Morgunblaðið - 15.02.1944, Page 1
31. árgangur.
35. tbl. — Þriðjudagur 15. febrúar 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
2 Eyjabáiar með 9 mönnum fórust
Enn vantar Óðinn
frá Gerðum
Eru Þjóiverjar
að htigia um
að yfirgefa
Noreg!
ÝMSAR FREGNIR, sem bor-
ist hafa undanfarna daga^frá
Noregi, þykja benda í þá átt,
að vel geti svo farið, að Þjóð-
yerjar yfirgefi Noreg. Síðustu
aðgerðir Þjóðverja og ofsóknir
. á hendur borgurunum eru tald-
ar geta staðið í sambandi við
friðarumleitanir Finna og komu
hinna finsku stjórnmálamanna
t'il Stokkhólms.
Á dögunum komu 500 Gesta-
pomenn til Noregs og um leið
hófust fjölda handtökur víðs-
vegar um landi, en mestar voru
handtökurnar í Oslo, Bergen,
Þrándheimi og ýmsum hafnar-
bæjum. Þjóðverjar láta í veðri
vaka, að handtökurnar í Noi'egi
s'tandi i sambandi við ieyni-
tílöðin í Noregi, en margir segja
áð það sje aðeins yfirskin. Ætl-
án Þjóðverja sje að gera eina
tilraunina enn til að brjóta á
bak aftur alla mótspyrnu Norð
manna. Um leið berast fregnir
um, að Þjóðverjar hafi í hyggju
að fá Quisling víðtækari völd.
Hafi þetta verið ákveðið á fundi
Terbovens, Hitlers og Quislings,
sem þeir fjelagar áttu með sjer
siðari hluta janúarmánaðar.
Falkenhorst hershöfðingi, yf-
ipnaður þýska hersins í Noregi
er um þessar mundir staddur
í Norður-Noregi. Er rætt um
ferðalag hans þangað sem einn
þátt í undirbúningi Þjóðverja
til að flytja herlið sitt frá Nor-
egi.
(Samkvæmt fregn frá norska
blaðafulltrúanum).
Var hrint nidur sliga
NÝLEGA kvað sakadómari
upp dóm yfir manni, að nafni
Olafur Kristjánsson, fyrir að
hrinda öðrum niður stiga, með
þeim afleiðingum, að í honum
brotnuðu rif, auk smærri
meiðsla.
Ólafur þessi, sem ekki er
stúdent, slapp eftir einhverjum
óþektum leiðum inn á áramóta
dansleik .stúdenta í anddyri
Háskólans. Á dansleiknum
hrinti hann manni nokkrum
niður stiga og hlaut sá við það
meiðsl þau, sem fyrr getur.
Ólafur hlaut 30 daga fang-
elsi og var gert að greiða manni
þeim, er fyrir meiðslunum varð,
1500 krónur í skaðabætur.
Arvid Fredborg, höfundur.
bókarinnar ,.Bak við stál-
vegginn“..
Greinaflokkur um
innanlandsáslandíð
í Þýsbalandi
A 7. SÍÐU í blaðinu í dag
liirtist fyrsta grein í 5 daga
greinarflokki um innanlándsá-
standið í Þýskalandi. Eru
greinar þessar útdráttui- úr
nýjustu bókinni um Þýska-
land, sem er nýlega komin út.
í Svíþjóð, Bretlandi og Banda-
ríkjunum. Ilöfundur bókarinn-
ar, sem heitir „Bak við stál-
vegginn", er ungur sænskur
blaðamaður, Arvid Fredborg,
sem var frjettaritari fyrir
Svenska Dagbladet í Berlíti
árin 1941—1943. ITefir bók
]tessi fengið góða dóma og;
þykir hin merkasta.
Bretar missa kafbát.
Breska flotamálaráðuneytið til-
kynnir í dag, að breski kafbát-
urinn Seamoon hafi veriv alt of
lengi í leiðangri, og verði því
að telja hann af.
