Morgunblaðið - 22.02.1944, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.02.1944, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ >riðjudagur 22. febrúar 1944 — Akureyrarbrjef Prarah. af bls. 7. Framræslufjelaíí stofnað. í GLÆSIBÆ J ARHREPPI hefir nýlega verið stofnað fje- f lag, er nefnist „Framræslufje- lag Glæsibæjarhrepps. — Eru \ stofnendur þess 30 bændur í ; hreppnum, og tilgangur þess að annast Scimeiginlega framræslu ’ á löndum fjelagsmanna til tún ræktar. I Kræklingahlíð eru mjög ákjósanleg skilyrði til ræktunar, en votlent, svo ræsa þarf landið fram. Hefir Pálmi Einarsson ráðunautur gert mælingar og uppdrætti að skurðakerfi, sem lagt verður til grundvallar fyrirhuguðum framkvæmdum. Mun fjelagið hafa von um skurðgröfur þær, sem nú eru að verki í Staðar- bygðamýrum og Svarfaðardal, þegar framræslu er þar lokið. Jarðýta ryður snjó af vegum. UNDANFARIÐ hefir jarðýta verið notuð til að ryðja snjó af vegum í nágrenni .bæjarins, svo að bifreiðasamgöngur geti haldist ótruflaðar. Hefir hún m. a. hreinsað Dalvíkurveginn, sem lokaðist alveg í 3 daga. Einnig hefir hún rutt Eyja- fjarðarbraut. Samgöngur eru nokkumveginn ótruflaðar inn- an hjeraðs en ófært austur yfir Vaðlaheiði. Tíð hefir verið um- hleypingasöm á Þorranum og talsverður snjór kominn. | Atvinnuleysisskráning. ATVINNULEY SISSKjRÁN - . ING fór fram á Vinnumiðlun- arskrifstofunni fyrstu dagana í , febrúar. Komu 80 karlmenn til r.skráningar, en flestir þeirra höfðu haft nokkrar atvinnu- I tekjur. Við skráningu í nóv. s. 1. mættu 25 til skráningar. 7. febr. 1944. JökuII. Kafbálar sökkva skipum Japana Washington: — Flotamála- ráðuneyti Bandaríkjanna til- kynnir, að tveir kafbátar hafi nýlega komið til hafna, eftir ferðir, sem þeir fóru alt til Japan. Þar söktu þeir 13 skip- um, 68.500 smál. Hafa þá am- erískir kafbátar alls sökt 447 t skipum Japana. - Bókarfregn Framhald af 2. blaðsíðu. freistingarstund Dags skeður það, að ein minning frá löngu liðnum árum, eitt einasta orð mælt af deyjandi vörum göf- ugrar konu, kastar Ijósi mildi og miskunnsemi inn í sál hans og gefur honum styrk og djörf- ung til að meðhöndla andstæð- ing sinn sem sannur dreng- skaparmaður. Jeg get ekki skilið svo við línur þessar, að jeg minnist 'ekki fám orðum á þær Bjarn- ardalskonur. Þessar konur sem í hreinleika og göfgi ástar sinn- ar, kærleika, fórnfýsi og ann- ara kvenkosta strá frá sjer geisl um mildi og hlýju, sem megn- ugir reynast til þess að þýða svellrunnar sálir samferða- manna þeirra. Allar eru þessar konur svo prúðbúnar andans- göfgi og ástarhreinleik, að les- andinn hlýtur að verða snort- inn af. Hin ní eða tíræða Anna Hammerbo (eða Anna á Hömr- um, eins og þýðindinn nefnir hana) í fimbulmætti forneskju sinnar verður ógleymanlegur fulltrúi hins æfa forna siðar. Og varla getur það til sakar talist, þó jeg bendi þeim til þess hinum *íslensku meyjum, þeim sem á skortir um trygg- lyndi Auðar og ástgöfgi Helgu, að lesa með athygli Dag í Bjarnardal og horfa upp í heið- ríkju þess ástarhimins, sem skáldið bregður yfir þær Bjarn ardals konur. — Að síðustu vil jeg endurtaka þakklæti mitt til Konráðs Vilhjálmssonar, fyrir að hafa lagt upp í hendur hinn ar lesfúsu islensku þjóðar svo snildarlega þýtt ágætisverk sem Dagur í Bjarnardal er. Jeg er ekki viss um að margir þeir, sem á penna halda, hafi gjörst þjóð okkar þarfari menn þetta árið en Konráð með þýðingu sinni á þessu verki Gulbrand- sens. Lestur