Morgunblaðið - 28.01.1944, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudag-ur 28. janúar 1944
Eins og frá hefir verið skýrt, hitti Inenu Tyrklandsforseti þá
Churchill og Roosevelt að máli í Cairo fyrir nokkru, og var þá
rnyndin hjer að ofan tekin. Fór mjög vel á með þeim á ráð-
stefnu þessari að sögn.
Fyrirspurnir á Alþingi út
af sjóslysum og rannsókn
þeirra
íjárhagsáætlun
Hafnarfjarðar
FJÁRilAGSÁÆTLUN Iíafn
firfjarðarkaupstaðar hefir nú
verið samþykt. Níðurstöðutöl-
nr tekna og útgjalda eru:
íí,365,930,00. Ilelstu tekjuliðir
cru þessir: Utsvör kr. 2,358
þús., stríðsgróðaskattur áætl-
aður kr. 600,000.00. Auk þess
eru ýmsir smærri liðir.
Stærstu útgjaldaliðir eru
jiessir: Til barna- og Flens-
borgarskóla kr. 1980,000,00, til
íþróttamála 202,0(}0,00, til
alþýðutrygginga o. fl. kr.
339,000,00, til framfærslumála
kr. 307,000,00, til vega, hol-
ræsa og vatnsveitu kr. 500,-
000,00, frandag til hafnar-
gerðar kr. 200,000,00, viðbót-
árframlag til liarnaskólabygg-
ingar kr. 100,000,00, til verk-
legra framkvæmda í Ivrýsu-
vík kr. 100,000,00. ,
Tekjuafgangur er áætlaður
250 þús. krónur.
Amerísk nunna
tekin í
dýrlingafölu
*
Chicago —: Móðir Frances
Xavier Cabrini, hin fræga
ameríska nunna, sem stmid-
ium var nefnd „postuli ítalskra
innflytjenda“ og sem dó hjer
í borg fyrir 26 árum, hefir
verið tekin í tölu dýrðlinga
binnar kaþólsku kirkju. Er
hún fyrsti ameriska þorgar-
inn, seni tekiiin hefir verið
í tölu dýrðlinga.
Það er mjög sjaldgæft, að
menn sjeu teknir í dýrðlinga-
tölu, svo skömmu eftir dauðít
sinn. T. d. liðu 300 ár frá
dauðg Joan af Are áður en
bún var tekin í-tölu dýrðlinga.
Móðir Cabriiti var fædd í
Iiodi i Italíu árið 1850, en
fluttist til Ameríku er hún
var 39 ára. Gerðist hún am-
eriskur borgari og helgaði allt
sitt líf ítölskum innflytjendum.
Ilún stofnsetti skóla og síðar
sjúkrahús. llin síðari ár æfi
sinnar átti hún heima í
Chica go.
Skipað í Ijós-
mæðrastöðurn-
ar þrjár.
UNDANFARNA mánuði hef-
ir um það vetið rætt við og við
í bæjarstjórn að fjölga ljós-
mæðrastöðum hjer í bænum.
Varð niðurstaðan sú, að skipa
stofna 3 nýjar Ijósmæðrastöð-
ur.
Borgarstjóri upplýsti á bæj-
arstjórnarfundi í gær, að hjer-
aðslæknir hefði tjáð sjer, að
af 10 umsækjendum um stöður
þessar, uppfyltu 6 ekki þau
skilyrði, sem lög mæla fyrir,
en undir hann á að bera þessi
mál. En lögmaður veitir stöð-
urnar, að fengnum ábending-
um bæjarstjórnar. Skilyrðin,
sem sett eru í lögunum, og ó-
uppfylt voru, eru þau, að um-
sækjendur hafi verið a. m. k.
1 ár aðstoðarljósmæður v;ð
fæðingárdeild Landsspítalans,
ellegar hafi haft hliðstæð störf
á hendi.
Af þeim, sem til greina
komu, fengu þessar flest at-
kvæði í bæjarstjórninni: Guð-
rún Halldórsdóttir, Ragnheiður
Guðmundsdóttir og Þórdís Ó-
lafsdóttir.
Handsamaði
innbrotsþjófa
TVEIR innbrotsþjófar voru
liandteknir í fyrrinótt í Lækj-
argötu 2.
Ilöfðu þeir þrotið rúðu í
salerni, farið þar inn, en það-
an liggur gangur að skrif-
stofu verslunar Ilaraldar Árna
sonar.
Maður, er jiarna átti leið
Tramhjá með unnustu sinni,
heyrði brothljóðið, fór hann
þegar inn í port. Sá hann þá
mann standa við gluggann,
var þá annar þjófurinn kom-
inn inn. Maðurinn handtók
þegar þann er ekki var kom-
inn inn, sendi hann stúlkuna
þegar- eftir lögreglunni, er
kom að vörmu spori og hand-
tók mennina.
