Morgunblaðið - 06.04.1944, Síða 12
12
lefnd undirbfr
Ijóbaratkvæiia
greiðsluna
SAMKVÆMT ákvörðun síð-
asta Alþingis hefir verið skipuð
5 manna nefnd til þess að ann-
' ast undirbúning og greiða fyr-
ir sem mestri þátttöku í þjóð-
aratk\æðagreiðslunni um skiln
aðarmálíð og lýðveldisstjórn-
arskrána, sem fram á að fara
20.—23. maí n.k.
Neíndin var skipuð þahnig,
að hver þingflokkur tilnefndi
etnn mann og ríkisstjórnin
fimta manninn. Þessir eiga sæti
í nefndinni:
Eyjólfur Jóhannsson fram-
kvstj., tilnefndur af Sjálf-
stæðisflokknum, Hilmar Stef-
ánsson bankastjóri, tilnefndur
af Framsóknarflokknum, Hall-
dór Jakobsson skrifstofumaður
tilnefndur af Sósíalistaflokkn-
um, Arngrímur Kristjánsson,
skólastjóri, tilnefndur af Al-
þýðuflokknum og Sigurður
Ólason hrm., tilnefndur af rík-
isstjóminni.
Eyjólfur Jóhannsson er for-
rnaður nefndarinnar, Halldór
Jakobsson ritari og Hilmar
Ktefánsson gjaldkeri.
Nefndin opnar skrifstofu í
Alþýðuhúsinu strax eftir psáka.
X -1—_—'
2000 fylfiir bolla
seldusf á rúmlega
fveimur fímum
, MENN furðuðu sig á mann-
þröng þeirri, er var í gær fyrir
utan verslun Jóns Þórðarson-
ar, í Bankastræti. — En ástæð-
an var sú, að versluninni höfðu
Lorist um 2000 tylftir bolla-
para. Öll seldust þau á tveim-
ur og hálfum tíma, en verslun-
in tók það upp hjá sjálfri sjer
að skamta bollana, þannig, að
þau heimili er þurftu á sem
flestum bollum að halda,
fengu sex pör. Var þetta
gert til þess að dreyfingin
yrði jafnari.
Ekki gat verslunin látið veit-
ingahúsum i tje bolla.
Svíar hafa Iffað í
friði í 130 ár
Stokkhólmi: — NÝLEGA var
100 ára dánarminning Karls
konungs XIV. Jóhanns, sem áð
ur hjet Bernadotte marskálk-
ur, haldin hátíðleg i TJppsölum.
Bernadotte var ættfaðir kon-
ungsættarinnar, sem nú situr
að völdum i Svíþjóð.
Viðstaddur hátíð þessa var
Gústaf konungur og fjölskylda
lians. Undir stjórn núverandi
konungsættar hafa Svíar lifað
í friði í 100 ár, og er það lengsti
friðartími í sögu þjóðarinnar,
sem forðum háði oft styrjaldir.
Tímabil þetta byrjaði í stjórn-
artíð Bernadotte, sem átti mik-
inn þátt í því að leggja grund-
völl þeirrar hagsældar, sem
Svíar hafa síðan orðið aðnjót-
andi.
Varaforseli við eldhúsverk
Tveir ísiendingar
reyna að bjarga
sjómanni
Fyrir nokkru var Wallace, varaforseti Bandaríkjanna, á ferða-
lagi um Californíuríki og kom auövitað við í Hollywood. Lenti
hann var í fjelagseldhúsi nokkurra kvikmyndaleikara og sjest
hjer ásamt leikurunum Bob IIopc og Dinah Shore, íklæddur
svuntu, vera að hjálpa til við eldhúsverk. Wallace er til hægri
á myndinni.
Rússar sækja hratt
iram til Odessa
London í gærkveldi.
HERIR Malinovskis sækja nú
hratt fram í áttina til Odessa,
en sjötti her Þjóðverja er þar
á hröðu undanhaldi. Eru Rúss-
ar rjett komnir að járnbraut-
inni, sem liggur frá Odessa til
Rúmeníu og teknir að skjóta á
hana af fallbyssum.
