Morgunblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 1
Bandaríkin slíta
sljérnmálasam-
bandi við Finna
Washington í gærkveldi.
HJER HEFIR verið tilkynt
opinberlega, að Bandaríkja-
stjórn hafi falið sendifulltrúa
sínúm í Helsinki að biðjast
vegabrjéfs síns og er þar með
slitið stjórnmálasambandi
Finna og Bandaríkjanna. Veld-
ur þar um samningur sá, sem
Finnar gerðu við Þjóðverja fyr
ir nokkru, og er það opinbert
álit Bandaríkjamanna, að ekki
sje hægt að hafa lengur stjórn-
málasamband við þjóð, sem hafi
jafn greinilega svarist í lið með
óvinum Bandaríkjanna og Finn
ar hafa nú gert. — Reuter.
yfirbuga Þjóðverju
i niigueiieieu
Flugher banda-
manna fór víða
í gær
London í gærkvöldi.
í DAG fór flugher banda-
manna mjög víða, aðallega þó
yfir Frakkland og var eins og
áður, einkum ráðist á járnbraut
ir og flugvelli. Voru þarna að
verki bæði stórar og minni
sprengjuflugvjelar, varðar
fjölda orustuflugvjela. — Voru
flestar flugvjelarnar amerísk-
ar.
Þá rjeðust orustu- og Lundur
skeytaflugvjelar á skip Þjóð-
verja og sökktu meðal annars
þýsku olíuskipi í Biskayaflóa.
—Reuter.
Bandamenn náigast
Livorno
London í gærkveldi:
Sókn bandamanna á Italíu
er nú aftur harðari og munu
framsveitir fimta hersins á
vesturströndinni varla vera
meira en rúma 30 km. frá
hinni mikilvægu hafnarborg
Livorno, en eru brátt komnar
til Sienna og er búist við að
orustur um þann stað hefjist
bráðlega. Litlir bardagar hafa
verið um þessar slóðir, því
Þjóðverjar hörfa allhratt und-
an.
Aftur 'd móti hafa nokkrar
orustur beggja megin Thrasi
menusarvatns á Mið-ltalíu, þar
sem áttundi herinn berst við
Þjóðverja bæði vestan vatns-
ins og austan. ITefir aðstaðan
iítt breyst þarna, en báðir að-
ilar beðið nokkurt tjón. -—
Frá Adriahafsströndum er
ekkert sjerstakt að frjetta og
hefir aðstaðan ekki breyst þar
neitt. — Flugvjelar banda-
manna gerðu nokkrar árásir
í gær í batnandi veðri og
eyðilögðu meðal annars full-
hlaðna flutningalest.
— Keuter.
Gagnáhlaupum þeirra
hrundið sunnar
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsir.s frá Reuter.
ÞÝSKA FRJETTASTOFAN sagði í kvöld eftirfarandi:
„Amerískur her, að minsta kosti tvö herfylki að stærð,
hóf í morgun allsherjar árásir á stöðvar Þjóðverja á norð-
vesturhorni Cherbourgskagans. Brutust Bandaríkjamenn
gegnum varnarlínur Þjóðverja á þessum slóðum á nokkr-
um stöðum og sóttu fram með skriðdrekum. Sækja þeir
nú að Jobourg.
Sunnar á vígstöðvunum hafa Bretar hrundið miklum
gagnáhlaupum Þjóðverja á landsvæði það, sem þeir hafa
| unnið austan árinnar Odon. Hafa bardagar þarna verið
mjög harðir og eru það enn.
Vígstaðan hefir því nær ekkert breyttst.
Þetta er Konstantin Grikkja-
prins, sem heiísar svo virðu-
lega var myndin tekin, er hann
var á hersýningu Grikkja í
Egyptalandi nýlega. Hann er
þriggja ára gamall.
Barist fyrir austan
Kohima.
London í gærkveldi: — Fregn-
ir frá Burmavígstöðvunum
herma, að bardagar sjeu harðir
fyrir austan Kohima. Er álitið,
að Japanar kunni að gera aðra
atlÖgu að Imphal bráðlega. —
I Myitkyina hafa Kínverjar
i tekið nokkur hús af Japönum,
Allsherjurverkfull
í Kuupmunnuhöfn
Frá danska blaðafull-
trúanum, í gær, 30. júní
I DAGI er allsherjarverkfall
í Kaupinannahöfn. Síðustu
frjettir frá London herma, að
Þjóðverjar hafi, eftir að þeir
ljetu undan kröfurn verka-
manna í Kaupmannahöfn um
•styttingu umferðabannstímans
varpað fjölda meðlima úr iðn-
samtökum í fangelsi.
Verkamenn lögðu þá aftur
niður vinnu, og í dag er alls-
herjarverkfall í borginni. -—-
Vinna stöðvaðist í 50 verk-
smiðjuni í málmiðnaðinum og’
skipasmíðum. Ekkert var unn-
ið við höfnina, og störfum
var hætt í bönkum og brauð-
gerðahúsum. Verkfallið náði
einnig til póste og ritsíma. Um
hádagisbilið í dag var öllum
búðum í Kaupmannahöfn lok-
að, sporvagnar hættu að ganga
.og símanum lokað. Meðal verk
smiðjanna, sem verkfallið náði
til, eru Burmeistep & Wain,
j Atlas og F. L. Smidt.
