Morgunblaðið - 13.02.1944, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.02.1944, Blaðsíða 6
6 M O R G U N BLAfilÐ , Sunnudagur 13. febrúar 1944 Ctg.: H.í. Arvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsia. Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlanda. kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með GesDók. Skattar og kröfur í OKKAR fámenna þjóðfjelagi, sem hefir lengst af staðið í baráttu við erlend völd, óblítt veðurfar og eyði- leggjandi náttúruöfl, eru á flestum sviðum óleyst verk- efni. Þjóðin hefir verið fátæk og atvinnuvegir hennar reknir á ófullkominn hátt fram á síðustu áratugi.Rjett fyrir stríð- ið sem nú geisar, var framleiðslan til lands og sjávar komin að stöðvun sökum innlendrar óstjórnar og vafa- samt má telja, að henni hefði verið bjargað án stórkost- legra áfalla, ef eigi hefði komið sú mikla fjármálabreyt- ing, sem stríðið hefir orsakað. Um leið og gengi atvinnuveganna breyttist svo mjög eins og hefir orðið, einkum útgerðar, iðnaðar og verslun- ar, sáu menn hilla undir þann möguleika, að koma meiri og fjölþættari verklegum framkvæmdum áleiðis. Skattar voru hækkaðir gífurlega, að miklu leyti með allra flokka samþykki og meiri og meiri fjármunir hafa verið lagðir í framkvæmdir og undirbúning framkvæmda hin síðustu ár. Jafnframt hefir allur reksturskostnaður ríkisins, bæj- ar- og sveitafjelaganna og allra okkar atvinnuvega, hækk- að gífurlega. Svo langt er komið með útgjöldin, að Alþingi hefir samþykt fjárlög með 93 miljóna króna áætluðum tekjum. Það lætur nærri að vera fimmföld sú upphæð, sem til ríkisins var krafin fyrir stríðið. Nú nýlega hefir bæjarstjórn Reykjavíkur afgreitt tekju og gjalda-áætlun fyrir yfirstandandi ár. Útsvörin ein á- ætlar hún nokkuð yfir 25 miljónir krónsi. Árið 1939 voru álögð útsvör í Reykjavík 4,8 miljónir króna. Þau hafa því meira en fimmfaldast á þessu árabili. Mönnum ógnar eðlilega hin almenna verðlagshækkun, sem eftir vísitölu er nú orðin 2U föld frá stríðsbyrjun. En þegar skattar til ríkis og bæja sýna vísitölu 500 og yfir, móti 250 í hinni almennu vísitölu, þá mætti ætla að mönnum þætti nóg komið. En því fer fjarri að svo sje. Foringjar hinna svonefndu vinstriflokka: Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sósíalistaflokksins, þreytast aldrei á að úthúða Sjálfstæð- ismönnum fyrir það, að vilja ekki leggja í meiri skatta, meiri gjöld. Tveir þessara flokka, sem eru báðir í bæjar- stjórn og á Alþingi, syngja sama versið á báðum stöðum. Aðferðin er allsstaðar sú, að heimta meiri laun, hærra kaup, meiri þægindi, meiri framkvæmdir, minni vinnu. Alt er þetta vinsælt. Ýmislegt er hægt að færa því öllu til meðmæla. Athugalitlir einstaklingar, sem eingöngu hugsa um líð- andi stund, eigin þægindi og eigin kröfur, láta ginnast til að trúa því, að allar kröfur sje hægt að uppfylla. Við öllum óskum sje hægt að verða. Margt þessara manna bítur því á agnið og fylgir þeim, sem lengst ganga í kröf- um og fordæma hina, sem á móti standa. En alt þetta stefnir til hreinnar fjárhagslegrar glötunar, enda á það að vera undirbúningur þess, sem koma skal. Það