Morgunblaðið - 24.02.1944, Page 1

Morgunblaðið - 24.02.1944, Page 1
31. árgangur, 43. tbl. — Fimtudagur 24. febrúar 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. Ðagórás á Steyr KESSELRIIViG BÝST TIL Árásir byrjaðar ISiÝRRA ÁRÁSA VH> AIMZIO « Manneyjar London í gærkveldi. Skotmark mikils hóps af Liberatorflugvjelum, er fóru til árása frá Ítalíu í dag, var borgin Steyr í Austurríki, ‘en þar eru tvær flugvjelasmiðjur. — Framleiðir önnur þeirra skfokka á Messerschmitt-or- us'uflugvjelar, en hin, sem er alveg ný, framleiðir kúlulegur. Þetta er önnur árásin, sem 15. loftherinn frá Italíu, gerir á flúgvjelasmiðjur í suður Þýska landi og Austurríki. Mótspyrna í lofti var mjög hörð, en tölur um flugvjelatjón ekki fyrir hendi enn sem komið er. —Reuter. Dregur að sjer auk- ið lið og birgðir London i gærkvöldi. — Einkaskeyti tii Morgun blaðsins frá Reuter. ORÐIÐ HEFIR vart við allmikinn liðs- og birgðaflutn- ing bak við víglínu Þjóðverja hjá Anzio-landgöngusvæð- inu við Róm, og búast fregnritarar við því, að skamt verði að bíða einnar sóknarlotunnar enn af hálfu Kesselrings marskálks, og halda þeir að hún sje líkleg til þess að verða mest þeirra. Veður hefir verið þokusamt þarna, og hefir því ekki verið eins auðvelt að beita flugvjelum gegn liðssamdrætti þ>essum. Bretar að ná frum- kvæðinu í Burma London í gærkveldi. FJÓRTÁNDI herinn breski heíir nú að mestu leyti náð aft ur frumkvæðinu í sínar hend- ur í orustunum í Arakanhjer- aðinu í Burma. Hefir hann náð á sitt vald hæð einni all-þýð- ingarmikilli, í enda skarðs þess, sem lengst hefir verið barist um. Einnig tókst Bret- um að ná á vald sitt vegi ein- um, sem Japanar hafa stöðvað umferð um í nokkurn tima. Var þetta gert með hatramlegri byssustingjaárás. — Breskar flugvjelar vörpuðu sprengjum á Akyab og fleiri staði, en í Hukondalnum hafa bardagar rjenað síðustu daga. — Reuter. □---------------------n Enn árás á London í nólt London í gærkveldi. HÆTTUMERKI voru gefin hjer í kvöld, og skömmu eftir dundi við mikil skothríð úr loftvarnabyssunum og var hún eins hörð og í nótt sem leið. Fyrstu flugvjelarnar komu inn yfir borgina úr suðurátt og vörpuðu þær niður svifblysum, svo albjart varð í sumum hverf um borgarinnar. Skothríðinni linti nokkru áður en merki hafði verið gefið um að hættan væri liðin hjá. Þegar er vitað, að 4 óvinaflugvjelar hafi verið skotnar niður. —- Reuter. 100 þýskar flugvjelar yfir London London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. UM 100 þýskar flugvjelar af ýmsum gerðum munu hafa flogiö yfir London í nótt sem leið og var varpað niður all- miklu af tundursprengjum, en þó sjerstaldega eldsprengjum. Loftvarnaskothríðin er álitin vera hin harðasta, sem nokk- urntima hefir heyrst í borg- inni. Alls hefir komið í ljós, að 10 þýskar dlugvjelar voru skotn ar niður. Það er nú orðið mjög langt síðan Þjóðverjar hafa sent svo margar flugvjelar til árása á England, en auk Lundúnaborg ar. var einnig ráðist á ýmsa staði í Suður- og Suðaustur- Englandi. Líklegt er talið, að flugvjelar þær, sem yfir Eng- landi voru, hafi alls verið 175 eða þar um bil. Skemdir urðu allmiklar í London, hrundu nokkur hús. en eldar kviknuðu á ýmsum stöð- um, enda auðsjeð, að Þjóðverj- ar leggja á það mesta áherslu að kveikja í borginni. Meðal annara bygginga eyðilagðist einn af frægustu skólum borg- arinnar, en eldsprengja fjell á þinghúsið. Lítur út fyrir, að Þjóðverjar beiti nýjum árásar- aðferðum í hinum síðustu á,- rásum á borgina. Breskt knattspyrnulið til Svíþjóðar. Stokkhólmi —: „Stockholms Tidningen“ segir, að knatt- spyrnumenn í Svíþjóð fagni mjög þeirri fregn, að verið geti að sendur verði breskur knatt- spyrnuflokkur til Svíþjóðar í vor, máske landslið. Hefir for- maður sænska • knattspyrnu- sambandsins þegar látið í ljósi að þetta muni takast. í gær voru gerð tvö á- hlaup af Þjóðverjum, en var báðum