Morgunblaðið - 13.02.1944, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.1944, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIF Sunnudag'ur 13. febrúar 1944 Áhugi almennings fyrir fræðiritum vaxandi Skýrsla um Bæjarbóka- safn Reykjavíkur SKÝRSLA Snorra Hjartar- sonar, bókavarðar Bæjarbóka- safns Reykjavíkur, sem lögð var fyrir fund bæjarráðs í gær synir m. a., að áhugi manna fyrir fræðiritum fer í vöxt, en menn lesa nú minna en áður skáldrit og „rey.fara“. Hagur safnsins er með ágætum. •—- A árinu lánaði safnið út á annað húndrað þúsund bindi. Lesstoíur stafnisins eru vel sóttar og hefir aðsókn aukist allverulega. Hjer fer á eftir skýrsla um starfsemi safnsins s.l. ár: A annað hunðrað þúsund bindi. Samkvæmt ársskýrslu 1942 var bókaútlán saínsins 137416 bindi, að skipasöfnum ekki með töldum. Má segja að útlánið hafi staðið í stað, enda varla við aukningu að búast, að því athugu að aldrei hefir verið meiri bókaútgáfa í landinu, nje bækur meira og almennar keyptar en árið sem leið, og Lánþegum safnsins hefir einnig fjölgað nokkuð á árinu, voru 4990 í árslok 1942, en 5026 í árslok 943. I útibúi Austurbæjar voru eins því, að allan meginþorra 1 s. 1. ár lánuð 4157 bindi, eða meta hollar og góðar bækur og að hin sígildu rit tuhgunnar standa ekki rykfallin í skápum heldur vinna hlutverk sitt enn í dag. Og safnið færist nær því, sem það á að vera: ekki aðeins til dægrastyttingar, heldur einnig til raunverulegs gagns og aukinnar menningar. En því miður stendur núverandi húsa kostur allri starfsemi stofnun- arinnar mjö fyrir þrifum. Aðsókn að safninu. Lesstofur safnsins hafa ver- ið betur sóttar en árið áður: 1942 1943 Gestir á lesstofu aðalsafnsins ..... 5176 7101 Gestir á barnales- stofu.......... 3111 4138 - ITALIA Framh. af bls. 1. unum að neinu ráði í síð- ustu 2—3 daga. Hafa þýsk- ar flugvjelar ekki látið sjá sig. Herskip bandamanna hafa notað tækifærið á með an flugveður var slæmt, að sigla upp undir ströndina og skjóta á stöðvar Þjóð- verja. Tóku þátt í þessum árásum af sjó beitiskip og tundurspillar. Samtals 8287 11239 bóka, sem kom út tvo síðustu mánuði ársms, ,,jólabækurnar“ var ekki hægt að setja í útlán þar sem ógerlegt var að fá þær bundnar fyr en nú eftir áramótin. Að skipasöfnum méð töldum hefir útlánstalan hækk að um 449 bindi (var 14246 árið 1942) og mun sú hækkun mest stafa af því, að ríkara hefir verið gengið eftir því við skipverja að gefa rjettar skýrsl ur um notkun bókanna, og mun þó útlánstala þeirra ennþá aunverulega of lág. Lestur fæðibóka eykst. r ■En þó útlánstalin í heild sje þetta svipuð og á árinu á und- arj. hafa orðið breytingar á út- lánum hinna ýmsu sjerstöku bókaflokka, sem vert er að at- húga. Lestur skáldrita hefir enn stórum minkað, en notkun fræðibóka aukist að sama skapi. — 1942 voru útlánuð 106565 skáldrit, en s.l. ár 99492 -—Allir flokkar fræðibóka hafa hækkað að mun, en þó mest bækur um landafræði og ferð- ir, eða um 1723 bindi, og bæk- uí um sagnfræðileg efni, um 2449 bindi. Mun þetta stafa að nokkru af því, að minna hefir verið keypt af þýddum reyf- 515 læga en 1942, og í útibúi Vesturbæjar 15827 bindi, og er það 985 læga en árinu á undan. í aðfangabók voru í árslok 1943 innfærð 47904 bindi, en voru í árslok 1942 45742. Hef- ir þá bindum fjölgað á árinu um 2162, en það er 210 bókum færra en árinu áður. Tekju. Tekjur sjóðs safnsins (gjöld fyrir lánsskírteini og dagssekt- ir) hafa enn hækkað að mun. Samkvæmt skýrslu bókavarð- ar 1942 voru þessar tekjur á því ári kr. 13705.75, en nú