á að ryðja veginn fyrir afnámi alls eignarrjettar og einkarekstrar. Það á að kalla á hina almennu þjóðnýtingu á öllum svið- um. Þeir, sem gefa sjer tíma til að hugsa nokkuð um kom- andi tíma, þegar flóðaldan er horfin, þeir ættu að athuga hvernig muni verða um þægingin, framfarirnar og frelsið, þegar búið er að umturna því þjóðfjelagsskipulagi, sem ríkir og ríkt hefir í landi voru. Það lætur vel í eyrum að segja: ,,Við vorum með þess- um útgjöldum11, „við vildum þessar framkvæmdir.', „Sjálfstæðisflokkurinn var á móti“. „Hann beitir sjer í gegn framförum“ o. s. frv. En í þessum efnum, sem mörgum öðrum gildir sú regla, að þó þetta og hitt sje nytsamlegt, er þó orkar oft tvímælis, þá er þó eitt nauð- synlegast. Og það, sem okkar þjóðfjelagi er nauðsynleg- ast á fjármálasviðinu er„ að atvinnuvegir landsins geti haldið áfram, geti borið' sig. Það er undirstaða þjóðfje- lagsins. Það er fróðlegt að virða fyrir sjer áhrif kristninnar í almennu ! daglegu lífi. Hvar sjást þau | þar? Þau sjást þar víða, en þó jelcki nærri eins víða og skyldi. Þau sjást í því, er menn gera j meðbræðrum sínum einmitt , það, sem þeir vildu að þeim jsjálfum væri gjört, en ekki öf- ! Ugt. Þau sjást einnig, er menn forðast að dæma meðbræður j sína, forðast að breiða út níð, ' sem þeir kunna að hafa heyrt um þá, og verja þá fyrir get- sökum og rógi. Þau sjást í hóg- , værri og yfirlætislausri fram- komu manna, í jafnlyndi ag í þeim mönnum, sem að ekki jhreykja sjer hátt, heldur finna j ávalt til smæðar sinnar, þVí 1 þeir vita, að þeir eru duft eitt. ' Þau sjást einnig og ekki síst í hugarrósemi þeirra manna, sem taka stórum sárum, sem lífið veitir, án þess að blikna, því þeir trúa því, að böl verði bætt og sólskin náðar Guðs komi eftir sorgarjelin. Þessi á- hrif kristninnar sjást einnig vel í framkomu þeirra manna, sem ekki mega neitt aumt sjá, án þess að rjetta fram hjálpandi og græðandi vinahendur, sem altaf eru reiðubúnir til þess að leggja á sig hverskonar byrðar fyrir aðra. Þetta er fögur upptalning, og hversu mikið fegri væri hún ekki, ef allir væru þannig. Það er markmið kristninnar að all- ir verði haldnir því hugarfari og þeir bestu eru nú, en þeir bestu kalla sig sjálfa aldrei góða, hvað þá meira. — Enginn er góður, nema Guð einn. Að nefna sjálfan sig góðan, væri því að hreykja sjer upp, en það gera ekki þeir menn, sem lifa í anda kenningar Krists, ekkerc er þeim fjær. En hinir eru einnig margir, sem gera meðbræðrum sínum einmitt það, sem þeir vildu ais ekki að þeim væri gert sjálfum. Og þeir eru jafnvel miklu fleiri, sem hafa reglulega unun af því að dæma meðbræður sína hart, sem eru fljótir til að breiða út hverja óvirðingu, sanna og logna, sem þeir heyra um aðra, sem taka undir og auka við get- sakir og róg, í stað þess að draga úr slíku. Þá mætum vjer einnig hinum kalda hróka á vegum vorum: hroka, sem virð- ist segja: Sjá, hjer er jeg, er nokkuð dásamlegra tíl í al- heiminum? Svo sjáum vjer einn ig þá, sem ávalt sýta og kveina, því þeir trúa ekki. Og loks eru eigi litlar fylkingar hinna eig- ingjörnu, sem alt miða við sjálfa sig, og aldreí gera