BEST AÐ AUGLÝSA
I MORGUNBLAÐINU
Arshátíð
verslutiar-
manna að
Hótel Borg
VERSLUNARMANNAFJE-
LAG REYKJAVÍKUR heldur
árshátíð sína að Hótel Borg n.k.
laugardagskvöld. Hátíðin hefst
með sameiginlegu borðhaldi
kl. 7.30 e. h. — Undir borðum
verða fluttar stuttar ræður, en
meðal ræðumanna verður
Magnús Jónsson alþingismað-
ur. Þá verður einnig söngur og
hljóðfæraleikur. Að lQkum
verður svo dans stiginn fram
eftir nóttu.
Eins og áður má eiga von á
góðri skemtun hjá verslunar-
mönnum á laugardagskvöldið,
enda mun þátttaka vera mjög
mikil.
Þeir fjelagsmenn, sem ekki
ennþá hafa vitjað aðgöngu-
miða, ættu að gera það í dag,
því ennþá £ru nokkrir miðar
óseldir í skrifstofu fjelagsins,
Vonarstræti 4. Sími 5293.
Breyiingarfillöjj-
ur bæjarráðs við
fjárhagsáæll-
unina.
Á síðasta bæjarráðsfundi
voru samþyktar eftirfarandi
breytingartillögur við fjár-
hagsáætlun bæjarins 19.44:
STYRKUR til bæjarbóka
safnsins verði hækkaður úr
kr. 8000.00 í kr. 25.000.00.
Til áhaldakaupa fyrir bæ-
inn verði varið 500.000 kr.
í stað 100.000 krónum. —
Styrkur til Blindravinafje-
lags íslands verði hækkað-
ur úr kr. 1000.00 í 2000.00.
Þá verði þingstúku Reykja-
víkur veittur styrkur til
starfseminnar 10.000.00. —
Styrkur til Námsflokka
Reykjavíkur verði hækkað-
ur úr kr. 12.000.00 í krónur
16000.00.
Til byggingar leikfimis-
húss fvrir Kvennaskólann
verði veitt kr. 15.000.00. —
Að styrkur til Verslunar-
skólans verði hækkaður úr
kr.. 20.000.00 í kr. 40.000.00.
í stað þess að veita einstök-
um íþróttafjelögum styrk,
verði veitt til íþróttafjelaga
kr. 20.000.00, eftir reglum
er bæjarráð setur. — Að
styrkur til Skíöafjci. Iívíkur
verði hækkaður úr kr.
1000.00 í kr. 5000.00 vegna
raflýsingar skálans. — Við-
bótarstyrkur til Knatt-
spyrnufjel. Víkingur til
skálabyggingar kr. 5000.00.
Styrkur Leikfjelagsins
verði hækkaður úr krónum
10.000.00 í kr. 20.000.00. —
Til iðnskólabyggingar verði
veitt kr. 300.000.00.
London í gærkveldi.
I tilkynningu Titos hershöfð
ingja segir 1 dag, að hersveitir
hans hafi yfirgefið borgina
Tusla í Bosniu eftir miklar or-
ustur, en unnið sumstaðar á
annarsstaðar. •—Reuter.
í sameinuðu þingi í gær,
bar Gísli Jónsson fram
nokkrar fyrirspurnir til
stjórnarinnar í sambandi
við umræður og ádeilur
vegna skipstapa, sem orðið
hafa. Urðu út af þessum fyr
irspurnum nokkrar umræð-
ur.
Vjek Gísli Jónsson að
blaðaskrifum þeim, sem und
anfarna daga hafa orðið í
sambandi við nokkur sjó-
slys í seinni tíð. Vitnaði
hann til skrifa Vísis í þessu
sambandi, m. a. þess, er þar
hefði komið fram í sam-
bandi við Þormóðsslysið.
Blaðamaður Vísis, er um
þessi mál ritaði, þættist
vita meira en nokkur annar
um orsök hinna geigvæn-
legu skipstapa.
Hefir þessi blaðamaður
fengið upplýsingar úr rann-
sóknarskjölum sjódóms í
Þormóðsslvsinu, spurði þing
maðurinn?
Ef svo er ekki, er þá ekki
ástæða til þess að kalla
þennan blaðamann sem
vitni fyrir sjódóminn?
Þá átaldi þingmaðurinn
að sá háttur hefði verið á
hafður, að^rannsókn máls-
ins varðandi Þormóðsslysið
hefði verið látin fram fara
með leynd.
