Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.01.1944, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. janúar 1944 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, augiýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlanda, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Athafnir um orð og einingu ÞEGAR forráðamenn þjóðarinnar um síðustu áramót litu um farinn veg, stjórnmálaviðburði síðastliðins árs og viðhorfið framundan, var sú skoðun mjög áberandi, að reynsla síðasta árs væri síst til eftirbreytni. Sundr- ungin og stefnuleysið um of ráðandi. Nauðsynlega ein- ingu og festu skorti. Orðin ein eru ekkí til allra hluta, þótt þau kunni að vera gagnleg til þess að undirbúa jarðveginn undir það, sem verða vill. Hjer hefir áður verið að því vikið í blaðinu, að þing það, er nú situr, kæmi saman til þess að sinna stærra hlutverki en önnur þing á seinni árum. Þingsins biði það verk að gefa þjóðinni lýðveldisstjórnarskrá. Þetta hlut- verk krefðist einingar. Ekkúaðeins sjálfs sín vegna, held- ur ætti það einnig að vera öðrum fremur líklegt til þess að sameina kraftana um önnum mál, eftir því, sem ástæð- ur krefðu. Það er nú að því komið, að þess sje þörf, að athöfn fylgi orðum. Það fyrsta skref, sem nú má verða til þess að efla kraftana og sameina, er að saman tengist þing og stjórn, traustari böndum en verið hefir og þá um leið að þingið samstilli krafta sína. Slíkar aðgerðir yrðu til þess að einbeita kröftum þjóðarinnar meir en verið hefir. Við erum nú í miðjum klíðum að framkvæma þá stefnu, sem mörkuð var með stjórnarskrárbreytingunni 1942, að lýðveldisstofnun skyldi, er þar að kæmi, fram fara með þeim hætti, að ein alþingissamþykt, með eftirfarandi stað festingu við þjóðaratkvæðagreiðslu, fullkomnaði verkið. Lýðveldisstjórnarskrárfrumvarpið og þingsályktunar- tillaga um sambandsslitin eru þegar komin til nefndar á Alþingi því, er nú situr. Á Alþingi hvílir nú ríkust skyldan að sameina sjálfa sig og sameina þar með þjóðina. Ef athöfn fylgir orðum, sem úr öllum áttum eru mælt til stuðnings auknu samstarfi þjóðar, þings og stjómar, er best í haginn búið, og á þann eina hátt, sem samboðið er þeim stóru viðfangsefnum, sem framundan eru. Afturganga FYRIR SÍÐASTA Alþingi lá frumvarp um eignaauka- skatt, flutt af fyrirliðum vinstri stjórnar samninganna: Haraldi, Hermanni og Brynjólfi. Þetta frumvarp var knúið gegn um efri deild eftir langar og harðar umræður og samþykt gegn atkvæðum Sjálfstæðismanna og Jónasar Jónssonar. En það komst aldrei svo langt, að því væri vísað til nefndar í neðri deild. Nú er þetta sama frumvarp flutt á hinu nýbyrjaða þingi og eru flutningsmenn: Haraldur og Brynjólfur. Hermann er ekki flutningsmaður að þessu sinni. Þetta eignaaukaskattsfrumvarp er þannig, að afdrif þess skera úr um það í bili, hvort hjer á að ríkja eignar- rjettar skipulag eða ekki. Frumvarpið lítur að vísu ósköp sakleysislega út. Af eignaauka stríðsáranna, sem er yfir 100 þúsund krónur, á að taka í ríkissjóð 20—30%. En þetta er ekki svo einfalt sem ætla mætti. Eignaauki ligg- ur mikið í verðhækkun, sem hverfur jafnskjótt og verð- fallið kemur að stríðinu loknu. Eignaauki er og sá frá- dráttur á tekjum útgerðarfjelaganna, sem kallaður var „tapsfrádráttur“ og lögheimilaður var 1941. Eignaauki er líka tilfærsla á eignum, sem myndast hefir við sölu, án þess að vera verðmeiri eða betri eign. Þarínig mætti lengi telja. Hitt er þó aðalatriðið, að ef farið verður inn á þessa braut, verður ekki numið staðar við 100 þúsund krónúr. Vitanlega má alveg eins halda götuna að leiðarenda, eftir því, sem þörf ríkissjóðsins vex. Sá er líka vafalaust til- gangurinn. Og þess verður ekki langt að bíða, að þjóð- nýtingarmenn reyni einmitt að nota þessa leið til þess að knjesetja einkaframtakið. I Morgunblaðinu fyrir 25 árum Vilhiálmur fyrv. Þýskalands keisari átti ekki að fara á sveit ina. 20. jan. ..Vilhjálmi uppgjafakeisara voru nýlega sendir 20 pokar af mótuðu gulli frá Þýskaiandi til Iloiiands. Hann mun ekki eiga að fara á sveitina þarna í Hol- k.ndi". ★ Embættismenn Rússa flestir Gyðingar. 