Morgunblaðið - 08.07.1944, Blaðsíða 2
2
MOEGUNBLAÐIi)
Laugardaginn 8. júlí 1944
BRÚIN SEM LIGGUR YFIR HAFIÐ
Samsæti Þjóðræknis-
fjelagsins fyrir Richard
Beck prófessor
ÞJOÐRÆKNISFJELAGIÐ
gekst fyrir samsæti að Hótel
Borg á miðvikudagskvöld s.l.
fyrir Richard Beck prófessor,
eti hann vai', sem kunnugt er,
fulltrúi Vestur-íslendinga á
lýðveldishátíðinni. Eftir hátíð-
ina hefir hann viða farið og
haft mörgu að sinna, en í gær
lagði hann af stað austur á
land. Ætlar hann að dvelja á
æskustöðvum sínum í nokkra
daga, en kemur síðan til bæj-
axins. Hann býst við að fara
vestur um haf um næstu mán-
aðamét.
■Formaður Þjóðræknisfjelags-
in.., Árni G. Eylands, stýrði
samsætinu á miðvikudagskvöld
ið Bauð hann heiðursgestinn
velkoirdnn og aðra gesti. Nokkr
um Vestur-íslendingum var
baðið auk Becks prófessors. Þar
var m. a. Jón Guðbrandsson
sladdur, skrifstofustjóri Eim-
skipafjelagsins í New York.
Hann er nýkominn hingað til
bæjarins.
Aðalræðuna fyrir minni
Richards Beck flutti herra
bi.íkup Sigurgeir Sigurðsson.
Pijettaði hann inn í ræðu sína
kynnum þeim, er hann hafði
af Beck sem forseta Þjóðrækn-
isfjelags Vestur-íslendinga og
lý.íti því. með hve mikilli ár-
vekni og dugnaði hann rækti
störf sín vestra, bæði í þjóð-
ræknismálum og öðru.
En auk biskups tóku til máls
sr. Jakob Jónsson og Arnfinn-
ur Jónsson kennari. Sr. Jakob
kyntist Beck vestra og lýsti
þeirri viðkynning, en Arnfinn-
ur«kennari er æSkuvinur Becks
ag urðu þeir samferða sem
unglingar við fyrsta skólanám
þeirra. Ófeigur læknir Ófeigs-
sen tnintist sjerstaklega hins
nýkomna gests að vestan, Jóns
Guðbrandssonar, en Kjartan
Glsfsson brunavörður flutti
kvæði til Becks.
Árni G. Eylands mintist í
stuttri ræðu starfs dr., Becks
veitra, að því er snerti há-
skólakenslu hans og kynningar
starf á Norðurlandabókment-
öm, en fyrir það hefir hann hlot
ið mikla viðurkenning og þakk
ir frá Norðmönnum.
Áður en staðið var upp frá
bo> ðum flutti dr. Beck ræðu.
4
EFTIR AÐ hafa látið í Ijós
þakklæti sitt fyrir hið virðu-
lega samsæti og allan vinar-
hug auðsýndan sjer og Vestur-
Islendingum, þakkaði dr. Beck
fyrir' hönd Þjóðræknisfjelags
Islendinga í Vesturheimi, á-
gæta samvinnu Þjóðræknisfje-
lagsins hjer á íslandi og mörg
vináttumerki frá þess hálfu;
nefndi hann sem dæmi þess
ííJandskvikmynd þá, sem fje-
lagið hjer hafði sent fjelaginu
vescra og sem að miklu gagni
hafðt komið í þjóðræknisstarf-
serainni þar, fagrar kveðjur frá
fjelaginu hjer við ýms tæki-
færi, síðast fagurt, skrautritað
ávarp, er biskup íslands af-
henti á 25 ára afmæli Þjóð-
ræknisíjelagsins í vetur, og
mikinn fögnuð vakti. Þá þakk-
aði dr. Beck heimsóknir góðra
ge.Jta hjeðan að heiman vestur
um haf, nú seinast komu bisk-
upsins; einnig tjáði hann Þjóð-
ræknisíjelaginu hjer heima
þakkir fj'rir móttöku og heim-
boð gesta að vestan. Fórust hon
um þannig orð:
,,Stofnun Þjóðræknisfjelags-
ins á Islandi hefir þegar reynst
hið merkasta og heillavænleg-
asta spor í áttina til aukinna
menningarlegra samskifta milli
íslendinga austan hafs og vest-
an“.
