Morgunblaðið - 19.07.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.07.1944, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 19. júlí 1944 MOEÖUNBLAÐIfl 5 í* -*1 -*T t*T T*~ t#t 1*11*1 t*l 1*11*11*11*11*11*1 l*« I*, |*i ■*, *■ I*. ■•i .»■ ■«..«■ ■*■ ■«■ .«■ ■».■«■ «..♦..«..«..«..«■■« «..«. ■«■ ■«■ ■»■ ■♦■ .«■ ■«. ■». ■«. .«■ .». .»■ .«. .«. .«. .». _«. .». «. « .«. .4. .». .«. • AAA | •”»'*»"«**»,%"»'V%'*»***m.m***«**«***,*»,V*\*%*\*V**v«,«««««4“*«‘,««,*«,««*1 ♦,««,'«,«V’»*****.M.*,»*VV,-#V,.M.*,.H.M«M.M.M*,'*M*M.M4«‘»M«*«,,*t* '**«H»M«M»M/‘.**.*VVVVVVV*.**.M**4»‘,«**«**»M»**«M.M.M«,*.M.**»M«M»H.**.*4.*4«M«M«**.**.M.*V .*,«*,.**.*,«f‘«**«M«M.**«M»**.,W,«**,VV f ' ' i I '-tyJ> róttaóíÁu W* ot'f un blci Íjí’ nó GLÆSILEG ÍÞRÖTTAAFREK Á ALLSHERJARM. Í.S.Í. Fjögur Islandsmet og tvö drengjamet Eftir Þorbjörn Guðmundsson. j V V V Huseby. Skúli Guðm. Oliver Steinn. Kjartan Jóh. Óskar Jónss. ALLSHERJARMOT I. S. I. í frjálsum íþróttum hefir ætíð þótt mikill íþróttaviðburður hjer í höfuðstaðnum. Það. eru nú einu mótin í frjálsum íþrótt um, þar sem fram fer stiga- kepni milli fjelaga. Þar leiða, að öllum jafnaði, bestu íþrótta- fjelög landsins saman hesta sína og reyna með sjer. Mót þetta fer fram annað hvert ár. Nú er Allsherjarmóti í. S. í. 1944 nýlokið og skal því hj«r í stórum dráttum gert nokkur skil. Knattspyrnufjelag Reykjavík ur sigraði á mótinu í 9. sinn í röð frá því 1928 og má það telj ast vel að verið. Hlaut fjelagið 137 stig. íþróttafjelag Revkja- víkur reyndist KR-ingunum að þessu sinni hættulegasti keppi- nauturinn. Hlaut það fjelag 90 stig. Þá komu næst, mjög jöfn að stigatölu, Glímufjelagið Ár- mann með 43 stig og Fimleika- fielag Hafnarfjarðar með 42 stig. Yfirleitt var íþróttaárangur- inn á mótinu ágætur á okkar mælikvarða og á heimsmæli- kvarða í sumum greinum. Fjög ur Islandsmet „fuku“ á mótinu og þar á meðal það besta, sem við áttum. Þetta eitt sýnir það ótvírætt, að geta íþróttamanna okkar fer ört vaxandi. Já, fram þróun á því sviði er það hröð, að á hverju móti má eiga von á nýju meti, og það góðu meti. — Enn stendur mestur ljómi af Gunnari Huseby (K. R.). Hann er afreksmaður á alþjóðamæli- kvarða, Bætti hann met sitt í kúluvarpi um 18 cm., eða upp í 15.50 m. Það er besta íslenska metið. I kúluvarpi beggja handa bætti hann einnig fyrra met sitt, kastaði 26.78 m. Þá kom fram á mótinu ný stjarna, Kjartan Jóhannsson (í. R.). Hann gerði sjer lítið fyrir og bætti met Sveins Ingvarssonar í 400 m. hlaupinu um 3/10 úr sek. Hljóp hann á 52.3 sek. — Hafnfirðingurinn Oliver Steinn ruddi loks burtu gamla lang- stökksmetinu með ágætu stökki, 6.86 m. Þá setti ÍR- ingurinn Óskar Jónsson tvö drengjamet, í 800 m. hlaupi og 1500 m hlaupi. . Verður nú kepnin tekin fyr- ir í þeirri röð, sem hún fór fram. — Mótið hófst mánudaginn 10. júlí. Forseti