Það er alveg víst, að þeir sem ekki hafa örugga afkomu hjer framundan, geta betur skapað sjer lífsskilyrði utan Rvíkur; þegar minka fen um atvinnuna og háflæði pen- inganna tekur aftur að hjaðna“. Það er mikil hreinskilni hja manntetrinu, að viðurkenna að pólitík eigi ekkert skylt við skynsemi; þvr sannarlega hefir það átt við um pólitík ><><><><><><><><> <><><><><><>0 Eftir Gáin >000000000000000 Alþýðufli á undanförnum ár- um. Þegar ltann var þátttak- andi í „stjórn hinna vinnandi st.jetta“, magnaðist atvinnu- leysið ár frá ári. Mun atvinnu- leysishópurinn hafa verið kom inn upp í 1300 manns í Reykjavík einni, þegar Fram- sókn var orðin mædd og södd af samvinnunni við Alþfl. og sendi út neyðarkallið til Sjálf- stæðismanna árið 1939. Var slíkt eymdar ástand ekki ann- annað en eðlileg afleiðing þeirrar stjórnarstefnu, sem þá hafði lengi verið ujrpi haldið. Ríkið píndi alla atvinnurek- endur með sköttum til að halda uppi óarðbærum fram- kvæindum (atvinnubótum), en útflytjendur voru liigsóttir og sektaðir fyrir að verja gjaldeyri sínum til að endur- nýja atvinnutækin. Allir sjá nú, að sú pólitík var ekki í neinni átt við skynsemi eins og greinarhöf. Alþýðublaðs- ins kemst að orði. AlþýSuflokkurinn og ofvöxtur Reykjavíkur. ÞAÐ ER líka næsta eftirtekt 'arvert, á hvern hátt Alþýðu- flokkurinn vinnur að því nú að fólkið geti skapað sjer at- vinnu og lífsskilyrði utan Reykjavíkur. Ilann hefir ham- ast eins og óður væri gegn. samkomulagi og niðurstöðu sexmannanefndarinnar, sem, veitti bændum jafnrjetti við aðrar stjettir, og hann greiddi atkvæði gegn verðlagsuppbót til sveitafólks, en hefir unnið að grunnkaupshækkun og full um dýrtíðaruppbótum laun- þega. Og það þarf ekki að efa, að frá honum koma áreið anlega fyrstu og frekustu kröfurnar um atvinnubætur og íátækraframfæri lianda kau]>- stöðunum þegar „háflæði pen- inganna tekur aftur að hjaðna“. Þannig vinna Al- ] ýðuflokksbroddarnir gegn of- vexti Reykjavíkur. Það virð- ist „hreint skynsemismál“, að gera þann flokk áhrifalaus- an hið allra fyrsta. Hitaveitan. IIITAVEITAN í Eeykjavík er áreiðanlega eitt merkasta fyrirtæki á landi hjer. Stjórn Reykjavíkurbæjar hefir sýnt hvernig viö Islendingar eig- um að hagnýta auðlyndir landsins. Þess munu áreiðan- lega engin dæmi í heiminum, að borg, sem telur þriðjung heillar þjóðar, skuli vera hit- uð nreð hveravatni og upplýst með vatnsafli. Það er sannar- lega ekki að furða, þó sem flestir reyni að flýja kujda og myrkur okkar löngu vetra, þangað sem þeir geta liotið slíkra gæða. En hitaveitan hefir kostað mikið fje. Það er talið í tug- um iniljóna. Og hörmulegt er t.il ]>ess að vita, að þetta skuli vera fyrirj ókkar eigin afglöp og innanlands óstjórn. Eins og menn muna hafði Reykja- ,víkurbær fengið loforð um lán til hitaveitunnar í Eiigla.ndi fyrir stríðið, eu það loíorð brást, þegar breskum stjórnar völdum var orðið Ijóst, hve hörnndegt fjármálaásíand rík- isins var. Fvrir. bragðið varð verkið að bíða til yerðhæklc- unar stríðsáranna. Það er sannkallað þrekvirki að hafa komið hitaveitunni í framkvæmd undir núverandi skilyrð.um. Samt er sú aðdá- un ekki óblandiii. Mjer finnst það mikið efamál, hvort ekki hefði verið rjettara, úr því sem komið var, að láta verk- ið bíða þar til eftir stríð. Allir vita hvílík áhætta lántökur eru núna, þegar verðgildi peninganna er svo lágt, og öll fjármál og viðskifti á hverf anda hveli. Og ekki verður atvinna Reykvíkinga það mik- il eftir stríðið, að þeir hefðu þá ekki komist til að dunda við hitaveituna. Andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík vilja kenna honum um seinkun hitaveitunnar, af-því að hann hefir verið hinn ráðandi flokk ur í bænuíh. Er það ekki í fyrsta sinn, sein þeir vilja klína sinni eigin skömm á aðra. Það væri full jiörf á, að rekja sögu hitaveitumálsins frá upphafi, til að sýna fram á hvernig eymdarástandið og óstjórnin í fjármálum ríkis- ins á árunum 1934— ’39 hefir verkað á framkvæmd og stofn, un ]iessa merka fyrirtækis. Sú saga yrði áreiðanlega fróðleg, og hún mundi sannfæra Reyk- víkinga og raunar þjóðina alla um það, hversu dýrt það er, að trúa angurgöpum og lýð- skrumurum fyrir fjármáluin landsmanna. Bretar sækja fram í Burma