Þá flutti ræðumaður fagur-
yrtar kveðjur frá Þjóðræknis-
fjelaginu vestra og frá Vestur-
Islendingum í heild sinni, og
ræddi síðan um þjóðræknis-
starfsemi þeirra og ræktarhug
til Islands. Rakti dr. Beck sögu
þjóðræknislegrar viðleitni
þeirra í megindráttum og benti
á, að á þessu sumri væru rjett
70 ár liðin síðan fyrsti íslensk-
ur þjóðminningardagur var
haldinn í Vesturheimi og
fyrsta Islendingafjelagið jafn-
hliða stofnað þar. Hefði þjóð-
ræknisstarfsemi þeirra síðan
verið óslitin og komið fram í
ýmsum myndum, með marg-
víslegri fjelagslegri starfsemi,
árlegu Islendingadagshaldi víðs
vegar og sjerstaklega með
stofnun Þjóðræknisfjelags Is-
lendinga í Vesturheimi fyrir 25
árum síðan. Hefir öll þessi
margþætta starfsemi grundvall
ast á ást til Islands og íslenskra
menningarerfða, tungunnar,
sögunnar og bókmentanna.
,,Það er sannfæring okkar
þjóðræknismanna vestan hafs“,
sagði dr. Beck, „að með því að
varðveita sem lengst og ávaxta
sem best hið göfugasta og líf-
Dauðaslysið
Framh. af 1. síðu.
Kallað var á lækni frá Eyr-
arbakka, og komu tveir læknar
mjög fljótlega. En lífgunartil-
raunir báru engan árangur.
Piltur þessi hjet Bjarni Ingj-
aldsson og var frá Stokkseyri.
Hafði hann unnið við stöðina
frá því í fyrrasumar, fyrst í
þjónustu Almenna bygginga-
fjelagsins. En siðan við upp-
setning nýju vjelasamstæð-
unnar.
Talið er að hann hafi fengið
rafstrauminn frá vinnulampa
með bilaðri leiðslu. Hann var
19 ára að aldri.
Skipti á þýskum og
breskum föngum.
LONDON í gær: — Þýska
frjettastofan skýrði frá því í
dag, að um þessar mundir fari
fram skipti á þýskum föngum
og breskum í Tyrklandi. Verð-
ur skipti á 910 þýskum óbreytt
um borgurum, sem verið hafa
fangar hjá Bretum og álíka
mörgum breskum borguruin,
sem verið hafa í fangabúðum í
Þýskalandi. — Reuter,
rænasta í íslenskum menning-
ararfi og eðliskostum, leggjum
við jafnhliða varanlegastan
skerf til menningar þeirra
landa, sem við búum í, enda
eigum við þeim fyrst og fremst
þegnskuld að gjalda. Það er þá
einnig stefnuskrá Þjóðræknis-
fjelagsins að stuðla að því, að
Islendingar megi verða sem
bestir þorgarar vestan hafs,
einmitt með því að slitna ekki
úr tengslum við uppruna sinn
og ætt og með varðveitslu dýr-
keyptra og ómetanlegra menn-
ingarverðmæta sinna. Með það
í huga höldum vjer ótrauðir á-
fram þjóðræknisbaráttu vorru,
þó hún sje um margt á bratt-
ann að sækja“.
Dr. Beck lauk ræðu sinni á
þessa leið: „Samstarfið frá
ykkar hálfu hjer heima hefir
verið okkur vestan hafs hinn
mesti styrkur í þjóðræknisstarf
semi okkar; þess vegna fögnum
við yfir framhaldi þess starfs
með þakklátum huga. Við skul-
um halda áfram að brúa hafið
bræðra- og systrahöndum.
Þeirri brú góðhugarins fá eng
ar bylgjur, hversu háar, sem
þær eru, skolað í sæ. Öll erum
við, börn íslands, hluthafar í
hinum íslenska menningararfi
og getum heilituga tekið undir
með skáldinu:
Saga þín er saga vor,
sómi þinn vor æra,
tár þín líka tárin vor,
tignarlandið kæra.
Mifeil viðureign
við hraðbáta
London í gærkveldi.
