Morgunblaðið - 21.06.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.06.1944, Blaðsíða 5
Miðvikudagiir 21. júní 1944. — Stórpólitískar yfirlýsingar MORGÚNBLAÐIÐ „Hversu dýrmæt er miskunn Framh. af bls. 1. una, sem henni fylgdi, lýsti for- sætisráðherra yfir því, að ekki þyrfti að tefja frestun þingsins af ótta við, að ekki væri hægt að skipta um stjórn þótt þing- ið væri farið. Ríkisstjórnin væri fús til að víkja strax og fengin væri trygging fyrir því, að meiri hluti þings væri fyrir nýrri stjórn. Væri t^il fordæmi frá 1927 fyrir því, að stjórnar- skipti gætu farið fram án þess að þingið sæti. Yfirlýsing Sjálfstæðis- flokksins. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins, Olafur Thors, las því næst eftirfarandi yfirlýsingu frá Sj álfstæðisf lokknum: ,,Eins og öllum þingm. er kunnugt, hafa þingflokkarnir undanfarna daga rætt um mynd un þingræðisstjórnar í landinu. Enda þótt þær umræður hafa ekki leitt til stjórnarmyndunar á þessu stigi málsins, hefir margt merkilegt komið fram, og standa nokkrar vonir til, að með frekari samningum, er þó vafalaust munu taka nokkurn tíma, megi auðnast að mynda þingræðisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefir ríkan áhuga á því að takast megi sem allra fyrst að mynda þingræðisstjórn og telur að í fullkomið óefni sje stefnt, ef það verður lengi látið dragast. Hinsvegar telur flokkurinn víst að úr því sem komið er, muni stjórnarmyndun ekki lokið á næstu tveim dögum, og vill ekki styðja að því að fresta þingi á meðan slíkar tilraunir kynnu að standa yfir. Flokkurinn telur að best fari á því, að stjórnarskipti fari fram með þeim hætti, að stjórn er nýtur trausts meiri hluta Al- þingis sje reiðubúin að taka við völdum, en eigi með hinum hættinum, að Alþingi lýsi van- traust á þessa stjórn, en hafi þó eigi jafnframt undirbúið mynd un þingræðisstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn bendir jafnframt á, að núverandi stjórn situr ekki í skjóli stuðn- ings Alþingis og hefir ekki leit að þess stuðnings“. Var nú'gengið til atkvæða um þingfrestunina. Brtt. Einar^ Olgeirssonar var feld með 27:11 atkv.; brtt. Eysteins og Ingólfs einnig feld með 21:21 atkv. Loks var brtt. Bj. Ben. feld með 24:13 atkv. Að síðustu var þingsályktun- artillaga forsætisráðherra sam- þykt með 26:2 atkv. Kveðjur. , Þessu næst ávarpaði forseti Sþ. þingheim á þessa leið: . . „Verkefni þessa fundar, eins og Alþingis að þessu sinni er nú lokið, — og .verður þingi formlega frestað með forseta- brjefi, sem lesið verður hjer á eftir. Jeg vil nota þetta tæki- færi til þess að þakka öllum hv. þm. fyrir gott samstarf að málefnum þingsins, og ekki síst því mikla verki, sem lá fyrir þinginu nú og farsællega er á enda kljáð. Þetta verk mun lifa, þótt annað fyrnist og hvernig sem greina kann á um menn og málefni. Nú fagna' all- ir því, að hafa lagt að sjer við framkvæmd þess og biðja þjóð- inni giftu, sem að baki hefir staðið þinginu á hinn glæsileg- asta hátt. Jeg vil enda þessi orð mín með því að óska þm. als velfarnaðar og þeim og þeirra