Morgunblaðið - 20.06.1944, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.1944, Blaðsíða 4
Þriðudag'ur 20. júní 1944. 4 MORGUNBLAÐIÐ Vegleg þjóðhdtíðarhöld víða um kmd Efafnseyri. MIKIL og virðuleg hátíða- höld fóru fram á Rafnseyri, fæð ingarstað Jóns Sigurðssonar, 17. júní. Var þar samankomið fjölmenni mikið eða um 2000 manns. BlaSið hafði í gær tal af Viggó Natanelssyni, en hann var einn af þeim, sem fór hjeð- an úr Reykjavík með „Þór“ til Rafnseyrar. Skýrði hann svó frá, að há- tíðahöldin hefðu í alla staði ver ið hin glæsilegustu og virðuleg ustu og farið vel fram. — Björn Guðmundsson að Núpi setti há- tíðina kl. 12 á hádegi. Mælti hann m. a. fram kvæði frá sjera Böðvari Bjarnasyni, fyrrum presti að Rafnseyri. Þá flutti sjera Jón Kr. ísfeld bæn, en síð an tók prófessor Sigurður Nor- dal til máls. Flutti hann aðal- hátíðarræðuna, sem var hin skörulegasta. — Næst var svo hlýtt á útvarp frá Lögbergi og heyrðist það ágætlega. Var síðan gengið í skrúð- göngu að minnismerki Jóns Sig urðssonar og lagður á það blóm sveigur. Sjera Eiríkur J. Eiríks son frá Núpi flutti þar ræðu en að henni lokinni var leikfimis- sýnifig karla og kvenna undir stjórn Bjarna Bachmann, í- þróttakennara. — Þá flutti Ol- afur Olafsson, skólastjóri á Þingeyri ræðu fyrir minni Is- lands, Halldór Kristjánsson að Kirkjubóli og Jens Hermanns- son, skólastjóri á Bíldudal, fluttu frumsamin kvæði og Sveinn Gunnlaugsson, skóla- stjóri á Flateyri, flutti ræðu. — A milli dagskráratriðanna söng Þingeyrarkórinn undir stjórn Baldurs Sigurjónssonar. — Að lokum tók til máls formaður há tíðarnefndarinnar, Þórður Njáls son, oddviti í Stapadal. Hátíð- inni lauk með því, að dansað var framundir miðnætti. Staðurinn var mjög smekk- lega skreyttur. Þeir, sem komu af sjó gengu í gegnum hlið, er rtuimmnmiiinnnniiiinniiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiin g Af sjerstökum ástæðum er = nýlegur Gott veður á Norður- og Austurlandi Bíll £ til sölu. Til sýnis á Óðins- 1 H torgi kL 1—2 í dag. Skipti = = á góðum vörubíl geta kom £ 5 ið til-mála, ef um semst. §j iiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiri nrnmnnninmmimmnmmmmmmminimmmui Sníð | Kápur og dragtir s | FELDSKERINN | j| Hafnarhvoli III. hæð. M miiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimimmmmiiiiiiiiiimiiiiiimir umiiiiiimimiiiiiimimiimiiiiiiiiíiiiiimiiiiimiimiF. Getum bætt við | Stúlkum = helst vönum að straua eða 5 pressa. Upplýsingar (ekki £ í síma) kl. 6—7 i kvöld. Nýja Efnalaugin. á var letrað „Islandi alt“, en á minnisvarða Jóhs Sigurðssonar voru vafðir úr íslenskum jurt- um stafirnir „Sómi Islands“. Fjöldi fólks lá við í tjöldum og voru þau um 150. Um allar veit ingar sáu af mikilli rausn Kvenfjel. Von og íþróttafjel. Höfrungur. — íslenski fáninn blakti víða við hún á skipum og bátum á höfninni fyrir utan og á landi. Veður var sæmilegt, en þó mikil rigning. * Akranes. Hátííahöldin