Morgunblaðið - 12.02.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur.
33. tbl. — Laugardagur 12. febrúar 1944
Isafoldarprentsxniðja h.f.
III
EVELT SEGIR BARATTIIMA VIÐ
AMZIO HIJÍlG TVÍSÝMA
Bandamenn beita
fiugher sínum
til varnar
London i gærkvöld' — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ROOSEVELT forseti gerði baráttu landgönguliðs
handamanna við Anzio fyrir sunnan Róm, að umræðuefni
á blaðamannafundi í dag, og sagði að hún væri mjög tví-
sýn. Að vísu hafa bandamenn enn yfirráðin í lofti og á
sjó, en minna hefði orðið gagn að þessu, en skyldi, þar sem
veður hafa verið ill þarna að undanförnu. Bandamenn
b"æðu þess því að veður breyttist til hins betra, sagði for-
setinn.
• í gær var flugveður
nokkru betra en að undan-
förnu um þessar slóðir, og
beittu þá bandamenn öllum
þeim flugstyrk, sem þeir
hafa yfir að ráða, til árása á
bakstöðvar Þjóðverja. Einn-
ig gerði stórskotalið land-
gönguhersins allt hvað það
mátti, en Þjóðverjar hjeldu
einnig uppi skothríð sinni á
svæði það, sem herir banda
manna hafast við á, notuðu
einnig skriðdreka og gerðu
utn 30 loftárásir um daginn.
Ijofther bandamanna gerði
árásir á svæðið umhverfis
Róm og flugvelli lengra í
burlu.
Áhlaupum Þjóðverja held
ur áfram, og eru þau öflug-
ust á Apriliasvæðinu, en
þar segjast Þjóðverjar hafa
hreinsað til í Aprilia, járn-
brautarbænum, sem þeir
kveðast hafa tekið. — Alls
segjast Þjóðverjar hafa náð
4000 fönpum, enn sem kom-
ið er.Sumsstaðar hafa banda
menn gert hörð gagnáhlaup
en það virðist nú svo, sem
Þjóðverjar sjeu í sóknarað-
stöðunni, en landgönguliðið
verjist. Þjóðverjum hefir
borist liðsauki, 65. her-
fylkið, að sögn fregnritara.
Blóðbaðið í Cassino.
í dag er fimti dagurinn,
sem barist er í rústum Cass-
ino, og náðu Bandaríkja-
menn þar nokkrum húsa-
rústum á sitt vald í dag. —
Fyrir vestan borgina eru
enn háðir miklir bardagar,
og hafa hæðir á þeim slóð-
um verið ýmist á valdi
bandamanna og Þjóðverja.
Við Adriahafið hafa her-
menn úr áttunda hernum
náð tveim hæðum.
Ba-etar bölsýnir.
Bresk blöð eru ekki bjart
Framh. <i bls. 12
Allur Huanskagi
á valdi bandamanna
London í gærkvöldi. —
ALLUR Huan-skaginn á
Nýju Guineu, sem mest hefir
verið barist um að undanförnu
er nú á valdi bandamanna. —
Hafa hersveitir Astralíumanna
og Bandaríkjamanna nú náð
saman við Saidor, þar sem
Bandaríkjamenn gengu á land
fyrir alllöngu síðan. — Voru
Japanar þeir, sem þarna voru
til varnar, flestallir feldir. —
Er álitið að innan skamms hefj
ist allsherjar sókn hinna sam-
einuðu herja til Madang, en
þar er nú aðalvígi Japana á
Nýju Guineu. —Reuter.
Komið úr orusiu
EINS OG kunnugt er orðið af frjettum, lentu bresku beitiskipin „Enterprise“ og „Glas-
go\v“ í orustu við þýska tundurspilla fyrir nokkru. Var bardaginn háður í Biskayaflóa og var
þrem hinna þýsku tundurspilla sökt, en beitiskipin biðu lítið tjón. Myndin sýnir „Enterprise“, er
skipið er nýlagst í höfn eftir bardagann.
Þjóðverjar segjast
sökkva olíuskipi
við ísland
í ÞÝSKU* herstjórnartil-
kynningunni í gær var eftir-
farandi tilkynt, meðal annars:
,,Þýskar langferðaflugvjelar
söktu í gær með sprengjukasti
8000 smálesta olíuskipi við
austurströnd íslands“.
