Morgunblaðið - 08.07.1944, Page 6

Morgunblaðið - 08.07.1944, Page 6
6 MO*GUNBLAT)IÐ Laug'ardaginn 8. júlí 1944 HtmgmtMftfe! Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Áuglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Blekkingavefur Tímans TÍMINN heldur áfram að ala á þeirri háskalegu blekk- ingu, að stjettamismunurinn hafi magnast stórlega í okk- ar þjóðfjelagi undangengin stríðsár. Hjer hafi risið upp f jölmenn og voldug stjett stríðsgróðamanna, meðan marg- ar' stjettir hafi vart haft til hnífs og skeiðar. Þessi óholla þróun hafi skapað jarðveg fyrir stjettaátök og sundur- lyndi í þjóðfjelagin^ og veitt öfgastefnum hin ákjósan- legustu starfsskilyrði. ★ Þegar Tíminn hreyfði þessu fyrst, nú fyrir fáum dögum, fann Morgunblaðið ástæðu til að benda á, að þróunin hjer á landi hefði verið alt önnur stríðsárin, en Tíminn vildi vera láta. Mbl. benti m. a. á, að strax í byrjun stríðsins hafi verkamenn og aðrir launþegar feng- ið tryggingu fyrir því, að þeim yrði bætt dýrtíðin, hver sem hún yrði. Verkamenn og flestar launastjettir hafi og brátt fengið verulegar kjarabætur og hjeldu þeim óskert- um enn. Fullyrti Mbl., að kjör alþýðumanna hafi aldrei verið svipað því eins góð hjer á landi og undangengin stríðsár. Ennfremur benti Mbl. á, að strax og það kom í ljós, að bændastjettin varð illa úti, vegna markaðstapa, hafi Al- þingi hlaupið undir bagga og greitt úr ríkissjóði tugi miljóna, til þess að koma þar á jöfnuði við aðrar stjettir. Alt eru þetta óvefengjanleg sannindi, enda gerir Tím- inn ekki minstu tilraun til þess að hrekja þau. Það er til ein stjett manna, sem hefir verið hart leikin stríðsárin, en hana nefnir Tíminn ekki og hann hefir aldrei lagt henni liðsyrði. Það eru starfsmenn ríkisins, einkum þeir sem eru í lægri launaflokkum. Kjör flestra þessara starfsmanna eru í engu samræmi við kjör annara stjetta þjóðfjelagsins. ★ Svo eru það stríðsgróðamennirnir. Tíminn heldur því fram, að skattalög okkar sjeu þannig, að einstaklingar hafi getað safnað stórfeldum gróða stríðsárin. En hið sanna er, að eftir að stríðsgróðaskatturinn var lögtekinn, var gróðasöfnun gersamlega útilokuð. Þar hefir verið svo langt gengið, og er enn, að ríkið tekur 90% af skatt- skyldum tekjum umfram 200 þús. kr. Hitt er rjett, að skattalögin leyfa útgerðarfjelögum að leggja til hliðar nokkurt fje til aukningu skipastólsins, en þetta er gert til öryggis fyrir framtíðina, enda allir sammála um að þetta sje brýn nauðsyn. Svo njóta og almenn hlutafjelög nokkurra hlunninda fyrir varasjóði sína, sem einnig er nauðsynlegt til tryggingar framtíðarrekstri þessara fyrir- tækja. Tíminn hefir farið hörðum orðum um það, að í skattalögum var dregið úr möguleikum samvinnufjelaga til söfnunar varasjóða. En sje samvinnufjelögum nauð- synlegt að safna varasjóðum — og er enginn ágreiningur um það — ætti sama að gilda um hlutafjelög. ★ Ný kaupkröfualda virðist risin í okkar landi. Hvert stjettarfjelagið af öðru segir upp samningum og heimtar hærra kaup. Og það eru ekki þau stjettarfjelög, er