Morgunblaðið - 28.01.1944, Side 1

Morgunblaðið - 28.01.1944, Side 1
31. árgangur. 20. tbl. — Föstudagur 28. janúar 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. ORUSTUR BYRJABAR SUÐVESTAIM RÓM Vígstöðvamar á Ítaiíu. Benevento^ h^á Hermann-Göring herfylkið gerir gagnáhiaup London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. MIKIL ORUSTA er að byrja í kvöld á landgöngusvæði bandamanna fyrir sunnan Róm. Þýskur liðsauki, bæði menn og fallbyssur, streymir til vígstöðvanna annars- staðar að, einnig' frá vígstöðvunum sunnar, en flugvjelar -bandamanna gera árásir sem þeir mega á flutningalestir þessar. Við Littorio kom til snarps bardaga, og voru þar fyrir herflokkar úr hinu kunna Hermann-Göring her- fylki. Var áhlaupi þeirra hrundið og mistu þeir 120 menn. ÞESSI UPPDRÁTTUR sýnir vígstöðvarnar á Ítalíu. Sjást allir þeir helstu staðir, sein nefndir eru í frjettum frá þeim slóðum þes§a dagana. Suðurvígstöðvarnar og vígstöðv arnar umhverfis Rómaborg. Á ströndinni Anzio og Littoria og Velletri lengra inni í landi. Hröð sókn Rússa sunn- an Leningrad Eru 60 km. frá landamærum Estlands Frejttir seint í gær- kveldi hermdu, að Rúss- ar ættu ófarna eina 60 km. til landamæra Est- lands í sókn sinni á Len- ingrad-vígstöðvunum. London í gærkveldi. í HERSTJ ÓRNARTIL- KYNNINGU Rússa í kvöld er sagt, að haldið sje áfram harðri sókn suður og suð- vestur af Leningrad, og hafa allmargir bæir verið teknir í sókn þessari, meðal ann- ara bær einn um 32 km vestur af Getsina og um 65 km frá landamærum Eist- lands. Einnig var tekinn járnbrautarbærinn Tosna, er alllangt fyrir suðaustan Leningrad. Ekki hafa Rúss- ar enn tilkynt töku bæjar- ms Krasnogvardeisk, en þar mun vera barist af mikl ttm ákafa. Segjast Rússar Framh. á 2. siðu. Arásir á skip á Eyjahafi Londön í gærkveldi. UNDANFARNA daga hafa flugvjelar Breta frá bækistöðv um við austanvert Miðjarðar- haf gert miklar árásir á skip Þjóðverja á Eyjahafi, en þar hafa þeir allmikinn "skipakos'. til þess að flytja' birgðir til setuliðs síns á hinum ýmsu eyjum í Eyjahafi. Hafa flug- vjelarnar sökt ■ tveim skipum, en laskað 22 að auki; voru flest þeirra smá. Flugvjelatjón var lítið. Einnig voru gerðar mikl- ar árásir á Pireus, Reuter. Gleypfi hifamæli. London í gærkveldi —: Maður nokkur kom hlaupandi inn í sjúkrahús í London í dag og stundi því upp, að hann hefði gleypt hitamæli. Nokkru síðar fjekk hann áköf uppköst og kastaði hitamælinum upp, en þá tókst hvorki betur nje verr til, að hann gleypti hann aft- ur. Að lokum tókst að ná mæl- ihum upp úr manninum, en læknirinn fullyrti, að hann hefði sýnt æði hátt hitastig, er hann náðist! — Reuter. Þýskar út- varpsstöðv- ar þögnuðu í gærkvöldi London í gærkveldi. Allflestar útvarpsstöðvar þýskar þögnuðu skyndilega í kvöld, þar á meðal stöðin í Varsjá. Dregið var mjög úr orku stöðvarinnar í Vín- arborg að því er virtist, svo hún leiðbeindi síður árásar- flugvjelum.Nokkru áður en stöðvarnar þögnuðu, var al- menningur