íþróttasambands íslands, Ben. G. Waage, setti það með stuttri en snjallri ræðu. Þvínæst hófst kepni. Byrjað var með 100 m. hlaupi. Hafði fyrr um daginn farið fram undanrásir í þeirri kepni. Var hlaupið í þremur riðlum og sigruðu þá Oliver Steinn F. H. (11.3 sek.). Finn- björn Þorvaldsson ,í. R. (11.8 'sek.) og Sævar Magnússon, F. H. (11.9 sek.). í milliriðil kom- ust Árni Kjartansson, Á, Jó- hann Bernhard, K. R. og Jón M. Jónsson, K. R. Árni sigraði hann á 12.0 sek. Úrslit urðu þessi: 1. Oliver Steinn 11.7 sek. 2. Finnbj. Þorv. 11.8 sek. 3. Árni Kjartanss. 12.0 sek. 4. Sævar Magnúss. ,12.2 sek. Kepni var afar hörð mílli Olivers og Finnbjörns. Tókst Oliver að skjótast fram úr hon- um rjett í markinu. Finst mjer mjög hæpið að gera tímamis- mun þeirra 1/10 úr sek., þar sem aðeins var á þeim sjónar- munur. Hefði sami tími átt að vera hjá báðum. Arangurinn er annars heldur ljelegur, enda tnótgola. Stangarstökk fór næst fram. Þar urðu úrslit: 1. Þorkell Jóh., F. H. 3.25 m. 2. Sig. Steinss., í. R. 3.00 m. 3. Magnús Gunn., F.H. 2.92m 4. Kjartan Mark. FH 2.92 m. Stangarstökk er fögur íþrótt, en skammarlega lítill gaumur gefinn hjer í Reykjavík og hef- ir m. a. áhaldaleysi verið kent um, en slíkt ætti að vera í mann legu valdi að bæta úr. Þorkell hafði yfirburði og munaði ekki miklu að hann færi yfir 3.35, en hann er aðeins ,,drengur“, ný- búinn að setja drengjamet, 3.31 m. Þorkell er bróðir Olivers Steins. I 800 m. hlaupi var afar hörð kepni og síst minni harka en menn höfðu gert ráð fyrir. Hinn ungi og bráðefnilegi ÍR-ingur, Kjartan Jóhannsson, kom mönn um nokkuð á óvart með því að leiða hlaupið frá byrjun og sigra glæsilega. Sigurgeir Ár- sælsson, Á, fylgdi honum fast eftir lengi vel. Þegar um 100 m. voru að marki fór hann að gefa sig, en fjelagi hans. Hörð- ur Hafliðason, sem hafði hing- að til verið þriðji, sótti á og komst í annað sætið. Óskar Jónsson, í. R., hafði verið 4. í röðinni, en Brynjólfur Ingólfs- son, K. R., 5. Er um hálfhring- ur var eftir fór Brynjólfur fram úr Óskari, sem síðan 'fylgdi honum fast eftir. Sigur- geir virtist nú hafa tapað öll- um móði ol tóku þeir hann báð ir, Brynjólfur og Óskar. Þessi urðu því úrslitin: 1. Kjartan Jóh. 2:02.2 mín. 2. Hörður Hafl. 2:03.0 mín. 3. Brynj. Ing. 2:05.1 mín. 4. Óskar Jónsson 2:05.6 mín. Tími Kjartans er sá besti í 800 m., sem náðst hefir hjer- lendis. Hefir Sigurgeir Ársæls- son og náð þessum tíma, en metið, 2:00.2, setti Ólafur Guð- mundsson, K. R., í Svíþjóð 1939. — Tími Óskars er nýtt drengjamet. Það gamla, 2:06.7 mín., setti Árni Kjartansson, Á, 1941. I kringlukasti náðist ekki neinn sjerstakur árangur. Huse by og Ólafur Guðmundsson, í. R.. voru báðir linari en á 17. júní mótinu, þó einkum Ólaf- ur. Úrslit urðu þessi: 1. Gunnar Huseby 41.74 m. 2. Ól. Guðm. 38.40 m. 3. Bragi Friðr., KR, 