ann- að en loka augunum fyrir eymd meðbræðranna. Hvor hópurinn er nú stærri í heiminum, sem stendur? Því svari hver, eftir því, sem hon- um sýnist vera, og verða víst fáir í vafa um svarið, svo sem heimurinn er nú. En barátta er háð, til þess að stækka hinn hópinn, þar er barist um sálir manna, barist með vopnum kær leikans en ekki kúgarans, og takmark als mánnkynsins er að fá sigur í, þeirri baráttu, hún þekkir engar þjóðir, engin Íandamæri, hún er alheimsbar- átta. Og margir hafa fallið, en ætíð bætast nýir liðsmenn. j \JílverjL shripar: t lyfr dcLCýíecýCi líjinu Fánamáiið fær góðar undirtektir. í FYRRASUMAR þegar jeg byrjaði að skrifa um fánamál- ið og skyldur þær, sem þjóðin hefir við fána sinn, voru undir- tektir strax mjög góðar. Jeg fjekk mörg brjef, þar sem menn lýstu ánægju sinni yfir því að þetta mál skyldi hafa verið tekið til umræðna á opinberum vett- vangi. Allir lýstu ánægju sinni yfir þessum skrifum. Það var þó ekki fyr, en núna fyrir^skömmu, er jeg tók þetta mál upp á ný, að almenn vakning virðist hafa orð ið um fánamálið. Vantar nú ekki nema herslumuninn til að málið sje komið í örugga höfn. Fyrst komu uhgmennafjelögin úti á landi og gerðu samþyktir í fánamálinu, síðan var gerð sam þykt um málið á aðalfundi I. S. í. Húsmæðrafjelagið hjer í Rvík hefir sýnt áhuga sinn fyrir mál- inu og Sigurður Bjarnason alþing ismaður hefir talað vel um mál- ið í útvarpsþættinum um daginn og veginn. Fáninn og skólarnir. HJER Á DÖGUNUM hitti jeg Þorstein Einarsson iþróttafull- trúa ríkisins. Hann er mikill á- hugamaður um fánamálið. Hann sagði mjer, að von væri til, að málið yrði tekið upp í skólum landsins á næstunni. Hans hug- mynd er, að haldinn verði að minsta kosti einn fánadagur ár- lega í skólum landsins. Þann dag töluðu kennarar skólanna um fán ann og íslenskur fáni yrði í hverri skólastofu landsins. Þetta er spor í rjetta átt, en áður hefi jeg bent á, að helst ætti hver einasti kensludagur í skólunum að vera fánadagur. Hugmyndin um einn sjerstakan fánadag á ári er góð, en betra væri, ef fánadögunum yrði fjölgað í að minsta kosti einn dag í hverjum mánuði í skólum landsins. Fánamálið er ekkert hjegóma- mál. Það er þvert á móti mikið þjóðernislegt atriði. Væri vel, ef fleiri fjelög færu að dæmi þeirra, sem þegar hafa látið málið til sín taka og örfuðu fjelaga sína til að virða fána þjóðarinnar og auka á virðulega meðferð hans. • „Spik-jetandi Eskimóar". „HANN BJÓST VIÐ að sjá spikjetandi Eskimóa, sem byggju í snjóhúsum, - en þetta var það, sem hann sá í Reykjavík, sjeð frá Tjörninni“. Þetta er undir- skrift undir mynd af Reykjavík- urtjörn og umhverfi, sem birtist nýlega í enska blaðinu „Nort- hampton Independent“. Síðan birtir blaðið gráin frá manni, sem heitir Baily. Hann var blaðamaður fyrir stríð, en er nú í breska hernum á Islandi, i eftir því, sem blað þetta segir. í greinni segir svo frá þeim á- hrifum, sem þessi breski blaða- maður varð fyrir, er hann kom til Islands. Hann sá enga Eski- móa og gengur greinin út á undr un hans yfir því. Gróðurlítið finst honum hjer á landi og seg- ir að það sje ekki nema helst umhverfis