Morgunblaðið - 19.07.1944, Blaðsíða 1
BAIMDAMENN BRJÓTAST í GEGN HJÁ CAEN
Mestu loftárásir, sem nokkru sinni lafi verið gerðar
Montgomery ánægður
með árangurinn
Vígstöðvarnar í Frakklandi.
Eldsvoli
1 nétt
Maður
brennist
mikið
ELDSVOÐI varð hjer í
bsenum í nótt. Kom upp eld-
ur í húsinu við Laugaveg 53
(bakhús) og brann þar íbúð
Jóhanns Sigurðssonar og alt,
sem í henni var, en Jóhann
brendist mikið á baki og var
fluttur í sjúkrahús.
Eldurinn var allmagnaður
er slökkviliðið kom á vett-
vang kl. rúmlega 12, en eftir
um klukkustundar slökkvi-
starf tókst að vinna bug á
eldinum.
Mikið tjón á eignum.
Jóhann Sigurðsson, sem fyrr
er nefndur, bjó í húsinu með
konu sinni og barni. Mistu þau
alt sitt í eldinum. Ekki var
kunnugt með vissu í nótt um
það, hvort innanstokksmunir
Jóhanns voru vátrygðir, en
kunnugir menn, sem þarna
komu á vettvang, töldu að svo
hefði ekki verið.
í húsinu bjó einnig Úlfhild-
ur Þorsteinsdóttir, einhleyp
kona. Skemdist alt innbú henn
ar af vatni og reyk. Það var alt
óvátrygt.
Hjá frú Rögnu Jónsson,
ekkju Eyjólfs Jónssonar rak-
ara, skemdist innbú talsvert af
vatni.
Ekki var í nótt kunnugt um,
með hvaða hætti eldurinn kom
upp í húsinu.
Japanar verða
hungurmorða
A
I
LONDON í gærkveldi.
BRESKU hersveitirngr, sem
berjast í Burma, hafa enn unn-
ið nokkuð á og náð á sitt vald
nokkrum bæjum úr höndum
Japana.
Bretar hafa rekist á japanska
hermenn, sem eru aðframkomn
ir af hungri. Margir japanskir
hermenn fremja sjálfsmorð
heldur en að láta taka sig til
fanga, en upp á síðkastið hafa
miklu fleiri japanskir hermenn
gefist upp fyrir bandamönnum
en áður.
Frjettaritarar þar eystra vara
þó við þeirri skoðun, að Jap-
anar í Burma sjeu að gefast
upp. Segja þeir, að þessir hung
urmorða japönsku hermenn,
sem Bretar hafa tekið til fanga
undanfarið, sjeu bakverðir,sem
skyldir voru eftir matarlausir,
er aðalherinn ljet undan síga
fyrir sókn Breta. — Reuter.
Loftárásir
á Þýskaland
LONDON í gærkveldi.
UM 750 fjögra hreyfla flug-
vjelar fóru til árása á stöðvar
í Þýskalandi í björtu í dag, á
sama tíma sem 2000 flugvjelar
bandamanna voru að gera loft-
árásir á stöðvar Þjóðverja í
Normandie.
„Við sýnum þeim með þessu,
að við getum unnið bæði verk-
in í einu“, sagði flugforingi við
frjettaritara Reuters í dag.
Til loftbardaga kom yfir
Norður-Þýskalandi í dag, er
flugsveitir bandamanna komu
til árása. Sendu Þjóðverjar
fram um 60 orustuflugvjelar,
en Mustang-orustuflugvjelar
úr 8. flughernum ameríska,
sem voru sprengjuflugvjelun-
um til varnar, skutu niður 21
orustuflugvjel og dreifðu hin-
um í allar áttir, segir í opin-
berri tilkynningu. — Reuter.
Bretar hafa meira en
nóg af ffugmönnum
LONDON í gær.
ÞAÐ VAR tilkynt í London
í dag, að margir þeirra, sem
hefðu sótt um upptöku í breska
flugherinn, verði nú látnir
gegna herþjónustu í landhern-
um eða í flotanum.
Sú skýring er gefin á þessu,
að bandamenn hafi nú náð al-
gjörum yfirráðum í lofti. Flug-
herinn breski hafi nú fleiri
æfða flugmenn en hann hafi
not fyrir, einkum þar sem
manntjón flughersins breska
hafi reynst miklu minna en
gert hafði verið ráð fyrir.
Landherinn breski hefir nú
hinsvegar þörf fyrir bestu
menn, sem hann getur fengið,
en eins og kunnugt er voru það
hraustustu borgararnir, sem
valdir voru í flugherinn.
Bússar sækja fram 50 km. til Lvov
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
í DAGSKIPAN, sem Stalin
márskálkur þirti í dag til Koni-
evs marskálks er í fyrsta skifti
skýrt af Rússa hálfu frá hinni
nýju sókn Rússa frá Tarnopol
og Lutsk í áttina til Lvov. Seg-
ir í þessari þagskipan Stalins
að hersveitir Konievs hafi sótt
fram 50- km. á 200 km. breiðu
vígsvæði og tekrð um 600 bæi
og þorp.