38.32 m. 4. Har. Hákonars., Á, 34.12 m. Þá hófst langstökkið. Oliver Steini tókst þar að slá hið sjö ára gamla met Sigurðar Sig- urðssonar, K. V., um 4 cm. Náði hann þessari ágætu stökklengd í öijru stökki sínu, en Skúli Guðmundsson, K. R., hafði þá rjett á undan stokkið 6.70 m. Kepni var síðan afar hörð á milli þeirra, en hvorugur hætti árangur sinn. Úrslit: 1. Oliver Steinn 6.86 m. 2. Skúli Guðm. 6.70 m. 3. Brynj. Jónss., KR, 6.22 m. 4. Magn. Baldv., ÍR, 6.15 m. Kepni var hörð um þriðja sætið milli Brynjólfs og Magn- úsar, sem báðir eiga framtíð fyrir sjer sem langstökkvarar. Síðasta kepni fyrsta daginn var í 1000 m. boðhlaupi. Fimm sveitir keptu, 2 frá K. R. og 1 frá í. R., Ármanni og F. H. — Hlaupið var í tveimur riðlum. Dregið var um, hvaða sveit skyldi hlaupa á móti B-sveit K. R. og kom það í hlut A- sveitar sama fjelags, sem að sjálfsögðu var afar óheppilegt fyrir fjelagið. I. R. vann fyrri riðilinn ljett, en A-sveit K. R. hinn. Úrslit urðu .svo þessi: 1. ÍR-sveitin 2:08.3 mín. 2. KR (A-sveit) 2:09.7 mín. 3. KR (B-sveit) 2:13.0 min. 4. Ármann 2:13.0 mín. Ármann og B-sveit KR áttu að keppa um þriðja sætið dag- inn eftir, en KR-sveitin mætti aðeins ein og var henni dæmd- ur sigurinn. Eftir fyrsta daginn stóðu stig in þannig: 1. í. R. 31 st. 2. K. R. 29 st. 3. F. H. 26 st. 4. Ármann 10 stig. Kepni hjelt áfram á þriðju- dagskvöldið, en áður en hún hófst sýndi úrvalsflokkur karla úr K. R. fimleika undir stjórn Vignis Andrjessonar. Þá var það, sem unnið var besta afrek í frjálsufn íþrótt- um á íslandi. Var það í kúlu- varpi. Úrslitin urðu: 1. Huseby 15.50 m. 2. Jóel Sig., ÍR, 13.65 m. 3. Bragi Fr., KR, 12.61 m. 4. Sig. Sig., ÍR, 11.93 m. Mé'S þessu afreki hefir Gunn V ar unnið sig upp í tölu bestu núlifandi kúluvarpara. Til gam ans má geta þess, að með þess- um árangri hefði hann verið fimti besti kúluvarpari heims- ins í fyrra og bésti kuluvarp- ari Evrópu. Megum vrð vel við það una. Jóel er einnig ágætur kúluvarpari, sem án efa fer yf- ir 14 metra áður en langt liður. 200 r.u hlaupið fór á þessa leið: 1. Finnbj. Þorv. 23,4 sek. 2. Oliver Steinn 23.8 3. Kjartan Jóh. 23,9 4. Brynj. Ing. 24,2 sek. Brynjólfur hljóp á innstu braut, þá Finnbjörn, Kjartan og Oliver á ystu. Timi Finn- björns er ágætur, aðeins 3/10 úr sek. lakari en met Sveins Ingvarssonar. Þá er það hástökkið. 1. Skúli Guðm. 1,92 m. 2. Oliver Steinn 1,75 m. 3. Jón Hjarlar KR, 1,70 m. 4. Brynj. Jónss., KR 1.70 m. Þetta er glæsilegur árangur hjá Skúla og aðeins einum cm. lakara en met hans, sem hann setti á 17. júní-mótinu. Hann fór yfir allar hæðir í fyrsta stökki nema 1,90, þar í öðru. Yfir 1,92 fór hann ágætlega. en er hækkað var upp í 1,95 felli hann; þó getur hann stokk ið þá hæð og jafnvel hærra. Skúli fer einnig að verða há- stökkvari á heimsmælikvarða. 