Dags í Bjarnardal var mjer á við margar kirkju- göngur. Þorbjörn Bjömsson, Geitaskarði. Á aðalfundi Fjelags kjóla- meistara, sem haldinn var ný- lega, var Jónína S. Þorsteins- dóttir kjörin fulltrúi fjelagsins í iðnráði. Silfurbrúðkaup eiga í dag Súsanna Elíasdóttir og Þorvald- ur R. Helgason skósmíðameist- ari, Vesturgötu 51B. BókaúSgáits Framh. af bls. 4. verkefni, sem hefðu getað orðið þjóðinni til hins fnesta gagns. Verkefnin -<roru nóg, sem biðu úrlausnar og ef þau hefðu þá verið valin með hliðsjón af því, hvað aðrir útgefendur mundu taka sjer fyrir hendur, þá hefði þetta fyrirtæki orðið hið merki- legasta. Um það leyti, sem kunn ugt var orðið um bækur þær, sem gefnar voru út fyrsta ár- ið, átti jeg tal við 4 af stjórn- endum fyrirtækisins og benti þeim á hver fengur væri í þessu fyrirtæki, ef stjórn þess hefði farið aðra leið, en hún hefði valið, Benti jeg á nokkur verk- efni af handahófi, sem útgáfan hefði átt að takast á hendur og sem öll voru þannig, að ekki var sennilegt að einkaframtak- ið treysti sjer til þess. Benti jeg á t. d. útgáfu alfræðiorða- bókar í mörgum bindum, sem kæmi út á mörgum árum, sömu leiðis fullkomið samsett orðabókasafn á öllum helstu málunum, stóra og góða mann- kynssögu, stóra og góða Islands sögu o. s. frv., en þetta fjekk lítinn byr, í stað þess hefir þess um góðu árum, síðan þetta byrj aði, verið varið til þess að gefa út bækur, sem mjög skiptar t skoðanir eru um og sem eru þannig, að ef þær hefðu eitt- hvert gildi voru ekki ofviða, jafnvel hinum smærri útgef- endum að glíma við að koma á markaðinn og því mikil líkindi til að almenningur fengi án til- stillis ríkisins. Hjer var því gullnum tæki- færum eytt til ónýtis. Útgáfa sem í raun og veru hafði alla möguleika til þess að verða stór merkilegt menningarfyrirtæki, til mentunar og gagns fyrir al- þjóð, skar sig að engu út úr, hvorki um frágang eða efnis- val, heldur virtist leidd út í al- gerlega tilgangslausa og vafa- sama keppni við einkaframtak- ið A síðustu árum fyrir núver- andi heimsstyrjöld, virtist held- ur vera að glæðast yfir útgáfu- starfseminni hjer á landi, brátt fyrir margendurteknar árásir hins opinbera, eins og að fram- an greinir. Ýmsir duglegir menn, sem efnast höfðu á ým- iskonar atvinnurekstri, fóru að fást við þessa atvinnu og komu með nýtt og mikið fje til henn- ar. Svo kom stríðið með síhækk andi kaupgjaldi, sihækkandi vöruverði og síaukinni kaup- getu og kaupvilja. Þarna var þá loks komið tækifærið til þess að hjer sköpuðust öflug fyrirtæki eins og í öðrum lönd- um og að hjer gætu skapast voldugar menningarmiðstöðvar, sem færar væru að halda uppi og næra andlegt líf með þjóð- inni og leiða inn til okkar það besta, sem fram kæmi á erlend- um bókamarkaði. En þá grípur ríkisvaldið enn inn. Nefnd óreyndra pilta sem aldrei hafa nálægt viðskiptum komið, hefir verið falið alræð- isvald til að ákveða verðlag og viðskipti meðal landsmanna. Sumir þessara pilta hafa heyrt kunningja sína tala um það að verð íslenskra bóka væri ok- urhátt. Staðhæfingar þessara kunningja verða þess valdandi, að þeir tilkynna útgefendum að þeir verði að lækka þegar í stað forlagsbækur sínar um 20%. Það er ekki verið að rannsaka, hversvegna bækurnar sjeu svona dýrar, hvort það stafi af að framleiðslukostnaðurinn sje orðinn svona dýr eða að það sje okurálagning útgefanda, piltarn ir segja bara, við höfum ekki vit á þessu, en maður sagði mjer að