fóru þar fram á sunnudaginn 18. júní. — Fór þá úfn daginn fram hátíðar- guðsþjónusta, þar sem vígð voru ný altarisklæði og hökull, sem Haraldur Böðvarsson og kona hans hafa gefið Akranes- kirkju. Var athöfn sú öll hin virðulegasta. Kl. 1 e. h. fór fram skrúð- ganga, sem er sú allra fjölmenn asta, sem sjest hefir þar á staðn um. Gengu ýms fjelagssamtök undir fánum sínum, eins og skát ar, íþróttamenn o. fl. Þá var fjöldi barna í göngunni. Mikið bar þar einnig á íslenska fán- anum og hafa aldrei sjest jafn- margir íslenskir fánar blakta á Akranesi. — Utisamkoma var haldin á svonefndu Kirkju- vallatúni. Fluttu þar ræður bæj arstjórinn, Arnlj. Guðmunds- son og Pjetur Ottesen, alþm. — Þá fór fram fimleikasýning karla og kvenna og kappglíma. Sigraði hana Sveinn Guðbjarts son, sem einnig fjekk fegurðar verðlaun. Lúðrasveitin Svan- ur, undir stjórn Arna BjÖrns- sonar, ljek fyrir skrúðgöngunni og á samkomunni. Um kvöldið var samkoma í Bíó-höllinni. Þar flutti aðalræð una Ólafur B. Björnsson, forseti bæjarstjórnar Akraness. Að- sókn var svo mikil að samkom- unni að fjöldi fólks varð frá að hverfa. Var húfi því endurtekin í gær. Árni Helgason skemti þar með gamanvísnasöng. Þátttaka í hátíðahöldunum var mjög mikil, og fóru þau áþ gætlega fram þrátt fyrir óhag- stætt veður. /iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiii Stykkishólmur. Um 50 fánar skreyttu þorpið 17. júní. Kl. 10 var guðsþjónusta. Sókn arpresturinn, sjera Sigurður Ó. Lárusson prjedikaði. I barnaskólahúsinu hófst borðhald kl. 18.00, og sátu það um 120 manns. Kristján Stein- j§ grímsson sýslumaður stjórnaði p j hófinu. Minni voru flutt, og £ j karlakór skemti með söng. £ | Kl. 20.30 hófst kvöldskemtun H í. Samkomuhúsinu. Kristján HjBjartmar oddviti setti skemtun S, ina, en ræður fluttu þessir S menn: Ólafur Jónsson frá Ell- £ iðaey, frú Sesselja Konráðsdótt — ir, Stefán Jónsson skólastjóri og Sigurður R. Pjetursson stud. jur. Blandaður kór söng milli ræðnanna. Að lokum var dans- að fram á nótt. Á sunnudag var gengið í §' skrúðgöngu til íþróttavallarins. Þar flutti Sigurður Finnsson ræðu og stjórnaði síðan keppni í frjálsum íþróttum, sem síðan fór fram. Um kvöldið var svo dans- skemtun í Samkomuhúsinu. £ £ ísaf jörður. Á ísafirði var veður gott fyrri hluta dags 17. júní, en fór versn andi eftir því, sem á daginn leið. Þátttaka í hátíðahöldunum var samt geysimikil. Hátíðahöldin hófust kl. 10 með guðsþjónustu í ísafjarðar- kirkju. Sóknarpresturinn, sjera Sigurður Kristjánsson, prjedik- aði, en Sunnukórinn, undir stjórn Jónasar Tómassonar, annaðist sönginn. Kl. 13 safnaðist fólk saman á skólavellinum og hlustaði á út- varp frá Þingvöllum. Síðan var gengið í skrúðgöngu með lúðra sveit í broddi fylkingar að há- tíðastað, sem útbúinn hafði ver ið fyrir ofan bæinn við Stór- j urð. Þar fóru fram aðalhátíða- höldin. Fyrst söng Sunnukór- l inn með aðstoð lúðrasveitar [þjóðsönginn. Ræður