Morgunblaðið - 19.07.1944, Síða 8
8
MORGONBL^ Mf)
—Skæruliðarnir
Framh. af bls. 7.
IMíræð: Herdás SSgurð-
ardóttir, Varmalæk
ur er vandlega reyndur, áður
en honum er veitt upptaka
í skæruherinn. Síðan er hon.
um sagt að reyna að útvega
sjer bakpoka, ábreiðu, regn-
frakka, sterka skó, hlýja peysu
og mat til nokkurra daga.
F',erðin að heiman til felustað-
anna getur tekið margar vik-
ur.
Skæruliðarnir hafa engar
byrðir riffla og vjelbyssna,
svo sjerhver nýliði verður að
sýna hæfni sína til að fara
með þessi vopn, áður en hon-
um er fengin þau í hendur.
Auk hins almenna heraga, er
honum kennt að virða mismun
andi trúarbrögð og skoðanir
og meta heill flokksins meir
en persónulegt öryggi.
Síðast gortuðu Þjóðverjar
af því, að þeir myndu upp.
ræta skæruherinn áður en
snjór tæki að falla í Ölpun-
um. Snjórinn kom, og skæru-
iiðarnir voru þar enn. Þegar
voraði börðust þeir enn, fóru
í árásarleiðangra, unnu skemd
arverk og refsuðu svikurum.
Fn þeir spöruðu aðalherinn
þar til Bretar og Bandaríkja-
menn gerðu innrás sína.
Frakki, sem komst undan
frá Frakklandi til Algiers,
sagði: „Þeir dagar munu
koma, að sungið verður í
Frakklandi, og þá verða það
hinir hugdjörfu skæruliðar
frönsku Alpanna, sem munu
syngja fullum hálsi".
Þjóðverjar taka franska
karlmenn með sjer.
LONDON í gær: —, Þjóð-
verjar hafa þann sið, að þegar
þeir hörfa undan bandamönn-
um í Frákklandi, þá taka þeir
með sjer alla franska karlmenn
á aldrinum 18—45 ára (menn
sem eru á herskyldualdri).
Franskir karlmenn reyna þó að
strjúka frá Þjóðverjum og
daglega koma tugir Frakka til
stöðva bandamanna í Frakk-
landi og bjóðast til að ganga í
lið með bandamönnum, til að
berjast gegn Þjóðverjum.
— Reuter.
ÞESSI stórmerka kona er
fædd 19. júlí 1854. Fyllir híin
,því í dag nítugasta aldursár
sitt. llerdís hefir nú í meir
en sextíu ár stjórnað stór-
búi á Varmalæk. Hefir hún
enn með höndum búsforráð
og heimilisstjórn með góðri
.aðstoð tveggja sona sinna og
tengdadóttur.
Að díkindum er Ilerdís á
Varmalæk sú eina kona á ollu
Islandi, sem nú ræður yfir
stórbúi níutíu ára gömul, enda
hefir henni ekki verið fisjað
saraan. Samfara óviðjafnan-
legt-i hagsýni og viljafestu
hefit starfsþróttur hennar ver
ið frábær. Þótt hún hafi ætl-
að öðrum mikið hvað fram-
tak og athafnir snertir, þá
hefir hún jafnframt og um-
tölulaust ætlað sjálfri sjer
þyngsta hlutverkið. Með þess-
ari vakandi umönnun og ó-
sjerplægni, samfara hógværri
heimilisstjórn hefir hún notið
mikils álits og almennra vin-
sælda.
Herdís var elst af dætrum
hins kynsæla gáfnamanns,
Sigurðar Vigfússonar í Efsta-
bæ og konu hans, Iíildar Jóns
.dóttur, sem komin var af ein-
hverjum bestu bændaættum,
sem búið hafa í Borgarfjarð-
arhjeraði á síðari öldum. —
Herdís varð ekki afskipt þeim
.bestu kostum ættar sinnar,
sem eru: búvit, bókvit og
skapfesta.