Þá minti þingmaðurinn á,
að í sambandi við óhapp á
togaranum Rán, hefðu
komið fram mjög hvatskeyt
legar ádeilur í blöðum. —
Rannsókn sannaði að ásak-
anirnar áttu við engin rök
að styðjast,
Er þess ekki að Vænta,
þegar slíkt kemur fyrir, að
bornar sjeu þungar sakir á
menn- opinberlega og þeir
fundnir saklausir, að þeir
sæti ábyrgð, er standa að
hinum órökstuddu ásökun-
um?
Að lokum átaldi þingmað
urinn sjerstaklega, að enn
hefði ekkert verið hirt um
eða aðhafst í sambandi við
rannsókn Þormóðsslyssins,
en vitað væri þó, að sjó-
dómurinn hefði lokið rann-
sókn sinni í september síð-
astliðnum.
Atvinnumálaráðh. svar-
aði fyrirspurninni. — Sagð-
ist hafa sent rannsóknar-
skjöl Þormóðsslyssins til
dómsmálaráðuneytisins að
rannsókn lokinni. — Dóms-
málaráðherra var ekki við-
staddur. Að öðru leyti vitn-
aði ráðherra til rannsóknar,
er hann nú nýverið hefði
fyrirskipað í sambandi við
síðustu sjóslys. Skjöl rann-
sóknanna yrðu birt, þegar
honum þætti tímabært.
Sagði hann berum orðum,
að hann hefði það gersamlega
á sínu valdi, hvenær hann
gerði almenningi kunnugt um
niðurstöður mála, sem sjó-
dóniur hefði með höndum.
Bjarni Benediktsson átaldi
mjög þann seinagang, sem,
hefir orðið á þessu máli, því
rannsóknir slíkar væru gerði
ar með það fyrir angnra,
að eitthvað mætti af þeinf
læra. Ef þær leiddu í Ijós, að
eftirliti með t. d. lireytingum,
á skipum væri ábótavant, ]iá
væri sannarlcga ástæða til að|
fá þær niðurstöður sem fyrst;
fyri r almen ni ngssj ónir.
Ennfremur gerði Bj. Ben<
þá fyrirspurn til atvinnumála,
ráðherrans, Vilhjálms Þór,
hvaðan honum kæmi vald tif
þess, að ákveða hvenær eða
að hve miklu leyti almeiin-
ingur fengi aðgang að því,
sem gerðist fyrir dómstólun-
um.
Þeirri fyrirspurn gat ráð-
herra þessi af eðlilegum á-
stæðum ekki svarað, en varð!
á hinn bóginn að viðurkennaj
sem rjett er, að til slíkra;
yfirráða brestur hann alla,
heimild.
Nokkrar frekari umræð-
ur urðu. Þar á meðal tók til
máls forsætisráðherra, og
gerði grein fyrir þeim vana
lega gangi sjódómsmála.
— Rússland
Framh. af bls. 1.
stöðugt ná miklu herfangi
og fjölda fanga, en Þjóð-
verjar greina frá erfiðri
varnarbaráttu seih fyr.
Govoroff hershöfðingi, sá
er stjórnar sóknarherjum
norður þarna, gaf í dag út
dagskipan, þar sem hanh
segir, að Leningradborg sje
nú leyst úr umsát, og Þjóð-
verjar hafi verið hraktir all
langt frá borginni og sje
verið að hrekja þá enn
lengra. (Rússar gáfu út:
aukatilkynningu sama efn-
is þann 18. janúar 1943).
Var skotið af fallbyssum í
Leningrad í dag til þess að
fagna þessum atburði.
Svo lítur út, sem dregið
hafi úr áhlaupum Þjóðverja:
á fylkingararm rússnesku
herjanna við Vinnitza, en
þó eru þar enn all-skæðir.
bárdagar háðir. — Rússar
greina ekki frá neinum telj-
andi bardögum annarsstað-
ar á vígstöðvunum, en Þjóð
verjar greina í fyrsta skifti
í langan tíma frá nokkrum
bardögum á Murmansk og
Kandalascha vígstöðvunum
lengst norður við íshaf, og
segjast þar hafa tekið nokk-
ura fanga. Ennfremur segja
Þjóðverjar enn frá hinum
snörpu áhlaupum Rússa á
Krímskaga og minnast einrí
ig á árásir Rússa, sem gerð-
ar hafi verið við Cherkassi.
Flugveður virðist að und-
anförnu hafa verið vont yf-
irleitt í Rússlandi og er ekki
getið nema um tiltölulega
lítið flugvjelatjón aðila. —•
Annars berast ekki nema
óglöggar fregnir af veður-
fari um vígstöðvarnar. s