Það hefir verið tilkynnt,
|að í óeirðunum, sem stóðu
yfir í þrjú kvöld, hafi 10 menn
jverið skotnir, en 75 særðir.
jSagt er, að síðdegis í dag
, ha.fi þýskar eftirlitssveitir enn
jskotið á þorgarbría. Þjóðverj-
j ar hafa sett vörð á aðaljárn-
brautarstöðina og vöruflutn-
ingájárnbrautarstöðin'a.
Þýskur hershöfðingi
feliur
London í gærkveldi:
Tilkynnt var í dag frá aðal-
bækistöðvum IJitlers, að þýski
hershöfðinginn Dormann hefði
fallið í orustu á innrásarsvæð
inu í Normandi, er hann stjórn
aði vörn hersveita sinna. Hann
er sjotti þýski hershöfðinginn
sem fellur á innrásarsvæðinu.
•—- í tilkynningunni var sagt,
að Dormann hefði unnið ómet-
anlegt gagn með herstjórn
sinni.
— Keuter.
Jobourg er smáþorp á aðal-
veginum frá Cherbourg vestur
á\ Haguehöfðann, en hann er
hár mjög og bratlur. Þorpið er
um 5 km frá höfðanum og tæpa
2 km frá öðrum höfða, Nez, de
Jobourg, sem skagar út í sjó-
inn gagnvart Alderney, hinni
mestu af Ermarsundseyjunum.
Gagnárásir ÞjóSverja.
í herstjórnartilkynningu
bandamanna í kvöld er sagt,
að Brelar háfi með því að
sækja yfir ána Odon, neytt Þjóð
verja til þess að draga að sjer
mikið lið á þeim slóðum, til
þess að stöðva sóknina, en þrátt
fyrir árásirnar af hálfu þess-
ara herja, hafa Bretar staðið
fastir fyrir. Gerðu Þjóðverjar
árásirnar með skriðdrekum og
sexhleyptum skotgrafafallbyss
um.
Veðrið ekki gott.
I tilkynningunni segir enn-
fremur, að veður sje enn ekki
ákjósanlegt á bardagasvæðinu
og hafi mjög hindrað stuðning
flugvjela við landherinn. þó
skánaði veður undir kvöldið, og
birti til. Var þá ráðist á stöðv-
ar Þjóðverja í Villiers Bochage
— nokkru að baki víglínunni.
Bardagar nærri Carentan.
Orustur hafa aftur byrjað
nærri Carentan og er barist við
þorpið St. Jean De Daye, sem
er nokkfu fyrir suðvestan Car-
entan.
4 skipum sökt.
London í gærkveldi: Þjóð-
verjar tilkynna í dag, að kaf.
bátar þeirra hafi nýlega sökt
3 skipum bandamanna, sam
tals 13 þús. smál. Ennfremur
er svo frá skýrt. að lang-
ferðaflugvjelar hafi sökt stóru
olíuskipi á höfitm úti.
— Reuter.
(hurchill horfir á
svifsprengjuvarnir
London í gærkveldi:
CHURCniLL foorsætisráð-
herra fór í dag til loftvarna-
byssustöðva á Suður-Englandi
og var sex klukkustundir í
ferðiúni. Horfði hann á bar-
áttu loftvarnarsveitanna gegn
svifsprengjum Þjóðverja, sem
haldið hefir .verið áfram að
skjóta aþan sólarhringinn, og
sem valdið hafa enn ærnu
tjóni, bæði á mönnum og eign
um.
Churchill heimsótti eina
skotstöð, sein þegar hafði dcot
ið nokkrar sprengjur niður og
óskaði skytt.unum til hamingju
Hann sagði: „Það er leiðin-
legt að engir Þjóðverjar skuli
vera í þesum skeytum' ‘.
Allmargar svifsprengjur hat’a
verið skotnar niður í dag, bæði
af orustuflugvjelum og loft-
varnarliði. I dag rjeðist hópur
Lancasterflugvjela á stöðvar
þær, sem talið er að svif-
sprengjunum sje skotið frá.
Fregnfnni um ai-
sögn Tanners neitað
Stokkhólmi í gærkv.:
Miðstjórn jafnaðarmanna-
flokksins finska gaf í dag út
yfirlýsingu, þarsem sagt er„
að fregnin um það, að Tann-
er hafi sagt af sjer embætti
og að óeining sje innan flokks
ins, sje alröng, og liafi ekki
við minstu rök að styðjast.
Þá er einnig neitað fregn, sem
út hefir verið breidd um það,
að jafnaðarmenn myndu hætta
að sækja þingfundi.
— Reriter.
Dauðadémar
í Algiers enn.
ENN HAFA menn verið
dæmdir til dauða af herrjetti
frönsku bráðabirgðastjórnar-
innar í Algiers. Meðal þeirra,
sem leiddir voru fyrir rjett, sak
aðir um landráð, voru tveir
háttsettir hershöfðingjar. Var
þeim gefið að sök, að þeir hefðu
hvatt franska m§nn til þess að
berjast með Þjóðverjum gegn
Rússum og fengið ýmsa sjálf-
boðaliða til þess að fara í þess-
um erindum til austurvígstöðv
anna. Var annar hershöfð: -g-
inn dæmdur til dauða, en binn
til 40 ára þrælkunrrvinnu. —
Ýms fleiri landráeamál af svip
uðu tægi munr vera á döfinni.
ÞEGAR blaðið íór í nrentun
í nótt hafði ekki komist sam-
komulag á um :;n n cg kjör
vörubílstjóra, og ga bví svo
farið, að vörubílstjóravi.: kfall
byrjaði í dag.