Flugvjelar og herskip banda-
manna hafa að undanförnu hald
ið uppi árásum gegn þýskum
hraðbátum og tundurskeytabát
um, sem að undanförnu, eink-
um um nætur, hafa gert atlögur
að skipastóli bandamanna fyrir
Normandiströndum. Hefir kom
ið til mikilla bardaga, en ekki
eru úrslit þeirra vel ljós enn
sem komið er. Fleslir hraðbáta
þessara munu hafa komið út frá
Le Havre. Tveim var sökt svo
vitað sje. Flugvjelar gerðu árás
ir á báta þessa í dag og söktu
nokkrum eða löskuðu. •—
Reuter.
Járnbrautarmenn gefa
stórfje
Stokkhólmi: Nefnd sú, sem
samband sænskra járnbrautar-
manna hefir skipað, til þess að
sjá um hjálp frá sambandinu
til bágstaddra barna á Norður-
löndum, hefir gefið 45.000 kr.
til Noregshjálparinnar sænsku.
Áður hafði sambandið gefið
stórfje í sama skyni.
Allsherjarmót Í.S.Í.
Hörð oo skemtileg keppni
r _______
ALLSHERJARMdT í. S. í.
fer að þessu sinni fram dagana
10.—13. þ. m. — Þátttaka í mót
inu er mjög mikil. Keppendur
eru skráðir alls 79 frá fimm
íþróttafjelögum. K. R. sendir
32 keppendur á mótið, í. R. send
ir 20, Ármann 14, F. H. 12 og
einn er frá Umf. Skallagrími í
Borgarnesi.
Á allsherjarmótinu er, sem
kunnugt er, stigakepni milli
fjelaga, og hlýtur það fjelag,
sem flest stig fær, nafnbótina
„Besta íþróttafjelag landsins í
frjálsum íþróttum“. Allsherjar
mótið fer fram annaðhvert ár
og hefir K. R. unnið það óslitið
síðan 1928.
Kept er í 18 íþróttagreinum
og stendur kepnin yfir í 4 daga
eins og fyr er getið. — Fyrsta
daginn, mánudag, er kept í 100
m. hlaupi, stangarstökki, 800
m. hlaupi, kringlukasti, lang-
slökki og 1000 m. boðhlaupi.
Annan daginn, þriðjudag, verð
ur kept í kúluvarpi, 200 m.
hlaupi, háslökki, 1500 m.
hlaupi, 110 m. grindahlaupi og
10000 m. göngu. Þriðja daginn,
miðvikudag, verður kept í
4X100 m. boðhlaupi, spjót-
kasti, 400 m. hlaupi, þrístökki,
5000 m. hlaupi og sleggjukasli.
Fjórða daginn, fimtudag, verð-
ur kept í 10000 m. hlaupi og
fimtarþraut.
Fyrir þá, sem hafa áhuga á
íþróttum, skal hjer að nokkru
minsl keppenda í hverri grein.
100 m. hlaup. Keppendur
skráðir 23. Kepni hefir oft ver-
ið hörð í 100 m. hlaupi og verð
ur það vafalaust líka að þessu
sinni. Keppendur eru m. a.:
Hafnfirðingarnir Oliver Steinn
og Sævar Magnússon, I. R.-ing
arnir Finnbjörn Þorvaldsson
og Brandur Brynjólfsson, Jó-
hann Bernhard, K. R. og Hö-
skuldur Skagfjörð, Skallagrími.
Stangarstökk. Keppendur
skráðir 6. Meðal þeirra er
drengjameistarinn Þorkell Jó-
hannesson, F. H., Magnús Guð-
mundsson, F. H. og Sig. Steins-
son, í. R.
Ármanni. í. R. og K. R. og ein
frá F. H.
Kúluvarp. Keppendur eru 9.
Þar á meðal methafinn Gunnar
Huseby, K. R., Jóel Kr. Sig-
urðsson, I. R. og Bragi Frið-
riksson, K. R. — Teksf Gunn-
ari að bæta besta afrek í frjáls-
um íþróttum á íslandi? — Set-
ur hann nýtt met í kúlunni?