20. jan. „Sænska blaðið „Folkets Avis“ segir frá því nýlega, að af 430 æðstu embættismönnum Rússa sjeu 318 eða 74% Gyð- ingar, 40 Armenar, 32 Georgin ar, 11 Lettar, 2 Lithaugalands- menn, 1 Tartari, 3 Grikkir, 4 Búlgarar, 16 Þjóðverjar og 13 Rússar. En af íbúum Rússlands eru 90 af hundraði Rússar, Pól- verjar og Ukrainemenn11. ★ Fyrsta smjörlíkisverksmiðj- an sett á stofn. 20. jan. .Smjörlíkisverksmiðja heiir nú verið sett á stofn hjer í bæ og er tekin til starfa. Hefir hún bækistöð sína í húsum Slátur- fjelags Suðurlands. Hún er rek in af hlutafjelagi, sem nefnist „Smjörlíkisgérðin í Reykjavik“. ★ Bretar lögðu bann við veð- urslceytum hjeðan í fyrri heimsstyrjöld. 25. jan. „Sunnudaginn milli jóla og nýárs voru fyrst send veður- skeyti hjeðan af landi til Kaup- mannahafnar, eftir 4 % árs bann. Veðurfræðin varð ófrið- arþjóðúnum að miklu liði eins og kunnugt er, og því settu Bretar bann við Lví, að veður- skeyti yrðu send lijeðan til Dan n'erkur“. ★ Islendingafjelag stofnað í Kanada. 28. jan. „Islendingafjelag er verið nð stofna í Kanada, og á það að vera markmið þess 'að vernda íslenska tungu og íslenskt þjóðerni meðal íslenskra þjóð- arbrotsins þar Hefir einn mað- 'ur boðið fjelaginu mikið og vandað bókasafn að gjöf og annar boðið að ljá húsnæði end urgjaldslaust“. ★ Það var búist við því að Hol- lendingar yrðu að framselja Þýskalandskeisara, en þeir gerðu það aldrei, þótt kröfurn- ar yrðu háværar. 28. jan. „Franska stjórnin hefir þeg ar stigið fyrsta skrefið í áttina til þess að fá Vilhjálm fyrver- andi keisara framseldan og mál hans dæmt. Hefir hún beint at- hygli friðarfundarins að þessu máli og bent á ýmsar sannanir fyrir sekt' hans og telur það nauðsynlegt að skipuð sje al- þjóðarnefnd til þess að dæma hann. Það er búist við því að innan fárra vikna verði Hol- lendingar að framselja hann og verður hann þá íluttur til París og hafður þar í fangelsi þang- að til mál hans hefir verið dæmt“. \klwerji ihrijar: dctqíe w 4 V y y 5* Kvikmyndasýn- ingar fyrir börn. ÞAÐ HEFIR verið allmikið rætt um, að nauðsynlegt væri að útvegaðar yrðu hingað til lands kvikmyndir við barna hæfi. Það vantaði tilfinnanlega hollar og góðar skemtanir fyrir ungu borg- aranna. Barnaverndarnefnd hefir skilning á þessu og hefir skrif- að yfirvöldum bæjarins til að fá úr þessu bætt. Stjórnendur kvik- myndahúsanna hafa einnig á- huga fyrir þessu máli.Þeir hugsa vafalaust eitthvað á þá leið, að sjálfsagt sje að gera eitthvað fyr- ir yngstu kvikmyndahúsgestina eins og þá, sem eldri eru. Æsk- an sje framtíðin, o. s. frv. Mjer er persónulega kunnugt um, að forstjórar kvikmyndahúsanna hafa reynt að fá kvikmyndir til barnasýninga. Þeir hafa fengið sem svar kúrekamyndir, ljettar og skemtilegar og stundum nokkuð spennandi, eins og sagt er. En gallinn á þessari gjöf Njarðar hefir oft verið sá, að kvikmyndaeftirlitið hefir bann- að, að þessar myndir yrðu sýnd- ar fyrir börn. Því mega ungl- ingar ekki sjá kú- rekamyndir? EN ER nokkur ástæða til að banna þessar myndir fyrir börn? Um það geta verið skiftar skoð- anir, en persónulega tel jeg enga ástæðu til þess. Við skulurn taka kvikmyndina, sem Nýja Bíó sýnir um þessar mundir og sem heítir „Bændaleiðtoginn“. Þessi mynd er bönnuð fyrir börn inn- an 16 ára. Hversvegna, er mjer ráðgáta.Efni kvikmyndarinnar er þetta. Bandaríkjaherinn þarf að taka landsvæði eignarnámi til æfinga. Bændurnir eru á móti þessu og ætla að gera uppreisn. Námueigandi, sem þarna á heima í nágrenninu æsir bænd- urna upp á móti hernum og sprengir bóndabæ í loft upp og