Morgunblaðið - 16.05.1944, Side 1
FRAKIÍAR RJIJFA GL8TAVLÍIMUNA
Gandhi viil lægja
deilur
London í gœrkveldi.
Mahatma Gandhi er nú
staddur í Lnhore í Indlandi
oo- lýsti hann því yfir í das',
að hann væri reiðubúinn að
miðla málum í deilum Ilindúa
or' Múhammeðstrúarmanna.
Sasði liann þetta vegna þess,
að hann fjekk skeyti frá ein-
iun Múhammeðstrúarmanna,
þar sem hann var beðinn um
]>etta. Kvaðst Gandhi muna
ræða við Jinnah, leiðtoga
M úh amm eðst rúarm anna, o g
reyna að sameina báða flokk-
ana til sameiginlegra átaka
fyrir frelsi Indlands.
— Reuter.
Snörp áfök við
Dniesler
London í gærkveldi: -
JlERST.JÓRN Rússa segir í
tilkynningu sinni í kvöld, að
engar meiriháttar breytingar
Jiafi orðið á Austurvígstöðv-
unum í gær, en fregnritarar
segja, að enn sje barist við
Dniester, þar sem Þjóðverjar
kveðast nú enn frekar hafa
minkað forvígi Rússa.
Rússat' ræða mikið um loft-
árásir, sem þeir hafa gert á
ýmsa staði að l>aki víglínu
Þjóðverja, t. d. járnbrautar-
stöðina Russkayja. Annarstað
ar segjast Rússar hafa kveikt
í herflutningalestum.
Þjóðverjar segjast nú hafa
líomið öllu liði sínu brott af
Krimskaga, eða þvínær öllu,
eftir mikla bardaga og erfið-
leika.
Rússar greina frá árás rúss-
neskra sprengju- og tundur-
skeytaflugvjela á skipalest
Þjóðverja fyrir Norður- Nor-
égi. Kegjast Rússar liafa sökt
þarna 3 stórum skipum í mik-
illi orustu. • ?
Snörp loffárás
á Bristol
ÞÝSKAR sprengjuflugvjelar
álimargar, gerðu í nótt sem
leið allmiklar árásir á ýmsa
staði á Suður- og Suðveslur-
strönd Englands. Þjóðverjar
Segja að aðalárásin hafi verið
gerð á borgina Bristol, og hafi
komið þar upp miklir eldar. —
Bretar viðurkenna tjón af árás
unum, en skutu niður 14 flug-*
vjelanna og er langt síðan svo
margar þýskar flugvjelar hafa
Verið skolnar niður yfir Eng-
landi á einni nóttu.
•—Reuler.
Vöruáiptajöfn-
uðurinn í apríi
var hagstæður
VÖRUSKIFTAJÖFNUÐUR-
INN í apríl var hagstæður um
rúmar 10.7 miljónir króna.
Verðmæti innfluttrar vöru
nam 19.8 milj., útfluttrar als
30.5 miljónum króna. . ■ >
Það sem af er þessu ári, jan.
—apríl, nemur verðmæti inn-
fluttrar vöru als kr. 67.8 milj.,
og útfluttrar vöru kr. 78.1. Er
því verslunarjöfnuðurinn hag-
stæður um 10.3 miljónir króna,
fyrstu fjóra mánuði ársins.
Verslunarjöfnuðurinn á sama
tíma í fyrra var óhagstæður um
rúmar 14 milj. króna. Verðmæti
innfluttrar vöru var þá als
77.4 milj. kr., og útfluttrar
63.2 miljónir króna.
Harðar oruslur
í Loyeng
Chungking í gærkvöldi.
JAPANAR eru qú komnir
inn í borgina Loyeng á þrem
siöðum og eru miklir götubar-
dagar háðir í borginni. Rufu
Japanar skörð í borgarmúrana,
og er talið hjer, að varla geti
á löngu liðið, áður en borgin
fellur í hendur Japönum.
Kínverjar hafa með snöggri
gagnsókn rofið á tveim stöðum
járnbrautina milli Peiping og
Hankow, en Japanar voru ný-
lega búnir að ná he'nni á sitt
vald aliri. Eru bardagar víða
harðir um hjeraðið og segjast
Japanar hafa umkringl mikinn
kínverskan her.
Sunnar, á landamærum
Burma og Kína, hafa Kínverj-
ar byrjað sókn á hendur Jap-
önum, og mun markmið þeirra
að brjótast til hersveita Still-
wells og liinna kínversku
sveita, er með þeim eru í Hu-
ondalnum, sem nú er hálfur
á valdi ba*idamanna.
—Reuter.
Maður iélbrolnar .
á skíðum
ÞAÐ SLYS varð um s. 1.
helgi, að Leifur Kaldal fót-
brotnaði, er hann var á skíðum
inn í Innstadal. — Misrennsli
var og mun það vera orsök
þess, að svo illa tókst til.
Leifur brotnaði á hægri fæti
rjett fyrir ofan öklann. Var
fyrst farið með hann niður að
Kolviðarhóli, en þaðan var
hann fluttur í Landspítalann.
Þjóðverjar hörfa af
nokkru landsvæði
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
TILKYNT hefir verið í Algiers, að franskar hersveitir,
sem berjast með fimta hernum, hafi rofið Gústavlínuna
svonefndu á einum stað, en annars staðar hafa Frakkar
og sótt fram og tekið þorp nokkurt. — Þjóðverjar kveðast
hafa yfirgefið allmikið af framstöðvum Gústavlínunnar
vegna mjög öflugrar sóknar bandamanna. Áttundi herinn
hefir sótt lengra inn í Lieridalinn og bætt aðstöðu sína
fyrir norðan Rapidoána, en þar er mjög örðugt að sækja
fram, því mótspyrna Þjóðverja er þar afar hörð.
