Morgunblaðið - 16.02.1944, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.02.1944, Qupperneq 8
c MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudag-ur 16. febrúar 1944 Önóg siglingarmerki Attræður: Pjetur Þórðarson í Hjörsey !l Framh. af bls. fimm. jtryggja sem best öryggi skips- f ins og afkomu sjómannanrla. | Stækkun lestarínnar. Það eru sjöundu rök, „að lestin hafi verið stækkuð, er vjel og ketill var tekið burt“. Jeg fæ nú ekki skilið, að það raski á nokkurn hátt sjóhæfni ; skipsins, þótt ketill, sem jafn- an var fullur af vatni, sje tek- inn út og álíka stórir olíugeym- ar fullir af olíu settir í staðinn, eða þá að rúm, sem áður var notað fyrir kol, sje notað fyr- ir sama þunga af fiski. En þetta er það eina, sem hjer hefir gerst. Stórkostlegur leki tvisvar — kemst nauðuiega til lands. , Það eru áttundu rök, „að stórkostlegur leki hafi tvisvar komið að skipinu, og að það hafi í bæði skiftin komist nauðulega að landi“. Þessi ummæli eru sett í beint samband við breytingu skips- ins, og verða eigi skilín á ann- an hátt, en að það eftir breyt- inguna hafi ekki verið nægi- lega traust til að mæta mis- jöfnum veðrum, enda mjög á takmörkum, að það næði landi. Það vill nú svo vel til, að fyrir hendi eru undirritaðir dagbókarútdrættir af þáver- andi skipstjóra skipsins, Elíasi Guðmundssyni yfir bæði þessi atvik. I þeim fyrri segir svo: „Fimtudaginn 2. apríl 1942. : Skipið statt á Atlantshafi 400 sm. NNV frá Barra Head á leið frá Englandi til íslands, vindur SA 11—12 vindstig og mikill sjór. Kl. 3 f. h. er veð- urofsinn orðinn það mikill, að skipinu er snúið upp í vind og andæft, margir brotsjóar ganga yfir skipið og ýmislegt fe'r úr skorðum, mikils leka verður vart um 6 leytið f. h. á skipinu að aftanverðu, einnig virtist keisinn hafa losnað við þilfarið s. b. og b. b. megin og lak mikið niður“. 2 Síðan er talið upp ýmislegt, sem tapast hefir og brotnað ofanþilja, svo sem björgunar- hringir, fleki, skjólborð, hraða mælir, áttavitar, björgunarbát ar o. fl., því næst endar útdrátt urinn þannig: „Kl. 12 á hádegi lægir veðrið og er farið af stað með hægri ferð. Kl. 5 e. h. er vindur orðinn ANA 10, og er þá snúið upp í vind og and- æft“. Nú vil jeg spyrja bæði Þor- varð Björnsson og hvern ann- an, sem eitthvað vit hefir á þessum málum, hvort þessi skýra lýsing af baráttu skips- ins við fárviðri og brotsjói, sem yfir það gengur klukkutímun- um saman þrotlaust í miðju Atlantshafi, sje ekki einmitt öruggasta sönnun þess, hversu óvenjulega traust og gott sjó- skip „Þormóður“ hefir verið, eftir að því var breytt eins og framan getur? Þekkir hann engin dæmi þess, að stærri og meiri skip hafa orðið ver úti í slíku hafróti? Hefir hann gleymt togurunum, sem fórust á Halanum í febr. 1925, eða hinum, sem náðu landi úr því veðri meira og minna sundur- tættir, með brotin möstur, stýri, yfirbyggingar o. m. fl. Eða Skallagrími, þegar hann fjekk áfallið í Faxaflóa í líku veðri og ekki mátti á milli sjá í langan tíma, hvort betur mætti sín líf eða dauði? Eða togurunum Ólafi og Apríl, sem hvorugur kom aftur? Eða b.v. Hilmir, þegar aldan kastaði honum niður á hafflötinn, svo allar rúður brotnuðu í stýrishús inu, fyllti það frá hjeborða og sogaði út stýrimanninn. Sama alda