og ávörp fluttu þessir menn: Guðmund- ur G. Hagalín rithöfundur, Sverrir Guðmundsson, formað- ur Iþróttabandalags Isfirðinga, Haraldur Guðmundsson, for- maður Sjómannadagsráðs ís- firðinga, Bárður G. Tómasson, ormaður Iðnaðarmannafjelags Isfirðinga, Ragnar Guðjónsson, [fjármálaritari verklýðsfjelags- ins ,,Baldurs“ á ísafirði, frú Bergþóra Árnadóttir, ritari Kvenfjelagsins „Ósk“, Guð- mundur Sveinsson, fyrrverandi umdæmistemplar, Haukur Helgason, formaður Stúdenta- fjelags Isafjarðar. Á milli ræðn anna voru fimleikasýningar, kórsöngur og leikur lúðrasveit- ar. Að lokum var almennur söngur. Um kvöldið var samkoma í Alþýðuhúsinu. Baldur Johnsen hjeraðslæknir flutti ræðu og Guðmundiú- G. Hagalín las upp. Sunnukórffin og Karlakór Isa- fjarðar, undir stjórn Högna Gunnarssonar, sungu, og lúðra- sveit ljek. Sauðárkrókur. 17. júní var veður gott á Sauðárkróki, milt, en smáskúr- ir við og við, enda var mikil þátttaka í hátíðahöldum þar. Þau hófust kl. 12.40 með messu í Sauðárkrókskirkju. Sóknarpresturinn, sjera Helgi Konráðsson, prjedikaði, en kirkjukórinn, undir stjórn Ey- þórs Stefánssonar, annaðist söng. Siðan var haldið í Sam- komuhúsið og hlustað þar á út varp frá Þingvöllum. Kl. 15.00 var gengið í skrúð- göngu frá skólaleikvellinum til íþróttavallarins, Munu um 1.000 manns hafa tekið þátt í skrúðgöngunni. Á íþróttavellin um fóru svo aðalhátíðahöldin fram. Sjera Helgi Konráðsson setti samkomuna. Ræður fluttu Gísli Magnússon, bóndi að Ey- vindarholti, og sjera Halldór Kolbeins. Karlakórarnir Heim- ir, söngstjóri Jón Björnsson, og Ásbirningar, söngstjóri Ragnar Jónsson, sungu. Ásbirningar sungu ljóð eftir Friðrik Hansen, sem hann hafði ort í tilefni dags ins, með lagi eftir Eyþór Stef- ánsson. Sigurgeir Dahíelsson las upp frumsamið kvæði. Síð- an var fjöldasöngur. Að lokum fór fram íþróttakeppni, og 50 manna flokkur undir stjórn Kára Steinssonar, sýndi fim- leika. Um kvöldið voru dansskemt- anir í báðum samkomuhúsun- um. » Siglufjörður. Bærinn var í hátíðabúningi 17. júní, allur fánum skreyttur. Hátíðahöldin hófust kl. 10 17. júní með guðsþjónustu í Siglú- fjarðarkirkju. Guðm. Hannes- son bæjarfógeti flutti ræðu, en sóknarpresturinn, Oskar Þor- láksson, flutti bæn. Kirkjukór- inn, undir stjórn Tryggva Þor- steinssonar, söng. Daníel Þór- hallsson söng einsöng. Guðs- þjónustunni lauk með því, að Karlakórinn Vísir söng þjóð- sönginn. Klukkan 12.30 lagði skrúð- ganga af stað frá bryggjunni á- leiðis til nýja íþróttavallarins, sem fullgerður var fyrir hátíð- ina. Börn með fána voru í far- arbroddi, en auk þess tóku þátt í skrúðgöngunni skátar og ýmis önnur fjelagasambönd. Aðalhátíðahöldin fóru fram á íþróttavellinum. Setti þar Þor- móður Eyjólfsson, forseti bæj- arstjórnar, samkomuna, og Hall dór Kristinsson hjeraðslæknir, formaður hátíðanefndarinnar, flutti ræðu. Kl. 13.15—14.30 var hlýtt á útvarp frá Þingvöll- um. Þá fluttu ræður þeir