nánustu góðra og bjartra sum- ardaga, þar til hittumst heilir næst. Og að síðustu: Jeg óska þing inu í heild til hamingju með hið nýja lýðveldi“. Eysteinn Jónsson þakkaði forseta samveruna þá ógleym- anlegu daga, sem þeir höfðu átt undanfarið og fyrir ágæta stjórn á merkasta þingfundi sem haldinn hefir verið frá því að Alþingi var stofnað. Þing- menn risu úr sætum. Las nú forsætisráðherra brjef forseta Islands um frestun funda Alþingis, en mælti síðan á þessa leið: Um leið og fundum Alþingis er frestað, er mjer skylt að votta þinginu þakklæti ríkis- stjórnarinnar fyrir hið góða samstarf þessa síðustu mánuði og ekki síst þessa síðustu daga, síðan 10. júní. Jeg vona að samheldni og samstarf þingsins megi eflast. En hins vil jeg jafnframt geta, að jeg er þess ekki sjerstaklega fylgjandi að stjórn og þing mæti aftur und- ir sömu kjörum og áður. Jeg vildi óska þess, að Alþingi gæti myndað sterka stjórn, ekki hje góma tildursstjórn, heldur stjórn, sem hefði vilja og gejtu til þess að leysa vandamálin. Þessu næst sleit forseti Sþ. fundi og Alþingi var frestað. Lýðveidishátíðin í Amameshrepp! Frá frjettaritara vorum á Akureyri. Lýðveldishátíðin í Arnarnes- hreppi, Eyjafjarðarsýslu hófst kl. 1 e. h., með guðsþjónustu í Möðruvallakirkju, Hörgárdal. — Sóknarpresturinn sr. Sigurð ur Stefánsson prjedikaði. Var kirkjan þjettskipuð sóknar- og aðkomufólki lengra að. Að lokinni messu, kl. 2, hlýddu hátíðargestir á útvarp frá Lögbergi. Var athöfn þessi öll með miklum hátíðarbrag. Hátíðinni var haldið áfram að samkomustað sveitarinnar, Reistará. Var þar í boði hrepps nefndar snæddur miðdegisverð ur í þinghúsinu og í stóru tjaldi. Þá var gengið undir fána í Freyjulund, skógræktarreit Kvenfjelagsins Freyju. Þar bauð Stefán Stefánsson, frá Fagraskógi gesti velkomna og flutti siðan ágæta lýðveldis- ræðu. Halldór Ölafsson, Brú- landi fyrir minni sveitarinnar, sr. Sigurður Stefánsson mintist frændþjóðanna. Avörp fluttu frú Þóra Stefánsdóttir, Hjalt- eyri, fyrir hönd Kvenfjelagsins Valdimar Jónsson, Hallgilsstöð um fyrir hönd ungm.f. — Kór söng undir stjórn Jóns Kristj- ánssonar, frá Bragaholti. — Þá ljek Lúðrasveit-Akureyrar, und ir stjórn Jakobs Tryggvasonar, nokkur lög. — Að lokum var dans stiginn fram eftir nóttu. þín, ó, Guð « „Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó, Guð mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna. Því að hjá þjer er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vjer ljós“. (Sálmur 36). HUGFANGIN og hljóð erum vjer stödd í dag í helgasta musteri vors hjartkæra föður- lands — musteri, sem hönd Drottins sjálfs hefir gjört. Fjarlægir landar vorir dvelja hjer einnig í anda, í þessari dýrðlegu hamrakirkju, sem þjóðin sjálf hefir vígt og valið sem þingstað Alþingis, er hjer var háð um aldir. Hjer er undursamlegur heim ur fegurðar, litbrigðaljómi og töfrar íslenskrar náttúru. Hjer er söguríkasti staður landsins. Hjer voru mörkuð spor í þjóð- arsögu Islendinga. Hjer reis sól kristni Islands og kirkju. Vjer komum hingað gagn- tekin af þakklæti til