Morgunblaðið - 19.07.1944, Blaðsíða 12
Miðvikudagnr 19. júlí 19441
12
Kenslubók í íslensku
fyrir enskumælandi
menn
UNDANFARIN 2—3 ár
hefir dr. Stefán Einarssón,
j)rófessor við John Hopkins
háskólann í Baltimore unnið
að samningu kenslubókar í
íslensku fyrir enskutnælandi
menn. Segir Heimskringla í
W innepeg frá þessu og ltætir
við, að þrjitt fvrir brýna þörf
á slíkri bók ha.fi dregist að
gefa hana lit. Handritið hafi
verið til frá því í júlí í fyrra.
En það sje ekki fyrr en nú,
að bókin sje komin í prentun
og sje bráðlega von á henni
á markaðinn.
Heimskringla bætir við:
Það var American Council
of Learned Societies. »sem
hvatti til samningar slíkrar
bókar. eftir að dr. Stefán
Einarsson hafði rætt við þá
um það efni. En það er atip-
að en gaman að fá fræðibæk-
ur gefnar út.
Johns Hopkins háskóli hef-
ir á margan hátt sýnt Islend-
ingum góðhug. Sá skóli mun
hafa verið sá fyrsti til að
veita íslenskum námsmönnum
ókeypis kenslu. Ilann'hefir og
komið á fót h.já s.jer íslensku
bókasafni og lentu bækur N.
Ottensons í það. Segir Thor
Thors sendiherra í Washing-
ton, er upplýsingar fjekk um
útgáfu bókar dr. Stefáns, að
dr. Isaiah Bowman, forseti
Johns Hopkins , háskóla og
st j órn a n d i 1 a ndfræðifjelags
Ba ndaríkjanna (American
Geographical Society) hafi
miklar mætur á íslenskum
fræðum og s.je í miklum kunn
ingsskap við Vilhjálm Stef-
ánsson. Ilann lagði því og
gott orð, að safn Ottensons
var keypt og fylgdi því á-
kveðið að kenslubók dr.
Stefáns yrði prentuð. Annar
maður er og nefndur, sem
mikill Islandsvinur í háskól-
anum, en það er dr. Kemp
Malone, prófessor. Ilann var
urn tíma við nám á Háskóla
íslands og hefir ávalt verið
unnandi íslenskra fræða. —
Hann er vinur og samverka-
maður dr. Stefáns Einarsson-
ar og studdi óskiftur að út-
gá fu kenslubókarinnar.
Dýr lífguð,
LONDON: — í London var
nýlega sýnd stutt, rússnesk
kvikmynd, sem sýndi tilraunir
rýssneskra vísindamanna við
Iífgun dýra. Kvikmynd þessi er
ábyggilega einhver hin athygl-
isverðasta, sem nokkurn tíma
hefir verið gerð.
Rússneskir vísindamenn höfðu
sett sjer það takmark að geta
lífgað dýr, og náð því.
A myndinni sjest Iífgaður
hundur, sem hafði verið dauður
í stundarfjórðung.
Súrefnisþrungnu slagæða-
blóði var dælt í hundinn, og
hjartað fór að slá, en veikt. —
Hundurinn var í fyrstu mjög
máttfarinn. En sagt er, að hann
hafi síðar náð fullri heilsu. —
Á myndinni sjást hundar, sem
kfað hafa eðlilegu lífi í mörg
ár eftir slíka tilraun og átt
heilbrigða hvolpa.
Snáðisin grælur láiinn vin
PILTURINN hjerna á myndinni er sorgbitinn á svipinn. —
Bílstjóri í New York ók yfir hundinn hans og drap hann. Pilt-
urinn vildi ekki fara frá látna leikfjelaga sínum fyrr en lög-
reglan kom og flutti þá báð'a í burtu.
101 nýjum vörubíl
heíir verið úthlutað
HINGAÐ til lands hafa kom-
ið í vor og í sumar 101 nýir
vörubílar frá Ameríku. Voru
þetta bílar, sem viðskiftaráðið
hafði fengið loforð fyrir og áttu
að nægja til nauðsynlegrar end
urnýjunar á vörubílum lands-
manna á síðari helmingi ársins
1943. En bílar þessir komu ekki
til landsins fyr en nú fyrir
skömmu. Hefir þeim öllum þeg
ar verið úthlutað, og er ekki
von á fleiri nýjum bílum á
þessu ári til landsins, eftir því
sem Olafur Jóhannsson í við-
i skiftaráðinu skýrði Morgunblað
inu frá í gær.