Himler ræðir
við borgarstjóra
London í gærkveldi. — Þýska
frjettastofan hefir þá fregn að
færa í dag, að Himler, innan-
ríkisráðherra hafi fyrir Skömu
síðan efnt til mikillar ráð-
stefnu, þar sem allir borgar-
stjórar í stærstu borgum Þýska
lands, lögreglustjórar og S. S.-
foringjar komu saman. Til-
kynnt hefir verið, að rætt hafi
verið -um öryggismál, en ekki
hafa verið gef nar út frekari til-
kynningar um það, sem fram
fór á ráðstefnu þessari.
— Reuter.
iðri í Banda-
ríkjunum
Mikil hríðarveður og kuldar
hafa gengið víða um Bandarík-
in undanfarna viku, einkum í
Miðvesturfylkjunum svoköll-
uðu og urðu 9 manns úti. Þá
er álitið, veðurofsinn hafi orð-
ið sex manns að bana i New
York, en þar fjell 7 þumlunga
djúpur snjór, en 10 þuml. í
Boston. Annarsstaðar var snjór
inn frá 3—12 þumlurigar að
dýpt.
Samgöngutæki
löskuð.
London í gærkveldi. — Ame-
rískar flugvjelar hafa gert
miklar árásir á samgönguleiðir
Japana í Norður-Burrria og
valdið miklum spjöllum á járn-
brautum og járnbrautarvögn-
um. Voru árásir þessar gerðar
á tveggja ára afmæli ameríska
flughersins í Burma.
— Reuter.
VESTMANNAEYJABÁTARNIR tveir, sem vantaði á laug-
ardagskvöld úr ofsaveðrinu, eru taldir af og með þeim hafa
farist 9 manns. Hefir þegar rekið úr öðrum bátnum á Landeyj-
arfjörum. Þá er óttast um vjelbátinn Óðinn frá Gerðum, sem
ekkert hefir til spurst síðan á laugardag. Á honum voru fimm
menn. Það er því óttast að alls hafi 15 sjómenn druknað í laug-
ardagsveðrinu og fimm bátar farist.
Fólk fluft frá
Suður-Frakklandi
London í gærkveldi.
Vichystjórnin hefir tilkynnt,
að fólk yrði flutt á brott úr
ýmsum strandhjeruðum Suður-
Frakklands, og er sagt, að víg-
girða eigi þessi svæði, enn frek-
ar en orðið er, og' þýskar her-
sveitir taki sjer varðstöðu á
allri Miðjarðarhafsströnd
Frakklands. Er svo sagt, að
þetta sje gert ,,af hernaðarnauð
syn“. — Reuter.
Árásir á flugvelli
London í gærkveldi.
Flugvjelar frá Bretlandi rjeð
ust að flugvöllum í Hollandi í
dag, og voru það Thunderbolt-
flugvjelar, er þá árás gerðu.
Aðrar flugvjelar rjeðust að
vanda á hernaðarstöðvar í Norð
ur-Frakklandi. Voru margar
ferðir farnar í þeim tilgangi,
en veður var óvenjulega gott
yfir Ermarsundi. Fjórar flug-
vjelar komu ekki aftur.
— Reuter.
Rússar beina sókn að Pskov
Londón í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
í herstjórnartilkynningu
Rússa ségir, að herir þeirra
sæki nú fram frá borginni
Luga, sem tilkynt var í gær
að tekin hefði verið, og væri
nú herjunum stefnt í átt til
Pskov, en það er mikil bæki-
stöð Þjóðverja suðaustur af
Peipusvatni. — Þjóðverjar
segja að þeir hafi nú vfir-
gefið Luga og hörfað nokk-
uð á þessum slóðum, til þess
að rjetta víglínuna.
Korsun tekin.