forsjónar- innar, til Guðs. A þessum stað opnaat oss sýn inn í fortíð og framtíð. Sagan líður fyrir sjón- ir. En það, sem vjer dýrðlegast eygjum, er þó handleiðsla Guðs á þessari þjóð — hans eilífa miskunn og náð. " Og vjer þurftum hennar sannarlega við. Þrengingar og margskonar áþján þjökuðu þjóðina. Vjer undrumst þrek hennar í þeirri miklu raun. Vjer lifðum oft sem blakt- andi strá, en vjer reyndum jafnframt þann sannleika, að það varst þú, Drottinn, sem lyftir oss dufti»u frá. Fyrir Guðs hjálp hjelt Islendingur- inn velli. Miskunn hans vakti yfir þjóðinni frá öndverðu. Og hún vakir enn í dag. Stormarnir í þessu landi eru tíðir og sterkviðrin mörg. Stormarnir í lífsstríði íslensku þjóðarinnar hafa eigi síður ver- ið miklir og máttugir. En vjer áttum skjól. Vjer áttum örugt athvarf frá kyni til kyns. Ljós fagnaðarboðskaparins logaði á heimilunum. Sálmar Hallgríms gáfu huggun, þrek og von. Við þessi ljós vöknuðu hugsjónir í brjóstum Islendinganna. Hug- sjónir um frelsi og framför 1 þessu landi. Hugsjónir um að standa með Guði, sem kristin menningarþjóð við hlið ánnara þjóða — verða frjáls og full- valda frammi fyrir öllum heiminum. Frelsishetjurnar komu fram, stórar, sterkar og fórnrikar. Þær hófu kyndil hinna fögru frelsishugsjóna og lýstu þjóð- inni fram á veg. Guð stjórnaði og leiddi. — En um leið og vjer minnumst þeirra með verðskuld aðri þökk, má ekki gleyma nafn lausu þúsundunum, sem lagt hafa stein í musteri frelsisins í þessu landi. Mæðrunum, sem kendu börnunum sínum rnóður- málið, og vöktu í brjósum þeirra ást til íslands, trú og dug, öllum þegnum þessa lands, sem í dyggilegu lífsstarfi unnu þjóð sinni gott verk. Hið stóra í þessum heimi verður ekki unnið án þess að einstaklingarnir, þúsundirnar, komi til. Ræða biskups á Lögbergi 17. júní Sú samstilling Íslendinga um þessar mundir varpar miklum ljóma á þenna mikla og lang- þráða dag, sem nú er upp runn- inn. Óskastund hinnar íslensku þjóðar. Vjer fögnum af hjarta. Hlýtt er handtak sjerhvers manns i þessu landi í dag. Vin- arhugur, samúð og kærleikur býr í brjóstum vor allra. Fög- ur og háleit hugsjón hefir rætst. — Island — landið sem ól okkur — landið sem vjer elskum meira en nokkurt ann- að land, er aífrjálst land — og vjer erum frjáls þjóð — í frjálsu landi. Þetta er fagur dagur og fagnaðarríkur. Hamingja Islands er mikil í dag. Hugsum um þær þjóðir, sem nú eru að fórna dýrmæt- ustu eign sin-ni í styrjöldinni miklu til þess að vernda frels- ið. Þær láta nú fulltrúa sína standa vinarvörð urn okkur í dag — vörð um frelsi okkar og sjólfsforræði. Vjer viljum bera bróðurhug til allra manna og þjóða. Vjer hugsum með hlýhug og bæn til Norðurlandaþjóðanna og1 sjerstaklega til þeirrar þjóðar, sem nú um alllangt skeið hefir verið sambandsþjóð vor. Vjer minnumst með þakklæti bjartra stunda í sambúðinni. Hinu er gleymt, sem annan svip kann aldar, nýs tímabils lýðveldis á að hafa borið. Vjer stöndum við dvr nýrrar Islandi. — Nú tekur vissulega að revna á. Aðrar þjóð- ir fórna nú hjartablóði sínu fyrir frelsið. Vjer njótum þeirr ar