Morgunblaðið - 16.05.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.05.1944, Qupperneq 1
FRAKIÍAR RJIJFA GL8TAVLÍIMUNA Gandhi viil lægja deilur London í gœrkveldi. Mahatma Gandhi er nú staddur í Lnhore í Indlandi oo- lýsti hann því yfir í das', að hann væri reiðubúinn að miðla málum í deilum Ilindúa or' Múhammeðstrúarmanna. Sasði liann þetta vegna þess, að hann fjekk skeyti frá ein- iun Múhammeðstrúarmanna, þar sem hann var beðinn um ]>etta. Kvaðst Gandhi muna ræða við Jinnah, leiðtoga M úh amm eðst rúarm anna, o g reyna að sameina báða flokk- ana til sameiginlegra átaka fyrir frelsi Indlands. — Reuter. Snörp áfök við Dniesler London í gærkveldi: - JlERST.JÓRN Rússa segir í tilkynningu sinni í kvöld, að engar meiriháttar breytingar Jiafi orðið á Austurvígstöðv- unum í gær, en fregnritarar segja, að enn sje barist við Dniester, þar sem Þjóðverjar kveðast nú enn frekar hafa minkað forvígi Rússa. Rússat' ræða mikið um loft- árásir, sem þeir hafa gert á ýmsa staði að l>aki víglínu Þjóðverja, t. d. járnbrautar- stöðina Russkayja. Annarstað ar segjast Rússar hafa kveikt í herflutningalestum. Þjóðverjar segjast nú hafa líomið öllu liði sínu brott af Krimskaga, eða þvínær öllu, eftir mikla bardaga og erfið- leika. Rússar greina frá árás rúss- neskra sprengju- og tundur- skeytaflugvjela á skipalest Þjóðverja fyrir Norður- Nor- égi. Kegjast Rússar liafa sökt þarna 3 stórum skipum í mik- illi orustu. • ? Snörp loffárás á Bristol ÞÝSKAR sprengjuflugvjelar álimargar, gerðu í nótt sem leið allmiklar árásir á ýmsa staði á Suður- og Suðveslur- strönd Englands. Þjóðverjar Segja að aðalárásin hafi verið gerð á borgina Bristol, og hafi komið þar upp miklir eldar. — Bretar viðurkenna tjón af árás unum, en skutu niður 14 flug-* vjelanna og er langt síðan svo margar þýskar flugvjelar hafa Verið skolnar niður yfir Eng- landi á einni nóttu. •—Reuler. Vöruáiptajöfn- uðurinn í apríi var hagstæður VÖRUSKIFTAJÖFNUÐUR- INN í apríl var hagstæður um rúmar 10.7 miljónir króna. Verðmæti innfluttrar vöru nam 19.8 milj., útfluttrar als 30.5 miljónum króna. . ■ > Það sem af er þessu ári, jan. —apríl, nemur verðmæti inn- fluttrar vöru als kr. 67.8 milj., og útfluttrar vöru kr. 78.1. Er því verslunarjöfnuðurinn hag- stæður um 10.3 miljónir króna, fyrstu fjóra mánuði ársins. Verslunarjöfnuðurinn á sama tíma í fyrra var óhagstæður um rúmar 14 milj. króna. Verðmæti innfluttrar vöru var þá als 77.4 milj. kr., og útfluttrar 63.2 miljónir króna. Harðar oruslur í Loyeng Chungking í gærkvöldi. JAPANAR eru qú komnir inn í borgina Loyeng á þrem siöðum og eru miklir götubar- dagar háðir í borginni. Rufu Japanar skörð í borgarmúrana, og er talið hjer, að varla geti á löngu liðið, áður en borgin fellur í hendur Japönum. Kínverjar hafa með snöggri gagnsókn rofið á tveim stöðum járnbrautina milli Peiping og Hankow, en Japanar voru ný- lega búnir að ná he'nni á sitt vald aliri. Eru bardagar víða harðir um hjeraðið og segjast Japanar hafa umkringl mikinn kínverskan her. Sunnar, á landamærum Burma og Kína, hafa Kínverj- ar byrjað sókn á hendur Jap- önum, og mun markmið þeirra að brjótast til hersveita Still- wells og liinna kínversku sveita, er með þeim eru í Hu- ondalnum, sem nú er hálfur á valdi ba*idamanna. —Reuter. Maður iélbrolnar . á skíðum ÞAÐ SLYS varð um s. 1. helgi, að Leifur Kaldal fót- brotnaði, er hann var á skíðum inn í Innstadal. — Misrennsli var og mun það vera orsök þess, að svo illa tókst til. Leifur brotnaði á hægri fæti rjett fyrir ofan öklann. Var fyrst farið með hann niður að Kolviðarhóli, en þaðan var hann fluttur í Landspítalann. Þjóðverjar hörfa af nokkru landsvæði London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. TILKYNT hefir verið í Algiers, að franskar hersveitir, sem berjast með fimta hernum, hafi rofið Gústavlínuna svonefndu á einum stað, en annars staðar hafa Frakkar og