Til nauðsynlegra
fiutninga.
Bílunum hefir verið úthlut-
að til sjerleyfishafa fólksflutn-
inga, til opinberra stofnana og
allmargir verða notaðir til
mjólkurflutninga. Hefir verið
reynt að úthluta bílunum með
tilliti til nauðsynlegra flutn-
ingaþarfa landsmanna á ýms-
um syiðum.
Vörubílarnir hafa komið
með tveimur ferðum. í fyrri
ferðinni voru 14 smábílar og
15 stærri vörubílar (1% tons).
I seinni sendingunni voru 72
vörubílar. Voru flestir þeirra
Chevrolet-bílar, lVz tons, 13
Fordbílar og nokkrir smærri
vörubílar (Dodge). Fordbílarn
ir fara allir til sjerleyfishafa.
5 fólksflutningabílar.
Með síðustu skipsferð frá
Ameríku komu einnig 5 fólks-
flutningabílar. Þeir fara allir
til opinberra embættismanna,
eða stofnana. Póst- og síma-
málastjóri fjekk einn, vitamála
stjóri einn, Búnaðarbankinn
einn og bifreiðaeftirlitsmaður
ríkisins á Akureyri einn. Ein-
um bílnum er enn óráðstafað,
en Jón Guðmundsson, skrif-
stofustjóri í viðskiftaráðuneyt-
inu skýrði Morgunblaðinu svo
frá í gær, að fimti bíllinn
myndi ábyggilega fara til op-
inberrar stofnunar, eða emr
bættismanns, sem nauðsynlega
þyrfti á bílnum að halda.
Byggingarfram-
kvæmdir í Eyjum
Frá frjettaritara vor-
um í Vestmannaeyjum:
Þriðjúdagskv. 18. júlí:
NOKKRAR byggingafram-
kvæmdir eru nú lijer á döf_
inni. Verið er m. a. að ljúka
við bygingu 10 íbúða í verka-
mannabústoðunuru og kostar
nú íbúðin, 3 herbergi og eld-
hús, auk tveggja herbergja og
miðstöðvarherbergis í kjallara
65 til 70 þús. krónur. Bygg-
j ingarleyfi hafa nýlega verið
! veitt fyrir um 10 íbúðarhús-
um og er byggingarkostnaður
þeirra áætlaður um 1 milj.
króna. Vinna er þegar hafin
við þessara húsa, jafnframt er
unnið að því, að fullgera hús,
sem byrjað var á í fyrra.
Síðustu ár hefir verið bygt
hjer allmikið af íbúðarhúsum,
þrátt fyrir að íbúfj^fjöldi hafi
staðið í stað, og þó er skortur
á húsnæði.
Sement hefir verið nægi-
íegt og nokkrir bátsfarmar
verið seidir að Selfossi og
annara staða á Suðurlands-
undirlendinu, var það flutt
um Stokkscyri, og nú í vik-
unni var einn skipsfarmur
seldur til Hafnarfjarðar.
Samkomulag milli
Verkamannafjelags-
ins og Akureyrar-
bæjar
Frá frjettaritara vorum.
UPPKAST að samningi hafði
verið gert fyrir nokkru’ síðan
milli Verkamannafjelags Akur
eyrarkaupstaðar og Akureyrar
bæjar, en bæjarstjórn hafði á
fundi sínum hafnað einni grein
samningsins og taldi Verka-
mannafjelagið þá, að samning-
ar væru strandaðir og tilkynti
bæjarstjórn með brjefi, að ef
ekki yrði gengið að þeirri
kröfu, að meðlimir Verka-
mannafjelags Akureyrarkaup-
staðar og annara þeirra stjett-
arfjelaga í bænum, sem eru
meðlimir Alþýðusambands ís-
lands, og aðrir þeir, er stjórn
fjelagsins veitir vinnurjettindi,
skuli sitja fyrir þeirra verka-
mannavinnu, sem unnin er,
enda sjeu þeir hæfir til vinn-
unnar að mati, verkstjóra og
trúnaðarmanns og sanni rjett-
indi sín með fjelagsskírteini,
verði vinnustöðvun hafin 19.
þ. m.
I gærkvöldi mættu fulítrúar
frá Verkamannafjelaginu og
bæjarstjórn hjá Þorsteini M.