LONDON í gær. BRESKAR og indverskar hersveitir í Burma hafa hrund- ið gagnárásum Japana og hafa sótt nokkuð fram. Meðal ann- ars hafa Bretar tekið þrjár mikilsverðar hæðir. Þetta var á syðstu vígstöðvunum af þremur, sem Bretar sækja fram á í Burma. I Hukon-dalnum hafa Bret- ar og sótt fram. Flugsveitir bandamanna hafa gert loftárás ir á stöðvar bandamanna í Suður-Burma og eyðilagt þar þýðingármikla járnbrautarbrú. Amerískar flugvjelar hafa gert árás: á höfnina í Hong Kong. Þórður Friðfinnssou vjetsfjóri fórst með v.b. Hilmi, HANN var fæddur 12. júní 1913 að Kjaransstöðum í Dýrafirði og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Þeim helg- aði hann alla krafta sína óskifta meðan tími vanst til. Hann sýndi jafnan þraut- seigju og ósjerhlífni við störí sín og vann þau í kærleika líf fórnfúsum huga. — Það kunnu foreldrar hans líka vel að meta og þakka. Þórður var meðalmaður á vöxt, hvikur í hreifingum, ljós á hár og hörund, en það sem jeg minnist einna best, er hið milda bros, er stundum færðist yfir andlit hans og gaf því dul- rænan bjarma. Hann var fjöl- hæfur að eðlisfari og gáfaður vel, glataði aldrei jafnvægi og- hjelt sífelt rósemi sinni, þótt vanda bæri að höndum. Áhrifa magn persónuleika hans var mjög sterkt, göfgi hans. heið- arleikur og sannleiksást í um- gengni við aðra menn, vöktu athygli og traust. Hann var alvörumaður og viðhorf hans til lífsins fyrst og fremst hugræn, og það hygg jeg, að hann hafi jafnan notið sín best í fámenni og í hópi þeirra, er hann var vel kunn- ugur. Athyglisgáfa og fram- sýni hans urðu þess valdandi að honum kom fátt að óvörum og þá eigi heldur hin mikla breyting, er verða mundi á högum hans innan skamms tíma og rættist það hugboð furðu fljótt, sem kunnugt er orðið. Frændur og vinir senda honum ástríkar hugsanir vfir landamærin, og árna honum friðar og framfara á nýjum þroskabrautum. S. Rausnarleg gjöf. Fyrir síðustu jól barst Álftártungukirkju á Mýrum að gjöf vegleg altaris- tafla, ináluð af Ásgeiri Bjarn- þórssyni listmálara. Er hún gefin kirkjunni af hjónunum Aðalheiði Guðmundsdóttur og Úlfari Bergs syni í Reykjavík, til minningar um son þeirra Örn, er ljest á fyrsta ári 26. júní 1942, og var jarðsettur við Álftártungu- kirkju. Fyrir þessa fögru og höfðinglegu gjöf, er vakið hefir hrifningu allra þeirra, er sjeð hafa, flytur sóknarnefndin fyrir hönd safnaðarins hinar alúðai’- fylstu þakkir. — Sóknarnefnd Álf tártungukirk j u. Sigurlini Friðfinnsson vjelstjóri fórsl með v.b. Hllmi. HANN fæddist 7. apríl 1922 og var þvf tuttugu og eins árs, er hann ljest með sviplegum hætti. Starfstímabil lífs hans var nýbyrjað, en þó mátti sjá að þarna var piltur á ferð, er glögt mundi vita hvað hann vildi og eiga framsækni og þor til þess að ná settu marki, og þessvegna voru margar og bjartar vonir foreldranna tengdar við framtíð hins mann væniega sonar, en nú hefir dauðinn höggvið stórt skarð og svift þau tveim sonum á sömu stundu. Hjörtu þeirra eru særð djúpu sári, en þau eiga bjartar minningar um hamingju og gleðidaga er samvistir liðinna ára hafa veitt þeim. Þau hugsa því ekki einungis um sinn eig- in missi, heldur ávinning þeirra, sem nú eru fluttir vfir á annað lífssvið, því vonon er sú, að á bak við hulu þá, er menn nefna dauða, bíði okkar Ijós og friðarheimur með nýrj- um viðfangsefnum fyrir hverja sál. S. Annað bindi Sögu Vestur-íslendinga WINNIPEG. — Annað bindi hinnar yfirgripsmiklu bókar „Saga Vestur-íslendinga" eft- jr Þorstein Þorsteinsson hefir verið gefið út og er komið á bókamarkaði bæði í Bandaríkj unum og Kanada. Fyrra hefti bókarinnar fjall- aði aðallega um brottflutring íslendinga til hins nýja herms, en seinna heftið er að mestu leyti helgað hinum margvís- legu frumbygðum Islendinga í Norður- og Suður-Ameríku. Lýsingar á frumbygðum ís- lendinga í Brasilíu, Utah, Mus- koka, Kinnount, Markland og annars staðar eru hinar ná- kvæmustu og mjög fræðandi. Sjerstaklega skemtilegur er kaflinn, er fjallar um fyrstu Mormónabygðina í Utah, en þar eru hin íslensku áhrif íaunverulega með öllu horfin. Bæði bindi bókar Þorsteins voru gefin út á vegum Þjóð- ræknisfjelags Islendinga í Vesturheimi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.