Ilerdís hefir verið gæfu-
kona á flesta lund. .Manni
sínum, Jakobi Jónssyni, unni
hún hugástum. Voru þau sam-
hent og samtaka í öllu, sem
laut að ráðum og dáð. Börn
þeirra fimm, ein dóttir og
fjórir synir, sem til aldurs
komust, voru öll mætavel gef-
in, svo hefir og verið um
tengdabörn hennar og barna-
börn. Hefir alt þetta skyídu-
lið verið samtaka í því að
gera þessari háöldruðu merk-
iskonu lífið sem Ijettæst. Ekki
lætur hún heldur sitt eftir
liggja að launa í orðum og
verkum alt það, sem henni er
gott gert.
Með gleði og þakklæti get-
ur hún nú litið til baka yfir
langan og á flesta lunnd ó-
venju gæfuríkan æfidag. Og
hina góðu bújörð sína sjer
hún halda áfram að prýkka
og aukast að ræktun ár frá
ári . vegna athafna tveggja
sona sinna og góðrar tengda-
dóttur.
Á þessum merkilega af-
mælisdegi er Herdísar á
Varmalæk minnst af fjölda
vina nær og fjær, •— bæði með
virðingu og þakklæti. Allir,
sem hafa kynst henni, munu
,játa, að hún hafi 'verið meðal
hinna ágætustu húsmæðra,
sem hafa gert garðinn frSeg-
an. Bæði Herdísi og hverri
annari slíkri konn ber alþjóð-
arþökk. Kr. Þ.
Hergagnaframleiðsla
í Kanada.
LONDON: — í Kanada hafa
verið framleidd til júníloka
hergögn, 450.000.000 sterlings-
punda virði, samtals 650.000
stykki.
Ódýrara gas.
LONDON: — Fjelag eitt í
Manchester hefir fengið einka-
leyfi á uppfinningu, sem mun
Miðvikudagur 19. júlí 1944
A *
— Alsherjarmót I.S.I.
Framh. af bls. fimm.
braut. Úrslitin urðu svo þau,
að Kjartan bar glæsilegan sigur
úr býtum. Hljóp á nýju ísiands
meti, 52.3 sek. Gamla metið,
52,6 setti Sveinn Ingvarsson
1938. Þetta met Kjartans er
ennþá eftirtektarverðara, þar
sem hann hljóp á ystu braut, en
það hefir verið talið rothögg á
hvern 400 m. hlaupara, þá eru
keppinautarnir allir fyrir aftan
í startinu. Hjer er á ferðinni eitt
hvert allra glæsilegasta hlaup-
araefni á milli-vegalengdum,
sem við höfum átt. Brynjólfur
var 2. á 54,0 sek'. Finnbjö^i 3.
á 55,0 og Jóhann 4. á 55,5 sek.
Þrístökkið vann Skúli Guð-
mundsson, stökk 13,64 m. Næst
ur honum var sigurvegarinn frá
í fyrra, Oddur Helgason, Á, með
13,31. Þriðji var Jón Hjartar
með 13,10 m. og 4. Oliver Steinn
með 12,96. Oliver hefir oft stað
ið sig betur í þrístökki, en tvö
stökk, sem hann átti yfir 13 m.
voru ógild. Þá má geta þess að
Jón kom svo að segja beint úr
spjótkastinu í þessa kepni. —
Skúli er prýðilegur stökkvati
og á sennilega eftir að slá met
Sigurðar Sigurðssonar einnig í
þessari grein, en það er 14,00
m.
Það er ómögulegt að segja að
kepni í 5 km. hlaupinu hafi ver
ið hörð. Óskar Jónsson, í. R.,
leiddi það frá byrjun, Indriði
Jónsson, K. R., var annar, en
Steinar Þorfinnsson, A, og Har-
aldur Björnsson, K. R., skift-
ust á um að vera í 3. og 4.
sæti. Tími Óskars var 17:00,0
mín, Indriða 17:06,0 mín. Stein
ars 17:27,0 mín. og Haralds
17:34,0 mín.
Sleggjukastið sigraði Gunnar
Huseby með 37,86 m., 2. Vilhj.
Guðmundsson, K. R., með 36,65
m., 3. Helgi Guðm., K. R., 34,53
m. og 4. Ól. Guðmundsson, í.
R., 28,44 m.
Stigin eftir þriðja daginn: K.
R. 117 st., í. R. 87 st., F. H. 42
st. og Árm. 38 st.
Síðasta daginn var svo 10 km.
hlaup með 2 keppendum og
fimtarþraut með 6 keppendum.