Guð- mundur Hannesson bæjar- fógeti og Sigurður Kristjánsson forstjóri. Kl. 16.00 afhenti Óli Hertevig bæjarstjóri, fyrir hönd bæjar- stjórnar, íþróttaráði Siglufjarð ar hinn nýja íþróttavöll, en Aage Schiöth, formaður íþrótta ráðsins, þakkaði fyrir hönd í- þróttamanna. Á sunnudaginn var skrúð- ganga íþróttamanna til íþrótta- vallarins, og var þar keppt í ýmsum íþróttagreinum og stutt ar ræður fluttar þess á milli. Kl. 20.30 hófst fjölbreytt sam koma í Kvikmyndahúsinu. — Voru þar m. a. afhent verðlaun fyrir íþróttakeppnina og einnig verðlaun frá landsmóti skíða- manna. Akureyri. Lýðveldishátíð Akureyringa og Eyfirðinga 17. júní hófst með því, að Lúðrasveit Akureyrar, undir stjórn Jakobs Tryggva- sonar, ljek nokkur lög á Ráð- hústorginu kl. 10. Kl. 10.15 hófst skrúðganga frá Ráðhús- torginu um bæinn til kirkjunn ar. Var hún sú fjölmennasta, sem farið hefir fram á Akureyri og tóku þátt í henni öll fjelög í bænum, er gengu undir fán- um sínum. Voru þar á meðal fjölmennur hópur barna og skátar. Kl. 11 hófst messa í kirkj- unni, og flutti sjera Friðrik J. Rafnar hátíðaprjedikun. Kl. 13.15 hlýddu margir á útvarp frá Þingvöllum á Ráðhústorgi. Kl. 15.00 var hátíðin sett á torg inu af sjera Friðriki Rafnar. Fluttu ræður Þorsteinn Jóns- son skólastjóri, Steingrímur Jónsson fyrverandi bæjarfógeti, Einar Árnason fyrrv. ráðherra, Sigurður Róbertsson rithöfund- ur. Lúðrasveitin ljek á milli ræðnanna, og Karlakórinn Geys ir og Karlakór Akureyrar sungu nokkur lög undir stjórn Ingimundar Árnasonar og Jó- hanns Ó. Haraldssonar. Kl. 21.00 kom mikill mannfjöldi aftur saman á Ráðhústorgi. Söng þá karlakór Akureyrar nokkur lög, og síðan var stig- inn dans þar á torginu undir leik lúðrasveitarinnar. Veður var hið fegursta um ddginn, og gerði það sitt til þess að gera hátíðina hina ánægju- legustu í alla staði. Húsavík. I Þingeyjarsýslu fóru lýðveld ishátíðahöldin fram 17. og 18. júní. Á Húsavík hófust hátíðahöld in með skrúðgöngu frá íþrótta- vellinum. Tóku þátt 1 henni skát ar, íþróttamenn og mikill mann Framh. á bls. 5. millllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllim (Timburhús | i við Hverfisgötu er til sölu. £ s 3 íbúðir lausar n. k. haust. = £ Tilboð merkt ,,Timburhús“ = sendist blaðinu. ÍÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIÍ iiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiK ^túihu £ vantar strax til afléysing- | = ar um mánaðartíma. — = Matsalan Rauðarárstig 26, Sími 4581. ......................... llllllimillllllllllllllllIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllM 4 manna bíll = um og í góðu standi, til £ £ sölu með 'tækifærisverði. s |j Til sýnis á Bræðraborgar- £ 5 stíg 18 til kl. 10 í kvöld. | muiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiii ! Gistihúsið Ásólfsstaðir í Þjórsárdal hefir verið opnað til veitinga og fyrir dvalargesti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.