Akureyri, sem sjest stingandi strá á öllu landinu. Það birtast ávalt við og við greinar eins og þessi í erlend um blöðum, skrifaðar af her- mönnum, sem hjer hafa dvalið í lengri e'ða skemri tíma. Það er hrein unúaptÍkning, ef grein- ar eftir hermenn, sem hjer hafa dvalið, gefa rjetta mynd af land- inu. Enda er varla við því að bú- ast, því hermenn hafa mjög tak- markaðan aðgang að rjettum upplýsingum um land og ])jóð. © meðal Landkynning Iicrmanna. : ÞAÐ VAR einu sinni rætt um, að heppilegt væri að hafa eins- konar landkynning meðal er- lendra hermanna, er hjer dvelja. Ur þessu hefir ekkert orðið fyrir framtak íslendinga sjálfra, en stjórn setuliðs Bandaríkjanna hefir hinsvegar tekið það upp hjá sjálfri sjer, að fræða her- menn sína nokkuð um land og þjóð. Hefir Valdimar Björnson sjóliðsforingi unnið ómetanlegt starf með því, að halda fyrir- lestra fyrir hermenn um Island og Islendinga. Hefir hann þegar haldið fyrirlestra fyrir þúsundir hermanna. Það er ekki nokkur ( va/i á, að mikil þörf er fyrir land kynningu meðal erlendra her- manna hjer á landi. Slík land- kynning gæti síðar komið að gagni og komið í veg fyrir margs konar missagnir og leiðindi, sem af því stafar, að hermenn, sem hingað koma fá ekki rjettar upp- lýsingar um land og þjóð. En hingað til hefir það ekki tekist að vekja stjórnarvöld landsins í landkynningarmálunum og ham ingjan má vita, hvort það tekst nokkurntíma. Lá við slysi. ÞAÐ LÁ VIÐ slysi í Vallar- stræti í gærmorgun. Ferðamaður frá Siglufirði, sem kom með Súð- inni hafði fengið herbergi á Hó- tel Vík. Er hann var að flytja farangurinn inn í gistihúsið og gekk með töskur sínar eftir Vallarstrætinu, meðfram bruna- rústunum af Hótel ísland. Kom alt í einu snörp' vindkviða og feykti stærðar fleka úr bruna- rústunum út á götuna. — Ferðamaðurinn gat með naum- indum skotið sjer undan flekan- um, en ekki er nokkur vafi á, maðurinn hefði slasast, ef flek- inn hefði lent á honum. Það er búið að hreinsa til á gangstjettunum umbverfis bruna rústirnar, en öllu brakinu var hent inn í rústirnar. í hvassviðr- inu i gær kom á daginn það, sem spáð var hjer í dálkunum á dög- unum, að hætta væri á ferðum meðan rústirnar eru látnar vera eins og þær eru. Sóðaskapurinn. En svo er það sóðaskapur- inn. Hálfbrunnin pappír þyrlað- ist úr rústunum um allar nær- liggjandi götur í gær og spítna- rusl og bárujárn þeyttist til og frá. Dyraumbúnaður Vöruhúss-* ins, sem, eins og kunnugt er, stóð eftir, var rifinn niður í gærmorg un. Hafði einhver framtakssam- ur maður gert það, en svo var orðið ástatt með þenna dyraum- búnað, að hann sveigðist til fram og aftur í veðrinu í gær og staf- aði hætta af honum fyrir íólk á götunni. Það ber ekkert á því enn, að hreinsa eigi til í rústunum, en það verður hin mesta bæjar- skömm að þeim, þar til þær eru horfnar. Nýlega hefir verið lagt fram frumvarp að brunamálareglu- gerð fyrir Reykjavík. Þar er ekki getið um, hvernig fara skuli með brunarústir, Væri ekki van- þörf á því, að ákveðið yrði í þeirri reglugerð, hverjum beri að hreinsa til á brunastað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.