á árinu sem leið voru þær kr. 16434,25, og er það kr. 2728,50 meira en árið 1942. Nordahl Grieg var Ðönum ómelan- legúr Frá norska blaða- fulltrúanum. LEIÐTOGI frjálsra Dana, Christmas Möller, hefir sent forsætisráðherra Norðmanna, Nygaardsvold, brjef, þar sem uþúm og reynt verið að koma. hann segir frá harmi dönsku fræðibókunum haganlegar fyr ir eftir því, sem hægt er sök- um þrengsla, en mestu mun þó valda vaxandi áhugi almenn- ings á ýmiskonar fræðslu. Fornritin mikið lesin. þjóðarinnar við fráfall Nor- dahls Grieg. Hann^ kemst m. a. þannig að ■orði í brjefi sínu: „Eftir 9. apríl 1940 varð Nordahl Grieg ómetanlegur fyrir þrótt og kjark dönsku þjóðarinnar, á Það er vert að geta þess, að sama hátt og forysta Norð- lestur íslenskra fornrita hefir manna örfaði þjóð mína í and- aukist svo á árinu, að hann stöðu hennar gegn Þjóðverj- mun aldrei hafa verið meiri, og um. bendir þetta allt til þess, að al- | Gervöll danska þjóðin syrgir menningur vill lesa og kann aðfráfall Nordahls Grieg. Við Cassino. Við Cassino hefir brugðið til snjókomu. Bandaríkja- menn hafa þó unnið nokkuð á þar, en Þjóðverjar hafa enn aðalborgýaa á sínu valdi. Hafa einhverjir hinir hörðustu bardagar Ítalíu- styrjaldarinnar verið háðir á þessum slóðum undanfar- ið og er mannfall mikið á báða bóga. Sumarhöll páfa á bardaga- svæði. Bandamenn hafa gefið út tilkynningu um sumarhöll páfa í Castelgandolpho, sem varð fyrir loftárásum á dög unum. Segir í tilkynning- unni, að sumarhöll páfa sje á sjálfu orustusvæðinu: — Þjóðverjar hafi komið sjer þar fyrir virkjum og noti sumarhöllina til að verjast í. Það verði því ekki hjá því komist að einhverjar skemdir verði á sumarhöll- inni. Það verði ekki komist hjá því, að sumarhöllin verði fyrir sprengjum vegna hernaðarlegrar þýðingar. 13,000 fangar. Undanfarna daga hafa bandamenn tekið allmarga þýska fanga á Ítalíuvíg- stöðvunum. Er fangatalan, sem banda menn hafa tekið frá því þeir gerðu innrásina á Sikiley, nú komin upp í 13,000. Fluglið bandamanna hef- ir farið í nokkrar árrásir í Miðjarðarhafi og me$al ann ars hafa flugvellir við Róm og járnbrautarstöðvar orðið fvrir loftárásum. Óskað eitir fieiri vjelamönnum að Ljósafossi Á FUNDI bæjarráðs í gær var s^mþykt aiö Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri leitaði til Ameríkufirmans, er seldi rafmagnsvjelarnar að Ljósa- fossi, og færi fram á, að verk- smiðja þessi sendi tvo sjerfræð inga í uppsetning vjela, til að vera þeim vjelamanni til að- stoðar, er firmað sendi hingað í haust til þessa verks. Er þetta gert vegna þess, að verkið hefir gengið seinna en ætlað var í upphafi og búist hefir verið við fram að þessu. Skýrði rafmagnsstjóri blað- inu svo frá í gær, að hinn am- eríski sjerfræðingur, er að þessu vinnur, vilji vinna að þessu verki sem næst einn sír.s liðs, en vjelarnar voru mmra bútaðar niður en sænsku vjel- arnar voru, er þær komu hing- 'að, þegar Ljósafoss-stöðin var reist. Gerir rafmagnsstjóri sjer vonir um, að aðstoðarsjerfræð- ingarnir geti fengið flugferð hingað. En hann telur ekki horfur á, að hin nýja vjelasam- stæða verði komin saman til notkunar fyr en að liðnum marsmánuði. Nokkuð hefir lagast með spennu rafveitunnar, sagði hann, síðan um mánaðamót, vegna þess hve rafmagn er minna notað nú til húsahitun- ar og rafmagnsljósanotkun minni. Skipsfjórar og stýri- örygg- menn Ismálin Á FUNDI Skipstjóra- og stýrimannafjelags Reykjavík- ur, sem haldinn var 10. þ. m., var samþykt að segja upp samn ingi við Fjelag línuveiðaskipa og fiskflutningaskipa