Morgunblaðið - 08.07.1944, Side 4
4
MORGUNBLAÐI0
Laugardaginn 8. júlí 1944
Minning Jóhönnu Jónsdóttur frá Flateyri
Fædd 6. febr. 1922.
Dáin 25. júlí 1943.
Það var bjart yfir heimili
þeirra hjónanna. Guðmundu
Magnúsdóttur og Jóns Pjeturs-
sonar, á Flateyri, í fyrsta sinni,
er jeg kom þar inn.
Það var sunnudag haustið
1930. Síðsumarsólin ljómaði inn
um gluggann nye^helti geisla-
gulli á gyltu lokkana hennar
Hönnu litlu dóttur þeirra, sem
lá í rúminu sínu eitthvað lítið
lasin, en hún Lilly litla, hin
elskulega dóttirin, ljek sjer að
brúðunni sinni.
Mjer virtist þetta heimili
fult af gleði og ljósi, en björt-
ust var þó ástúðin í brosi for-
eldranna, er þau horfðu á litlu
elskulegu dæturnar sínar. Mjer
fanst að inn í slíkt sólskin gætu
aldrei skuggar komist.
Það var þá, að jeg sá hana
Hönnu litlu í fyrsta sinni, þetta'
yndislega barn. — Bláu, skæru
augun, bjarta brosið, ljósgullna
hárið, fjell svo vel inn í geisla
sólarinnar, sem skein á drif-
hvítt rúmið, sem hún var í.
Mynd þessa elskulega barns
festist djúpt í huga mjer, svo
traust, að jeg gleymi henni
aldrei.
Rólegu, fögru barnsaugun
horfðu á mig, er jeg ávarpaði
hana. En þau horfðu lengra —
fanst mjer — langt út í eitthvað
fagurt ósæi, sem jeg sá ekki og
skildi ekki.
Og jeg kyntist henni Hönnu
litlu. Hún átti að gæta litla
drengsins míns. Hún átti yfir
einhverju, alveg sjerstöku, ást-
úðlegu að ráða, sem glatt gát og
fróað litlu barni. Jeg gat hlust-
að hugfanginn á hana, löngum
stundum, þegar hún hjelt, að
hún væri ein með litla drengn-
um, og enginn tæki eftir þeim.
Hún sagði litla drengnum frá
fögrum sýnum, sem hún sá í
æfintýraheimum sálar sinnar,
sem voru svo bjartir og unaðs-
legir.
Og hún Hanna litla kom í
skólann til mín. Gráa þungbúna
vetrarmorgna bar hún sólskinið
inn- til mín, ljósið fylgdi henni
hvar sem hún var. Hún var
elskulegur nemandi, samvisku-
söm og gáfuð og bjart var yfir
öllu, sem hún lagði huga og
hönd að.
Og hún hjelt námi áfram í
Gagnfræðaskóla ísafjarðar, því
að mentast var ósk hennar og
þrá. Og af hlýjum ummælum
kennara hennar þar, veit jeg,
að hún. hefir eignast vinarhug
I VERKAMENN
Okkur vantar nú þegar tvo vana, röska
verkamenn í vinnu í Hvalfirði. Útvegum
húsnæði og fæði á staðnum, sömuleiðis sjeð
um ferðir til Reykjavíkur.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Við-
talstími á skrifstofu okkar 10—12 í dag.
H.F „SHELL“.
SOLV-X IN QUINK PROTECTS ALL PENS
AGAINST BREAK-DOWN
High-acid inks, records show, cause 65% of ail pen failures.
That's whý Parkcr Quink is so important. For Quink contains
solv-x—protects all pens against metal corrosion and rubber rot.
Solv-x ends clogging . . . cleans pens as they write.
Keep your fountain pen out of the repair shop by using Parker
QíJnk. Brilliant and smooth-flowing. Ideal for stcel pens, too^ ^
PARKER Qmnk
THI ONIY INK CONTAINING PEN-PROTICTIN® S6LV-X
Ad No. 3016-E Second Semester 1944 2 col. x, 6 in. j
Jóhanna Jónsdóttir.
skólasystkina og kennara fyrir
alt það góða og ástúðlega, sem
hún átti í .svo ríkum mæli.
Að loknu gagnfræðanámi,
stóð þessi elskulega og glæsi-
lega stúlka á þeim vegamótum,
þar sem æfistarfið skyldi ákveð
ið. Og hún, sem unni öllu fögru
og góðu valdi auðvitað þá leið-
ina, að starfa þar, sem mest var
þörf á að sýna ástúð og gefa
sólskin og yl, hún ætlaði að
gerast hjúkrunarkona. Til þess
að byrja á því starfi strax, rjeð-
ist hún sgm hjúkrunarkona að
sjúkraskýlinu á Hólmavík.