hagar svo til, að bændurnir halda að það hafi verið herflugvjelar, sem sleptu sprengju á bæinn. I sprengingunni ferst lítill dreng- ur. En það er ekki sýnt annað en að hann fer inn í húsið rjett áður en það springur í loft upp og síðan er örstutt sýning af fallegri minningarguðsþjónustu um drenginn. Hetjan í myndinni er liðþjálfi, gamall kúreki, sem kemur bænd- unum í skilning um, að það er þeim of þjóð þeirra fyrir bestu að herinn fái það land, sem hann þarfnast. Hann kemur upp um bófanna og þeir fá maklega refs- ingu. Nokkrar stympingar verða og flokkur bænda og uppreisnar- manna í námunni skiftast á skot- um. Sjást við það tækifæri nokkr ir menn falla fyrir byssukúlum. Ennfremur er brugðið upp nokkr um augnabliksmyndum úr ó- friðnum í Asíu og Evrópu. Eru það að mestu sömu myndirnar, sem blöðin hafa fiutt í frjetta- dálkum sínum undanfarin ár. Hversvegna er myndin bönnuð fyrir börn? FLESTUM, sem sjá þessa mynd mun vera það ráðgáta hversVegna hún er bönnuð fyrir börn. Inn í myndina er fljettað saklausum. söngvum og mein- lausri kímni. Engum dettur í hug að banna strákum 10—12 'ára að lesa Indíána- eða kúrekasögur. Siðfræðin í þessum kúreka ctCýlecýCi tnu m^ndum er nærri ávalt sú sama: Þorpararnir láta í minni pokan og fá maklega refsingu. Óþolandi ólæti. ÚR ÞVÍ jeg fór að gera kvik- myndahúsin að umræðuefni, þá er best að halda áfram. Kvik- myndahúsgestir fara í kvik- myndahús til að skemta sjer. Til að eyða tímanum við góða skemtun, eða horfa á kvikmynd alvarlegs efnis. Það er því alveg óþolandi þegar fáeinum kvik- myndahúsgestum leyfist að eyðileggja þessa skemtun fyrir öllum þorrá áhorfenda með ó- látum. Það eru mörg dæmi þessa, sem mætti nefna hjer. S.l. sunnudag var verið að sýna alvarlega kvik mynd í Gamla Bíó. Þegar dimt var orðið í salnum hófu tvær stúlkur að hlægja og flissa svo heyrðist um allan salinn og olli þetta þeirri truflun, að margir áheyrenda gátu ekki notið sýn- ingarinnar í friði. Allir þekkja ólæti og hávaða sumra unglinga og hin síðari ár- in erlendra hermanna í kvik- myndahúsum. Það er engin ástæða fyrif stjórnendur kvikmyndahúseig- enda að þola slíkt. Hvort, sem innlendir menn eða útlendingar eiga í hlut. Það á tafarlaust að gefa þessu hávaða fólki áminn- ingu og ef það lætur sjer ekki segjast við það, þá að vísa því út af sýningu. Erlendir menn leyfa sjer ekki í betri kvikmyndahúsum heima hjá sjer að vera með ólæti og frammíköll í miðri mynd. Það á heldur ekki að líða þeim það hjer. Tel jeg víst, að herlögregla myndi aðstoða við að þagga nið- ur í hermönnum, sem láta illum látum í kvikmyndahúsum, ef hún væri beðin um það- Myndi ekki líða á löngu þar til það orð kæmist á, að það væri ekki leyfi- legt að eyðileggja skemtun fyrir kvikmyndahúsgestum í íslensk- um kvikmyndahúsum. • Kvenhattarnir. OG SVO AÐ ENDINGU til að ljúka þessum hugleiðingum um kvikmyndahúsin, sem eru fjöl- sóttustu skemtistaðir Reykvík- inga, langar mig til að minnast á kvenhattana. Þegar jeg gerði þá að umtalsefni í fyrra, brá svo við, að sumt kvenfólk tók ofan hatta sína í bíó, flestum til stórljettis og þæginda. En það er eins og þetta hafi ekki komist í tísku, því miður. Símahringíngar að næturlagi. ÞAÐ ERU VINSAMLEG til- mæli til manna, sem nota síma að næturlagi, að þeir sýni þá sjálfsögðu nærgætni við samborg ara sína, að velja rjett númer. Það er ekki víst að allir geti tekið því með jafnmiklu jafn- aðargeði að þeir sjeu hringdir upp á næturlagi vegna þess, að einhver hefir valið „vitlaust númer“, eins og maðurinn í eft- irfarandi sögu: Klukkan 4,45 að morgni. Sím- inn hringir. — Er þetta 7997? — Nei, þetta er 6997. — Afsakið ónæðið, jeg hefi valið skakt númer^ — Gerir ekkert til, góði mað- ur.Jeg hefði þurft að fara framúr til að svara í símann hvort eð var.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.