Morgunblaðið - 22.07.1944, Page 1
31. árgangur.
162 tbl. — Laugardagur 22. júlí 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Uppreisnlii
er ekki bæld
reisnar herforingjarnir komust undan
Götubardagar milli nasista oy þýskra hermanna
Þessir sijórna uppreisninni gep Hiller
Walther von Brauchitsch
Von Keitel.
Uppreisnin upphafið
uð falli Hifiiers
Eftir Alfred Geiringer. frjettaritara
Reuters í Evrópu-málum.
ÞAÐ er ekkert efamál, að nasistar í Þýskalandi berj-
ast nú upp á líf og dauða fyrir tilveru sinni. Það virðist
ekki vera neinn vafi á, að uppreisnin gegn llitler hefir ekki
enn verið-bæl(J niðiír. Enn hafa ekki borist neinar ábyggi-
legar fregnir um hvað skeð hefir, nema það, sem Hitler
sagði í ræðu sinni.
Hlýtui' að hafa
afleiðingar.
Það hefir ekki enn komið fyr
ir í mannkynssögunni, að þjóð-
höfðingi, sem bylting hefir ver-
ið gerð gegn, hafi ekki lýst því
yfir, að hann hefði töglin og
hagldirnar, þar til hann var sett
ur af.
En hvað sem því líður og
hver sem úrslitin kunna að
verða í þeirri byltingu, sem nú
hefir verið gerð, til að byrja
með, þá fer ekki hjá því, að at-
burðirnir, sem gerst hafa, muni
hafa djúp áhrif á þýska her-
inn, sem nú á í vök að verjast
á þremur vígstöðvum.
Erfiðleikar Hitlers liggja
ekki fyrst og fremst í því, hvort
honum tekst að láta Himmler
bæla niður uppreisnina í bili og
vinna bug á herforingjunum,
sem uppreisnina hafa gert, held
ur hitt, hvort þýski herinn vill
berjast, eftir það, sem undan
er gengið.
Þetta geta verið úrslitin.
Fari hinsvegar_svo, að upp-
reisnarmenn verði ofan á í
Þýskalandi, þó ekki sje nema
1 stuttan tíma, og sjerstaklega
ef þeir eiga bandamenn meðal
Framh. á 2. síðu
Síðustu frjéttir
FERÐAMAÐUR, sem ný-
kominn er til Stokkhólms frá
Berlín, segir, að Gestapo-
menn gangi um götur borg-
arinnar með vjelbyssur og
sje þar ríkjandi einskonar
hernaðarástand.
Þá herma óstaðfestar frjett
ir, að 100 þýskir liðsforingj-
ar hafi verið teknir af lífi,
og að tvö þýsk herfylki í
Austur-Prússlandi, sem senda
átti til vígstöðvanna hafi gert
uppreisn.
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞAÐ ERU ALLAR LÍKUR TIL, að Hitler hafi ekki enn tekist,
að berja niður uppreisn þá, sem þýsku herforingjarnir hófu gegn hon-
um í fyrradag. Þrátt fyrir stranga skeytaskoðun og lokun á síma frá
Þýskalandi í allan dag, hafa lekið út fregnir um það, að götubardag-
ar hafi geisað í dag í mörgum þýskum borgum milli S.S.-sveita nasista
flokksins og þýskra hermanna, sem fylgja herforingjunum að málum.
UPPREISNARFORINGJARNIR KOMUST UNDAN.
Þrálátar fregnir hafa gengið um það frá meginlandinu í dag, að
það sjeu helstu herforingjar Þjóðverja, von Keitel, von Brauchitsch
og von Bock, sem standa á bak við uppreisnina gegn Hitler, og sum-
ar fregnir nefna einnig Halder, herforingja, sem einn af aðalmönn-
um uppreisnarinnar gegn nasistastjórninni. Bárust fregnir um það til
Stokkhólms í dag, að þessir hershöfðingjar hafi allir komist undan
og sjeu á öruggum stað í Þýskalandi.
Göbbels bjargaði
Berlín
rr
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÚTVARP þýska hersins
skýrði frá því í kvöld, að Göbb
els hefði sjeð við tilraun her-
foringja-„klíkunnar“ að ná á
sitt vald stjórnarhverfunum í
Berlín.
I útvarpinu var sagt frá því,
að Remer majór, yfirmaður
varðsveitar Berlínar, hafi bor-
ist skipun um það að taka
stjórnarhverfin í Berlín, því að
Hitler hefði orðið fyrir alvar-
legu slysi, óeirðir myndu vera
í landinu og herinn hefði tekið
stjórnina í sínar hendur.
Remer sneri sjer til Göbbels,
sem sagði honum, að Hitler
væri lifandi. Skömmu síðar tal
aði Remer sjálfur í síma við
Hitler og gaf hann Remer og
sveit hans fyrirskipanir.
Páfi óskar Hitler til
hamingju.
RÓM í gærkveldi: — Það hef-
ir verið tilkynt opinberlega frá
Vatikanríkinu, að páfi hafi sent
Hitler skeyti, þar sem hann ósk
ar honum til hamingju með að
banatilræðið við hann skyldi
hafa mistekist.
Nasistar frjettafáir.
Nasistar eru frjettafáir um ástandið í Þýskalandi, en
láta skína í gegn, að þeir hafi bælt niður uppreisnina
strax, þó þeir segi það ekki með berum orðum. Engar op-
inberar fregnir hafa borist frá Þýskalandi í dag, nema
gegnum útvarp, og stangast þær á í sumum verulegum
atriðum. Nýjustu fregnir nasista herma, að vón Staufen-
berg greifi, sém kom fyrir sprengjunni, er átti að verða
Hitler að bana, hafi verið í sambandi við óvinaríki Þýska-
lands, en í ræðu sinni í gærkveldi sagði Hitler, að það
væri lítlil „klíka” glæpahneigðra og ofstækisfullra þýskra
herforingja, sem hefðu gert uppreisnina.
Frægur hershöfðingi tekinn af lífi.
I gærkveldi höfðu nasistar ekki tilkynt nema tvær af-
tökur vegna uppreisnarinnar. Þýska frjettastofan skýrði
frá því, að von Stauffenberg, sem kom sprengjunni fyrir,
hafi verið skotinn strax eftir tilræðið. Ennfremur sagði
frjettastofan, að Ludwig Beck hershöfðingi „væri látinn”,
en hann hafi verið einn þeirra manna, sem stóð að sam-
særinu gegn Hitler. Beck var yfirmaður herforingjaráðs-
ins þýska 1938, en ljet þá af embætti af eigin ósk. Vitað
var að hann var andstæðingur nasista og var t. d. á móti
hernámi Tjekkóslóvakíu 1938. Hann var mikill vinur
Fritz hershöfðingja, sem fórst á dularfullan hátt í Pól-
landsstríðinu 1939.
Tilræðið var gert í Berchtesgaden.
Óstaðfestar fregnir, sem bárust til Stokkhólms i dag,
hermdu, að tilræðið við Hitler hafi verið gert í sveitasetri
Hitlers í Berchtesgaden. Hitler hafi í þann veginn verið
að hefja umræður við herforingja sína á einkaskrifstofu
sinni. von Stauffenberg, sem var herráðsforingi og náinn
samverkamaður Keitels hershöfðingja, hafi k.omið fvrir
sprengju í einkaskrifstofu Hitlers, en að sprengjan hafi
sprungið aðeins of snemma.
Framh. á 2. síðu