lakast hafa kjörin, sem riðið hafa á vaðið. Skrif Tímanus um hinn stórfelda ójöfnuð og misskift- ingu milli stjettanna, hljóta að kalla fram nýjar kaup- kröfur. En er ekki mælirinn að verða fullur. Rekur ekki að því fyrr en varir, að atvinnuvegirnir hætti að geta risið undir byrðinni? Hver á þá að greiða hið háa kaup? Eitt er víst: Ef sú stefna á að vera ráðandi í okkar þjóð- fjelagi, að banna atvinnufyrirtækjum að safna fje til reksturs síns og gera samtímis jafnt og þjett auknar kröfur, verður skamt að bíða þess, að einkarekstur og einkaframtak á sviði atvinnulífsins í okkar landi hverfi með öllu. Ef til vill er það þetta, sem stefnt er að. En ef svo er, eiga þeir, sem knjesetja vilja einkareksturinn, að ganga hreint til verks. Það væri ólíkt drengilegra, heldur en að vera að murka úr honum lífið. Barnaspífaii Hringsins EFTIR ÞVÍ, sem bærinn stækkar og fólkinu fjölgar, verður þörfin sífelt brýnni, að hjer í bæ verði bygt sjerstakt sjúkrahús fyrir börn, sem snið- ið sje eftir þeirra eigin þörfum. Engum er það ljósara en lækn- unum, hversu erfitt það oft og líðum er, að stunda sjúk börn i heimahúsum, þar sem sú Hjálp og hjúkrun, sem þar er hægt að veita, er iðulega svo ófullkomin og ónóg. En það er einmitt að- hlynningin og hjúkrunin, sem svo mikið byggist á hvort hið sjúka barn nær heilii heilsu. I heimahúsum er heldur ekki hægt að gera þær rannsóknir, sem þarf, til að aðgreina eða þekkja ýms sjúkdómstilfelli. — Ekki er heldur hægt þar að gera þær aðgerðir, sem svo oft og tíðum þarf í skyndi að grípa til, þegar um alvarlega sjúk- dóma er að ræða. Það er ekki hægt að neita því, að margt barnslífið fer forgörðum, sem að öllum líkindum hefði verið hægt að bjarga, ef það hefði ver ið á sjúkrahúsi. Það segir sig sjálft, að það er óra mismunur á batavon þess barnsins, sem liggur sjúkt í loftillum kjallaraíbúðum, eða öðrum álíka húsakynnum og enga hjúkrun hefir, af þeim sem til kunna, og þess barnsins, sem liggur á sjúkrahúsi og stundað er af faglærðu og'æfðu hjúkrunarliði, þar sem allt er við hendina er þarf. ef til ein- hverrar aðgerðar þarf að grípa. Það er líka önnur hlið á þessu máli, sem ekki er hægt að ganga fram hjá, sú hliðin, sem að heimilunum snýr. Er ekki oft og tíðum full þung sú byrði, sem á móðurina er lögð, er hún sjálf er látin hjúkra og annast sitt sjúka og dauðvona barn? Vaka nótt eftir nótt og vera enga stund dagsins laus við kvíðann og áhyggjurnar, sem ef til vill er meir lamandi en vök- urnar og stritið sjálft. ■— Myndi það ekki draga nokkuð úr á- hyggjum móðurinnar, að vita að barni sínu væri hjúkrað af fólki, sem til þess kann og und- ir þeim bestu skilyrðum, sem kostur er á? Kvenfjelagið Hringurinn í Reykjavík hefir með sínum al- þekkta dugnaði hafi baráttuna fyrir byggingu barnaspítala. — Konur Hringsins hafa vakið á- huga almennings fyrir málefn- inu, svo margur góður maður- inn hefir lagt drjúgan skilding í barnaspítalasjóðinn. En gjaf- ir til barnaspítalans eru, sam- kvæmt samþykt Alþingis, und- anþegnar skatti. Væri nú ekki vel til þess