Þar hjúkraði hún sjúkri
stúlku af þeirri alúð og fórn-
fýsi, sem -er einkenni þeirra,
sem alt vilja gefa þjáðum mönn
um.
Og svo veiktist hún. Hanna
litla. Dásamleg ró og þreklyndi
voru hennar einkenni á stund-
um sjúkdóms og þrauta. Jeg
kom til hennar, er hún var
veik. Sama blessað sólskinið
var í svipnum og sama gleðin
í máli og á björtustu gleðistund
unum fyr^ Hverri fagurri hugs-
un, er hún heyrði eða sá og
hverju fögru ljóði safnaði hún
í bókina sína, sem altaf var við
höndina. Hún safnaði gimstein-
um fegurðar og lífspeki, það var
guiíið, sem hún_þráði.
Þung og löng þrautasaga verð
ur aldrei skráð með bleki af
mannshönd.
Hún er rituð með þögninni
inn í eilífðina. Og rist blóðug-
um rúnum sársauka inn í ást-
vina hjörtu.
Og blessað ljósið, hún Hanna
litla, hvarf með bros á æsku-
björtu andlitinu, þangað, sem
ástvinahendurnar ná ekki til
hennar og ástvina augu sjá
hana ekki, inn 1 ljósið sem hún
var komin frá.
En í hjartans helgidómi ást-
vinanna hennar ljóma björtu
brosin í sársauka elskunnar
gegnum tárin.
Þegar mjer barst fregnin um
það, sem skeð var, varð mje'r
það fyrst fyrir að spyrja í sárs-
auka:
Af hverju þurfti þetta að ske?
Og í hug mjer kom þessi álykt-
un einhvers vel viturs manns:
Þeir, sem eru bestir og hrein-
astii', hverfa ungir til Guðs, af
því að hann þarf þeirra með, til
þess að hjúkra sálum þeirra,
sem deyja í hatri og synd, því
þeir komast ekki inn í dýrðar-
heima ljóssins og friðarins,
nema leiddir af sakleysi og
hreinleika.
Aldrei hefir heiftúð og hatur
fylt heiminn eins og nú. Aldrei
hefir eilífðinni verið meiri þörf
á hjúkrandi englum en nú.
Jeg trúi því, að Guð hafi kall
að hana Hönnu litlu, ástkæra
sólskinsbarnið, til sín til þess
að hún hjeldi þar áfram starf-
inu göfuga og góða, sem hún
óskaði og þráði.
Og dásamlegasta starfið, sem
elskulegt sólskinsbarn vinnur,
hlýtur að vera það að leiða
'særðar sálir úr húmskuggum
helsins inn í heiðríkju lífsins.
Hanna litla, blessað sólskins
barn. Þú ert elskuð og þín er
minst. Mamma, pabbi, systir,
fóstbróðir og allir ástvinir þín-
ir umvefja þig kærleiksbænum
sínum, og þakka þjer Íjósið og
gleðina, sem þú gafst þeim.
Þú hvarfst þeim sjónum á
sumardegi. Og á sumardegi ei-
lífðarinnar faðmist þið og finn-
ist aftur.
Þú lifir. Því það, sem helgað
er sársauka elskunnar, getur
aldrei dáið.
Sv. G.
Fjölgun ferða á sjerleyfisleið
Á leiðinni Reykjavík—Sandgerði aka
áætlunarbílar Keflavíkurhrepps frá 8. júlí
1944 sem hjer scgir:
Tvær ferðir á dag.
Frá Reykjavík kl. 4 og kl. 7 e. h,
Frá Sandgerði kl. 8,30 f. h. og kl. 12,45.
ÁÆTLUNARBÍLAR KEFLAVíKURHREPPS.
^><$><$><$^$>m^$>^>^>^$^><$><$^>m>m>m^$>^$>^$^$><$<m^><$^>m>m^^
M Ljósmynd af 1
FYRSTA FORSETA ISLANDS
ætti að vera á hverju heimili á landinu. =
VEGNA FJÖLDA FYRIRSPURNA skal bað m
tekið fram, að HERRA FORSETI ÍSLANDS .....
SVEINN BJÖRNSSON, hefir veitt mjer leýfi m
til útgáfu af mynd þeirri, sem jeg hefi tekið af =
honum á ljósmyndastofu minni. Myndirnar verða
í 18X24 cm stærð (og eftir samkomulagi stærri). =
VERÐ:
, OLÍUMYNDIR 50 krónur og á venjuleg-
um ljósmyndapappír 20 krónur. —
— EKKI VERÐUR TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
í SÍMA. —
MYNDIRNAR TIL SÝNIS Á LJÓSMYNDA-
= STOFUNNI. 1
Loftur
I Konungl. sænskur hirðljósmyndasm. =
il NÝJA-BÍÓ. =
1 llllllllllllllllllllilllilllilLlllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^