Meðal borga þeirra, sem Rúss
ar segjast hafa tekið á þessum
slóðum, eru: Polsk, Gorokhov,
Radziechev, Zloczow, Kamicka
og járnbrautarstöðvarnar í
Krasnoey, Brody og Busk.
Sóknin til Brest Litovsk.
I herstjórnartilkynningu
Rússa í kvöld er skýrt frá á-
framhaldi sóknarinnar til Brest
Litovsk. A þeim vígstöðvum
hafa Rússar tekið borgina Be-
restovitsa og 150 aðra bæi og
þorp.
Gagnáhlaup Þjóðverja
i
við Niemen.
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HERSVEITIR BRETA OG KANADAMANNA í Nor-
mandi hafa brotist í gegn um varnir hersveitir Rommels
hjá Caen. Þetta var tilkynt í aukatilkynningu, sem gefin
var út í herstöðvum Montgomer’ýs hershöfðingja í kvöld.
Er sagt, að anrtar breski herinn hafi snemma í morgun
hafið sókn og brotist í gegnum'varnir Þjóðverja inn á
sljettlendið fyrir austan Orneána og fyrir suðaustan Caen.
Mestu loftárásir í sögunni.
Aður en landherinn breski rjeðist til orustu í morgun, fóru
um 2000 sprengjuflugvjelar til árása á stöðvar Þjóðverja við
Orne. Var varpað um 8(000 smálestum af sprengjum á svæðit
sem ekki er stærra en 100 ferkílómetrar( á 45 mínútum. Er
þetta mesta loftárás á ekki stærra svæði, sem nokkru sinni hefir
verið gerð í sögunni.
Sprengj uflugvj elarnar vörpuðu sprengjum sínum á stöðvar
Þjóðverja. sem ekki voru lengra en 1000 metra frá hersveitum
Breta og Kanadamanna.
í aukatilkynningunni er enn
fremur sagt; að harðir bardagar
standi yfir á flatlendinu fyrir
austan Orne og því er bætt við(
að Montgomery hershöfðingi
hafi látið svo um mælt5 að hann
sje mjög ánægður með þennan
árangur. sem náðst hafi á þess-
um fyrsta degi orustunnar.
Vaucelles tekin. ,
Bandamenn hafa náð á sitt
vald bænum Vaucelles á eystri
bökkum Orne og eru að hreinsa
til í borginni. Montgomery rjeð
ist á varnir Rommels þar sem
álitið var að þær væru sterk-
astar. Hafa bandamenn þegar
komist í tæri við þýska her-
menn úr 13 herfylkjum. Eru
þar með hersveitir úr S. S,-
fylkjum, en í þeim eru bestu
hermenn Þjóðverja.
Loftárásimar.
Flugvjelar bandamanna rjeð
ust fyrst á stálverksmiðjurnar í
Mendeville. sem er um 3 km.
fyrir suðaustan Caen. í þessum
verksmiðjum höfðu Þjóðverjar
komið sjer vel fyrir og víggirt
þær vel. Skutu þeir þaðan úr
sprengjuvörpum . á stöðvar
bandamanna. Enríremur voru
gerðar árásir á Calombelles,
annað virki Þ '.'ðverja, • urn 4
jkm. tiorðr • .i
um
St. Lo
fallin
Lgndon í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
HERSVEITIR Omars Brad-
leys hershöfðingja tóku St. Lo
í Normandie í dag. Var þetta
tilkynt í aukatilkynningu frá
herstöðvum Bandaríkjamanna
í Normandie. Þjóðverjar, sem
vörðu borgina, hörfuðu aftur
3—5 kílómetra.
Þýsku hersveitirnar, sem
hörfuðu frá St. Lo, hafa tekið
sjer nýja stöðu í hæðunum fyr-
ir sunnan borgina og eru að
grafa sig þar niður í skotgrafir.
Á Vesturbökkum Niemenár-
innar hafa Þjóðverjar gert öfl-
ug gagnáhlaup í þeim tilgangi
að hrekja Rússa austur fyrir
ána á ný. Ekki hefir Þjóðverj-
um tekist það. Segjast Rússar
enn hafa náð nokkrum bæjum
og þorpum á sitt vald á þessum
slóðum.
Við landamæri Lit-
haugalands.
I sókninni til Lithaugalands
hafa Rússar enn náð á sitt vald
um 100 bæjum og þorpum, þar
á meðal Karsnogorodskaya.
af Caen, á
Orne. Bæði
:g Colombelles
rústir á 15 mín-
eystri . bc'
Mendev’ ’ 2
voru lrgða
útum.
Næstu 15 minúturnar-var loft
árásunum beint gegn Sanner-
ville og Mannervill . sem eru
11 km. fyrir austan Caen. Á
þessum slóðum höfðu
/erj
Framh. á 4. síðu.