Morgunblaðið - 22.02.1944, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.02.1944, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLA ÐIÐ l»riðju«iagur 22. febrúar 1344 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Frarnkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Trjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriítargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlanda, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura meO Lesbók. Sæluríki kommúnista „VJER ERUM reiðubúnir að taka öll meiriháttar at- vinnufyrirtæki í vorar heridur og reka þau á þann hátt, að allir íslendingar verði trygðir gegn atvinnuleysi og atvinnuvegimir beri sig--“. Þannig hljóðuðu hin hreystulegu orð kommúnista í stjórn Dagsbrúnar í brjefi til atvinnurekenda á dög- unum. Ekki gátu kommúnistar þess, hvaða aðferðir þeir ætl- uðu að hafa við rekstur atvinnufyrirtækjanna, til þess að ná hinu glæsta takmarki. En þess þurfti ekki með. Að- ferðin er kunn. Og hún er ofur einföld. Hún er í því íólgin, að verkamenn fá kaup, er miðast við sannvirði vinnunnar á hverjum tíma, þeirrar vinnu, sem atvinnu- tækin geta staðið undir. Þeir fá ekki eyri fram yfir. Um hitt er ekki 'spurt, hvort verkamaðurinn fái lífvænleg kjör af því, sem hann ber úr býtum fyrir vinnu sína. Fái hann það ekki, þýðir ekki fyrir hann að mögla eða gera kröfur. Þeim verður ekki að neinu leyti sint. Ef verka- maðurinn skyldi samt neyðast til að fara fram á bætt kjör, færi hann refsivöndinn yfir sig — hann myndi miskunnarlaust rekinn í þrælkunarvinnu eða lokaður inni í fangabúðum. Með þessum hætti mætti vafalaust ,,tryggja“ íslenska verkamenn gegn atvinnuleysi. Hitt er annað mál, hvort íslenskir verkamenn vildu á þann hátt gerast auðsveipnir þrælar kommúnista. Þeir myndu áreiðanlega heldur kjósa hina leiðina, að atvinnu- vegir landsmanna yrði efldir og styrktir svo, að þeir yrðu þess megnugir að veita fólkinu lífvænleg kjör. En þetta mega kommúnistar ekki heyra nefnt. Ekkert er þeim eins illa við og það, að atvinnuvegirnir geti boð- ið verkamönnum lífvænleg kjör. Þessvégna leggja þeir höfuðáherslu á, að grafa allar stoðir undan atvinnuveg- unum, treystandi á, að það sje leiðin inn í sæluríkið. Alm ennin gsáli tíð ÞAÐ HEFIR OFT áður verið gert að umtalsefni hjer í blaðinu, hversu miður sje farið um þroska og virðuleik stjórnmálastarfseminnar hjer á landi, og þá einkum í þeim ekkert við. Hjer skal enginn samanburður gerður á okkur og öðr- um þjóðum í þessu efni. Er augljóst mál, að víðar er pott- ur brotinn, en í því er takmörkuð fróun fyrir okkur eða afsökun. Hitt er líka víst, að um margt gætum við leitað fordæmis til annara. Aðalatriðið er, að hjá þjóðinni sjálfri skapist aukinn skilningur og áhugi á þörf til umbóta. Eins og sakir standa felst í því yfirvofandi hætta fyrir framtíðar stjórnmála- þroska í landinu, að vont versni stöðugt vegna þess, hversu kæruleysi manna og sinnuleysi er orðið alment, þótt upp úr sjóði, sennilega vegna allsráðandi hugsun- arháttar um það, að þegar pólitík sje annars vegar, sje ekki úr svo háum söðli að detta, að nokkurn þurfi í þeim efnum að saka, þótt undir honum snarist. Almenningsálitið -getur mestu áorkað til góðs eða ills í þessum efnum. Þegar saman fer stórhuga og víðsýn við- leitni forustumanna á stjórnmálasviðinu til þess að ryðja úr vegi ásteytingarsteinum í opinberu lífi þjóðarinnar, og vakandi gagnrýni og áhugi almennings til þess að skilja á milli þess, sem vel er gert og hins, sem miður fer, þá fyrst er líklegt, að úr rætist og þjóðin sje á leið upp á við. íslensku þjóðarinnar bíður mikið verkefni, að hefja til vegs þroskaða, víðsýna og rjettsýna stjórnmálastarfsemi í landinu. Hver einstaklingur, sem tekur af nokkrum á- huga þátt í einhverskonar fjelagsstarfsemi, hversu miklu máli skiftir, að fjelaginu sje vel stjórnað. Sama er um sjálft þjóðfjelagið. En þar fæst litlu um þokað, ef menn alment hugsa og hafa sjer eins og þjóðfjelagsmálin komi þeim ekkert við. Guðrún Ingjalds- dóttir 