sjerstöku náðar Guðs að mega láta okkar fórnir í tje í friðsælu starfi. Er það ekki þakkar- og fagnaðarefni? Lýð- veldishugsjóninni er ekki náð fyrr en þjóðin er frjáls hið innra jafnt sem hið ytra. Fyr en hún er göfug og andlega sterk þjóð. Fyr en hún hefir skrýðst skrúða þess frelsis, sem skapar henni farsæld og innri frið. Vjer vitum og skynjum, að leiðin til hins fullkomna, sanna frelsis er erfið og iöng, fram- tíðin er ávalt hjúpuð móðu og mistri óvissunnar. En í gegnum þá þoku sjáum vjer Ijós, Ijós kristindómsins — ljós Guðs. Hjá honum er uppspretta lífs ihs, Uppspretta alls þess, sem er fegurst og best í þjóðlífi veru. Þessvegna á Guð um- fram alt dð verða léiðtogi þjóð- arinnar Um alla tíð. 'Hið sanná frelsi öðlast þjóð- in aðeins á Guðs vegum. Skáld- ið bendir á hina rjettu leið: „Lær sanna ti-gn þín sjálfs, ver sjálfur hreinn og frjáls, þá skapast frelsið fyrst og fyrir Jesúm Krist skal, dauðans fjötur falla“. Vjer fögnum því öll að fá að lifa þessi augnablik. Barnið, æskumaðurinn, sem hjer eru, munu á efri árum bleséa þenná dag. Guð hefir falið oss mild'ð hlutverk, að taka í dag á móti stærstu og dýrmætustu gjöf- inni, sem unt er að gefa þjóð- unum. Minstu þess, þegar allar kirkjuklukkur landsins hringj.a frelsið inn í dag, að þú varst kallaður til þessa veglega hlut- verks. Mundu eftir ábyrgðinn.i, sem því er samfara. Gott er þeim, er að frelsi ís- lands studdi, að eiga þá með- vitund, er að því dregur, a'ð hinsta sinni verði breitt yfir hvílurúmið hans í þessum heimi að hafa lagt frelsismálunum.lið og mjúklega mun móðurmoldin umvefja frelsisvinina íslensku látna. — Minningin um þá mun lifa meðan íslensk tunga er töluð. Og mætti svo ljós Guðs skína yfir íslandi um aUa framtið. Ljós hans verma, styrkja, hugga, lífga og glæða alt hið fegursta og besta, sem getur gróið í brjóstum íslenskra manna og kvenna. Ljós Guðs Ijómar yfir Þing- völlum og helgistöðum þjóðar- innar öllum. Yfir kristni og kirkju landsins. Guð blessi ís- land. — Guð blessi landið og sjóinn, bændabýlin og fiski- miðin. — Guð blessi íslensku þjóðina alla, íslendinga í Vest- urheimi og víðsvegar um ver- öldina, forsetann, sem nú verð- ur kjörinn, ríkisstjórnina, Al- þingi, starfsmenn þjóðarinnar, alla sonu hennar og dætur —■ Guð blessi og annist sjúka — og öll sorgar- og olnbogaböra lífsins. Guð blessi allar þjóðir heims ins og gefi þeim að sjá friðar- og frelsissól ljóma á himni framtíSarinnar. Guð blessi þenna dag, 17. júní, og lýðveldi íslands. liivarp Eýðveldishá- líðarinnar heyrSisl vel í Færeyjum Frá Páli Paturson kóngs- bónda í Kirkjubæ í Færeyjum hefir útvarpinu borist svofelt símsbéyti í dag: „Útvarpið frá hinni mestu og söguríkustu hátíð íslendinga heyrðíst ágætlega hjer í Færey j ’um; svó að vjer höfu^n getóð samfagnað yður og 'tekið þátt í- hinum hjartanlegu og 'hlýjii ósku-m um framtíð íslands, sem, streymdu frarn í. ræðum þeim,- sem fluttar voru, alt frá upp- hafi að Lögbergi til veisluloka á Kótel Borg. Hjartans kveðjur Páll Paturson. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.