Þá er tilkynt að Rússar
hafi tekið bæinn Korsun, en
hann er sagður hafa verið
aðalstöð hins innikróaða liðs
í Ukrainu. Segja Rússar enn
fremur, að þeir verjist hörð-
um árásum Þjóðverja að
vestan, til þess að reyna að
koma hinu innikróaða liði
sínu til hjálpar. Þjóðverjar
segja sjálfir bæði frá varn-
ar- og sóknarorustum á þess
um slóðum og kveðast hafa
eyðilagt þar 127 rússneska
skriðdreka í gær í heiftugum
viðureignum. Viðurkenna
Rússar að Þjóðverjum hafi
tekist að reka fleyg nokk-
urn inn í varnir þeirra
þarna.
Rússar segja að Þjóðverj-
ar beiti miklum fjölda skrið
dreka til þess að reyna að
brjótast inn til hins inni-
króaða liðs, og sendi enn-
fremur stöðugt flutninga-
flugvjelar með birgðir. Voru
ýmsar þeirra skotnar niður.
Aðrar vígsíöðvar.
Á öðruni vígstöðvum seg'ja
Rússar frá framvarðaskær-
um og stórskotahríð, en
Þjóðverjar kveða áhlaup
Rússa fvrir vestan Nevel
hafa minkað, og ennfremur
að þau hafi hætt á svæðinu
milli Pripet og Beresina.
Ennfremur greina Þjóðverj
ar frá því, að bardagar hafi
harðnað að mun á Narva-
svæðinu. — Þá segjast Þjóð
verjar hafa sökt 8 rússnesk-
um liðflutningaferjum við
Kerchtanga.
Veiðaíæratjón báta er gríðar
lega mikið og er ekki enn sjeð
áhrif það tjón kann að hafa á
alla útgerð hjer sunnanlands á
vertíðinni. Nokkrir bátar
reyndu að fara út á sunnudag
til að bjarga lóðum sínum, en
það bar lítill árangur.
Auk þeirra báta, sem farist
hafa, hafa nokkrir laskast og
tvo báta rak á land í Keflavík
í gærmorgun.
Vestmanaeyjabátarnir.
Vestmannaeyjabátarnir tveir.
sem fórust í óve'ðrinu á laug-
ardag, voru Njörður V. E. 220,
15 smálestir, með fjögra manna
áhöfn og Freyr, V. E. 98, 14
smálestir, með fimm manna á-
höfn. Báðir bátarnir voru eign
Fram h.f.
Njörður lagði lóðir sínar vest
ur frá Einidranga og sást það
síðast til bátsins, að hann lagði
af stað heimleiðis um hádegi á
laugardag. Bjarghring hefir
rekið úr Nirði hjá Bakka á
Landeyjarfjörum.
Freyr lagði sínar lóðir norð-
vestur af Einidranga, ásamt
öðrum báti. Hefir ekkert spurst
til Freys síðan á laugardags-
morgun.
Einum Vestmannaeyjabáti
hlektist á. Var það Isleifur, sem
er stærri en bátarnir, sem .fór-
ust. Reið mikill sjór yfir bátinn
og skolaði öllu lauslegu af þilj-
um. Munaði litlu að báturirm
færist. Sjómenn í Vestmanna-
eyjum telja laugardagsveðrið
eitthvert versta sjóveður, sem
Vestmannaeyjabátar hafa lent
í lengi.
ÞEIR, SEM FÓRUST.
Á Norði voru þessir menn:
Guðni Jónsson, Vegamótum
í Vestmannaeyjum, formaður,
fæddur 6. júní 1903. Kvæntur
og átti 4 ung börn, það elsta
11 ára.
Jóhannes Þorsteinsson, vjel-
stjóri, Vöðlum, Önundarfirði,
fæddur 28. sept. 1889. Ókvænt-
ur.
Björn Jóhannsson, háseti,
Norðurgötu 11, Siglufirði. Mað-
ur á þrítugsaldri.
Ilannes Kr. Björnsson, háseti,
Leynimýri, Reykjavík, fæddur
25. maí 19-18. Ókvæntur.
Framh. á bls. 2.