bækurnar væru of dýrar, þið verðið að skipa nefnd til þess að hjálpa okkur til að vita, hvort þetta er satt. Pilt- unum er bent á að útgefendur sjeu þegar búnir að senda bæk- urnar í umboðssöslu á co. 100 staði viðsvegar á landinu, með upprunalega verðinu og nú sje aðeins 15 dagar eftir af sölu- tímabilinu og hvort ekki muni kleift að miða breytinguna við áramót svo að uppgjör yfir sölu hjá umboðsmönnum sjeu óvjefengjanleg á báða bóga. En slíkum tilmælum er ekki sint. Engu er líkara, og það er raunar eina skýringin á ráð- stöfun piltanna, en að þeim hafi fundist það þjóðarógæfa ef hjer sköpuðust fyrirtæki sem væru þess umkomin að skapa fjár- hagslega undirstöðu undir heil- brigða og mentandi andlega starfsemi og er þá um of gort- að af bókaást og mentunar- þorsta hinnar íslensku þjóðar, ef piltarnir í viðskiptaráði hafa marga skoðanabræður. Mjer er fullkunnugt um það,' að allir þeir menn, sem hagnast hafa á bókasölu: síðastliðin ár, voru staðráðnir í að verja þessu fje til áframhaldandi útgáfu- starfsemi. Þessi starfsemi er það áhættusöm, að enginn get- ur verið fyrirfram viss um hagnað. Ein bókin verður því að stiðja aðra og hætt er við að þeir verði fáir, sem eru fús- ir til að hætta stórfje og verða að hlýta dómi manna um við-** skiftahliðina, sem sjálfir hafa játað að þeir hafi ekkert vit á því og sækja ráðleggingar í menn, sem eru keppinautar þeirra. Ekki verður heldur sagt, að piltarnir hafi verið til knúðir af þeirri nauðsyn að bókaverðið hækkaði dýrtíðina um slíkt var ekki að ræða. Sem sagt, á hvern veg sem maður veltir þessu fyrir sjer, hlýtur maður að komast að þeirri niðurstöðu, að piltarnir í viðskiptaráði, sjeu þeirrar skoðunar, að bókaútgáfa sje þjóðinni skaðleg og því beri að gera alt, sem unt sje, til þess að ekki skapist hjer fyrirtæki, sem sjeu þess umkomin að standa fjárhagslega undir slíkri starfsemi. Og svo að við víkjum loks að orðum gamla Alexanders Macmillans. ,,Verslun með bækur er orðin svo óarð- bær, að hún verður að láta sjer nægja að vera nokkurskonar viðauki við leikfangaverslanirn ar“. Er það ekki eins og við sjá- um spegilmyndina af bóksöl- unni hjá okkur. í einum litlum skáp á skrifstofu kaupfjelags- stjórans eru bækurnar vand- lega geymdar og það eru aðeins hinir fróðleíkshungruðustu • og djörfustu, sem komast að þeim. Piltarnir í verðlagsnefnd hafa einnig reynt að stuðla að því, að þetta forngripaástand hjeld- ist. Þið útgefendur góðir, þurf- ið ekki að greiða nema 20% í sölulaun. Þó býst jeg við að fæstir bóksalar í landinu myndu lengi hafa opnar búðir sínar, ef sala íslenskra bóka ætti að bera allan þann óra- kostnað, sem því er samfara að reka bókabúð, jafnvel í Reykja- vík þar sem skilyrðin eru best. Nei, piltarnir gleyma engu. Þeir skilja engann útundan. Finnur Einarsson bóksali. X - 9 JOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Eftir Robert Storm ooooooooooooooooooooooooooo> I Drengurinn kemur auga á X-9 og lögregluþjón, það einn — sjö --------ah, hver skrattinn, nú sjá neitt blóð lengur. er þeir koma út á götuna, og ákveður þegar að skýra þeim frá slysinu. Hann reynir að muna númerið á bílnum: Það var sjö — einn, eða var ruglast það alt saman. Lögregluþjónninn: — Alexander hlýtur að hafa bundið um sárið á hendinni, það er ekki hægt að X-9: — Ef til vill hefir drengurinn þarng sjeð Alexander. — Hann kallar til hans: — Heyrðu vinur minn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.