Handan Pruthfljóts, í Rúm-
eníu, halda orustur áfram, en
ekki hefir enn frjettst um nein
ar stórbreytingar í herstöðinni
á þeim slóðum. Hafa Þjóðverj-
ar að sögn fengið nokkuð af
varaliði þarna og eru orustur
harðar.
í Tarnopol eru enn miklir
bardagar háðir, en Rússar segj
ast hafa umkringt borg þessa.
Einnig er barist af miklum
móði fyrir vestan Chernovitz.
Rússneskar flotaflugvjelar
hafa byrjað árásir á hafnar-
bæi við Svartahafið, og einnig
ráðast rússneskar flugvjelar á
járnbrautina til Odessa.
Þjóðverjar segja frá hörðum
varnarbardögum við Tarnopol
og fyrir austan Stanislavovo. —
Ennfremur segja þeir að árásir
Rússa við Pskov, hafi að miklu
leyti hætt. —Reuter
S. I. B. S. iær
safn að gjöf
SAMBANDI ÍSLENSKRA
BERKLASJÚKLINGA hefir
borist vegleg og þörf gjöf, en
það er bókasafn gott. Gefand-
inn er Herbert Jónsson í Hvera
gerði. I bókasafninu eru rúm-
lega 350 bindi, auk íslendinga-
sagna, alt ágætar bækur.
S. í. B. S. er mikill fengur
í gjöf þessari handa hinu nýja
vinnuheimili, sem verið er að
safna fje til og gefandinn hefir
sýnt sambandinu rausn mikla
með gjöf sinni.
BLOÐIN í Hull skýra frá því
að nýlega hafi tveir íslenskir
sjómenn lagt mikið að sjer til
að reyna að bjarga frá druknun
dönskum sjómanni, sem fallið
hafði í höfnina. — íslend-
ingarnir voru Bogi Jónsson
(sonur Snæbjarnar Jónssonar,
bóksala) og Guðmundur Guð-
mundsson frá Vegamótum á
Seltjarnarnesi. Danski sjómað-
urinn hjet Axel Julius Larsen.
í rjetarhöldum, sem íram
fóru út af slysi þessu og þar
sem íslehsku sjómennirnir
voru mættir sem vitni, ljet dóm
arinn svo um mælt, ,,að þeir
hefðu gert sitt ftrasta til að
bjarga hinum danska sjó-
•manni og hefði sennilega tek-
ist það, cf þeir hefðu komið
örlítið fyr á slysstaðinn“.
Guðmundur Guðmundsson
segir svo frá slysinu í rjettin-
um, að um klukkan 10 að kveldi
hins 13. febrúaf hafi haiin
heyrt skvamp í sjónum, eins og
einhver hefði dottið af hafnar-
bakkanum í sjóinn. — Hann
hafði vasaljós og með því gat
hann lýst á mann, sem var
á floti alllangt frá skipinu. —
Hann kastaði kaðli til manns-
ins, sem ekki virtist hafa rænu
á að taka í kaðalinn. — Bogi
Jónsson las sig eftir kaðlinum
að manninum i sjónum og hjelt
honum upp úr, þar til hann
varð að gefast upp af þreytu.
Fimtudagur 6. apríl 1944
Gunniaugur Einars-
son læknir,
ígær.
Akureyrarslulka
í amerískum
háskóla
GUNNLAUGUR EINARS-
SON læknir andaðist í gær úr
heiiablæðingu.
Gunnlaugur var að vinna á
lækningastofu sinni laust fyrir
hádegi í gær, er hann kendi
lasleika. Varð hann að hætta
að taka á móti sjúklingum, því
að honum þýngdi ört. Kom
brátt læknir til hans. Leyndi
sjer ekki, að hjer var blæðing
á heilann. Var Gunnlaugur nú
fluttur á Landakotsspítalann
og þar andaðist hann um kl.
3 Vá síðd. í gær.
★
Gunnlaugur læknir var mað
ur á besta aldri (á 52. ári).