80 ára. EIN af mætustu og merk- ustu konum í Garði í Gull- bringusýslu, Guðrún Ingjalds- dóttir á áttræðisafmæli 1 dag, Hún er fædd 22. febr. 1864 á Kolbeinsstöðum í Útskálasókn og voru foreldrar hennar Ingj- aldur bóndi Tómasson og Guð- rún Sigurðardóttir kona hans. Olst hún upp hjá foreldrum sínum, en fór um tvítugsaldur í vist til Þorsteins Sigurðsson- ar og Guðrúnar Þórarinsdótt- ur, merkra hjóna í Gerðum og giftist fáum árum síðar fóstur- syni þeirra Árna Árnasyni. — Reistu þau bú í Hrúðurnesi í Leiru og bjuggu þar í 3 ár. Þá fluttu þau aftur að Gerðum og tóku við jörð og búi af fóst- urmóður hans, sem þá var orð- in ekkja og bjuggu þar síðan allan búskap sinn. Árni var úr- valsmaður að mannkostum og atorku, heppinn og aflasæll for maður og búskapur þeirra all- ur hinn farsælasti. Nutu þau bæði trausts og virðingar sveit unga sinna og honum falin ýms trúnaðarstörf.Þar á meðal varð hann símastjóri í Gerðum þeg- ar er síminn kom þangað árið 1908, og var það til dauða- dags. Andlát hans bar að á þann hátt, að hann varð fyrir meiðsli 18. júlí 1910, og lá upp frá því rúmfastur í Landakots sjúkrahúsi og andaðist sama mánaðardag 18. júlí ári síðar, harmdauði öllum ástvinum og sveitungum. Harm sinn bar Guðrún með miklu þreki og hjelt áfram bú- skap með sama sniði. — Þeim hjónum hafði orðið 3 sona auð ið. Voru þeir Þorsteinn, er þá var kvæntur og farinn að búa, er faðir hans fjell frá, nú bú- settur trjesmiður í Keflavík, annar Sveinn, er síðar tók við búi móður sinnar og hinn þriðji Kristinn, þá aðeins 5 ára, nú skipstjóri, búándi í Gerðum. Eftir lát manns síns hjelt Guð- rún. sjálf áfram símstjórastarf- inu og af mikill trúmensku, þótt starfið færi vaxandi, og mjer mun óhætt að segja við mikið traust yfirboðara sinna, en ljet af því fyrir aldurs sak- ir fyrir hjerumbil 5 árum. Guðrún er enn hin ernasta og heldur eigið hús í skjóli Sveins sonar síns, sem áður getur. Hún hefir, sem áður er á minst, í hvívetna verið hin merkasta kona, samvalin manni sínum að mannkostum og atorku, hjálpsöm og greið- vikin og jafnan búin til þátt- töku í hverju góðu verki og af j öllum vinsæl og virt. — M. a. I unnu þau hjón mikið og j gott starf fyrir Góðtemplara-1 regluna í Garðinum og í kven- ! fjelagi þar mun hún hafa átt i góðan þátt, þótt mjer sje það ekki að fullu kunnugt. Jeg lýk svo þessum fáu orð- um og flyt henni hinar hug- heilustu árnaðarkveðjur frá' vinum og sveitungum á þess- j um tímamótum og bæti þar vio eigin kveðju minni með miklu , þakklæti fyrir trygð og vin- ! áttu þeirra hjóna mjey á sínum tíma auðsýnda. Megi ævikvöid ið verða henni heiðríkt og bjart. Kristinn Daníelsson. \Jihverji slzri^e ar: bjr dciqíe Það, sem nágrannariiir „ (Va Smásaga frá hernámi I íslands. sáu. ÞAÐ eru senn 4 ár liðin síðan J ÞESSI FRÁSÖGN kernur herm Island var hernumið, en þó hcfir við það, sem margir nágrannar enn ekki verið sagt opinberlega ræðismannsins sáu hernámsnótt- frá ýmsu, sem nokkru máli skipt, ina. Þegar heyrðist í flugvjel ir i því sambandi. Nokkrir er- yfir bænum vöknuðu margír. lendir blaðamenn hafa fullyrt, að Nágrannar Gerlachs sáu, að mað- það hafi ekki munað miklu, að ur í svartri regnkápu kom hlaup- Þjóðverjar væru á undan Bret- um að hernema landið. Senni- lega verður öll saga hernáms- ins ekki sögð fyr en eftir strið. Mun þá margt koma í ljós, sem menn vissu ekki áður og það er jeg viss um, að margur mun verða undrandi, þegar hann heyr ir hernámssöguna eins og hún var. Þegar Gerlach var handteliinn. NÝLEGA er komið út í Lond- andi og barði hjá Gerlaóh. Skömmu síðar kom hann sjálfur út og ók í bíl sínum með svart- klædda manninum. Rjett áður, en hermennirnir komu að ræð- ismannsbústaðnum kom Ger- lach aftur heim og nokkru síðar sást eldbjarmi í baðherbérginu. Falin skammbyssa. SKÝRSLAN um handtöku Gerlachs heldur áfram á þessa leið: „Gerlach ræðismaður bað um að fá að sækja yfirfrakka on rit um landgöngusveitir sinn, sem hjekk í fatageymslunni. breska flotans (The Royal Mari- Major Cutler fylgdi honum. nes). í