Verkfallsmálið:
Dóttir hersböfðingja
Þctta er dóttir Carl Spaatz,
ameríslsa flugflotastjórans. —
Hún starfar að því að veita
breskum flugmönnum í Eng-
landi hressingar, eins og þær,
sem hún sjest hjer með á bakka
GLÍMUKEPNI
KJÓSARSÝSLU.
Davíð Guðmunds-
son irá Miðdal
sigraði
UNGMENNASAMBAND
Kjalarnesþings hjelt kapp-
glímu Kjósarsýslu s. 1. laugar-
dag að Brúarlandi.
Áður en keppnin fór fram,
flutti Kjartan Bergmann glímu
kennari snjalt erindi um þróun
ísl. glímunnar.
Úrslit glímunnar urðu þau,
að Davíð Guðmundsson varð
sigurvegari og vann til eignar
verðlaunagrip þann, sem kept
var um. Hann hlaut einnig 1.
verðlaun fyrir fegurðarglímu.
Annar varð Njáll Guðmunds-
son, og hlaut 2. fegurðarverð-
laun. Þriðji varð Eiríkur Sig-
urjónsson. •
Þá flutti Stefán Runólfsson,
frá Hólmi, formaður Ungmenna
fjelags Reykjavíkur, ágætt er-
indi um íþróttir. Loks var dans
að. Skemtunin fór vel fram.
Málaflutn-
ingur í dag
í DAG kl. 5 síðdegis fer fram
málflutningur fyrir Fjelags-
dómi í máli atvinnumálaráð-
herra gegn Alþýðusambandinu,
vegna verkfallsins í vega- og
brúavinnu. Vegna lasleika for-
manns Fjelagsdóms gat mál-
flutningur ekki farið fram í
gær.
Einar B. Guðmundsson hrl.
flytur málið fyrir ríkisstjórn-
ina, en Ragnar Ólafsson hrl.
fyrir Alþýðusambandið.
Úrskurður Fjelagsdóms ætti
að geta komið á morgun.
Stofnað Skógrækt-
arfjelag Austur-
Húnvefninga
SKÓGRÆKTARFJELAG*
Austui’-IIúnvetninga, var stofn
að á Blönduósi sunnudaginn
14. maí. Stofnendur voru 63.
Voru langar og fjöi'ugar um-
ræðui' á fundinum um skóg-
ræktarmál ogskógræktafjelög.
1 stjórn hins nýstofnaða fje-
Jags voi’u þessir kosnir: Ágúst
Jónsson, bóndi á ITofi, sr.
Gunnar Árnason á Æsustæð-
um, Jón Pálmason, alþmt á
Akri, Steingrímur Davíðsson,
kennari á Blönduós og Þor-
björn Björnsson bóndi á Geita-
skarði.
Ilákon, Bjarnason, skóg-
græðslustjóri var á fundinum.
í ráði er að fjelagið beiti sjer
fyrir að friðaðar verði skógar-
leyfar í Laxárdal eða á svo,-
nefndum Tindaskógi í Svína-
dal.
Aðalfundur skógræktarfje-
lags Borgfirðinga var haldinn
í Borgarnesi á laugardaginn
var. Þar A*ar meðal annars
rætt um að fá friðað skóg-
'lendið umhverfis Ilreðavatn.
■ Yfirleitt segja fregnritar-
ar að sóknin sje hæg, og
telja það mjög eðlilegt,
vegna hinna óhemju miklu
virkja Þjóðverja og harðrar
varnar þeirra.
Endurreist hersveit.
Gegn fimta hernum berst
71. herfylkið þýska, sem var
sigrað við Stalingrad, en
síðan var endurreist. Telja
bandamenn það hafa goldið
allmikið afhroð í bardögun-
um, en alls hafa þeir tekið
urrf 2000 fanga, síðan sókn-
in hófst.
Skriðdrekaviðureignir.
Þar sem land er fremur
sljett, hefir komið til mik-
illa skriðdrekabardaga, þar
sem Þjóðverjar hafa beitt
skriðdrekum og stórum fall-
byssum. Þá hafa þeir mörg
stálvirki um þessa slóðir. —
Flugvjelar bandamanna
taka mikinn þátt í barátt-
unni gegn skriðdrekum Þjóð
verja. Þjóðverjar segja í
dag frá fallhlífarhermanni
sínum einum, sem eyðilagði
6 skriðdreka andstæðing-
anna á sólarhring.
Sumsstaðar kyrt.
Það er ekki svo, að alls-
staðar sje barist af jafnmik-
illi hörku um víglínuna,
þótt miklir bardagar sjeu
um hæðir rjett hjá, getur
verið hljótt og kyrt á milli
þeirra.
Bevan var ekki
rekinn
LONDON —: Þingflokkur
verkamannaflokksins breska
hefir felt með 11 atkvæða meiri
hluta að reka þingmanninn
Aneurin Bevan úr flokknum.en
hann liafði sýnt ráðherra flokks
ins, Ernest Bevin verkamála-
ráðherra og stjórninni mótþróa
vegna aðferðar stjórnarinnar
til þess að koma í veg fyrir
verkföll. — Reuter.