fall ið, að þeir menn og þau fjelög, sem á þessum árum hafa safn- að auði og allsnægtum, ljeti eitthvað af mörkum, þessu mikla menningarmáli til styrkt ar. I dag og á morgun ælla kon- ur Hringsins að halda útiskemt- un í Hljómskálagarðinum, til ágóða fyrir barnaspítalann. •— Hafa þær hvorki sparað tíma nje erfiði til þess að þessi fyrir hugaöa skemtun verði sem á- nægjulegust. Þar verður áreið- Framhald á 8. síðu yjíluerji ilrij-ar: | daaíe •í* x<*:-x-x-x-x-x-:-x* Einkaleyfi og almenn kurteisi. MARGIR MENN eru þannig gerðir, að þeir eiga bágt með að sitja á strák sínum og gera það heldur ekki stundinni lerigur en þeir telja sig mega til. Þannig er það í viðskiftum sumstaðar. Á meðan samkepni er í viðskift- unum telja menn sjer skylt að sýna almenna kurteisi, því geri þeir það ekki, vita þeir, að við- skiftin eru töpuð og ganga þang- að, sem viðskiftavinunum er sýnd sjálfsögð kurteisi. Þessar hugleiðingar eru hjer ritaðar að gefnu tilefni. Eins og kunnugt er hefir samgöngukerf- ið verið skipulagt þannig, að á- kveðnir menn, eða bifreiðastöðv ar hafa fengið sjerleyfi til far- þegaflutninga á ákveðnum leið- um. Það er ekki í önnur horn að venda fyrir þá, sem þurfa að kaupa sjer far, en að ferðast með sjerleyfisbifreiðunum. Þetta skipulag hefir gefist mjög mis- jafnlega, eins og vitrir menn sáu fýrir. Það mun þó sem betur fer ekki vera algengt, að sjerleyfis- hafar fyllist hofmóði, en það er þó til. Að þessu sinni skulu ekki nefnd nein nöfn, einkum þar sem um er að ræða einn af al- minstu spámönnum í þessari at- vinnugrein. En það er vitanlega algjörlega ófært, að hið opinbera veiti einstökum mönnum einka- leyfi til atvinnureksturs, ef þeir sömu menn eru svo skapi farn- ir, að þeir kunna ekki að um- gangast fólk af almennri skyn- semi. Og nóg um þetta í bili. Bílaskorturinn á morgnana. ÞAÐ HORFIR alveg til stór- vandræða, hve erfitt er að fá leigubíla hjer í bænum að morgni dags. Það er sama þótt líf liggi við. Það er ekki hægt að fá bíl fyrir hádegi, nema þá ef til vill með því að hanga langa lengi og bíða á einhverri stöð- inni. Fyrir nokkru lýsti jeg því hjer í dálkunum, hve miklum erfið- leikum það bakaði mönnum, að geta ekki .náð í leigubíl að morgni dags. Fólk er að leggja upp í ferðalög og þarf oft að koma miklum farangri til skips eða á bílastöð. Margt fleira kem ur til greina, sem því veldur, að mönnum er nauðsynlegt að geta náð í leigubíl að morgni dags. Er nú ekki einhver leið til að bæta úr þessu? Er ekki hægt að taka upp morgunvakt, eins og næturvakt? Vilja bílaeigendur ekki athuga þetta? Það yrði á- byggilega vinsælt meðal bæjar- búa, ef leigubílaeigendur reyndu að leysa þetta mál á heppilegan hátt. Óþarfa þrengsli í strætisvögnum. ÞAÐ ER oft ös í strætisvögn- unum og það kemur fyrir, að strætisvagnar fara framhjá stöðvum, þar sem þeim er ætlað að taka farþega, og geta ekki tekið þá menn með, sem höfðu beðið eftir vagninum og reitt sig á ferðina, vegna þess, að vagn- inn er þegar yfirfullur, eða virð- ist að minsta kosti vera það. Þannig var það