um kaup og kjör skipstjóra og stýri- manna á skipum þess fjelags, dags. 18. febrúar 1943, en sem gilda átti frá 1. nóv. 1942. Á sama fundi var samþykt áskorun til Farmanna- og fiski mannasambands Islands um að gangast fyrir almennum um- ræðufundi meðal sjómanna um öryggismál sjófarenda. Fundurinn skoraði á Alþingi að samþykkja tillögur F. F. S. í. og Alþýðusambands íslands um nefndarskipun til endur- skoðunar laga og reglugerða um öryggi á sjó. Þá voru og önnur öryggismál sjófarenda tekin til meðferðar. Bambi á íslensku ÚT ER komin á íslensku barnasagan Bambí eftir aust- urríska rithöfundinn Felix Salten og sem Walt Disney hef- ir gert af teiknikvikmynd í eðlilegum litum og sem farið hefir sigurför um allan heim. Er kvikmyndin komin hingað til Gamla Bíó og verður sýnd hjer innan skams. Bambí er einhver vinsælasta barnasaga í enskunáælandi löndum og hefir verið þýdd á fjölda tungumála. Er sagan af litla hirtinum sögð af mikilli snild. Þarf ekki að efast um, að bókin verður vinsæl hjer sem annarsstaðar. Stefán Júlíusson hefir þýtt bókina á íslensku, en útgef- andi er Bókaútgáfan Björk. -*■ Bókin er prentuð á vandaðan pappír og margar teiknimynd- ir Walt Disneys prýða bókina. Góður fiskafii í Eyjum • Frá frjettaritara vor- um í Vestmannaeyjum UNDANFARNA viku hefir’ alla daga verið róið að undan- teknum mánudeginu. — Afll var heldur rýr fyrri hlutann, enda heldur slæmt sjóveður. —« Síðari hluta vikunnar hefir veður verið gott og afli góður. Hafa hæstu bátar fengið allt að 12 tonn, þó meðalafli sjö mun minni, má afli yfirleitt teljast ágætur, einkum með til liti til þess að flestir bátar hafu ekki ennþá fulla línu eða tals- vert innan vil 30 stanlpa. Afli hjá þeim togbátum, er byrjaðir eru, hefir einnig verið góður. Drengur verður fyrir bíl Í GÆR vildi það slys til & Eiríksgötu að drengur, er vae á reiðhjóli, varð fyrir bifreið og meiddist lítilháttar. Dreng- ur þessi heitir Helgi Jakobsson, Bergþórugötu 45. Var hann á leið eftir Eiriks- götu, er hann rakst á bifreið- ina G—130. Var drengurinn fluttur í Landspítalann, en að lokinni aðgerð var farið meÖ hann heim til sin. Rússar í úthverfum Luga London í gærkveldi. HERST JÓRNARTILKYNN - ING RÚSSA í kvöld skýrir frá því, að Rússar hafi náð á sitt vald borginni Bateskaya á norðurvígstöðvunum og sjeu hersveitir þeirra nú í úthverf- um Luga. Segir ennfremur í herstjórnartilkynningunni, að Rússar hafi nú hreinsað til og sjeu nú engir óvinir lengur norðan járnbrautarlínunnar Leningrad, Bateskaya, Novgo- rod. Umhverfis Bateskaya segj ast Rússar hafa tekið alls um 40 borgir og bæi. Slæmt útlit fyrir inn- króaða liðið. Þá er skýrt frá því í her- stjórnartilkynningunni, að enn þrengist hringurinn umhverfis 10 herfylki Þjóðverja, sem inni króuð eru hjá Shpola. Þjóðverjar hafa gert tilraun- ir með miklu liði og skriðdrek- um að koma hinu innikróaða liði til hjálpar, en Rússar hafa hrundið öllum áhlaupum Þjóð- verja fyrir norðan Zvenigor- odka og Shpola. Segjast Rúss- ar hafa valdið miklu manntjóni í liði Þjóðverja og eyðilagt fyr ir þeim mikið af hergögnum | bardögum. Frjettaritarar segja, að svæð ið, sem innikróuðu hersveitir Þjóðverja hafast við á, sje nú ekki meira en 1/6 eða 1/8 aí því, sem það var, er RússaE króuðu hersveitirnir inni. RúsS ar hafa náð á sitt vald aðal- flugvellinum á innikróaða svæðinu. í gær, 11. febrúar, segjasfi Rússar hafa skotið niður 51! flugvjel fyrir Þjóðverjum og eyðilagt eða laskað alls 81 þýskan skriðdreka. u

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.