þessu riti er sagt frá ým- j ,.Er ræðismaðurinn rjetti islegu, sem á daga landgöngu- hendina eftir frakkanum ætlaði liðins hefir drifið í þessari styrj-'hann að fara með hendina í öld. Þar á meðal er sagan af því, j vinstri frakkavasann. Major er landgönguliðið gekk á land í Reykjavík þann 10. maí 1940 og handtók þýska ræðismanninn hjer. Dr. Werner Gerlach. Um Gerlach var það vitað, að hann var háttsettur í þýska naz- istaflokknum og mörgum þótti einkennilegt, að hann skyldi vera sendur til Islands, því mönnum var þá ekki alment ljóst, að landið hefði mikla pólitíska og hernaðarlega þýðingu, eins og síð ar hefir komið á daginn. Gerlach var svo duglegur áróðursmaður, að Svisslendingar neyddust til að biðja hann að fara úr landi, er hann dvaldi í Bern. En það var handtaka hans hjer, sem jeg ætlaði að segja frá, sam- kvæmt heimildum í fyrgreindu riti. Það var major nokkur — S. G. Cutler, — sem fjekk fyrir- skipun um að handtaka ræðis- mánninn. Hann tók með sjer nokkra menn, því hann bjóst við mótspyrnu af hendi ræðismanns- ins. Eldurinn í baðher- berginu. „MAJOR CUTLER barði að dyrum. Gerlach kom sjálfur til dyra og var fullklæddur, þó klukkan væri ekki nema rúm- lega 4 að morgni, segir í hinni opinberu skýrslu. „Er Gerlach sá hermenn- ina móímælti hann, en fylgdi þeim þó inn í anddyri hússins. Ein ástæðan fyrir því að hernema ræðismannsbústaðinn, var að ná í leyniskjöl, sem vitað var að þar voru geymd og koma í veg fyrir að þau yrðu brend. Major Cutler hafði með sjer hand- slökkvitæki. Majorinn fór niður í kjallara, þar sem hann hjelt að skjölin væru geymd. En alt í einu heyrði hann kallað „Eld- ur á fyrstu hæð“. Cutler þaut upp stigana.og þá sá hann eld- súlu mikla. Kona ræðismannsins og eldri dóttir þeirra hjóna voru á hlaup- um á náttklæðunum með bækur og skjöl, sem þær fleygðu á eld í baðherberginu, en i baðkerið hafði verið helt eldfimu efni og logaði vel í. Hermennirnir gripu sængur- klæði úr hjónarúmi ræðismanns- ins og tókst með þeim og hand- slökkvitækinu að kæfa eldinn í baðkerinu. Tókst á þann hátt að bjarga miklu af skjölunum frá eldinum". Cutler tók þá í hendi hans og fór sjálfur í frakkavasann. Þar var geymd hlaðin skammbyssa. Þá var vopnaður vörður settur til að gæta ræðismannsins. „Skömmu síðar var ræðismað- urinn og fjölskylda hans flutt um borð í beitiskipið Glasgow“. Þannig endar skýrsla um hand töku þýska ræðismannsins. Skipabyggingar í Svíþjóð. SKIPABYGGINGAR ÞÆR, sem fyrir hugaðar eru í Svíþjóð fyrir íslendinga hafa vakið all- mikið umtal. X skrifar mjer á þessa leið um það mál: „í sambandi við auglýsingu atvinnumólaráðuneytisins um skipabyggingar í Svíþjóð, þar sem ríkisstjórnin ætlar að hafa milligöngu um, og hvetur menn til að senda umsóknir þar að lút- andi vildi jeg segja: Hversvegna hefir þessu máli verið ýtt áfram nú og því ætluð tiltölulega fljót afgreiðsla, áður en almenningi gefst kostur á að vita um, hvern stuðning þing og stjórn ætlar að veita hinum is- lenska skipasmíðaiðnaði, og þar með gefinn kostur á að gjöra sjer glöggva grein fyrir málinu. íslenskar skipa- byggingar. EF VEL er á þessum málum haldið, geta íslendingar sjálfir bygt þau smærri fiskiskip, sem landsmenn þarfnast. Bygging fiskiskipanna hjer- lendis mundi verða mikil atvinnu aukning, sem alt útlit er fyrir nú þegar, að landsmenn megi ekki án vera, eftir því sem framund- an virðist vera um atvinnuhorf- ur, Auk þess hlýtur það að vera þjóðinni metnaðarmál að fraih- kvæma sjálf alt það sem hún þarfnast með til eigin þarfa, óg er fær um að framkvæma. Þó töluvert fjármagn sje til í land- inu sem stendur, skal ósagt látið hvort við Islendingar meigum við því að veita miljónum króna út úr íslensku atvinnulífi. Fiskiskip, bygð hjerlendis, veita atvinnulausum sjómönnum, og öðrum sem atvinnu kunrta að hafa af þeim, atvinnu jafnskjótt og þaU eru í siglingarfæru standi. En skip, bygð í Svíþjóð, heyra ó- vissunni til, um hvenær þau kom ast í hendur Islendinga“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.