t. d. hjer á Laugaveginum ekki alls fyrir löngu. Allmargir menn biðu eft- ir strætisvagni á stað, þar sem vagninn á að nema staðar til að hleypa út farþegum og taka nýja, Vagninn kom á tilsettum cic^iecjxi iijinu Ííf'u I tíma og nam staðar. En svo vel var troðið í vagninn hjá bílstjór- anum, að ekki var á það bætandi ( og bílstjórinn sagðist ekki geta tekið fleiri farþega. Mennirnir, sem beðið höfðu, sáu, að þetta var ekki nema rjett og gátu ekkert við því sagt — þar til vagninn rann framhjá þeim. Sáu þeir þá, að langt var frá því, að vagninn væri fullset- inn að aftan. • Góð regla. ÞAÐ ER góð regla fyrir stræt- isvagnafarþega, að flytja sig aft- ast í vagninn um leið og þeir koma upp í hann. Fylla- vagn- inn fyrst að aftan og láta svo fyllast frameftir honum, eftir því, sem fólk kemur upp í. Þetta yrði til hægðarauka fyrir bíl- stjórana jafnt og farþega og er ofur einfalt og fyrirhafnarlítið, ef menn taka sig saman um að gera það þegjahdi og hljóða- laust. En það virðist vera einhver leiður vani hjá fólki, sem ferð- ast með strætisvögnum, að það kemur rjett inn fyrir dyrnar og sækist eftir að troða sjer sem næst bílstjóranum. Það er ætlast til ,að farþegar komi inn í stræt- isvagnana að framan og fari út að aftanverðu. En oft eiga menn bágt með að hlýða þeirri reglu líka. • Blessað veðrið. HERMANNABLAÐIÐ „Hvíti fálkinn" gerir veðurfarið hjer lítillega að umtalsefni í síðustu útgáfunni og get jeg ekki sjeð annað, en að mjer sje þá einnig óhætt að orða blessaða veðurblíð una líka, svona örlitið að minsta kosti. Veðrið er mál, sem allir tala um. Hvað stendur þessi blíða lengi? spyrja menn. En enginn getur svarað, en öllum er heimilt að vona. — Hvað heldur þú, að þetta veður haldist lengi? sagði jeg við kunningja minn, sem jeg mætti á götunni núna í vikunni. — Til haustsins, svona til að byrja með — vona jeg, bætti hann svo við. En það er svo ein- kennilegt, að menn fá líka leið á hreinviðrinu. Mann hitti jeg, sem óskaði innilega eftir rigru- ingu. Konan hans er í sveit með krakkana og hann er einn heima. Hann gleymir stundum að bursta skóna sína á morgnana og þeg- ar líður á daginn er hann ósköp flækingslegur til fótanna, aum- inginn. En hann getur huggað sig við það, að það er svo með fleiri bæjarbúa þessa dagana. • Atvinnugrein, sem ekki virðist borga ^ig. ÞAÐ VIRÐIST ekki borga sig að reka hjer skóburstun í bæn- um. Framtakssamir menn hafa nokkrum sinnum byrjað á þess- ari atvinnugrein, en allir hafa gefist upp á skömmum tíma. Ef til vill stafar þetta af því, að menn hjer í bænum, einkum þó karlmenn, eru mjög kæru- lausir um það, hvernig þeir eru til fótanna. Það er nærri því und antekning, ef maður sjer mann með gljáburstaða skó. Erlendis tþykir það víða hinn mesti sóða- skapur að hugsa ekki vel um skóna sína og einhversstaðar hefi jeg heyrt það heilræði tF karlmanna, að þeir gætu verið vissir um, að þeir væru vel til fara, ef þeir gættu þess að vera ávalt með gljáburstaða skó og með hreint lín um hálsinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.