10 km. hlaupið sigraði Indriði
Jónsson á 36:49,8 mín. og Stein-
ar Þorfinnsson var annar á
39:33,6 mín. „
í fimtarþraut var kepni hörð.
Úrslit urðu þessi:
1. Jón Hjartar 2562 st. Lst.
534 st. (5,90), spj. 591 st.
(50,18), 200 m. 443 (26,4), krk.
519 (33,12), 1500 m. 475 st.
(4:50,0).
2. Bragi Friðriksson 2449 st.
(Lst. 575 st. (6,08), spj. 403 st.
(39,33), 200 m. 537 st. (25,2),
krk. 655 st. (38,09), 1500 m.
279 st. (5:26,8).
3. Finnbjörn Þorvaldsson
2343 st. (Lst. 534 st. (5,90), spj.
522 st. (46,35), 200 m. 628 st.
(24,2), krk. 377 (27,48), 1500
m. 282 st. (5:26,0).
4. Einar Þ. Guðjohnsen, KR
2334 st. (Lst. 402 st. (5,29), spj.
484 st. (44,16), 200 m. 488 st.
(25,8) krk. 518 st. (33,10), 1500
m. 442 st. (4:55,4).
Að lokinni kepni afhenti for-
seti íþróttasambandsins, Ben.
G. Waage, formanni K. R., Er-
lendi Pjeturssyni, Allsherjar-
mótsbikarinn.
Stigahæstu menn mótsins
voru: 1. Skúli Guðmundsson
með 26 st., 2. Oliver Steinn 25
st., 3. Finnbjörn Þorvaldsson,
24 st., 4. Gunnar Huseby, 21
st., 5. Jón Hjartar, 18 st. og 6.
Kjartan Jóhannsson 17 st.
Kept var alls í 20 greinum.
Hlaut K. R. stig í 17 þeirra, I.
R. í 16, Ármann 10 og F. H. 7.
í einni íþróttagrein hlaut K. R.
flest 15 st. (sleggjukast), Ár-
mann 12 st. (1500 m. hl.), F.
H. 11 st. (stangarstökk) og I.
R. 10 st. (200 m., spjótkast og
400 m).
Þannig fór Allsherjarmótið
1944. — Til samanburðar má
geta þess, að heildarúrslit næsta
allsherjarmóts á undan, 1942,
voru þannig: 1. KR með 150
stig, 2. Ármann 101 st., 3. FH
51 st., 4. ÍR 11 st. og 5. Umf.
Selfoss 1 st.
Leikaraútpfan
BÓNAÐIR OG
SMURÐIR BÍLAR
H.f. STILLIR- Lauffaveg
168. — Sími 5347.
JHBSE 6AS
(COUPONS, ARE VERV
QOOD, MR.BLUE-JAW.
JUSTUKEFROM
W/\SH/NGTON!
rDO NOT BE FUNNV, MR. BLUE-JA wAm
IKNOW VOU HAVE HERE A COUNT- *
ERFE/T ENGRAVER - SULLV
FEURIK, SOMETIMES
r HOW MUCH
VOU TAKE TO
_ LETME
HT HAVE
RVTCHIE'R
NO SOAR WHEN
VOU WANT MORE
COUPONS, JUEJT
BR/NG MORE ©
MOOLAH!
1) Stiletto: — Þessir bensínskömtunarseðlar eru
ágætir, hr. Blákjammi .... Alveg eins og þeir
kæmu frá Washington!'— Blákjammi: — Ef til vill
er það þaðan, sem jeg hefi fengið þá.
2—3) Stiletto: — Vertu ekki að gera að gamni
þínu, hr. Blákjammi. Jeg veit að þú hefir hjerna
grafletursfalsara — Sully Feurik — sem stundum
er kallaður ,,Itchie“ .... Hvað myndirðu taka fyrir
að láta mig fá „Itchie“? — Blákjammi: — Ekkert
slúður, þegar þig vantar fleiri skömtunarseðla,
komdu þá aðeins með meiri peninga.
4) Fyrir utan: Fjelagi Stiletto: — Jeg er búinn
að rannsaka knæpuna, eins og þú baðst um, hús-
bóndi.
Stiletto: — Ágætt. Jeg geri ráð fyrir að við
komum í „heimsókn” til hr. Blákjamma brátt
aftur.