Árásá Kotka
FINNAR tilkynna, að um
150 rússneskar flugvjelar hafi
í nótt sem leið, gert árás á
finsku borgina Kotka, en hún
er á suðurströndum Finnlands,
gegnt borginni Narva í Eist-
landi. Er þetta mesta timbur-
vinslustöð í Finnlandi. Fregn-
irnar herma, að tjón hafi ekki
orðið eins mikið og búast hefði
mátt við,sökum góðra loftvarna
Tvær flugvjelar segjast Finn
ar hafa skotið niður.
Mikil dag-
arasa
Frankfurt
London í gærkveldi.
í ANNAÐ skifti í þessari
viku gerðu amerísk flugvirki
dagárás á hina miklu þýsku
iðnaðarborg Frankfurt am
Main, og fylgdu þeim Lightn-
ing-, Thunderbolt- og Mustang
orustuflugvjelar. Mótspyrna
Þjóðverja í lofti var með minna
móti, bæði yfir Þýskalandi og
eins yfir Norður-Frakklandi,
en á herstöðvar þar var haldið
uppi miklum árásum í dag. —
Alitið er, að mikill árangur
hafi orðið af árásinni á Frank-
furt.
Flugvjelatjón aðila í dag var
þetta: Þjóðverjar mistu 37 or-
ustuflugvjelar, en bandamenn
fimm stórar sprengjuflugvjel-
ar og fimtán orustuflugvjelar.
— Reuter.
Rússar sækja ah
Luga úr tveim áttum
Lofiárásin var gerð
á Seyðisförð
LOFTÁRÁS þýsku flugvjel-
anna í fyrradag á Austfirði var
gerð á höfnina á Seyðisfirði.
Hei'stjórnin hjer leyfði í gær,
að eftirfarandi mætti segja til
viðbótar um árás þessa:
„Árásin var gerð á Seyðis-
fjörð fyrir hádegi á fimtudag.
Ekkert tjón varð á mönnum,
hvorki óbreyttum borgurum
nje hermönnum. Talið er. að
skothríð úr loftvarnabyssum
hafi hæft eina óvinaflugvjei-
Stór skipaiest til
Norður-Afríku.
London í gærkveldi.
EINHVER stærsta skipalest,
sem komið hefir frá Bretlandi
til Norður-Afríku, er nýkomin
þangað. Voru í lest þessari alls
138 skip, og fórst ekkert þeirra
á leiðinni, enda var lítið um
I
árásir. Kafbátar gerðu aðeins
eina árás á lestina, en fjórar
flugvjelar rjeðust á hana á
Mibjarðarhafi með engum
1 árangri. — Reuter.
Pólskf blað bannað
í
London í gærkveldi.
Upplýsingamálafáðunevtið
breska hefir bannað útkomu
pólska blaðsins „Polish News“,
sem út hefir komið í Bretlandi
um alllangan tíma. Einu sinni
áður hafði ritstjóri blaðsins
verið aðvaraður um að misnota
ekki gestrisni þá, sem Pólverj-
um væri sýnd í Bretlandi, með
því að reyna að koma af stað
ósamlyndi meðal bandamanna.
Mun ritstjórinn nú aftur hafa
gert sig sekan um þetta.
— Reuter.
London í gærkveldi.
Eínkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
RÚSSAR sækja að Luga úr
austri og norðaustri, og til-
kynna enn töku nokkurra
þorpa á þessum vígstöðvum. Er
mótspyrna Þjóðverja hörð á
þessum slóðum. — Sunnar til-
kynna Rússar, að þeir hafi tek
ið járnbrautarstöðina Chebe-
tovka, en stöð þessi er á járn-
brautinni frá Berdichev til
Rovno, nokkru fyrir austan
landamæri Póllands. Var borg
in tekin eftir harða bardaga,
þar sem Þjóðverjar beittu
mjög brynvörðum járnbrautar
lestum.
Þjóðverjar hafa nú aftur, að
sögn Rússa, byrjað mikil á-
hlaup í því skyni að koma hin-
um innikróaða 8. her sínum til
hjálpar, og greina Rússar frá
því, að þeir eigi í miklum varn
arorustum á þeim slóðum. Enn
fremur segja Rússar, að hring-
urinn um hinn innikróaða her
hafi enn verið þrengdur og
nokkur þorp tekin af honum,
en aðalstöð hans sje í skotfæri,
og sje skotið á hana sprengi-
kúlum í sífellu. — Bær sá, sem
hjer um ræðir, er nefndur Kor-
sun. — Á öðrum hlutum víg-
stöðvanna greina Rússar aðeins
frá staðbundnum viðureignum.
en Þjóðverjar segja, að Rússar
geri víða harðar áuásir, og
segja varnarbaráttuna erfiða.