sótt fram og tekið þorp nokkurt. — Þjóðverjar kveðast hafa yfirgefið allmikið af framstöðvum Gústavlínunnar vegna mjög öflugrar sóknar bandamanna. Áttundi herinn hefir sótt lengra inn í Lieridalinn og bætt aðstöðu sína fyrir norðan Rapidoána, en þar er mjög örðugt að sækja fram, því mótspyrna Þjóðverja er þar afar hörð. Verkfallsmálið: Dóttir hersböfðingja Þctta er dóttir Carl Spaatz, ameríslsa flugflotastjórans. — Hún starfar að því að veita breskum flugmönnum í Eng- landi hressingar, eins og þær, sem hún sjest hjer með á bakka GLÍMUKEPNI KJÓSARSÝSLU. Davíð Guðmunds- son irá Miðdal sigraði UNGMENNASAMBAND Kjalarnesþings hjelt kapp- glímu Kjósarsýslu s. 1. laugar- dag að Brúarlandi. Áður en keppnin fór fram, flutti Kjartan Bergmann glímu kennari snjalt erindi um þróun ísl. glímunnar. Úrslit glímunnar urðu þau, að Davíð Guðmundsson varð sigurvegari og vann til eignar verðlaunagrip þann, sem kept var um. Hann hlaut einnig 1. verðlaun fyrir fegurðarglímu. Annar varð Njáll Guðmunds- son, og hlaut 2. fegurðarverð- laun. Þriðji varð Eiríkur Sig- urjónsson. • Þá flutti Stefán Runólfsson, frá Hólmi, formaður Ungmenna fjelags Reykjavíkur, ágætt er- indi um íþróttir. Loks var dans að. Skemtunin fór vel fram. Málaflutn- ingur í dag í DAG kl. 5 síðdegis fer fram málflutningur fyrir Fjelags- dómi í máli atvinnumálaráð- herra gegn Alþýðusambandinu, vegna verkfallsins í vega- og brúavinnu. Vegna lasleika for- manns Fjelagsdóms gat mál- flutningur ekki farið fram í gær. Einar B. Guðmundsson hrl. flytur málið fyrir ríkisstjórn- ina, en Ragnar Ólafsson hrl. fyrir Alþýðusambandið. Úrskurður Fjelagsdóms ætti að geta komið á morgun. Stofnað Skógrækt- arfjelag Austur- Húnvefninga SKÓGRÆKTARFJELAG* Austui’-IIúnvetninga, var stofn að á Blönduósi sunnudaginn 14. maí. Stofnendur voru 63. Voru langar og fjöi'ugar um- ræðui' á fundinum um skóg- ræktarmál ogskógræktafjelög. 1 stjórn hins nýstofnaða fje- Jags voi’u þessir kosnir: Ágúst Jónsson, bóndi á ITofi, sr. Gunnar Árnason á Æsustæð- um, Jón Pálmason, alþmt á Akri, Steingrímur Davíðsson, kennari á Blönduós og Þor- björn Björnsson bóndi á Geita- skarði. Ilákon, Bjarnason, skóg- græðslustjóri var á fundinum. í ráði er að fjelagið beiti sjer fyrir að friðaðar verði skógar- leyfar í Laxárdal eða á svo,- nefndum Tindaskógi í Svína- dal. Aðalfundur skógræktarfje- lags Borgfirðinga var haldinn í Borgarnesi á laugardaginn var. Þar A*ar meðal annars rætt um að fá friðað skóg- 'lendið umhverfis Ilreðavatn. ■ Yfirleitt segja fregnritar- ar að sóknin sje hæg, og telja það mjög eðlilegt, vegna hinna óhemju miklu virkja Þjóðverja og harðrar varnar þeirra. Endurreist hersveit. Gegn fimta hernum berst 71. herfylkið þýska, sem var sigrað við Stalingrad, en síðan var endurreist. Telja bandamenn það hafa goldið allmikið afhroð í bardögun- um, en alls hafa þeir tekið urrf 2000 fanga, síðan sókn- in hófst. Skriðdrekaviðureignir. Þar sem land er fremur sljett, hefir komið til mik- illa skriðdrekabardaga, þar sem Þjóðverjar hafa beitt skriðdrekum og stórum fall- byssum. Þá hafa þeir mörg stálvirki um þessa slóðir. — Flugvjelar bandamanna taka mikinn þátt í barátt- unni gegn skriðdrekum Þjóð verja. Þjóðverjar segja í dag frá fallhlífarhermanni sínum einum, sem eyðilagði 6 skriðdreka andstæðing- anna á sólarhring. Sumsstaðar kyrt. Það er ekki svo, að alls- staðar sje barist af jafnmik- illi hörku um víglínuna, þótt miklir bardagar sjeu um hæðir rjett hjá, getur verið hljótt og kyrt á milli þeirra. Bevan var ekki rekinn LONDON —: Þingflokkur verkamannaflokksins breska hefir felt með 11 atkvæða meiri hluta að reka þingmanninn Aneurin Bevan úr flokknum.en hann liafði sýnt ráðherra flokks ins, Ernest Bevin verkamála- ráðherra og stjórninni mótþróa vegna aðferðar stjórnarinnar til þess að koma í veg fyrir verkföll. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.