aðvaraður um það, að „óvinaflugvjelar þær, sem orðið hefði vart við hjeldu áfram ferð sinni og stefndu til suðausturs“. Klukkan 9,30 bvrjuðu stöðvarnar að semla á ný. Manntjón Banda- ríkjamanna Washington. UPPLÝSINGADEILD Banda- ríkjanna hefir birt síðustu töl- ur yfir manntjón Bandaríkja- manna, síðan þátttaka þeirra í ófriðnum hófst. Samkv. skýrsl um Upplýsingadeildarinnar er síðasta manntjónstala Banda- ríkjamanna 142,289 manns. — Þar af eru, samkvæmt skýrsl- um landhersins Bog flotans 32,662 látnir, 47,123 særðir, 32.699 týndir og 29.805 fang- ar í höndum óvinannaa. 1.933 hermenn hafa látist í fangabúðum óvinanna, flestir þeirra í japönskum fangabúð- um. En þessar tölur, segir í skýrslu Upplýsingadeildarinn- ar, ná ekki yfir allt manntjón Bandaríkjamanna fram til þessa dags, þareð skýrslur landhersins ná ekki nema til 31. desember, en skýrslur flot- ans ná allt fram til 22. janúar. Stolið úr dýragarði. London:— Mjög dýrmætum páfagauk og grimmum villi- ketti var stolið fyrir skemstu úr dýragarðinum í Bristol. Námadeilan í Brel- landi leysi London í gærkveldi. STJORN námamannasam- bandsins breska samþykti á fundi í dag, að ganga að kaup- tilboði námaeigenda, en sam- kvæmt því eru minstu viku- laun námamanns, sem vinnur niðri í námunum 5 pund á viku. Ekki náðist einróma sam þykki um þetta, og er álitið, að sumir sjeu óánægðir. — Reuter. 349 : 72. Washington —: Tilkynt hef- ir verið, að síðan á nýári hafi Japanar mist 349 flugvjelar á Kyrrahafssvæðinu, en banda- menn aðeins 72 flugvjelar. Herskip hafa skotið á vegi milli vígstöðva fimta hersins og Róm, bæði beiti- skip og tundurspillar voru þar að verki. Flugveður var fremur illt, en þó flogið all- an daginn og ráðist á vegi og járnbrautir á Formio- og Cassinosvæðunum, einnig á Pescaraveginn, en hann gæti Kesselring notað til liðsauka flutninga. Alex- ander hershöfðingi hefir enn ekki látið uppi neitt ná- kvæmt um það hvað inn- rásarherimir hafi sótt langt fram. Við Cassino Þar sækja hersveitir franskar úr fimta hernum enn fram, eftir að hafa kom ist yfir Rapido-ána, og náðu þær í dag aftur hæð, er þær mistu í gær, en bardagar voru feykiharðir. Amerísk- ar framsevtir eru nú aftur komnar yfir Rapido-ána, og yrðu stöðvar Þjóðverja við Cassino í hættu, ef þessar sveitir Frakka hjeldu áfram sókninni. Þjóðverjar segjast halda uppi stöðuoum loftárásum á skip bandamanna undan Anzio og kveðast þeir í gær hafa sökkt beitiskipi og tveim tundurspillum og enn fremur hitt 12 önnur skip, samtals 42 þús. smál., með sprengjum. Segja þeir að einhver skipa þessara hafi sokkið. Enníremur segjast þeir hafa kveikt í hafnar- bænum Anzio með sprengju kasti og standi hann í báli. Á vígstöðvum áttunda hersis gerðu Þjóðverjar at- lögu að stöðvum Indverja, sem með áttunda hernum berjast, en voru hraktir á brott eftir nokkra viður- eign. Kanidskar hersveir gerðu með stórskotahríð mikinn usla í þýskri bifreiðalest.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.