1500 m. hlaup eru skemtileg og þá sjerstaklega, þegar kepni er eins hörð og hún var að þessu sinni. Hlaupið er 3% hringur á vellinum eða rúml. það. Fyrstu tvo hringina var röðin þessi: 1. Óskar Jónsson ÍR, þá Indriði Jónsson FIR, þá Haraldur Björnsson KR, og næstir Hörður Haflioason Á, og Sigurgeir Ársælsson Á. Þeg- ar einn hringur var eftir: Ósk- ar *— Hörður — Haraldur pg Sigurgeir. Sigurgeir tók svo Harald, þegar um hálfhringur var eftir og skamt frá marki varð Óskar að hleypa báðum Ármenningunum fram fyrir sig. Úrslitin urðu því: 1. Hörður Hafl. 4:16,6 mín. 2. Sigurgeir 4:16,8 mín. 3. Óskar 4:17,4 mín. 4. Haraldur Bj. 4:25,4 mín. •Tími Óskars er glæsilegt nýtt drengjamet. Gamla metið 4:25,6 setti hann í fýrra. 110 m. grindahlaup fór á þessa leið: , 1. Skúli Guðm. 17,0 sek. 2. Brynj. Jónss. 18,0 sek. 3. Finnbj. Þorv. 18-3 sek. 4. Oddur Helgas. Á, 18.3 sek. Tími Skúla er sami og met- timi Ólafs Guðmundssonar, KR. Á hann mikla framtíð fyrir sjer í þessari grein. Vonandi hefst nú viðreisnai’tímabil grinda- hlaupsins, en það hefir verið í mikilli niourlægingu undan- farið. Þá er það 10 kni. gangan. — Þar keptu aðeins tveir, Sverrir Magnússon Á, og Steingrímur Atlason, F. H. Sigraði Sverrir á 61:35,6 mín. Steingrímur gekk á 64:21,2 min. Eftir annan daginn stóðu slig in þannig: 1. KR 64 st„ 2. ÍR 53 st., F H 41 st. og Ármanrv 30 st. I 4x100 m. hlaupi keptu tvær sveitir frá KR og tvær frá ÍR — B-sveit KR hljóp á instu braut, þá A-sveit ÍR, B- sveit ÍR og A-sveit KR á ystu braut. Tvo fyrstu sprettina voru báðar KR sveitirhar á und an, en eftir þriðja sprettinn, sem Kjartan hljóp fyrir A-sveit IR, var hún í öðru sæti, en við síðustu skiftingu kom óhapp fyrir A-sveit KR, svo hið goða forskot hvarf. — Á síðasta sprettinum áttust þeir svo við Sveinn Ingvarsson KR og Finnbjörn ÍR og á þeim var aðeins sjónarmunur. Sveinn að e »rs á undan. Tími A-sveitanna var því sá sami 46.8 sek. Þriðja var B-sveit KR á 47,3 sek. og 4. B-sveit ÍR á 50,4 sek. í spjótkasti tókst Jóel Kr. Sig urðssvni ÍR að sigra Jón Hjart- ar í fyrsta sinn og gerði það glæsilega. Eftir þrjú fyrstu köst in átti Jón lengsta kast rjett yfir 50 m„ Finnbjörn var annar með tæpa 49 m. og Jóel rjett á eftir. Fyrsta kast sitt í úrslitum kastaoi Jóel langt yfir 50 :m„ en það var ógilt. Annað kast hans var svipað og þá gill. Jón átt þá eitt kast eftir. Hann lengdi sig en* ekki nóg. Úrslit: 1. Jóel Kr. Sig. 54,29 m. 2. Jón Hjartar 51,61 m. 3. Finnbjöm Þorv. 48.88 m. 4. Jens Magnúss. KR 46.97 m. Margir höfðu gert ráð fyrir harðari kepni í 400 m. ’hlaupi en þar varð, einkum eftir úr- slitin í 800 m. hlaupinu. Finn- björn, sem fór beint úr spjót- kaslinu í þessa kepni, hljóp á innstu braut, þá Brynjólfur Ingólfsson, Jóhann Bernhard og Kjartan Jóhannsson á yslu , Framh. á bls. 8,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.