Jónssyni sáttasemjara, og varð
þar samkomulag með svohljóð-
andi viðbót: ,,Þó er bæjarstjórn
heimilt að láta ráða utanfjelags
menn til bæjarvinnu, ef hann
álítur það nauðsynlegt verksins
vegna eða fjárhagsástæðna
manna. Akvæði þessarar grein-
ar gilda ekki gagnvart þeim
mönnum, er vinnumiðlunar-
skrifstofan úthlutar atvinnu-
bótavinnu, sem styrkt er af bæ
og ríki samkvæmt lögum um
vinnumiðlun“.
Tvíhöfðaður
hænuungi
ÞAÐ SJALDGÆFA fyrir-
brigði kom fyr>r í hænsnabúi
hjer við bæinn í gærmorgun,
að tvíhöfðaður hænuungi kom
úr eggi. Unginn var að öðru
leyti rjett skapaður. Höfuðin
voru gróin saman í miðju. Ung
inn hafði fjögur augu og tvö
nef. Hann var dauður, er hann
var tekinn úr egginu.
Það var í hænsnabúi Valgeirs
Sveinbjörnssonar að Litla
Landi við Breiðholtsveg, sem
þetta náttúrufyrirbrigði kom
fyrir. Eggið var ásamt öðrum
í útungunarvjel og er ungi kom
ekki úr egginu^ins og hinum
í sömu útungunarvjelinni, á
rjettum tíma, braut Valgeir
eggið og sá þá vanskapaða ung
ann.
Valgeir kom með ungann í
skrifstofu Morgunblaðsins í
igær, en síðan fjekk Finnur Guð
mundsson hann fyrir Náttúru-
gripasafnið. Finnur skýrði blað
inu svo frá, að safnið myndi
ekki eiga slíkan vanskapning,
en safnið á hinsvegar hænu-
unga, sem fæddist með fjóra
fætur, og einhverja fleiri van-
skapninga.
Bát vantar
VJELBÁTURINN AUSTRI
S.U. 386 frá Eskifirði er ókom-
inn að landi, eftir þriggja daga
útivist, og eru menn farnir að
óttast, að eitthvað muni hafa
orðið að bátnum. — Hann fór
í róður frá Eskifirði s.l. sunnu-
dag, en til hans hefir ekkert
spurst síðan. Báturinn er 10
smálestir að stærð. Eigandi er
Halldór Árnason, Eskifirði.
Karlöfiur væntan-
legar í vikunni
BÆRINN hefir verið kart-
öflulaus síðan um s.l. helgi.
Jón ívarsson, forstjóri Græn
metisverslunar ríkisins, gaf
blaðinu þær upplýsingar í gær,
að von væri á sendingu um eða
fyrir næstu helgi.
Ástæðuna fyrir skorti þess-
um taldi forstjórinn vera, að
kartöflur þær, er keyptar hefðu
verið til landsins og komið
hefðu í júnímánuði, hefðu
reynst mjög skemdar.
Arne Andersson
setur heimsemt
í einnar mílu hlaupi
Málmey í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
í KVÖLD setti Arne Anders-
son nýtt heimsmet í einnar
mílu hlaupi, 4 mín. 1.6 sek. —•
Gunder Haegg hljóp vegalengd
ina á 4 mín. 2 sek. Báðir
hrundu þeir fyrra meti Anders-
sons, 4 mín. 2.6 sek.
Bandamenn að
umkringja
Livorno
RÓM í gær:
HERSVEITIR bandamanna,
sem sækja fram á vesturströnd
Italíu, hafa nú sótt fram fyrir
norðan Livorno og eru komnir
að Arno-fljóti um 18 km. fyrir
austan Pisa, og eru um 25 km.
frá Livomo að austan. Fyrri
fregnir hermdu, að Bandaríkja
menn væru aðeins um 6 km.
frá Livorno að sunnan. Virðast
Bandaríkjamenn ætla sjer að
umkringja borgina. Er því spáð
af hernaðarsjerfræðingum, að
ekki líði langt þar til Livorno
falli fyrir 5. hernum.
Pólverjar nálgast
Ancona.
Á austurströndinni hafa pólsk
ir hermenn brotist í gegnum
varnir Þjóðverja og nálgast nú
Ancona, en það er ein af aðal-
hafnarborgum ítala á austur-
ströndinni, og eina góða hafn-
arborgin milli Bari og Feneyja.
8. herinn.
Breski áttundi herinn, sem
berst á miðvígstöðvunum á ít-
alíu, og sem tók Arezzo um helg
ina, hefir sótt norður fyrir
Arno-fljót. Hefir 8. herinn tek
ið bæ einn, sem er um 8 kíló-
metra nofður af fljótinu og sótt
fram 20 km. á öðrum stað fyr-
ir norðan Arna. —.Reuter.