hrundið. Þau voru staðbundin, gerð fyrii vestan Cisterna, gegn Ame- ríkumönnum, sem þar berj ast. Voru bardagarnir harð- 1 ir, þótt þeir væru smávægi legir á móts við þau ósköp sem á undan voru gengin og var barist í návígi. Stórskotahríðinni heldur áfram á þessum vígstöðvum skjóta breskir stórskotalið- ar á Aprilia- og Carocheto- svæðin, en Þjóðverjar skjóta á höfnina í Anzio úr langdrægum fallbyssum. — Segjast Þjóðverjar hafa beitt bæði stórskotaliði og flugvjelum gegn Anzio, þar sem bandamenn hafi verið að setja lið og birgðir á land, og valdið tjóni. Enn fremur segjast Þióð- verjar hafa hreinsað burtu innikróaða hópa banda- manna og tekið við það all- marga fanga. Á hinum syðri vígstöðv- um Italíu var alt fremur rólegt, aðeins nokkur stór- skotahríð og framvarða- skærur. Aðstaðan breyttist vfirleitt ekki neitt þar, nema hvað bandamenn náðu tveim smáhæðum fyrir vest an Cassino. Gandhi vottuð samúð STJÓRNARNEFND Kongress flokksins indverska hefir sent Gandhi eftirfarandi kveðju í tilefni af andláti konu hans: „Stjórnarnefnd Kongressflokks ins indverska syrgir djúpt missi göfugustu konu Indlands. Minningin um æfi hennar, er eytt var í þögulu starfi fyrir þjóðina. mun altaf hvetja kom- andi kynslóðir karla og kvenna til dáða. Dauði hennar í fang- elsi mun flýta fyrir því, að Ind • land verði frjálst". — Reuter. Býst fi! nýrra áhSaupa Þetta er Kesselring marskálkur, sem stjórnað hefir vörn Þjóð- verja á Ítalíu. Hann er 5G ára að aldri og: stýrði áður flug'her Þjóðverja í Norður-Afríku. Talið er, að hann búi nú sveitir sínar undir ný áhlaup á Anziosvæðið. Bandaríkjaflugvjelar af flug vjelaskipum hafa ráðist á Mari anneyjar á Kyrrahafi, að þvi er tilkynt var hjer í kvöld. Nokkur hundruð flugvjela voru notaðar til árásarinnar. — Þá er lokið við töku Parry- eyjar og er þá allur Enivetok- klasinn á Marshallseyjum á valdi Bandaríkjamanna. Eyjarnar, sem á var ráðist, voru Saipan og Tinian, en þær eru syðstar af Marianeyjum og eru um miðja vegu milli Mars- halleyja og Filippseyja. Jap- anar fengu eyjar þessar eftir fyrri styrjöld, en áður voru þær í eigu Þjóðverja. Er þetta hið næsta, sem Bandaríkjaflotinn hefir enn komist meginlandi Japans í á- rásum sínum. —Reuter Leikur tennis við Svíakonung. Stokkhólmi —: Hinn frægi þýski tennisleikari Gottfried von Cramm, er nýlega kominn hingað til borgarinnar. Blaðið ,,Nya Dagligt Allehanda“ hef- ir átt viðtal við hann og sagð- ist hann vera kominn til þess að leika tennis við Gústaf Svia konung. — Kommúnistablaðið Arbetaren hefir birt skamma- greinar um von Cramm. Rússneskar flug- vjelar rjeðust á Stokkhólm. — segja Svíar Stokkhólmi í gærkv. VIÐ rannsókn á sprengj- um þeim, sem varpað var hjer á borgina í gærkvöldi, og sem meðal annar ollu tjóni á járnbrautarstöð, hef ir komið í ljós, að sprengj- urnar voru rússneskar. Mun sænska stjórnin bera fram mótmæli í Moskva gegn þessu framferði. Sænska útvarpið sagði í kvöld, að hjer hafi verið um þrjár rússneskar flugvjelar að ræða, og hafi tvær þeirra flogið inn yfir borgina úr suðurátt, en ein úr noður- átt. Alls var þrem sprengj- um varpað á Stokkhólm, en einnig var kastað sprengjum á Hamarby, en fullvíst er talið að ekki hafi aðrar er- lendar flugvjelar en þessar þrjár flogið inn yfir sænskt — Rússar neita land þetta kvöld. Álitið er, að ein flugvjelin hafi lask- ast af loftvarnaskoti. Enginn maður beið bana í árás þessari, en nokkrir hlutu minniháttar meiðsli, þó engir slík, að hann þvrfti að leggjast í sjúkra- hús. Rússar neita að hafa gert árás þessa. —-Reuter. Bretar hafa áfrám vinstrihandarakstur. LEATHERS lávarður, her- gagnaflutningamálaráðherra Breta neitaði fyrir nokkru fregn frá' New York þess efn- is, að Bretar ætluðu að fara að taka upp þann sið að hafa hægrihandarakstur, heldur myndu halda áfram að aka á vinstri vegarbrún

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.