lagði saman mest alla yf- irbyggingu skipsins eins . og pappaöskju og vafði upp gálga og bör eins og snærisspotta? Hefir Þorvarður virkilega gleymt öllum þessum sorglegu slysum og mörgum öðrum? Gleymt öllum þeim ógnum, sem sjómenn hafa á öllum tím- um átt við að stríða? En öll þessi áföll skeðu áður en far- ið var að breyta skipunum, brynverja þau, stækka lestar, skifta um vjelar eða að fundið hafði verið upp á umtali um ofhleðslu. Jeg hygg, að það sjeu engin sterkari gögn til, er hrekja alt það, sem sagt hefir verið um ósjóhæfni „Þormóðs", en einmitt þessi sanna lýsing skipstjórans um átökin við fyr- nefnt fárviðri. Frh. Gf Loftur jfetur bað ekld — bá hver? ÁTTRÆÐUR er í dag.bænda öldungurinn Pjétuf Þórðarson, fyrvernadi alþingismaður og’ bóndi í Iíjörsey á Mýrum. Pjetur er fæddur 16. febr. 1864 í Fornaseli á Mýrum. Yoru foreldrar hans ÞórðUr Benediktsson bóndi þar og kona hans Ingigerður Þorbergs dóttir, bónda í Ferjukoti, ÓlafS sonar. Eftir fenningaraldur var Pjetur vinnu- og lausamaður til ársins 1890 að hann byrjaði búskap. Á þciin árum iærði hann söðlasmíði og stundaði hann þá iðn nokkuð, ásamt búskapnum, lengi síðan. Pjetur giftist árið 1888 Sal- óme Jónatansdóttur bónda í Jljörsey, Salómonssonar. Reistu þau bú tveimur árum síðar í Leirulækjarseii og bjuggu þar í þrjú ár, en fluttu þá í Iljörs- ey á æskustöðvar Salóme konu lians og hafa búið þar síðan. Iljörsey er stór jörð og mörg Um kostum búin. I’lógur er þar aUmikill, dún- og kofnatekja og selveiði nokkur. Erfitt er og fyrirhafnarsamt að nytja þessi gæði. Jljörsey er, eins og nafnið bendir til, umflotin sjó, en um stórstraumsfjöru er þó jafnaðarlega hægt að kom- 1 ast þurrum fótum út í eyna. . Gfaslendi er mikið á eynni, enda verið Iengst af rekinn þar stórbúskapur, og vár þar um eitt skeið þríbýli. En erf- iður er búskapur, þar sem |svo hagar til, og árvekni mik- jillar og forsjár krefst fjár- gæslan, en kjarn- og safa- jmikið gras, sem sprettur upp af fugladriti í sjávarloftinu, launar þá umhyggju og fyrir- höfn ríkulega í gagnsemi bú- peningsins. Á þessum stað og við þessi skilyrði, hefir Pjetur búið í hálfa öld með dugnaði og myndarbrag. En æfistarfi Pjeturs er ekki jnema að nokkru lýst þó getið sje búskapar hans í meira en fimm áratugi. Allan þennan tíma hefir Pjetur verið oddviti og for- istúmaðUr sveitar sinnar í op- inberum störfum og fjelags- málum öllum. Þannig hefir hann um fimm- tíu ára skeið verið hreppstjóri, í hreppsnefnd hefir hann verið jafnlengi og lengst af oddviti, og sýslunefndarmaður. 1 yfir- skattanefnd hefir hann verið lengi. Þá hefir hann og mikið' komið við sögu kaupfjelags-i starfsemi hjeraðsins, og ver- ið deildarstjóri í hreppi sín- um. Sýnir þetta best traust það' er hreppsbúar hans hafa borið, til hans, að hafa kjörið hann’ til oddvita um öll þessi mikils- verðu mál, þrátt fyrir það, þó hánn hafi allan þennaif túna alið alur sinn í afskektri ey og umflotinni. Pjetur í Hjörsey, yar kosinn á þing 1916 og átti hann þan sæti ósiitið til ársns 1927. Pjetur er góðum gáfum gæddur, gætinn og gjörhug- ull og rasar í engu fyrir ráðj fram. Tókst Pjetri á yngri1 árum að afla sjer á eigin- spítur, staðgóðrar mentunar. Reikningsmaður er hann ágæt- ur. Pjetur er maður