200 m. hlaup. Keppendur
skráðir 16. Það kemst ekki hjá
því að kepnin í 200 metrunum
verði hörð og úrslit óviss. —•
Skulu þar nefndir: K. R.-ing-
arnir Brynjólfur Ingólfsson og’
Jóhann Bernhard, Hafnfirðing
arnir Oliver Steinn og Sævar
Magnússon og í. R.-ingarnir
Finnbjörn Þorvaldsson, Kjartan
Jóhannsson og Brandur Brynj-
ólfsson.
Hástökk. Keppendur skráðir
13. Þar á meðal methafinn,
Skúli Guðmundsson, K. R., Oli-
ver Steinn, F. H. og auk þess
keppa Brynjólfur Jónsson, K.
R., Jón Hjartar, K. R., Finn-
björn Þorvaldsson, í. R. og
fleiri ágætir hástökkvarar. —•
Tekst Skúla að bæta met sitt,
sem er annar besti árangur í
frjálsum íþróttum á íslandi,
verður gaman að vita.
1500 m. hlaup. Keppendur
skráðir 8. Þar á meðal eru Ár-
menningarnir Sigurgeir Ár-
sælsson og Hörður Hafliðason,
I. R.-ingarnir Óskar Jónsson,
Kjarlan Jóhannsson og Sigur-
gísli Sigurðgson og Haraldur
Björnsson, K. R.
110 m. grindahlaup. Kepp-
endur skráðir 11. Eftir þessum
keppendafjölda virðist áhugi á
grindahlaupi fara mjög vaxandi
og er það vel. Meðal keppend-
anna eru: Finnbjörn Þorvalds-
son, í. R„ Oddur Helgason, Á,
Skúli Guðmundsson og Sveinn
Ingvarsson, K. R., og Magnús
Guðmundsson, F. H.
10 km. ganga. Keppendur
skráðir 4. Þeir eru Sverrir
Magnússon, Á, Steingrímur
Atlason, F. H., Gísli Sigurðsson,
F. H. og Oddgeir Sveinsson,
K. R.
800 m. hlaup. Keppendur
skráðir 7. Þar má gera ráð fyrir
mjög harðri kepni og góðum
árangri. Þeir, sem eigast þar
við, eru m. a. Ármenningarnir
Sigurgeir Ársælsson og Hörður
Hafliðason, í. R.-ingarnir Ósk-
ar Jónsson og Kjartan Jóhanns
son og Brynjólfur Ingólfsson,
K. R.
Kringlukast. Keppendur skráð
ir 13. Þar verður kepni harð-
ari en hún hefir verið lengi, ef
að líkum lælur. Munu að þessu
sinni m. a. methafinn, Ólafur
Guðmundsson, í. R„ Kristján
Vattnes, K. R. og íslandsmeist-
arinn, Gunnar Huseby, K. R.,
eigast við, auk fleiri góðra
kringlukaslara.
Langstökk. Keppendur skráð
ir 14. Þar á meðal Skúli Guð-
mundsson, K. R„ Oliver Steinn,
F. H„ Höskuldur Skagfjörð,
Skallagr. og Ármenningarnir
Oddur Helgason og Halldór
Sigurgeirsson.
1000 m. boðhlaup. Þar eru
skráðir til kepni 7 sveitir, 2 frá
4x100 m. boðhlaup. Til kepni
eru skráðar 5 sveitir, tvær frá
í. R. og K. R. og ein frá F. H.
Spjótkast. Keppendur skráð-
ir 7. Þar á meðal hinir skæðu
keppinautar, Jón Hjartar,
K. R. og Jóel Kr. Sigurðsson,
í. R.
400 m. hlaup. Keppendur
skráðir 10. Ef að líkur ræður
verður keppnin þar afar hörð.
Keppendur eru m. a.: í. R.-ing-
arnir Finnbjörn Þorvaldsson og
Kjartan Jóhannsson, Ármenn-
ingarnir Sigurgeir Ársælsson
og Hörður Hafliðason og K. R.-
ingarnir Brynjólfur Ingólfsson
og Jóhann Bernhard.
Þrístökk. Keppendur skráðir
12. Þar má búast við harðri
keppni. Meðal keppenda eru:
Oddur Helgason, Á, Óliver
Steinn, F. H. og K. R.-ingarnir
Skúli Guðmundsson og Jón
Hjartar.
5000 m. hlaup. Keppendur
eru 7. Þar á meðal Óskar Jóns-
son, í. R., Sigurgísli Sigurðssoii
Framh. á hls. 11