Fyrir rúmu ári varð hann fyr-
ir áfalli, er herbíll ók á bíl
hans. Varð Gunnlaugur lengi
frá starfi eftir áfall þetta og
náði sjer aldrei til fulls eftir
það.
Mikið mannijón
Foreldrablaðið. mars-hefti
1944, er nýkomið út. — Efni:
Örvhend börn (Símon Jóh.
Ágútsson). Skíðaferðir (Arn-
finnur Jónsson). Hvað er hægt
að gera fyrir tornæmu börnin?
(Guðm. I. Guðjónsson). Heil-
brigðiseftirlit og heilsuvernd i
skólum (Ólafur Helgason: Við-
tal). Barnavinafjelagið Sumar-
gjöf (Arnfinnur Jónsson).
Barnahjálp (Ingimar Jóhann-
esson). Hættur kynþroskaár-
anna (Hannes Guðmundsson).
London í gærkveldi.
Könnunarflugmenn . hafa
komist að raun um að mikið
tjón hefir orðið í höfuðborg
Rúmeníu, Bukarest, sem am-
erískar flugvjelar rjeðust á í
gær. Var aðalskotmarkið, að
sögn, járnbrautarstöðvar borg-
arinnar og sáu könnunarflug-
menn miklar skemdir í annari
aðaljárnbrautarstöð borgarinn-
ar, en hin var að mestu leyti
hulin reykjarmekki úr brenn-
andi húsum. — Reuter.
Smáskœrur á Italíu.
London: — Ekkert markvert
hefir gerst á Italíu-vígstöðvun-
um að undanförnu. Er helst um
að ræða stórskotahríð nokkra
og framvarðaskærur. Hindruð
var tilraun Þjóðverja að ná aft-
ur hæð einni. — Reuter.
GUNNHILDUR SNORRA-
DÓTTIR hcitir þessa unga
stúlka hjer á myndinni. Hún er
dóttir Snorra skólastjóra Sig-
fússonar á Akureyri. Hún
stundar nám við háskóla í
Washington og hcfir þessi mynd
birst af hcnni í amcrískum blöð
um. Hún hcldur á eintaki af ís-
lenskri þýðingu á bók Mark
Twain, „Á flækingi“, en Örn
bróðir hennar þýddi bókina á
íslensku.
Kvenfjelag Hallgríms-
sóknar.
Framh. af bls. 4.
hennar stað hlaut kosningu frú
Þóra Einarsdóttir.
Mikil óánægja kom fram á
fundinum yfir því, hvernig bú-
ið er að safnaðarstarfinu. Var
bent á það m. a., að hátt á 4.
hundrað börn sæktu barnaguðs
þjónustur á hverjum sunnudegi
og yllu þá þrengslin í bíósölun-
um stórkostlegum vandræðum.
Samþ. var í einu hljóði svo-
hljóðandi tillaga frá frú Guð-
laugu Guðmundsdóttur:
„Aðalfundur Kvénfjelags
Hallgrímssóknar, haldinn 31
mars 1944, beinir þeirri ein-
dregnu ósk til sóknarnefndar
Hallgrímssafnaðar í Reykjavík
að hún hlutist til um það, að
nú þegar verði hafist handa um
kirkjubyggingu fyrir söfnuð-
inn'.
Einnig var samþ. svohljóð-
andi yfirlýsing:
„Aðalfundur Kvenfjelags
Hallgrímskirkju lýsir yfir því
áliti sínu, að húsnæði það, sem
nú er haft til guðsþjónustu-
halds, sje algerlega ófullnægj-
andi, bæði fyrir presta og söfn-
uð“.
Aðalfundur þessi var vel sótt
ur, eins og raunar allir fundir
kvenfjelagsins, og fjelagskonur
hafa mikinn hug á því, að efla
starf fjelagsins. Áður en langt
um líður, munu þær t. d. gefa
út miningarspjöld, til þess að
menn geti gefið Hallgríms-
kirkju gjafir til minningar um
látna vini sína.