skoðaua- fastur, athugar hann hvert mál vel og vendilega áður cn hann kveður upp úr um álit sitt, og málflutningur annara verður aldrei þess valdandi að liann vánmeti sitt eigið hyggjuvit, þótt, vel kunni hann að meta það, sem af skynsemd óg heil- um hug, er til mála lagt af öðrurn. Pjetur er maður til- lagna góður og kostar kapps um það, að leysa hvers manns vanda, enda hefir öll þessi ár eigi þótt heima þár ráðum ráðið um hrepps- og fjelags- mál, nema áður hafi verið til hans leitað. Pjetur er maður mjög vin- sæll, gestrisinn og góður heim, að sækja. Tlann er hraust- menni mikið, saman rekinn og afrendur að afli. 1 dag dvelja þau Pjetur ogi kona hans á Ilrafnkellsstöðum, í Ilraunhréppi hjá Guðbrandij Sigurðssyni bónda þar, sem hefir í tugi ára verið samstarfs máður Pjeturs í hjeraði. Vinir og kunningjar Pjeturs munu, við þetta ‘ tækifæri, senda honum og hinni ágætu konu hans, hugheilar árnaðar- óskir. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU Bakvið stálvegginn Framh. af bls. 7. „þessi óþrifna þjóð“ og „við munum berja skipanirnar inn í hausana á ykkur“, mátti sjá menn grípa fast um borðbrúnirnar til þess að reyna að hafa stjórn á sjer. Síðar bað yfirþjónninn mig afsökunar á þessum atburði. „Þjer vitið hvern- ig þeir eru“, bætti hann við til skýringar. „Því er það, sem allir elska þá“. Það vildi svo til, að jeg var í Vín, þegar tilkynning- in barst um það, að stór- verslununum yrði brátt lokað. Birgðir smærri versl ana voru skjótt etnar upp. Austurríkismenn og útlend ingar fengu það, sem þar var að hafa, en Þjóðverjum var sant, að allt væri upp- selt. Kaupmennirnir gerðu sjer varla það ómak að setja upp kaupmannssvip. Þeir ljetust einungis skilja Vínarmállýsku, glevmdu að afgreiða þýska viðskifta- menn eða báru fram ein- hvern ómerkilegan varning og sögðu með sakleysissvip, að þetta væri eitthvað „sjer staklega fínt, búið til í Ber- lín“. í Vín logar allt af andúð gegn Hitler. Austurríkis- menn virðast hafa gleymt því, að margir þeirra buðu sömu Þjóðverja velkomna þann 13. mars 1938. Á síð- astliðinum fimm árum hafa Austurríkismenn af öllum stjettum haft samband við Þjóðverja af öllum stjettum og árangurinn er þungt á- fall fyrir þær vonir Þjóð- verja að geta varðveitt stórt og sameinað ríki. Jeg snei’i aftur til Berlínar með þá sterku sannfæringu, að Vín væri „þriðja ríkinu“ al- gerlega töpuð. Kauphöllin er miSstöð verðbrjefa- viðskiftanna. Sími 1710. 4ft0m je* hríli með (leraufom frá COULDN'T HAVE JUMPED | THia vjall, x-9 —rr'& _J CDOFD ivrrn epOKBis! H . ^ (SLA OO. ^ _ DCN'T for&et, ALEX V.'AD AN ’ acrobat'. LET ASE eET UP ON youp SHOULDERS >« 1941. Kmg Ft-afUfCf Syndiuir. Inc. VC'otld nghts rcscrvcd Alex: — Jeg skar mig á höndum við að klifra yf- ir vegginn með glermulningnum. Jeg vona bara, að enginn hafi sjeð til mín. Bílstjórinn: — Jeg segi yður satt, að jeg skildi hann eftir hjer við bílinn á meðan jeg fór að vita hvort fólkið væri heima. X—9: — Þá getur hann ekki verið kominn langt í burtu. Það kemur ekki til, að hann hafi getað klifrað yfir garðinn hjer, X—9, því að það eru gler- brot á honum. \ ■— Við skulum ekki gleyma, að Alex var fim- leikamaður. — Láttu mig klifra upp á herðarnar á þjer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.